Morgunblaðið - 04.11.1977, Qupperneq 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1977
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÖVEMBER 1977
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur. Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen.
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Ámi Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. simi 10100.
Aðalstræti 6. sími 22480.
Áskriftargjald 1 500.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 80.00 kr. eintakíð.
Afnám gjald-
eyrishafta
r
Iforystugreinum Morgunblaðsins síðustu daga hefur
verið lögð nokkur áherzla á, að tímabært sé orðið að
afnema siðustu leifar þeirrar haftastefnu, sem ríkti hér á landi
í áratugi, en var hrundið að mestu leyti á fyrstu árum
Viðreisnarstjórnarinnar 1960. Rök hafa verið færð fyrir því,
að höft í verðlagsmálum nái alls ekki þeim markmiðum, sem
þeim er ætlað, heldur séu þau beinlínis skaðleg fyrir neyt
endur. Verðlagshöftin eru hluti leifa gamla haftakerfisins, en
höft og takmarkanir í gjaldeyrismálum eru annar partur
þessara eftirstöðva hins úrelta haftakerfis, sem nauðsynlegt
er að afnema.
Þau gjaldeyrishöft, sem mest koma við almenning, nú á
tímum almennra ferðalaga milli landa, eru þær takmarkanir,
sem eru á gjaldeyrissölu til ferðamanna. Ferðamaður, sem
hyggur á orlofsferð til annars lands fær svo takmarkaðan
gjaldeyri keyptan í banka, að það er á alfra vitorði, að fólk aflar
sér yfirleitt gjaldeyris með öðrum hætti jafnhliða, og þannig
hafa gjaldeyrishöftin stuðlað að því að myndazt hefur svartur
markaður með gjaldeyri og að þvi er virðist ótrúlega mikið
framboð af gjaldeyri á þeim markaði. En höft eru ekki aðeins
slæm haftanna vegna heldur einnig vegna þess, að þeim fylgir
mismunun. Sumir njóta forréttinda fram yfir aðra. Þannig er
það i þessum efnum einnig. Þegar opinber embættismaður
ferðast til útlanda á vegum opinberra aðila, er hann ekki
látinn sæta þeim takmörkunum á gjaldeyrisyfirfærslu, sem
hinn almenni ferðamaður verður að sætta sig við. Og þegar
kaupsýslumaður fer til annarra landa i viðskiptaerindum þarf
hann heldur ekki að sæta þeim takmörkunum, sem hinn
almenni ferðamaður býr við. Auðvitað býður þetta kerfi svo
heim misnotkun þar sem sjálfsagt er hægt að teygja og toga
ferðir í opinberum erindum og viðskiptaerindum með ýmsum
hætti. Hlálegast af öllu verður þetta þó þegar sjómaður af
loðnuskipi, svo dæmi sé nefnt um gjaldeyrisöflun hins
vinnandi manns, hyggst taka sér fri í sólarlöndum eftir að hafa
verið á sjónum meirihluta ársins i misjöfnum veðrum og við
erfiða vinnu. Þá fær þessi maður, sem með vinnu sinni hefur
aflað þjóðinni milljóna i gjaldeyristekjur, þau svör, að hann fái
gjaldeyrisyfirfærslu til orlofsferðar sem vitanlega hrekkur
engan veginn fyrir brýnustu útgjöldum.
Þegar þessi sjónarmið eru höfð i huga, er eðlilegt að við
hugum að því, hvort unnt sé að afnema þessi gjaldeyrishöft.
