Morgunblaðið - 23.11.1977, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1977
Sjónvarpsþættir
um víkingaöldina
Magnús
Magnús-
son undir-
býr efnið
BREZKA sjónvarpsstöðin BBC er
nú að undirbúa gerð sjónvarps-
þátta f 13 hlutum um forfeður
okkar vfkingana. Hinn kunni
sjónvarpsmaður Magnús Magnús-
son mun undirbúa efni þáttanna.
Ekki er áætlað að þeir verði sýnd-
ir fyrr en í fyrsta lagi árið 1980,
en efnið er yfirgripsmikið svo
undirbúningurinn er þegar haf-
inn.
í viðtali við danska blaðið
Berlingske Tidende sagði Magnús
Magnússon um fornleifauppgröft
sem nú er unnið að í York:
„Vfkingaöldin er mér sérstakt
áhugaefni og hún hefur verið
hræðilega mistúlkuð. Uppgröftur-
inn í York hefur sannað að i Eng-
landi voru víkingarnir ekki þessir
hlægilegu striðskarlar sem marg-
ar kynslóðir hafa álitið. Þeir voru
miklu fremur friðsamir kaup-
menn, sem notfærðu sér þá mögu-
leika sem þetta land bauð upp á.
Orðið „notfærðu" hefur í seinni
tíð fengið á sig neikvæðan blæ, en
það sem víkingarnir tóku sér fyrir
hendur var aðeins þeim í hag og
þeir áttu upphafið að mörgu því
sem síðar gerðist í Englandi."
„Ég er ekki vísindamaður, held-
ur blaðamaður. Starf mitt að sjón-
varpsþáttunum felst í því að
skýra vinnu fornleifafræðing-
anna á þann veg að almenningur
fái skilið."
Flugleiðir flytja Færey-
inga til meginlandsins
22. nóvember, Þórshöfn Færeyjum.
Frá fréttaritara Mbl. f Færeyjum,
Jogvan Arge.
FLUG Loftleiða til Færeyja f dag
tryggði að fulltrúar Færeyja kom-
ust á réttum tfma til samninga-
viðræðna við dönsku stjórnina f
Kaupmannahöfn.
En vegna verkfalls vélavið-
gerðarmanna á Kastrup-flugvelli
liggur flugleiðin á milli Dan-
merkur og Færeyja niðri.
Flugleiðavélin átti að koma til
Færeyja á sunnudag, en vegna
veðurs komst hún ekki fyrr en í
dag. Frá Færeyjum var flogið til
Bergen í Noregi með fulltrúa-
nefndina, en I henni eru Atli
Dam, Peter Reinert og formenn
færeysku stjórnmálaflokkanna.
Nefndin átti að ræða við
dönsku stjórnina um veiðirétt-
indi Færeyinga við Grænland, nú
þegar framkvæmdaráð EBE hef-
ur lýst þvf yfir að hvað fiskimiðin
við Grænland snertir verði Fær-
eyingar að semja sjálfstætt.
píslarvott?" svaraði innanrikisráð
herrann. „Hún er aðeins góð harm
leikkona og setti á svið mikið sjónar
spil Hún hefur marga glæpi á sam
vizkunni, þúsund ..Watergate
hneyksli' Hún er sek Hún hefur
spillt indversku siðferði og notfært
sér það i eigm þágu og sonar sins
Nú réttlætir hún sjálfa sig og það
neyðarástand, sem hún á sök á án
nokkurrar iðrunar."
Blaðamaður spurði þá hvers
vegna fjölmiðlum væru fengnar
ýmsar staðhæfingar gegn Indiru
Gandhi án nokkurrar sönnunar-
gagna Enn fremur hvort slik réttar-
„Indira er sek”
— segir innanríkisráðherra Indlands
Indverskir lögregluþjónar í viSbragSsstöðu ef til uppþota skyldi koma við
rannsóknir og vitnaleiðslur gegn Indiru Gandhi.
í SEX mánuði hefur innanríkisráð-
herra Indlands, Charan Singh,
reynt að sanna glæpsamleg athæfi
á fyrrverandi forsætisráðherra
Indlands, frú Indiru Gandhi.
Einn blaðamanna bandaríska
timaritsins Newsweek ræddi við
Singh á heimili hans í Nýju Delhi
fyrir skömmu og spurði hann m.a.
hvort rétt væri að um blóðhefnd
væri að ræða og hvort innanríkis
ráðherrann notfærði sér stöðu
sína til að hefna sin á Nehru-
fjölskyldunni. Singh harðneitaði
að svo væri en starf hans krefðist
þess að öll illvirki Indiru og það
bákn glæpa, sem hún hefði hlaðið
á Indland, yrði að rifa niður.
