Morgunblaðið - 04.11.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÖVEMBER 1977
Tíu í prófkjör
Sjálfstæðisflokks-
ins á Vesturlandi
PRÖFKJÖR sjálfstæðismanna í
Vesturlandskjördæmi fer fram
dagana 26. og 27. nóvember og
rennur framboðsfrestur út á laug-
ardaginn. Að sögn Halldórs
Finnssonar, formanns kjördæm-
isráðsins, eru báðir þingmennirn-
ir, Friðjón Þórðarson og Ingi-
bergur Hannesson, ákveðnir f að
gefa kost á sér í prófkjörið og Jón
Sigurðsson varaþingmaður stað-
festi við Mbl. að hann myndi taka
þátt í prófkjörinu.
í samtölum við Mbl. í gær stað-
festu einnig eftirtalin þátttöku
sína i prófkjörinu: Inga Jóna
Þórðardóttir og Valdimar
Indriðason, Akranesi, Ófeigur
Gestsson, Hvanneyri, Árni Emils-
son, Grundarfirði, Anton Ottesen,
Ytri-Hólmi og Óðinn Sigþórsson,
Einarsnesi. Auk þeirra mun Jósef
H. Þorgeirsson, Akranesi, ætla að
gefa kost á sér, en Ásgeir Péturs-
son, Borgarnesi, sagði í samtali
bið Mbl. að hann myndi ekki taka
þátt í prófkjörinu.
Samkvæmt þessu eru komnir
tíu, sem verða á prófkjörslista
Sjálfstæðisflokksins í Vestur-
landskjördæmi.
Undanrennuduf tið:
„Einn kosturinn er að
loka verksmiðjunum”
Frá þingstörfum í gærdag.
Viðskiptaþing 1977:
segir Davíð Scheving Thorsteinsson
Nýsköpim íslenzkra fjármála
aðalumræðuefni þingsins
„MÁLIÐ lítur einfaldlega þannig
út, að 1969 þá voru viðræður milli
þriggja ráðherra þáverandi rfkis-
stjórnar, Jóhanns Hafstein,
Karl Schiitz.
Jólabækumar:
Ein eftir
Schiitz
MEÐAL þeirra bóka sem koma
á markað nú i haust er bók um
og eftir þýzka rannsóknarlög-
reglumanninn Karl Schutz
sem vann að rannsókn
nokkurra sakamála hérlendis
fyrir skemmstu. Heitir bókin á
íslenzku Sakamál 1081 ogfjall-
ar um sakamál sem á sfnum
tfma vakti mikla eftirtekt f
Vestur-Þýzkalandi. Bókin
kemur út hjá Setberg.
í spjaili við Mbl. í gær sagði
Arnbjörn Kristinsson hjá Set-
berg að bókin Sakamál 1081
fjallaði um morðmál nokkurt
er skeði i smábænum Lebach í
V-Þýskalandi árið 1969. Voru
þá myrtir fjórir sofandi
hermenn, að því er virtist án
nokkurs tilgangs, að sögn
Arinbjarnar. Vakti atburður-
inn mikla athygli og til að
rannsaka málið voru fengnir
um eitt hundrað rannsóknar-
Framhald á bls 18.
Akureyri:
Adrir tónleik-
ar vetrarins
Akureyri, 3. nóvember.
AÐRIR tónleikar Tónlistarfélags
Akureyrar á þessu starfsári verða
í Borgarbíói á laugardaginn og
hefjast kl. 17. Þar leikur Philips
Jenkins á píanó verk eftir Mozart,
Fauroe, Chopin og Szymanovski.
Húsfyllir var á fyrstu tónleikun-
um, þar sem Sigríður Ella
Magnúsdóttir flutti ljóðasöngskrá
með aðstoð Ólafs Vignis Alberts-
sonar við feikna hrifningu áheyr-
enda. Sv.P.
Magnúsar Jónssonar og Gylfa Þ.
Gfslasonar, og urðu þá að sam-
komulagi viss atriði milli
iðnaðarins og rfkisvaldsins.
Meðal þeirra atriða er það sem
var nefnt í fimmta lið 3, að inn-
lendur iðnaður fái jafnan innlent
hráefni á heimsmarkaðsverði.