Nákvæmlega sams konar takmarkanir á gjaldeyrisyfirfærslum
riktu i ísrael þangað til fyrir nokkrum dögum, að þau voru
skyndilega afnumin. Margir óttuðust, að gifurleg ásókn yrði i
gjaldeyriskaup i bönkum, en svo reyndist ekki vera, enda er
hægt að treysta þvi, ef almenningur á greiðan aðgang að
eftirsóttri vöru, fer ekkert hamstur fram. Þau gjaldeyrishöft,
sem hér er talað um að afnema, eru ekki þess eðlis, að þau
mundu skipta nokkrum sköpum fyrir gjaldeyrisstöðu þjóðar
búsins. En jafnframt er líka sú hlið á þessu gjaldeyrismáli, að
einstaklingar og fyrirtæki afla gjaldeyris erlendis með ýmsum
hætti. Lengi hefur verið haft á orði, að einstakiingar ættu
verulegar gjaldeyrisinnstæður erlendis, en aldrei hefur það
verið sannað. Hitt er Ijóst, að fjöldinn allur kaupir erlendan
gjaldeyri á svörtum markaði. Einhvers staðar frá kemur sá
mikli gjaldeyrir, sem gengur kaupum og sölum á hinum frjálsa
gjaldeyrismarkaði hér á landi, ef svo má að orði komast, sem
almenningur hefur búið til af brýnni nauðsyn. Enginn vafi er á
því, að ef frjálsræði ríkti á þessu sviði og fólk mætti eiga gjaldeyri
í íslenzkum bönkum, mundi geysilega mikill gjaldeyrir koma
fram, sem hingað til. hefur ekki skilað sér, en notast
almenningi með öðrum hætti. Þessa aðferð hafa ísraelsmenn
notað og búast áreiðanlega við því, að miklar gjaldeyristekjur
muni skila sér betur en þær hafa gert hingað til. Við þurfum
að ihuga þessi mál og hyggja að því, hvort unnt sé að afnema
gjaldeyrishöftin í landinu. Sjálfsagt er að rasa ekki um ráð
fram, en með sama hætti og afnám verðlagshafta mundi blása
nýju lífi í íslenzkt viðskiptalíf, mundi afnám gjaldeyrishafta
verka þannig á þjóðlífið, að fargi hefði verið af því létt og
heilbrigðari viðhorf rikja. Það er nú einu sinni svo að menn
ögra vitlausum lögum, m.a. i því skyni að með þvi verði þeim
breytt til batnaðar. Og reynslan sýnir að fólk hvorki virðir né
fer eftir þeim lögum og reglum, sem því finnst brjóta í bága
við heilbrigða skynsemi, jafnvel frumstæðustu mannréttindi.
Þannig lítur almenningur m.a. á gjaldeyrislögin.
Hér fer á eftir i heild stefnuræða Geirs Hallgrims-
sonar, forsætisráðherra, sem flutt var á Alþingi i
gærkvöldi:
Á þriggja ára .starfsferli hefur ríkisstjórnin glímt við
margvísleg örlagarík vandamál bæði á innlendum vett-
vangi og í skiptum við aðrar þjóðir. Almennt má full-
yrða, að tekist hafi að leiða þessi mál til lykta á þann
veg, að þjóðarhagsmunir hafa verið tryggðir.
í upphafi síðasta þings gerði ég grein fyrir lokaáfanga
þeirrar stefnu, að íslendingar fengju full yfirráð yfir
200 mílna fiskveiðilögsögunni. Árangur þeirrar stefnu
kemur skýrt fram, þegar litið er til afla útlendinga við
ísland á þessu ári í samanburði við 1976. í ágústlok s.l.
höfðu útlendingar veitt hér við land 8.000 tonn af
þorski frá því í ársbyrjun, en 50.000 tonn á sama tíma í
fyrra. Ég læt þetta litla dæmi nægja til að sýna árangur-
inn af stefnunni í landhelgismálinu. Það minnir okkur
einnig á, að löngum veiddu aðrar þjóðir helming eða
meira af þorskaflanum hér við land. Nú sitjum við einir
að þeirri auðlind. Við náðum markmiði okkar að lokum
með samkomulagi við nágrannaríkin, sem við erum í
bandalagi við. Með þessum hætti hefur undirstaða
þjóðarbúsins veríð treyst stórlega og framtíðin er þess
vegna bjartari en ella.
Um þessar mundir er fiskstofnum þannig farið, að við
erum ekki aflögufærir, og þvi kemur ekki að sinni til
frekari fiskveiðisamninga, en áhersla verður lögð á
samvinnu um fiskvernd.
