Morgunblaðið - 23.11.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.11.1977, Blaðsíða 1
251. tbl. 64 árg. MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Nýr fellibylur ógnar Indlandi Nýju Delhí. 22. nóvember. AP. N(J er talið víst að allt að 15 þús. manns hafi látið lífið í fellibylnum, sem gekk yfir SA-hluta Ind- lands um helgina, en gífur- legt björgunar- og hjálpar- starf er enn óunnið. Ofan á þetta bætist að nýr felli- bylur hefur verið að mynd- ast á Bengalflóa, þótt ekki Concorde- flug til New York hafið New York, 22. nóvember. Reuter. REGLUBUNDIÐ áætlunarflug með hljóðfráu farþegaþotunni Concorde milli Frakklands, Bretlands og New York, hófst f dag, er tvær Concorde frá Air France og British Airways lentu á Kennedyflugvelli með tveggja mfnútna millibili. Aðeins örfáir andstæðingar þotunnar voru mættir með mótmælaspjöld er þoturnar lentu kl. 13. að isl. tima, hvor um sig með 100 farþega innan- borðs. Segja fréttamenn að þessar fyrstu lendingar hafi verið eins og koma venjulegrar þotu og enginn viðbúnaður var við hafður. Concorde hefur nú verið tryggt lendingarleyfi fram til ársins 1985 á Kennedyflugvelli. sé hann talinn jafnmikill og hinn fyrri. Yfirvöld í Hvderabad- borg, höfuðborg Andhra Pradeshfylkis, sem verst varð úti, segja að þar hafi um 3000 lík fundist og tal- ið að tala látinna verði allt að 8—9 þúsund og í öðrum fylkjum á þessum slóðum er talið að 5—7 þús. manns hafi látið lífið. Eignatjónið af völdum náttúru- hamfaranna hefur orðið gifurlegt og yfir 300 þúsund manns eru heimilislausir og hafa margir misst allar eigur sinar. Mjög erfitt hefur verið um allt björgunarstarf og fréttir vegna Framhald á bls 18. Sadat og Nimeiri forseti Súdans á fundi sínum í gær. Simamv nd AP. Búist við að Sadat stígi næsta skrefið Áhrif og árangur ferðarinnar undir smásjá alþjóðastjórnmála Jerúsalem, Kafró, Damskusz Washington, London og New York 22. nóvember. AP Reuter. FREMUR rólegt var á alþjóðasviði stjórnmál- anna í dag er menn settust niður og íhuguðu áhrif og hugsanlegan árangur hinnar sögulegu heim- sóknar Sadats Egypta- landsforseta til ísrael um helgina. Nimeiri forseti Súdans flaug f dag til Um 14 þúsund her- menn við slökkvi- störf á Bretlandi London, 22. nóvember. AP. MAÐUR og kona fórust í tveimur eldsvoðum í Bret- landi í nótt og hafa þá alls 20 manns látið lífið af völd- um eidsvoða þá 9 daga, sem slökkviliðsmenn í landinu hafa verið í verkfalli. Yfir- völd hafa ekki viljað skella skuldinni á verkfall slökkviliðsmannanna, en hafa gripið til þess ráðs að þjálfa mörg þúsund her- menn til að taka stöður slökkviliðsmannanna, sem krefjast 30% launahækk- unar. Sem kunnugt er hefur stjórnin sett 10% þak á allar launahækk- anir í landinu í baráttunni gegn verðbólgu og flest stærstu verka- lýðsfélögin hafa fallist á þessa stefnu. 10 þúsund hermenn eru þegar við slökkvistörf um gervalt landið og 4000 til viðbótar hafa verið kallaðir til þjálfunar. 36000 slökkviliðsmenn eru í verkfalli og er tækjabúnaður hermannamjög gamall og ófullkominn, en stjórn- in hefur ákveðið að bæta þar úr. Kaíró til viðræðna við Sadat og varð þannig fyrst- ur Arabaleiðtoga til að sýna forsetanum stuðning. 