Þetta samþykktu ráðherrarnir og
á grundvelli þessa samkomulags
samþykkti iðnaðurinn að ganga í
EFTA, og það er mjög drengilegt
af Halldóri E. Sigurðssyni land-
búnaðarráðherra að vilja standa
við þetta samkomulag ríkisstjórn-
ar, sem er önnur á undan þeirri
sem nú er,“ sagði Davíð Scheving
Thorsteinsson formaður Félags
ísl. iðnrekenda þegar Morgun-
blaðið leitaði til hans vegna um-
mæla Halldórs E. Sigurðssonar
landbúnaðarráðherra um að inn-
lendur iðnaður ætti að fá innlent
hráefni á sama verði og heims-
markaðsverð væri hverju sinni,
en eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu hafa kexverk-
smiðjur þurft t.d. að borga 330 kr.
fyrir hvert kg af undanrennu-
dunfti á sama tíma og hægt er að
kaupa duftið á 80—100 kr. kflóið
erlendis. Framhald á bls 18.
VIÐSKIPTAÞING Verzlunarráðs
tslands hófst að Hótel Loftleiðum
í gær. Aðalumræðuefni þingsins
er „Nýsköpun fslenzkra fjár-
mála“. Þingið, sem var fjölsótt,
hófst með þvf að Gfsli V. Einars-
son formaður Verzlunarráðs Is-
lands flutti stutt ávarp og setti
þingið, sem er annað þingið, sem
Verzlunarráð gengst fyrir.
Þá flutti forsætisráðherra, Geir
Hallgrímsson, stutt ávarp, þar
sem hann m.a. kom inn á, að
nauðsynlegt væri að draga úr
þeim höftum, sem í gildi hafa
verið, hvað varðar gjaldeyrismál
þjóðarinnar.
Að ávarpi forsætisráðherra
loknu voru flutt fjögur mjög ýtar-
leg erindi um stöðu íslenzkra fjár-
mála, en fyrstur talaði Gísli V.
Einarsson, formaður Verzlunar-
ráðs íslands. Hann flutti stefnu-
ræðu sína, sem hann nefndí, Ný-
sköpun islenzkra fjármála, heil-
brigt fjármálalíf og frelsi til at-
hafna á jafnréttisgrundvelli getur
orðið aflvaki nýrra efnahagslegra
framfara.
Næstur honum talaði Ólafur B.
Ólafsson, Miðnesi h.f., og flutti
hann mjög ýtarlegt erindi um
þjónustu innlendra lánastofnana
við atvinnulifið, hver hún er og
hvernig hún þyrfti að breytast.
í forföllum Víglunds Þorsteins-
sonar talaði Árni Árnason hag-
fræðingur Verzlunarráðs um
„Hverjir hafa aðgang að erlendu
fjármagni", og jafnframt hvort
æskilegt væri að gera erlenda
fjármögnun frjálsari.
Að lokum flutti Ottó Schopka
erindi, er hann nefndi „Grund-
vallarskilyrði eðlilegs fjármagns-
markaðar á íslandi í ljósi þeirrar
PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna i
Reykjaneskjördæmi fer fram
dagana 4. og 5. febrúar nk. og
rennur framboðsfrestur út 15.
desember. Ellert Eiríksson, for-
maður kjördæmisráðsins, sagði,
að þingmennirnir Matthías Á.
Matthiesen, Oddur Ólafsson og
Olafur G. Einarsson væru ákveðn-
ir að fara f prófkjörið og einnig
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi, Rfkharð Björg-
vinsson, bæjarfulltrúi f Kópavogi,
og Rafn Pétursson, fiskverkandi,
Njarðvíkum. Eins og Mbl. hefur
ismanna í
„ÞAÐ eru fimm spurningar, sem
ákveðið hefur verið að bera fram
til skoðanakönnunar samfara
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins f
Reykjavík til skipan lista flokks-
ins við næstu alþingiskosningar,
en prófkjörið fer fram dagana
19., 20. og 21. nóvember n.k.,“
sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, framkvæmdastjóri fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna f
Reykjavfk, í samtali við Mbl. f
gær.
spurningar, hvaða skilyrði þurfi
til, svo að almenningur fái áhuga
á að leggja láns og áhættufé í
atvinnuvegina'*.
