Morgunblaðið - 30.10.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.10.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1977 19 Búið til úr eldspýtum Ótrúlega margt er hægt að búa til úr eldspýt- um. Unnt er að klippa af þeim brennisteininn t.d. og búa til alls kyns myndir eins og sýndar eru hér til skýringar. Einnig er unnt að nota tannstöngla eða litla pinna, sem fást í föndurverslunum. Gott er að nota lituð pappaspjöld til þess að leggja eld- spýturnar á, og ef menn hafa nægan tíma, geta þeir límt eldspýturnar á pappaspjöldin og búið til sín eigin listaverk. Guð elskar alla 1. Minn Guð, þú elskar öll þín börn, þú elskár líka mig. Þú erl niinn skjöldur, skjól og vörn, því skal ég elska þig. 2. Þú gafst oss, herra Guð, þinn son, hve góður Jesús er. Hann hjá mér vekur helga von og liuggun veitir, mér. 3. Ég.kem f Jesú nafni nú, ég náðarþurfi er. Minn blfði faðir, blessa þú þitt barn og líkna mér. 4. 1 ljóssins ríki leið mig inn, og lát mig finna þig, og hæfan fyrir himininn, ó, herra, gjör þú mig. .Sigurbjörn Sveinsson. Nú er rélti líminn til aðl setjast niður og senda okk- ur línu. Barna- og fjöl- skyldusíðan bíður eftir bréfum frá ykkur, frásögn- um sögum eóa kvæðum. Látið nú verða af því að senda bréf! Hver veit ne.ma það birtist þá á síð- unni hérna. Fredenc Chopin (1810—1849) var pólsk franskur að ætt. hann samdi ótal tónverk að mismunandi gerðum. Hann dó fremur ungur og þjáðist lengi af berklum. Hann bjó um tima á Mallorca. sem tilheyrir Spáni og er enn hægt að heimsækja húsið. sem hann bjó i, i Valdemosa. sem líkaminn þarf á að halda, en æskilegra er að fullnægja orkuþörfinni með þvi að borða kornvörur og kartöflur en með þvi að borða sykur. í kartöflum og i kornvörum eru einnig önn- ur næringarefni, sem líkaminn þarf á að halda og þar að auki er síður hætt við að menn borði of mikið af kartöflum og brauði þar sem það hefur mun meiri seðjandi áhrif en sykur. Ef við borðum meira af kolvetnum en líkaminn þarf til orkumyndun- ar setjast þau að í líkamanum og mynda fitulög. Nokkrar ábend- ingar um sykur og sykurneyzlu 'i Sá sem er i megrun verður að hætta að borða sætiifdi milli mála eins og t.d. kökur sælgæti og gosdrykki sem i mörgum til- vikum hafa lítil seðjandi áhrif en eru orkurík matvæli engu að síður. Hér skal á það bent að: 100 g súkkulaði gefa 550 hita- einingar (2300 Kj), 1 gos- drykkjarflaska gefur 140 hita- einingar (585 Kj). Sykur brennur fljótt í liakm- anum og hefur þvi sykurneysla milli mála hressandi áhrif. En það er erfitt að varðveita eðli- lega líkamsþyngd ef borðað er mikið sælgæti að staðaldri. Þar að auki eru slikar venjur skað- legar fyrir tennurnar. Það er þvi áríðandi að venja ekki börn á mikla sykurneyslu. Þeim þykir yfirleitt sæta bragð- ið gott, en þau fara hins vegar ekki fram á að fá dísæt matvæli sí og æ ef þau eru ekki vanin á það. Fullorðið fólk sem vill gleðja börn á því ekki að færa þeim sælgæti heldur ávexti. Það er einnig ástæðulaust að láta mikinn sykur í barnamat jafnvel þótt barnið sé lystar- laust og að sjálfsögðu á ekki að dýfa snuðinu í hunang eða syk- ur áður en barninu er fengið það. Fullorðið fólk getur einnig vanið sig á að nota minni sykur í mat. T.d. er ástæðulaust að láta mjög mikinn sykur í ávaxtagrauta og saftsúpur eða strá miklum sykri út á súr- mjólk, skyr og kornflögur. Kaffi og te mætti einnig venja sig á að drekka sykurlaust. Einn sykurmoli (3 g) gefur 12 hitaeiningar. Einnig skal á það bent að sykurmagnið í eftirtöldum mat- vælum er sem hér segir: i sætum kökum um 20% i sultu og saft, framleitt í verksmiðju í korfekti í m jólkursúkkulaúi i niðursoðnum ávöxtum i sætum svaladry kkjum um 00% um 50% ii m 45% u m 20 % um 10—12% Sykur er ódýr matur. Hann Framhald á bls. 31 Sölusýning á handavinnu vistmanna Arnarholts Kjalarnesi, verður haldin að Hallveigarstöðum sunnudaginn, 30. okt. fiá kl 13.00—19.00 Margt fallegra og góðra muna, t.d gólfteppi, málverk, útsaumur, leikföng og margt fleira. Geðdeild Borgarspítalans í Arnarholti. Sölusýning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.