Morgunblaðið - 04.11.1977, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1977
Af úrslitum þessara fyrstu
leikja má ráða, að þar hafi ríkt
hörkubarátta og að Iiðin í 3. deild
séu tiltölulega jöfn að styrkleika.
Má því gera ráð fyrir skemmti-
legri keppni um sæti i 2, deild að
ári.
Liðin, sem keppa í 3. deild eru
þessi: ÍBK, UBK, UMFA, Dalvík,
UMFN, ÍA, Þór-Ve og Týr.
Urslit þeirra 9 leikja, sem hafa
farið, eru þessi:
UMFN — ÍA...................17:19
IBK — Týr frestað
UBK — Týr frestað
Týr — UMFN 20:20
ÍA — Dalvik 24:11
Þór — UMFN 19:20
IBK — Dalvik 25:21
UBK — UMFA 29:28
ÍA — Þór 15:16
UBK — Þór 26:26
UMFA — ÍBK 26:25
Samkvæmt þessu er staðan í 3.
deild þannig:
ÍA
UBK
UMFN
Þór
ÍBK
UMFA
Týr
Dalvik
I roti!
ALLT 1 PATI — Það fer ekki milli mála að svissneski dómarinn Hongerbuhler hefur steinrota/t eftir
áreksturinn við Asgeir Sigurvinsson í leik Standard Liege og AEK I fyrrakvöld. Myndin er tekin
nokkrum sekúndum eftir athurðinn. Dómarinn liggur á vellinum en Asgeir, i dökkri skyrtu þriðji frá
vinstri, gefur merki um að aðstoðar sé þörf. Aðrir leikmenn þyrpast á vettvan,;. Dómarinn rankaði
ekki við sér fyrr en honum hafði verið gefið súrefni. Athurður þessi þótti svo óvenjulegur. að hans var
sérstaklega getið í frásögnum erlendra fréttastofnana. Asgeir meiddist ekkert við áreksturinn. seni
var algert óviljaverk. SfmamyndAP
Körfuknattleikun
og héldu markinu hreinu Hvað eftir
annað varði Guðmundur Baldursson
stórkostlega i markinu og i miðju varn-
arinnar áttu Ágúst Hauksson og Bene
dikt Guðmundsson stórleik, en allir i
islenzka liðinu léku vel
„Ég legg þennan sigur að jöfnu við
sigur yfir Wales i A-landsleik, þvi í
welska liðinu voru eintómir atvinnu-
menn hjá þekktum enskum liðm, svo
sem Manchesterliðunum, Leeds og
Chelsea, ' sagði Helgi Daníelsson
í islenzka liðinu léku i gær Guð-
mundur Baldursson, Fram, Benedikt
Guðbjartsson og Pálmi Jónsson, báðir
FH, Benedikt Guðmundsson, Breiða-
bliki, Ágúst Hauksson, Þrótti, Kristján
B Olgeirsson, Völsungi, Helgi Helga-
son, Völsungi, Skúli Rósantsson,
Keflavík, Páll Ólafsson, Þrótti, Arnór
Guðjohnsen, Víkingi, og Ingólfur
Ingólfsson, Stjörninni Sigurður V
Halldórsson, Breiðabliki, kom inná i
lokin fyrir Ingólf.
Stórkostlegt og óvænt,
segir Ellert
,.Þetta er stórkostlegur árangur og
vissulega óvæntur,'' sagði Ellert B
Schram. formaður KSÍ. í samtali við
Mbl í gærkvöldi
..Það áttu fáir von á sigri þar sem
okkur tókst aðeins að ná jöfnu á heima-
velli En strákarmr hafa gert alla spá-
dóma að engu og þessi árangur sýnir
að gott gengi okkar í unglingakeppn-
inni undanfarin ár er engin tilviljun
Við höfum komizt í lokakeppnma fimm
sinnum á siðustu sex árum og er
árangur. sem aðems frægar knatt-
spyrnuþjóðir geta státað af Sigurmn í
Wales er enn em rós i hnappagat
Lárusar Loftssonar og annarra islenzkra
þjálfara, sem hafa séð úm íslenzku
unglingalandsliðm undanfarin ár."