Þá var Smgh spurður hvernig á
þvi stæði að eftir sex mánaða vitna-
leiðslur hefði svo lítið verið hægt að
sanna á Indiru Sagði Singh að
lýðræðislegar rannsóknir tækju ætið
langan tíma Aðspurður hvort hand-
taka Indiru hefði ekki komið sér verr
fyrir núverandi stjórn heldur en Ind-
iru sjálfa, þar sem margir litu nú á
hana sem píslarvott ..Hvers vegna
höld sem rekin væru í fjölmiðlum
væru ekki óréttlát
..Nei, það er ekki óréttlátt/ svar-
aði Singh ..Þegar hún var handtekin
fullyrti hún alls konar hluti um okk-
ur Hún sagði að við værum fantar,
glæpamenn, óþverrar og óvinir ind-
versku þjóðarinnar. Því skyldum við
ekki segja henni til syndanna líka?
Við erum ekki að hefna okkur á
Indiru Gandhi En það þarf tvær
kynslóðir til að bæta upp fyrir syndir
hennar. Hún er glæpamaður og ef
Framhald á bls. 19.
Indira hundsar vitnaleiðslur
New Delhi, 22. nóv. AP
INDIRA Gandhi fyrrverandi for-
sætisrádherra Indlands mætti ekki
í dag við opinbera rannsókn ind-
versku stjórnarinnar á stefnu frá-
farandi stjórnar og kvað rannsókn-
ina ólöglega.
Indverska þjóðin beið þess með
eftirvæntingu hvort Indira Gandhi
mundi mæta, en hún sendi lög-
fræðing sinn i staðinn inn í troð-
fullan réttarsalinn með yfirlýsingu
þess efnis að rannsóknarnefndin
stæði fyrir stjórnmálalegri
óhróðursherferð gegn sér!
Vitnaleiðslur hafa staðið síðan í
september s.l. og sagði i yfirlýs-
ingunni frá Indiru Gandhi enn
fremur að þær hefðu valdið sér
óbætanlegu tjóni. Hefðu þær
snúist upp i fjölmiðlaréttarhöld.
Sé þetta i andstöðu við indversku
stjórnarskrána, þær leiðir, sem
eigi að fara að lögum og almennar
réttarreglur.
Með þvi að mæta ekki við rann-
sóknina hefur Indira Gandhi stigið
nýtt skref i baráttu sinni gegn
stjórn Morarji Desai forsætisráð-
herra Janataflokksins, sem sigraði
Kongress-flokkinn i kosningum i
marz s.l.
Mjög óhreinn fatnaður þarf mjög gott þvottaefm...
Með Ajax þvottaefni verður misíiti
þvotturinn alveg jafn hreinn og
suáuþvotturinn.
Hinir nýju endurbættu
efnakljúfar gera þaó kleíft
aó þvo jafn vel meó öllum
þvottakerfum.
Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótvíræða
kosti sina, einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatíminn er
stuttur og hitastigið lágt. Hann verður alveg hreinn og litirnir
skýrast.
Hreinsandi efni og nýjr, endurbættir efnakljúfar ganga alveg
inn i þvottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti i
forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök forþvottaefni.
Strax við lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og
viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og blettalaus.
Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hrpinn og hvítur.
Ajax þvottaefni þýöir:
gegnumhreínn þvottur meó öilum
þvottaherfum.
Danir bjóð-
ast til að
afhenda
Færeying-
um saihmuni
Þórshöfn 22. nóvembcr.
Frá fréttaritara Mhl. í Frreyjum.
YFIRVÖLD í Danmörku
hafa boðið stjórn Færeyja
að láta þá fá aftur alla fær-
eysku safnmuni, sem nú
eru í Þjóðminjasafninu í
Kaupmannahöfn.
Ríkisstjórnin tók þessa
ákvörðun fyrir stuttu, en
hún var ekki gerð opinber
fyrr en Daniel Pauli Dan-
ielsen landsstjórnarmaður
skýrði frá henni á mánu-
dag.
Þeir munir sem Færeyingar
leggja mesta áherzlu á að fá heim
eru svokallaðir Kirkebö-stólar, en
þeir eru taldir vera frá síðari
hluta fjórtándu aldar. Þeir hafa
verið i safninu i Kaupmannahöfn
frá siðustu öld.
• Skilyrðið fyrir afhendingu stól-
anna og annarra muna til Fær-
eyja, er það að þar finnist góður
staður fyrir þá til varðveizlu og
sýningar.
I.andssafnsvörðurinn Sverri
Dahl hefur sagt, að þau skilyrði
séu ekki fyrir hendi i Færeyjum
enn, en hann vonist til að slíkt
verði byggt á næstu árum.
ERLENT,