Morgunblaðið - 04.11.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÖVEMBER 1977
F ærð nokkuð góð á landinu
FÆRÐ á veguin landsins er nú
almennt nokkuð góð miðað við
árstíma. nema þá á Vestfjörðum,
þar sem margir fjallvegir hafa
teppzt.
Samkvæmt þeim upplýsingum.
sem Morgunblaðið fékk í gær hjá
vegaeftirlitinu, þá er vfðast hvar
góð færð á Suðurlandi, í Borgar-
firði er færðin sæmileg, en þar
hefur snjóað aðeins og þvf hált á
vegum. A Snæfellsnesi er örlftill
snjór á vegum, en færð þó ágæt.
Úr Dölum var það ^að frétta, að
færð var farin að þyngjast f gær f
Svfnadal, og Brattabrekka var þá
ekki lengur fær fólksbflum.
Á Vestfjörðum, þar sem færðin
er verst á landinu, var Hrafns-
eyrarheiði talin fær jeppum og
stórum bílum, verið var að moka
Breiðadalsheiði og jeppafæri var
í Súgandafjörð.
Af Norðurlandi höfðu þær
fréttir borizt, að ágæt færð var i
Húnavatnssýslum, en hált var á
vegum í Skagafirði, í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum var hins vegar
Úrval af vönduóum vörum. M.a. frá:
(slenzkar gallabuxur.skyrtur, bolir, jakkar og peysur frá Danmörku
Gallabuxur, skyrtur, bolir og jakkar frá Englandi
Bolir og skyrtur frá Englandi
Blússur og kuldaflíkur frá Englandi
Peysur frá Englandi
II D II II 1 1
BANKASTR/ETI 7. SlMI 2 9122
góð færð. Fært var fýrir stóra bíla
og jeppa til Siglufjarðar en Lág-
heiði var orðin ófær og ekki búizt
við að hún yrði opnuð aftur í
vetur.
Hólssandur var fær jeppum í
gær, sömuieiðis Vopnafjarðar-
heiði, en öxarfjarðarheiði var
orðin ófær, þannig að nú þarf að
fara út með Sléttu. Á Austurlandi
voru alljr fjallvegir færir nema
hvað hálka var á vegum.
Tapaði úri í Sund
laug Vesturbæjar
Siðastliðinn laugardag varð 8 ára
drengur fyrir því óhappi, þegar
hann var í Vesturbæjarsundlaug-
inni að tapa stóru Certina stálúri
með dagatali og teygjuól. Ef ein-
hverjir hafa orðið úrsins varir eru
þeir beðnir að hringja í sima
26423.
Eskifjörður:
Rjúpna-
skyttur
fá allt að
60 rjúpur
Kskifirði. .t. nóvember.
MIKIL sfdarsöltun hefur verið
hér undanfarna daga og oft verið
saltað nótt og dag. Nú mun vera
búið að salta í um 6700 tunnur á
þremur söltunarstöðvum. Mest
hefur verið saltað hjá söltunar-
stöð Friðþjófs h.f., 3000 tunnur.
Síldin hefur verið misjöfn að
stærð, en síldin hefur farið batn-
andi og sú síld sem bátnarnir
hafa komið með siðustu daga hef-
ur verið mjög góð.
Mestan afla í ferð, kom Sigur-
björg ÓF með, um 110 lestir.
Hólmanesið kom í gær með 70
toan af góðum þorski og segjast
sjómenn þar um borð ekki hafa
fengið jafnstóran fisk í langan
tíma.
Rjúpnaveiði er mikið stunduð
hér, en veiði hefur verið misjöfn.
Þeir sem mest hafa fengið, hafa
náð í 60 rjúpur eftir daginn, og
virðist álika mikið af rjúpu á ferð-
um og síðusfu ár.
í gærkvöldi gránaði jörð aðeins
hér í kaupstaðnum, en í dag var
allt orðið mórautt aftur.
Fréttaritari.
Sjópróf í
Gullfaxa-
málinu á
Höfn í dag
SJÓPRÓF vegna atviksins er
Gullfaxi SF 11 sökk i fyrradag út
af Skarðsfjöruvita verða að lík-
indum haldin hjá sýslumanninum
á Höfn i Hornafirði i dag. Friðjón
Guðröðarson sýslumaður sagði i
samtali við Morgunblaðið í gær,
að skipstjóri bátsins ásamt þeim
tveimur skipverjum, sem fóru
með rannsóknaskipinu Árna
Friðrikssyni til Vestmannaeyja,
væru ekki enn komnir til Horna-
fjarðar og væru vart væntanlegir
fyrr en með flugvél sem átti að
koma í morgun.
Þú ert ung og sæt