Sigurinn í Iandhelgismálinu nýtist okkur þó ekki til
fulls án frjáls aðgangs að heimsmarkaði fyrir útflutn-
ingsvörur okkar.
Við vaiðveíslu sjálfstæðis þjóðarinnar er ekki nóg að
un um útgjaldaákvarðanir manna. Þessari stefnu hefur
verið framfylgt þannig, að heita má að allur vöruinn-
flutningur er frjáls, en hins vegar er enn úthlutað
leyfum fyrir gjaldeyrisgreiðslum til annars en vöruinn-
flutnings, þó að mestu eftir föstum almennum reglum,
og ströng skilaskylda er á öllum gjaldeyri, sem menn
afla.
Það er hafið yfir allan vafa, að frjálsræðisstefnan
hefur gefist vel í efnahagsmáium og leitt til mikilla
framfara, þótt við margvislegan vanda hafi verið að
glíma. Gæta þarf jafnvægis i efnahagsmálum og leió-
rétta timanlega misræmi milli innlends og erlends
verðlags, sem upp kann að koma, ef reka á þjóðarbú-
skapinn farsællega við skilyrði frjálsræðis í innflutn-
ingi og framkvæmdum. Þetta kann oft að verða erfitt i
framkvæmd, en er þó eina færa leiðin. Haftabúskapur
leysir engan vanda heldur frestar honum og magnar og
færir úr lagi marga þætti í efnahagsmálum, þjóðinni til
tjóns. Af þessu hefur þjóðin bitra reynslu. Frelsi i
viðskiptum og atvinnulífi er forsenda gróandi þjóðlífs
og góðra iifskjara.
ÞJÓÐARHAGUR OG LÍFSKJÖR
Batinn, sem hófst i islenskum efnahagsmálum á árinu
1976, hefur haldið áfram á þessu ári. Horfur eru á, að
þjóðarframleiðsla aukist um rúmlega 4% og þjóðartekj-
ur um meira en 7%. Viðskiptahalli virðist munu verða
um 1% af þjóðarframieiðslu samanborið við 1.7% 1976
og 11—12% 1974 og 1975.
Atvinna hefur verið yfrið nóg og frekar borið á
manneklu. Allt ber þetta árferði og efnahagsstefnu
jákvætt vitni, en hitt er verra, að horfur eru á að
aukning verðbólgunnar sem um mitt ár var komin niður
veita nú, þannig að fram til þess að nýskipan lífeyris-
kerfisins tekur gildi, hefðu engir minni lífeyrissjóðs-
réttindi en lögin um eftirlaun aldraðra félaga i stéttar-
félögum ákveða. Að þessu verkefni er nú unnið og að
því stefnt, að tillögur þar að lútandi verði lagðar fyrir
þetta þing. Það er hverri menningarþjóð metnaðarmál
að búa vel að þegnum sinum að lokinni starfsævi, eða
þegar starfsþrek brestur.
ÞJÓÐHAGSHORFUR OG
STEFNANí EFNAHAGSMALUM
Allar horfur eru á því, að þjóóarframleiðslan geti
aukist um 4% á næsta ári, en ekki sýnist óhætt að
reikna með því að viðskiptakjörin haldi áfram að batna.
Innlenda eftirspurn verður því að miða við það að halda
vexti þjóðarútgjalda innan þeirra marka, sem aukning
þjóðarframleiðslu setur, ef viðskiptahalli og skulda-
söfnun erlendis eiga ekki að aukast og unnt á að reynast
að halda aftur af verðbólgunni. En hætt er við, að
verðbólgan aukist enn á ný í kjölfar launasamninganna,
þar sem samningarnir fela ekki aðeins í sér miklar
beinar kauphækkanir, heldur einnig mun virkari tengsl
milli verðlags og launa en áður, sem þrengja um leið
svigrúm stjórnvalda til efnahagslegra aðgerða.