1 aðalstöðvum Sameinuðu þjóðannna í New York gekk sendiherra Egypta- lands af fundi, er fulltrúi Sýrlands réðst í upphafi al- mennra umræðna á alls- herjarþinginu um heim- sóknina, heiftarlega á Sadat forseta, sem hefði sáð ósamlyndi meðal Arabaþjóða og móðgað minningu blóðs píslarvotta Araba. í ísrael voru stöðugir fundir ráðamanna um heimsóknina og þær viðræður sem fram fóru milli Begins forsætisráð- herra og Sadats og annarra ísrealeskra stjórnmála- manna. Yfirvöld í ísrael hafa ekkert viljað láta uppi um einkaviðræður Sadats og Begins, en áreiðanlegar heimildir í Tel-Aviv hermdu í dag, að það yrði Sadat, sem stigi næsta skrefið í malinu. Sadat sagði sjálfur í lok heim- sóknar sinnar að hann vænti þess að ísraelsstjórn stigi næsta skref- ið með hörðum og ákveðnum að- gerðum, en heimildir i Tel-Aviv segja að næsta skref Sadats sé að tryggja sér almennan stuðning egypzku þjóðarinnar við frum- kvæöi sitt, reyna að fá stuðning Saudi-Arabíu og síðan að fá Assad Sýrlandsforseta á sitt band. Heimildirnar hermu ennfrem- ur að hvorki Sadat né Begin hefði Framhald á bls 18. Schmidt í Póllandi: Vinsamlegar við- ræður við Gierek V'arsjá, 22. nóvember. Reuler. HELMUT Schmidt kanslari V- Þýzkalands, sem nú er í opinberri heimsókn í Póllandi sagði í ræðu í dag að hann vonaðist til að Pólverj- ar skildu löngun V-Þjóðverja eftir einingu allra Þjóðverja. Schmidt, sem er fyrsti leiðtogi V-Þýzkalands, sem heimsækir Pólland frá þvi að löndin tvö tóku á ný upp eðlileg samskipti 1972, minnti í ræðunni á að það hefði BREZHNEV leggst gegn persónudýrkun Moskvu, 22. nóvember. Reuter. AP. LEONID Brezhnev, forseti Sovétrfkjanna og aðalritari kommúnistaflokksins þar f landi, sem nú baðar sig f miklu persónulegu lofi hefur ritað langa grein í tfmaritið Marxist Review, sem gefið er út í Prag, þar sem hann segir að útiloka verði að persónudýrkun verði tekin upp á ný í Sovétrfkjun- um. í greininni er Brezhnev að svara „áróðri i garð Sovétríkj- anna“. Segir hann að andstæð- ingar Sovétrikjanna á Vestur- löndum höfði oft til tíma Stal- íns, er þeir tali um ólöglega kúgun, brot á grundvallarregl- um lýðræóis og löglegs sósíalisma, sem hefðu átt sér stað á tímUm „persónudýrkun- arinnar". Segir Brezhnev, að af ásettu ráði minnist þessir menn ekki á að það hafi verið komm- únistaflokkur Sovétrikjanna, sem hafi opinskátt fordæmt slíkar aðgerðir, sem brotið hafi i bága við stjórnarskrá landsins Framhald á bls 18. verið föðurlandsást Pólverja. sem hefði komið í væg fyrir að landinu yrði skipt í stríðinu og það svipt sjálfstæði. Schmidt hvatti Pólverja til að skilja, að v-þýzka stjórnin leitað- ist við að skapa svo friðsamlegt ástand í Evrópu, að þýzku þjóð- irnar gætu sameinast í frelsi sjálfsákvörðunar, þótt ýmsir Pól- verjar kynnu að hafa áhyggjur af slikri þróun. Stjórnmálafréttaritarar segja að það hafi vakið mikla athygli að Schmidt skyldi viðhafa slík um- mæli í Póllandi, sem missti 6 milljón ibúa á timum hersetu nas- ista í landinu. Schmidt, sem kom til Varsjár i gær, hóf þegar viðræður við Gierek, leiðtoga pólska kommúnistaflokksins, um sam- skipti landanna, afvopnunarmál og gagnkvæm viðskipti, en vöru- Framhald á bls 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.