Ellert sagði að það væri ætið vanda-
mál að fá frí fyrir piitana á vorin vegna
lokakeppninnar, sem venjulega fer
fram í maí, en piltarnir eru allir i
skólum og standa próf þar sem hæst á
þessum tima Ellert sagði að þetta
hefði þó alltaf bjargast og hann kvaðst
vona að svo yrði einnig næsta vor,
þegar unglmgaliðið færi til Póllands
Koma heim í dag
Piltarnir koma heim í dag með flug-
vél frá Glasgow Þeir lenda í Keflavík
um sexleytið og verða væntanlega
komnir til skrifstofu KSÍ um áttaleytið
— SS.
— VIÐ erum auðvitað sælir og
ánægðir og jafn undrandi og allir
aðrir, sagði Helgi Danielsson, farar-
stjóri íslenzka unglingalandsliðsins i
knattspyrnu, sem öllum á óvart sigr-
aði landslið Wales i gærdag úti t
Wales 1:0. Fyrri leiknum á Laugar-
dalsvelli lauk með jafntefli 1:1 og er
ísland þar með komið i úrslitakeppn-
ina með samanlagða markatölu 2:1
en úrslitakeppnin fer fram i Póllandi
i mai næsta vor. Sigurmark íslands
skoraði Ingólfur Ingólfsson úr
Stjörnunni.
Leikið var í Bridgend á mjög slæm-
um velli Hávaðarok var að sögn Helga
Daníelssonar og léku íslenzku piltarnir
undan vindinum í f.h Walesmenn
sóttu meira til að_byrja með en islenzku
piltarmr sóttu í sig veðrið Á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks tók Páll Ólafsson
langt innkast, Benedikt Guðmundsson
skallaði boltann inn í vítateiginn þar
sem Arnór Guðjohnsen lenti i návígi
við varnarmann Wales og frá þeim
barst boltinn til Ingólfs Ingólfssonar,
sem var í dauðafæri tvo metra frá
marki og hann skoraði örugglega
Á 8 minútu s.h var Páll Ólafsson
rekinn af velli. Páll var bókaður i fyrri
hálfleik og ætlaði dómarinn að sýna
honum gula spjaldið, en uppgötvaði
þá að Páll hafði hlotið bókun fyrr i
leiknum og varð hann að sýna það
rauða i staðmn Brot PáJs var ekki þess
eðlis, að réttlætti útafrekstur En ekki
þýddi að deila við dómarann og það
sem eftir var af leiknum juku leikmenn
Wales pressuna að marki íslands Og
þótt islenzku leikmennirnir væru ein-
um færri og lékju á móti roki og
rigningu börðust þeir aðdáunarlega vel
Ingólfur Ingólfsson skoraói
markið, sem tryggði Íslandi far-
seðilinn í úrslitakeppnina í Pól-
landi næsta ár.
Páll Olafsson var rekinn af velli
snemma í s.h. og léku íslending-
arnir þvf lengi vel einum færri.
Hart barizt í 3. deild
ISLANDSMÓTIÐ I 3. deild karla
I handknattleik hófst 15. október
s.l. Hafa nú verið leiknir 9 leikir
af 11, sem ráðgerðir voru til þessa
tíma, en tveim leikjum var festað
vegna samgönguerfiðleika.
Akranesi 5. nóv. kl. 14.00, ÍBK —
UBK í Njarðvík 5. nóv. kl. 15.55,
UMFA — Týr i Ásgarði í Garða-
bæ 6. nóv. ki. 15.00.
Óvæntur sigur og fs-
land komst í úrslitin
Næstu leikir eru: Þór — UMFA
i Vestmannaeyjum 5. nóv. kl.
13.30, Dalvík — UMFN á Akur-
eyri 5. nóv. kl. 14.00, ÍA — Týr á
íslandsmótið af stað um helgina
Á MORGUN, laugardaginn 5. nóvember, hefst Islandsmótið í körfu-
knattleik, hið 27. í röðinni. Af þvf tilefni boðaði stjórn Körfuknatt-
leikssambands Islands til fundar með blaðamönnum, þar sem kynnt
var starfsemi vetrarins.