Nýafstaðin kjaradeila við opinbera starfsmenn, sem
lauk eftir harðsótt verkfall með nokkrum launahækk-
unum umfram hina almennu samninga og rökstuddar
eru með því að opinberir starfsmenn hafi að undan-
förnu dregist aftur úr í launum — mun enn auka á
verðbólguvandann, beint og óbeint.
Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að mörkuð sé
samræmd heildarstefna og afstaða tekin til markmiða
og leiða í efnahagsmálum.
neinu til fórna í eigin kröfugerð í því skyni að lækna
þessa þrálátu meinsemd íslensks efnahagslífs. Sumir
virðast jafnvel trúa þvf, að Verðbólgan sé beinlínis til
góðs, örvi atvinnustarfsemi og framkvæmdahug. Er þá
m.a. vísað til þess, að atvinna og fjárfesting hafi verið
meiri hér á landi síðustu árin en i flestum nágranna-
löndum okkar þar sem verðbólga hefur verið miklu
minni.
Þessi skoðun er á misskilningi byggð. Ástæðan fyrir
þvi, að tókst að halda uppi svo mikilli atvinnu 1974 og
1975, þrátt fyrir versnandi viðskiptakjör, var m.a. fólgin
i umframeyðslu þjóðarbúsins og stórfelldri erlendri
skuldasöfnun. En einnig skipti hér miklu máli, að
dregið var úr óraunhæfum kaupmætti tekna almenn-
ings og þar með þjóðarútgjöldum, auk þess sem stjórn-
völd beittu sér fyrir margháttuðum ráðstöfunum til
þess aó tryggja ótruflaðan rekstur atvinnuveganna. Á
árinu 1976 og á fyrri hluta þessa árs áttu batnandi
viðskiptakjör og góður hagur útflutningsframleiðslunn-
ar mikinn þátt i að halda uppi mikilli atvinnu.
Öll rök og reynsla bæði Islendinga og annarra þjóða
sýnir, að taumlaus verðbólga hlýtur að leiða til greiðslu-
halla út á við, minnkandi atvinnu og síðar atvinnuleys-
is. Engin þjóð getur forðast óhagstæðar afleiðingar
verðbólgunnar með því einu að safna erlendum skuld-
um, nema í skamman tíma. Þegar til lengdar lætur,
verða framkvæmdir og uppbygging atvinnuveganna að
byggjast á sparnaði landsmanna sjálfrá, en grundvöllur
hans er traust atmennings á sparifé og verðbréfaeign,
svo og heilbrigð starfsemi fjármálastofnana. Hvoru
tveggja er stefnt í voða með þeirri verðbólgu, sem nú
geisar hér á landi.
Rikisstjórnin hefur fylgt þeirri meginstefnu, frá því
launasamningarnir voru gerðir um mitt árið, að veita
aðhald gegn verðhækkunarkröfum. Reynt hefur verið
Stefnuræda Geirs Hallgrimssonar, forsætisráðherra á Alþingi:
Veruleg aukn-
kaupmáttar
launa á þessu ári
Launþegar hafa endurheimt rauntekjur frá velmegunarárum og meira en þad
sýna staðfestu gagnvart öðrum og gera ráðstafanir til að
tryggja öryggi landsins. Hitt er ekki síður mikilvægt, að
stjórn innanlandsmála og samskipti okkar innbyrðis
séu með þeim hætti, að virðingu veki og traust. Við
skulum minnast þess, að íslendingar misstu sjálfstæði
sitt á þjóðveldistímanum af þvf aó þeir gátu ekki
sameinast um innlent framkvæmdavald. Staðfast fram-
kvæmdavald er ekki síður hyrningarsteinn þjóðfélags-
ins nú og forsenda sjálfstæóis.
