Morgunblaðið - 04.11.1977, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÖVEMBER 1977
29
T
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
veiðimenn skai snúið að fræðslu-
málum, en borizt hefur bréf um:
% Heimanám barna
„Fyrir nokkrum árum var
nokkuð um það rætt að minnka
æt'ti heimanám barna. I næstu
löndum við okkur mun þessi at-
hugun hafa verið gerð og fram-
kvæmt siðan (það að minnka
heimanámið). Sagt var að í sum-
um ríkjum Bandarfkjanna væri
heimanám bannað. Ýmsar for-
sendur voru taldar liggja fyrir
þessum athugunum, og má nefna
þröngt húsnæði, svo að hvergi var
næði fyrir nemandann, sumum
börnum var hjálpað við námið en
öðrum ekki svo þar var ekki jafn-
ræði. Sums staðar voru heimilis-
hættir þannig aó ekki var neitt
næði til náms. Gera má ráð fyrir
að þessar forsendur séu enn til
staðar, bæði hér óg annars staðar.
Svo hefur enn eitt atriði eða
þáttur komið nýr inn á heimilin
en það er sjónvarpið. þar er sýnt.
Það mun ekki skapa gott and-
rúmsloft á heimilunum ef sagt er
við börnin: „Verið ekki að horfa á
þetta, lesið í námsbókunum ykk-
ar.“
Mörgum finnst nokkuð mikið
heimanám hjá ungum börnum
hér, t.d. að reikna 20—30 dæmi,
9—10 ára börn, og margt fleira.
Það er sem sagt nokkuð langur
vinnutími hjá þeim.
Þyrftu ekki fræðslustjórnendur
að athuga þetta til heilla og bless-
unar fyrir nemendur og heimili?
Fyrrverandi nemi.“
Það hefur stundum einmitt ver-
ið bent á að heimanám barna sé
orðið nokkuð mikið, en það mun
að sumu leyti stafa af þvf að nú er
yfirleitt ekki kennt í skólum á
laugardögum, svo vinnan dreifist
á færri daga. Slíkt er að sjálf-
sögðu ekki alltaf réttlætanlegt, ef
t.d. vinna sex daga dreifist á að-
eins 5 daga, ef skila skal sömu
vinnu á styttri tfma. Slíkt verður
naumast ætlað mjög ungum nem-
endum. Það er e.t.v. ástæða til að
ræða þessi mál nánar og sitthvað
fleira í sambandi við grunnskól-
ann, timaskipan stundatöflu. mat
í skólum, o.fl. atriði og hvetur
Velvakandi fólk til að stinga nið-
ur penna og senda frá sér það sem
því býr í brjósti varðandi þessi
mál.
SVFH
OPIÐ HÚS
verður haldið
föstudaginn
4. nóvember
að Háaleitisbraut 68.
Húsið opnað kl. 20 30
1 Verðlaunaafhending.
2. Kvikmyndasýning.
3. Happdrætti.
Félagar fjölmennið, takið gesti með.
Hús- og skemmtinefnd S.V.F. R.
Þessir hringdu . . .
• Alltafá
fimmtudögum?
Svavar G. Svavarsson:
— Mig langar aðeins til að
spyrja um það hvers vegna t.d.
hin og þessi félög sjálfstæðis-
manna þurfa öll að vera með sína
fundi á fimmtudagskvöldum. Má
þar nefna félög eins og málfunda-
félagið Óðin, landsmálafélagið
Vörð, Félag sjálfstæðismanna í
Bakka- og Stekkjahverfi o.fl. fé-
lög. Þessi félög hafa oft valið
fimmtudaga fyrir sína fundi, daga
þegar allir eru kannski uppteknir
í öðrum félagsstörfum. Það er
eins og fimmtudagar séu einu
dagarnir sem rúm er fyrir fundi
og þá eru þeir líka allir, og þurfti
ég t.d. að vera á einum fjórum eða
fimm fundum sama kvöldið. Hún
er löngu úrelt sú hugsun að sjón-
varpið dragi allan mátt úr fólki,
og þess vegna þurfi allt félags-
starf að fara fram á fimmtudög-
um. Ég held að félagsstarf sé að
verða fátæklegra og fátæklegra
með hverjum fimmtudeginum
sem liður, ekki vegna þess að fólk
nenni því ekki, heldur vegna þess
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á meistaramóti Hvfta Rúss-
lands í ár kom þessi staða upp i
jkák þeirra Didishkos, sem hafði
hvítt og átti leik, ogJuferovs:
31. Hxg7! — Kxg7, 32. Bxe5+ —
Kg6, 33. Bxb8 — Hxb8, 34. Be2 og
svartur gafst upp. Sigurvegari á
mótinu varð Kapengut. Hann
hlaut 11 vinninga af 13 möguleg-
um. Næstir kornu siðan þeir
Didishko og Juferov með 9'A v.
að á fimmtudögum eru allir upp-
teknii- í öðrum félagsstörfum, svo
vel mætti færa nokkra fundi á
aðra daga svo menn geti tekið
þátt í félagsstarfi á fleiri en ein-
um vígstöðvum.
S3P SlGeA V/ÖGÁ g VLVttoU
WSfMIA A tó tfJ
AV£ /«íN90«
a rM'ÁAo\>'S\Gi{\iimví,
vy/?\« ÁÁówmAJ,
A £6 4V SfóM,
'vMlR USMW VOA
_ uím vuawkæro m ,
wmi vfówfl óúro mmt
vR« Ámmkj) /yoWa w
V/W 4WP
W.a-0íLK (S<)05WW e>ít>r/