Aðeins 12
menn utan
LANDSLIÐIÐ i handknattleik leikur i
kvóld fyrsta leikinn af sex i hálfs-
mánaðar keppnis- og æfingaferð um
þrjú Evrópulönd
Leikurinn i kvöld er við iandslið
Vestur-Þýzkalands og fer hann fram í
borginni Ludwigshafen. Seinni leikur
þjóðanna fer fram á morgun
Aðems 12 leikmenn fóru i þessa
ferð. þvi Viggó Sigurðsson komst ekki
utan vegna meiðsla Má þvi ekkert útaf
bregða i förinni. þvi engir varamenn
fóru með
Fyrst kom fram, að í íslands-
mótinu, sem fer í hönd, taka þátt
að mestu leyti sömu lið og í fyrra.
Eitt nýtt lið, Mímir frá Laugar-
vatni, bætist í hópinn, en Frí-
mann, sem lék í 3. deild i fyrra,
tilkynnti ekki þátttöku að þessu
sinni. I mótinu taka þátt 79 flokk-
ar og u.þ.b. 1140 keppendur. Leik-
ir vetrarins verða um 360 talsins
með minnibolta og bikarleikjum.
Núverandi Islandsmeistarar IR
hafa oftast borið sigur úr býtum í
1. deild, 14 sinnum, KR hefur
sigrað 5 sinnum, ÍKF 4 sinnum,
IS tvisvar og Ármann einu sinni.
Á næsta keppnistimabili verður
komið á fót svokallaðri úrvals-
deild, þar sem leika munu 6 lið.
Fimm efstu deildarinnar i vor
hljóta sæti i úrvalsdeildinni og
það lið, er lendir í sjötta sæti
leikur við sigurvegara 2. deildar
um eitt sæti.
Þá kom fram, að unglingalands-
liðið fór i keppnisferð til Bret-
lands í september og lék Iiðið 4
leiki, tvo gegn Skotum og tvo
gegn Englendingum. Sigur
vannst i öðrum leiknum gegn
Skotlandi 76:74, en aðrir leikir
töpuðust, 72:76 fyrir Skotlandi og
65:106 og 47:87 gegn Englandi.
Dagana 21.—23. apríl verður
haldið hér á landi Norðurlanda-
mót (POLAR CUP) í körfuknatt-
leik og er það aðalverkefni is-
lenzka landsliðsins í vetur. Ýmís
önnur verkefni eru þó hugsanleg,
t.d. keppni í Noregi í janúar og í
Portúgal í maí. Engar ákvarðanir
hafa þó enn verið teknar um þessi
mál, þar sem landsliðsnefnd, sem
sjá mun um allan rekstur lands-
liðsins i vetur, hefur enn ekki
verið skipuð að fullu. Mjög mikil-
vægt er, að landsliðinu verði
sköpuó næg verkefni fram að
POLAR CUP.
PÉTUR1PLAYBOY!
Til gamans má geta þess, að i
nýjasta hefti tímaritsins Playboy
er grein um bandariskan háskóla-
körfuknattleik. i greininni er
m.a. skrifað um lið University of
Washington, en með því liði leik-
ur Islendingurinn Pétur Guð-
mundsson. Er greinilegt, að mik-
ils er vænst af Pétri, því hann er
einn leikmanna liðsins nefndur á
nafn. Pétur, sem er 2,17 m á hæð
og 130 kg að þyngd. er nýliði i
Washington-Iiðinu og mun að lík-
indum breyta leikskipulagi þess.
en mjög óvenjulegt er, að nýliðar
leiki svo stór hlutverk í liðum
sínum.
ag/gg
ÞJÁLFARI ÓSKAST
U.M.F. Víkingur Ólafsvík, óskar að ráða knatt-
spyrnuþjálfara nk. sumar. Nánari upplýsingar
gefur Gylfi Schewing I síma 6217 og 6108
(vinnusími).
Haukur í fullu fjöri
FRÁ ÞVl var skýrt á iþróttaslð-
unni á laugardaginn, að hinn
frækni göngugarpur Haukur
Sigurðsson á Ólafsfirði væri fót-
brotinn. Jakob fréttaritari Mbl. á
Ólafsfirði hringdi í gær og vildi
leiðrétta þetta, kvað Hauk í fullu
fjöri og hefði hann æft undir
stjórn Björns Þórs Ólafssonar s.l.
tvo mánuði ásamt öðrum göngu-
mönnum á Ólafsfirði.
Þá var mishermt að Tómas
Leifsson væri þriðji maðurinn f
landsliðinu f Alpagreinum. Það
er Hafþór Júlíusson, tsafirði.