Meginreglan um frjálsa samninga um kaup og kjör
milli samtaka launþega og vinnuvéitenda er einn mikil-
vægasti þáttur okkar þjóðskipulags, en hinum frjálsa
samningsrétti fylgja einnig ríkár skyldur. Hæfileg
spenna milli andstæðra hagsmuna getur verið aflvaki
efnahagslegra framfara. En hagsmunatogstreita sem úr
hófi keyrir getur leitt til ófarnaðar. Verkfall opinberra
starfsmanna, sem nýlega er lokið, er enn eitt dæmi um
það, hve erfitt er að fara með kjarasamningamál á þann
hátt, að menn haldi fram réttindum sínum án þess að
missa sjónar á sameiginlegum þjóðarhagsmunum.
Á þessu sviði þurfum við vissulega að ná betri
árangri. En þar með er ekki sagt, að bVeytinga sé þör'f
frá meginreglunni um frjálsa samninga og verkfalls-
rétt, heldur fremur að meiri samheldni gæti og gagn-
kvæms skilnings á vandamálum þjóðarbúsins. Það er
forsenda lýðræóis að einstaklingar og hagsmunasamtök
virði þær leikreglur, sem lög landsins setja.
Eins og aðrar lýðræóisþjóðii', eiga Islendingar stöðugt
við þann vanda að glíma, hvernig tryggja eigi skynsam-
lega heildarstjórn á efnahagsmálum án þess að skerða
athafnafrelsi og ákvörðunarrétt einstaklinga og sam-
taka þeirra eða hefta framtak og sjálfsbjargarviðleitni
manna. Um alllangt skeið hefur það verið grundvallar-
stefna í íslenskum efnahagsmálum, að innflutningur og
gjaldeyrisgreiðslur skuli vera frjáls, nema annað sé
sérstaklega ákveðið. Þá hafa ekki heldur verið hér í
gildi neins konar fjárfestingarhöft né önnur bein íhlut-
í 26% á ári, verði svipuð 1977 og 1976, eða um 31—32%.
Hætta er á að hún vaxi fremur en minnki á næstu
mánuðum, ef ekki verður að gert.
Á árinu varð veruleg aukning kaupmáttar launataxta
og tekna og hafa launþegar nú meira en endurheimt
þær rauntekjur, er þeir höfðu á árinu 1973, þ.e. fyrir
áföllin i þjóðarbúskapnum. Hins vegar er nú líklega
breiðara bil milli raunverulegra launagreiðslna og
samningstaxta en oftast áður. Þetta bil veldur án efa
vanda á vinnumarkaðnum og í launasamningum, sem
fram úr þarf að ráða, i senn með hagsmuni atvinnuvega
og launþega fyrir augum.
Hagur lífeyrisþega skiptir ekki siður miklu máli. Á
síðustu tveim árum hefur ríkisstjórnin tvívegis átt hlut
að samnkomulagi aðila vinnumarkaðarins um lífeyris-
mál og veitt því atbeina með lagabreytingum. Sam-
komulag þetta hefur falið f sér mjög mikla hækkun
lífeyrisgreiðslna til þeirra fjölmörgu, sem fá eftirlaun
samkvæmt lögum um eftirlaun aldraðra félaga í stéttar-
félögum, og reyndar verðtryggingu þess Iifeyris. Þannig
hefur verið gert átak til þess að jafna kjör lífeyrisþega.
Lífeyrissjóðir hafa borið stóran hluta af þessari hækk-
un, en ríkisstjórnin jafnframt tryggt að yfirleitt komi
ekki til skerðingar annarra lifeyrisgreiðslna vegna þess-
arar hækkunar. Þá hefur rikisstjórnin ennfremur beitt
sér fyrir því að hækka á síðustu árum tekjutrygginguna
— lágmarkslifeyri almannatrygginga — alveg sérstak-
lega, og mun meira en skylt er að lögum, jafnframt því
sem bætur almannatrygginga hafa að undanförnu
hækkað jafn ört og kaupgjald og án tafar.