Að þessum framsöguerindum
loknum var skipt upp í sjö um-
ræðuhópa sem ræddu hin ýmsu
mál, s.s. þjónustu viðskiptabank-
anna við atvinnulffið, lánasjóðir
og opinber fjárskömmtun, erlent
fjármagn, Seðlabankinn og stjórn
peningamála, fjárfesting, arð-
semi, hagvöxtur, skilyrði og þörf
verðbréfamarkaðar og að lokum
var rætt um vexti, vfsitölubind-
ingu og verðbólgu.
Þingið mun sfðan halda áfram í
dag og þvf lýkur um klukkan
18.00 með því að ályktanir verða
afgreiddar.
skýrt frá ætlar Axel Jónsson al-
þingismaður ekki að gefa kost á
sér. Helgi Hallvarðsson skipherra
staðfesti f samtali við Mbl. í gær,
að hann ætlaði að gefa kost á sér f
prófkjörið.
Albert K. Sanders, bæjarstjóri í
Njarðvikum, sagði i samtali við
Mbl. að hann biði þess, hvað kæmi
út úr þeirri könnun, sem nú væri
unnið að i sambandi við forval á
Suðurnesjum til prófkjörsins.
Tómas Tómasson, sparisjóðsstjóri
í Keflavík, sagði, að hann væri,
Framhald á bls 18.
Reykjavík
Til þess að fá spurningu lagða
fram þurfa að minnsta kosti 300
flokksbundnir sjálfstæðismenn í
Reykjavík, sem rétt hafa til þátt-
töku i prófkjörinu, að undirrita
beiðni þar að lútandi og má eng-
inn bera fram fleiri en eina
spurningu. Vilhjálmur sagði, að
skilafrestur rynni út 10. nóvemb-
er, en þeir, sem hyggjast bera
fram spurningu verða að hafa
lagt hana fyrir stjórn fulltrúa-
Framhald á bls 18.
Grænlenzk kvöldvaka
í Hamrahlíð í kvöld
TUTTUGU og tveggja manna
hópur grænienzkra kenn-
ddnneearanema frá Kennara-
skóla Grænlands f Godtháb er
nú staddur hér á landi í náms-
og kynnisferð. 1 kvöld kl. 20.30
munu Grænlendingarnir halda
kvöldvöku f sal Menntaskólans
í Hamrahlíð og eru allir vel-
komnir meðan húsrúm Ieyfir.
Á kvöldvökunni munu Græn-
lendingarnir syngja, dansa,
lesa Ijóð og grænlenzkar sagnir
og þeir verða klæddir hinum
sérstæðu og fögru þjóðbúning-
um sfnum. Kvöldvakan mun
standa f liðlega eina klukku-
stund.
Kennaranemarnir komu
hingáð sl. laugardag og sfðan
hafa þeir farið viða. Þeir fóru
um Suðurland sl. sunnudag,
skoðuðu m.a. Álverið, Álafoss
og Ijgjcamikverkstæði Stein-
unnar Marteinsdóttur í Huldu-
hólum sl. mánudag, en á þriðju-
dag, miðvikudag og fimmtudag
hafa þeir kynnt sér starfsemi
fjölmargra skóla í Reykjavíkur-
svæðinu. Á morgun fer hópur-
inn4 til Vestmannaeyja með
Hérjólfi, gistir þar eina nótt og
á sunnudagsmorgun verða
Eyjar skoðaðar, en síðan -fer
hópurinn aftur til fastalandsins
með Herjólfi á sunnudag.
Heimleiðis fara Grænlending-
arnir á þriðjudag með flugi
beint til Grænlands.
A grænlenzku kvöldvökunni f
Menntaskólanum f Hamrahlfð f
kvöld munu Grænlendingarnir
syngja, dansa og lesa upp. Þessi
stúlka raun m.a. syngja og lesa
sjóð. Ljósmynd Mbl. Ragnar
Axelsson.
Reykjaneskjördæmi:
Átta ákveðnir í próf-
kjör sjálfstæðismanna
- forval á Suðumesjum
Fimm skoðanakannanir
með prófkjöri sjálfstæð-