Morgunblaðið - 04.11.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.11.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÖVEMBER 1977 23 Minning: ÁSLA UG BORG Fædd 2. desember 1909 Dáin 31. október 1977 Aslaug var fædd í Reykjavík, dóttir hjónanna Stefaniu Guð- mundsdóttur leikkonu og Borg- þórs Jósefssonar bæjargjaldkera. Ada var sólargeisli i foreldrahús- um og hvar sem hún fór. Arið 1937 fluttist hún til Dan- rnerkur á heimili Önnu Borg, syst- ur sinnar, og rnágs sins, Paul Reumerts, og þar var hún þeirn og sonum þeirra stoð og stytta. Áda var einstakur persónuleiki. Leitaði aldrei síns eigin heldur að þörf þeirra, sem henni þótti vænt um. Er það ekki sú raunverulega hamingja í lífinu að vera hafin yfir eigin hagsmuni, að þykja svo vænt um aðra, að allt annað verð- ur hisrni? Áda átti einnig sterkan vilja og mikinn kraft, sem hún beitti gegn öllu falsi, öllu sem henni fannst óréttlátt. Þegar handritamálið var á dagskrá, rifust þær systur Áda og Anna hvenær sem var og hvar sem var og Paul Reumert hafði gaman af. Áda var hugljúf Dönum, en þó alltaf íslendingur. „Þó ad kali lieitur liver hvlji dali jökull ber steinar tali <>k allt livað er aldrei skal én gleyma þér.“ Þökk fyrir langa og sanna vin- áttu og eins og hún var vön að kveðja: ,,Pá gensyn." Erla Egilson Það er alltaf sárt að kveðja góð-1 an vin. Vin, sem maður hefir átt, svo lengi sem minnið tiær. Vin, sem alltaf var tilhlökkun að sjá aftur og aftur. Þótt stundum liðu mörg ár milli endurfunda og fjar- lægðin væri mikil rnilli okkar var samband okkar alltaf náið. Bréfin okkar, gjafirnar og kveðjurnar hennar brúuðu hina djúpu Atl- antsála. Hún var okkur öllum svo góð og ljúf frænka. Nú sjáumst við ekki framar hérna megin lífs, en einhvern tíma hittumst við aft- ur, og það verða kærir endurfund- ir. Áslaug Borg, fæddist í Reykja- vík, 2. desember 1909, dóttir hjón- anna frú Stefaníu Guðmundsdótt- ur leikkonu og Borgþórs Jósefs- sonar bæjargjaldkera. Hún ólst upp í foreldrahúsum við hlið 5 systkina. Var hún þeirra næst- yngst. Áslaug lauk námi við Kvennaskólann í Reykjavík. Vann svo í mörg ár í bókabúð Eggerts P. Briem í Austurstræti 1. fólkið á leikhúsinu og það mat hana að verðleikum. Áslaug hafði alveg sitt vit á leikhúsmálum og Iá ekkert á áliti sfnu, ef spurð var. Eftir að Anna Borg fórst í flug- slysi 1963 hélt Áslaug heintiji fyr- ir Poul Reumert, mág sinn, þar til hann dó árið 1968. Það var ævintýri að kynnast Reumerts heimilinu. Þar var ríki- dæmi, þar var inenning og þar var saga að gerast. Ein perlan á heint- ilinu var Áslaug Borg. Hún hugs- aði fyrst um alla aðra en sig sjálfa. Hún var óþreytandi, leysti hvers manns vanda og virtist hafa tíma fyrir allt og alla. Seinustu árin var hún þó oft bæði lasin og kvalin. En aldrei gafst hún upp og einhvern veginn endurnýjaðist kraftur hennar aftur á ný. En nú er hún dáin og við það hefir geisladýrð Kaupmannahafnar fölnað. Geislinn hennar Áslaugar Borg lýsir henni þó enn, og nú á nýjan veg. Hann lýsir einnig upp minningu hennar hjá þeim, sem hana þekktu, um ókomin ár. Það vildu sjálfsagt margir óska þess að eignast jafn skæran geisla og hún átti Áslaug Borg. Ragnar Borg. ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðúm fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili. Borgartún 29 samastadur fyrir bílaeigendur Þar veitum við (innandyra, sem utan) alhlióa hjólbarðaþjónustu. Seljum allar tegundir af hjólböróum frá ATLAS og YOKOHAMA Framkvæmum allskonar hjólbarðaviögeróir. Höfum tekið í notkun mjög nákvæma rafeindastýrða hjólastillingavél (,,ballansering“) Verið velkomin og reynið þjónustuna. Véladeild HJÓLBARÐAR Sambandsins Árið 1938 fór hún til Kaup- mannahafnar og nam þar ljós- myndaiðn, bæði á skóla og hjá Kehlet, sem var einn þekktasti Ijósmyndari, þar i landi. Sem ljós- myndari vann hún síðan hjá Kehlet. Veitti eftir nokkur ár for- stöðu útibúi ljósmyndastofu hans í Charlottenlund og sá samtimis um tvær aðrar ljósmyndastofur hans. Árið 1948 fór Áslaug til London og lærði þar röntgen- myndatöku. Hóf hún siðan, árið 1949, störf hjá Ortopædisk Hospi- tal í Kaupmannahöfn og starfaði þar í 26 ár. Vann hún bæði sem Yöntgenmyndari og ljósmyndaði ennfremur ýrnsar vandasamar skurðaðgerðir, sent læknar spital- ans vildu skrásetja og skoða betur seinna. Áslaug lét af störfum hjá spítalanum fyrir rúmu ári siðan, vegna vanheilsu. Það var sama hvar Áslaug Borg var. Hún skapaði alltaf góðan anda i kringum sig, var vinsæl af öllunt og átti stóran vinahóp. Hún var afkastamikil, ákveðin, fjör- mikil og skemmtileg. í Kaupmannahöfn bjó hún ætíð hjá Önnu, systur sinni og manni hennar Poul Reumert. Þau hjónin léku bæði mikið á Konunglega leikhúsinu og voru auðvitað oft á leiksviðinu á kvöldin og að heirn- an við æfingar á daginn. Það kom því æði oft i hlut Áslaugar að sjá um að allt gengi sinn vana gang heimavið og það gerði hún með reisn og dugnaði. Vinir Reumerts hjónanna voru einnig hennar vin- ir. Auðvitað þekkti hún líka allt Sjálfvirki ofnkraninn Ný gerð- öruggureinfaldur- smekklegur Kraninn með innbyggt þermóstat er hvíidarlaust á verði um þægindi heimilisins, nótt og dag afstýrir hann óþarfa eyðslu og gætir þess, að hitinn sé jafn og eðlilegur, þvi að hann stillir sig sjálfur án afláts eftir hitastigi loftsins í herberginu. Fyrir tilstilli hans þurfið þér aldrei að kvíða óvæntri upphæð á reikningnum, né þjást til skiptis af óviðráðanlegum hita og kulda í eigin ibúð, af þvi að gleymdist að stilla krana eða enginn var til að vaka yfir honum. BYGGINGAVÖRUSALA S SAMBANDSINS Suðurlandsbraut 32 Reykjavik sími 8 2033 AUGLÝSINGASTOFA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.