Á siðastliðnu sumri breytti ríkisstjórnin almanna-
tryggingum með bráðabirgðalögum til þess að tryggja
hag hinna lakast settu í hópi iffeyrisþega með sérstakri
heimilisuppbót til einhleypra lífeyrisþega. Jafnframt
var því heitið, að samhliða undirbúningi að nýju lífeyr-
iskerfi, sem tæki til starfa á árinu 1980, yrðu á þessu ári
samdar tillögur er tryggðu ölium landsmönnum ákveð-
inn lágmarksrétt umfram það sem almannatryggingar
Höfuðmarkmið efnahagsstefnunnar hljóta að vera
þessi:
t fyrsta lagi að stuðla áfram að vexti þjóðarfram-
leiðslu.
t öðru lagi að áframhaldandi kaupmáttaraukning
ráðstöfunartekna almennings verði í samræmi við áætl-
aða aukningu þjóðartekna.
t þriðja lagi að komast sem næst jöfnuði í viðskiptum
við útlönd og takmarka þannig erlendar lántökur sem
mest við afborganir eldri lána og þörf bættrar gjaldeyr-
isstöðu.
t fjórða lagi að afstýra atvinnuleysi og umframeftir-
spurn eftir vinnuafli svo að jafnvægi ríki á vinnumark-
aðnum.
t fimmta lagi að hamla gegn óeðlilega örum víxlhækk-
unum verðlags og kaupgjalds.
Siðast en ekki síst verður að draga úr verðbólgunni á
næstu árum og sé það markmið látið sitja í fyrirrúmi.
VERÐBÓLGUVANDINN
Verðbólgan er það vandamál, sem erfiðast hefur
reynst úrlausnar, þótt hún hafi minnkað um nær
helming hér á landi á undanförnum tveimur árum. Hér
hefur því miðað i rétta átt, þótt hægt færi, og var
vissulega ástæða til að ætla, að áframhald gæti orðið á
þeirri þróun, ef rétt væri á haldið. Þvi miður hafa þær
vonir nú brugðist i bili.
Með launasamningunum hafa viðhorfin í þessu efni
breyst verulega. Er nú hætta á þvi, að kapphiaupið milli
launa og verðlags magnist, enda hefur hækkun launa-
kostnaðar farið fram úr greiðslugetu atvinnufyrirtækja
og opinberra aðila.
Sannleikurinn er sá, að afstaða manna virðist mótast
alltof mikið af andvaraleysi gagnvart þeint hættum, sem
stóraukin verðbólga leiðir yfir þjóóina. Fæstir vilja
að beita verðlagsákvæðum þannig, að fyrirtæki tækju á
sig hæfilegan hluta aukins launakostnaðar án þess að
stefnt væri í hallarekstur, og einnig hefur með svipuð-
um hætti verið tekið tillit til afkomu atvinnuvega við
ákvörðun stefnunnar i gengismálum.
Stefnt hefur verið að því við undirbúning fjárlaga og
lánsfjáráætlunar, að fjárfestingu og opinberum útgjöld-
um verði haldið sem mest í skefjum, svo rúm sé fyrir þá
aukningu einkaneyslu, sem hækkun rauntekna og
kjarasamningar hafa óhjákvæmilega i för með sér.
Jafnframt verða lánskjör bæði banka og fjárfestingar-
lánasjóða endurskoðuð eftir-því sem verðlagsþróunin
gefur tilefni til, svo að tryggð verði eftir föngum
viðunandi ávöxtun á sparifé og stuðlað að fjármagns-
myndun innanlands.
Með aðgerðum af þessu tagi hyggst rikisstjórnin
reyna að veita verðlagsþróun í landinu sem mest aðhald
og koma um leið i veg fyrir hvort tveggja í senn, aukinn
viðskiptahalla við útlönd og of mikinn samdrátt í at-
vinnu. Henni er þó vel ljóst, að ekki er með þessum
ráðum einum saman unnt að draga nema að takmörk-
uðu leyti úr áframhaldandi verðhækkunum eða ráða
varanlega bót á verðbólguvandanum. Til þess þarf mun
róttækari ráðstafanir, er byggjast verða á almennum
skilningi landsmanna á þeim hættum, sem áframhald-
andi verðbólga hefur i för með sér, og á sem víðtækastri
samstöðu um aðgerðir til úrbóta.
Eins og kunnugt er, skipaði ríkisstjórnin á síðasta
hausti nefnd til þess að fjalla um verðbólguvandann og
semja tillögur um ráðstafanir til þess að draga úr
verðbólgu. Nefnd þessi starfaði á síðasta vetri og gerði
ríkisstjórninni grein fyrir störfum sinum. En þar sem
henni tókst ekki að ljúka því verki að gera sameiginleg-
ar tillögur um aðgerðir, hefur ríkisstjórnin falið henni
að starfa áfram.
Traust og aðhaldssöm stefna í rfkisfjármálum og
peningamálum er forsenda árangurs í viðureigninni við
verðbólguna, hvað sem öðru líður, en þessi svið eru
einmitt einkum í höndum þings og stjórnar. Og ég
treysti þvi að þingið hafi þetta að leiðarljósi við ákvarð-
anir sínar í fjárhagsmálum á þessum vetri.
fjArmAlríkisins
Tryggja verður hallalausan rekstur hjá ríkissjóði og
öðrum opinberum aðilum, þannig að ekki verði um
aðrar lántökur að ræða en vegna framkvæmda. 1 þessu
felst:
• Aukningu samneyslu verði haldið í skefjum og hún
miðist við áætlaða fólksfjölgun, þ.e. um 1 'A%.
0 Dregið verði úr opinberum framkvæmdum um
5—7%, eins og áformað er í frumvarpi til fjárlaga fyrir
árið 1978. Þrátt fyrir þennan samdrátt er gert ráð fyrir
aukningu vegagerðar, þar sem brýn nauðsyn er á að
draga úr viðhaldskostnaði vega, spara eldsneyti og
hagnýta betur farartæki. Nauðsynlegt er að hækka
bensíngjald í þessu skyni. Öll hækkun þess nú, og
reyndar mun meira fé, gengur til vegagerðar, til þess að
auka þjónustu við almenning og alla landshluta.
0 Kannaðar verði leiðir til að endurbæta starfsemi
rikisins og minnka umsvif þess á þeim sviðum, þar sem
einkarekstur og félagsrekstur getur með hægu móti
sinnt verkefnunum.
0 Skattvísitala við álagningu tekjuskatts 1978 verði
sett 31% hærri en 1977, eða sem svarar hækkun verð-
lags milli áranna 1976 og 1977. Þar með verður álagning
tekjuskatts 1978 óneitanlega heldur þyngri en í ár
vegna hækkandi tekna. Laun hækka meira en verðlag
og eftirspurn fer vaxandi og því nauðsynlegt að beinum
sköttum verði beitt til.að draga úr þenslunni. Hér er
þess að gæta, að í ár mun kaupmáttur tekna almennings
aukast um meira en 8%. Hins vegar er óraunhæft að
miða ekki við minni aukningu kaupmáttar á næsta ári.
En þó mætti ná þeim kaupmætti, sem sýndur var i
tölum örskamma stund 1974 en þá var ekki grundvöllur
fyrir að gæti staðist. Munurinn er sá, að nú gæti verið
von um að tryggja þennan kaupmátt i raun til frambúð-
ar, ef hyggilega er á málum haldið.
0 Afla þarf viðbótartekna til ríkissjóðs eða draga úr
ríkisútgjöldum vegna launasamninga við opinbera
starfsmenn. Á þessu stigi eru ekki gerðar ákveðnar
tillögur í þeim efnum, en það verður verkefni þings og
stjórnar við afgreiðslu fjárlaga.
0 Umbótum í skattamálum verði komið á í framhaldi
af tillögum og umræðum á Alþingi á síðasta þingi.
Rikisstjórnin hefur ákveðið að beita sér f.vrir því, að
staðgreiðslukerfi skatta verði komið á frá og með 1.
janúar 1979 og i kjölfarið verði söluskattinum breytt í
virðisaukaskatt. Væntir rikisstjórnin þess, að Alþingi
veiti tillögum hennar í þessu efni brautargengi.
PENINGAMARKAÐUR
___________OG LANSFJARMAL____________________
Óhjákvæmilegt er að hamla gegn aukinni neyslu og
fjárfestingu einkaaðila með aðgerðum í peninga- og
lánsfjármálum, jafnframt því sem nauðsynlegt framboð
á rekstrarlánum tíl atvinnuveganna sé tryggt.
Örva verður sparnað með breytingum lánskjara í
samræmi við verðlagsþróun, bæði með notkun verð-
tryggingarákvæða, breytilegum verðbótaþætti vaxta og
fjölgun sparnaðarleiða, er hentað geti einstaklingum.
Atvinnureksturinn fær ekki nauðsynlegt rekstrarfé án
aukinnar sparifjársöfnHnar einstaklinga.
Stefna veróur að þvi að veita rekstrarlánum forgang,
en draga úr lánum tii fjárfestingar, jafnframt aðhaldi í
útlánum bankakerfisins. Jafnframt verður að tr.vggja
áfrmhaldandi afurðalánafyrirgreiðslu til atvinnuveg-
anna. en á móti draga úr þátttöku bankakerfisins í
lánum tii fjárfestingarlánasjóða.
í lánsfjáráætlun verði að þvi stefnt, að fjárfestingar-
lánasjóður fjármagni ekki aukna fjárfestingu á vegum
einkaaðila framyfir það sem nú er, enda er gert ráð
fyrir því, aó fjármunamyndun atvinnuveganna minnki
um 2—3% á næsta ári.
frjAlsræðisstefnan
Rikisstjórnin hefur fylgt stefnu fríverslunar í utan-
ríkisviðskipti og framkvæmdafrelsis innanlands. Þessi
stefna hefur sannað gildi sitt. Enn eimir þó eftir af
skömmtunarstefnunni i gjaldeyrisverslun, bæði að því
er varðar yfirfærslur til annarra þarfa en vörukaupa,
t.d. ferðalaga, og þess er varðar rétt íslenzkra borgara
til að eiga gjaldeyri i íslenskum bönkum, sem aflað
hefur verið með eðlilegum hætti. Á sama hátt má segja,
að meðan vextir af útlánum lánastofnana eru ekki í
samræmi við verðlagsþróun, hljóti eftirspurn eftir láns-
fé að vera umfram framboð, og þvi ráði úthlutunarvald
lánastofnana miklu um ráðstöfun fjármagns og þar með
eignatilfærslur af völdum verðbólgunnar.
Unnið hefur verið að þvi með ýmsum hætti að bæta úr
þessum vanköntum og koma á heilbrigðari lánamarkaði
og bættri ávöxtun sparifjár, þótt við ramman reip hafi
verið að draga vegna hinnar miklu verðbólgu. Lánsskil-
málar og ávöxtunarkjör hafa verið endurskoðuð bæði
með hækkun vaxta og aukinni verðtryggingu, þar sem
það hefur átt við. Með þessu hefur ávöxtun fjármagns
fjárfestingarlánasjóða og lifeyrissjóða verið bætt veru-
lega, þótt enn sé þar þörf umbóta. Með útgáfu spari-
skirteina og þó sérstaklega með stofnun vaxtaauka-
reikninga við inniánsstofnanir, hefur almenningi verið
gefinn kostur á hagkvæmu ávöxtunarformi á verðbólgu-
tímum. Vinsældir vaxtaaukareikninganna hafa borið
vitni áhuga fjölda fólks á sparnaði, ef það fær tryggingu
fyrir sómasamlegri ávöxtun. Er þetta eindregin hvatn-
ing til að halda áfram lengra á sömu braut.
Á s.l. sumri var tekin sú ákvörðun að allir vextir skuli
að hluta a.m.k. ráðast af hraða verðbólgunnar. Með
þessu var stigið spor til að auka sparnað og konia á
jafnvægi, hvort tveggja dregur úr verðþenslu. Þessi
nýskipan vaxtamála verður ekki fullfeynd fyrr en á
þessu hausti, eða á næsta ári, en hér erum við á réttri
Framhald á bls. 19