Morgunblaðið - 23.11.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.11.1977, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1977 ■ l|A blMAK jO 28810 car rental 24460 bilaleigan GEYSIR BORGARTÚNI 24 LOFTLEIDIR ^BÍLALEIGA E 2 1190 2 11 38 Grundarfjörður: Innbrot upplýst UPPLVST hafa verið innbrot í verzlanir í Grundarfirði í lok októbermánaðar. Upp komst um þjófana, sem voru tveir saman, þegar annar þeirra var handtekinn í Reykja- vík i síðustu viku. Var maðurinn með vandað úr á hendinni, sem ólíklegt var talið að hann gæti átt. Var hægt að finna það út að úrið hafði verið selt til Grundarfjarðar og þannig komst upp um kauða. Báðir mennirnir voru vistmenn á Kvíabryggju. Laumuðust þeir út að nóttu til og brutust inn í verzianirnar. Erfidleikar í stormi og hríð á Mý vatnssvæðinu Mjörk-Mývatnssveit. 21. nóv. I ÓVEÐRINU hér síðdegis á laug- ardag áttu margir vegfarendur í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar og slíkt var kófið og veður- ofsinn að varla sáust handaskil. Bílstjórar Kísiliðjunnar á leið tii Reykjavíkur voru marga klukku- tíma að brjótast úr Mývatnssveit yfir í Geitafell. Þar gistu 11 manns aðfaranótt sunnudags. Þá hef ég frétt af bíi sem lagði af stað frá Húsavík á laugardag og var 12 tíma á þeirri leið, en hann festist í skafli á miðjum Hólssandi og þar hætti vélin að ganga vegna ideytu og varð ekki komið í gang aftur. Bílstjórinn og 3 farþegar urðu að sitja í bílnum í þrjá klukkutíma þar til snjóbíll úr Mý- vatnssveit kom þeim til hjálpar. Þegar snjóbíllinn kom upp að Grímsstöðum varð hann bensín- laus. Þurfti þá að sækja bensín upp í Reykjahlið og tók það tvær klukkustundir, en á meðan sat fólkið í köldum bílnum. — Kristján. Mikil atvinna í Ólafsvík Ólafsvík, 21. nóvember. ATVINNA er með bezta móti um þessar mundir, 7 bátar eru gerðir út á línu og fleiri munu bætast við á næstunni. Einn bátur rær með troll. Togarinn Lárus Sveinsson landaði hér í dag um 60 lestum. Aflinn var mest þorskur. — Heigi. . Útvarp Reykjavík A1IÐMIKUDKGUR 23. nóvember MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund harnanna kl. 8.00: Rögnvaldur Finnboga- son les .Ævintýri frá Narníu" eftir C.S. Lewis (9). Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða. Guðsmyndabók kl. 10.25: Séra Gunnar Björnsson les þýðingu sfna á predikun eftir Helmut Thielieke út frá dæmisögum Jesú; XIV: Dæmisagan um kostnaðinn af þvf að reisa turn. Morguntónleikar kl. 11.00: RCA-Victor sinfóníuhljóm- sveitin leikur „Vatnasvítu" eftir Hándel; Leopold Sto- kowski stj./ Konsert í D-dúr fyrir sembal og hljómsveit eftir Haydn; Roherl Weyron- Lacroix og hljómsveit Tón- listarháskólans í París leika; Kurt Redel stj./ Adagio og Rondó í F-dúr fyrir pfanó og strengjasveit eftir Schubert; Adolf Drescher og Fíl- harmoníusveitin f Hamhorg leika; Walter Martin stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SÍÐDEGIÐ 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Skakkt númer — rétt númer“ eftir Þórunni Elfu Magnúsd. Höf- undur les (13). 15.00 Miðdegistónleikar Musica viva-tríóið í Pittsburg leikur Trfó í F-dúr fyrir flautu, selló og pianó op. 65 eftir Jan Ladislav Dusik. Gervase de Peyer og Cyril Preedy leika „Grand Duo Concertant" f Es-dúr fyrir klarfnettu og pfanó eftir Carl Maria von Weber. Deszö Ranki leikur píanótónverk eftir Béla Bartók. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn. Halldór Gunnarsson kynnir. 17.30 Utvarpssaga barnanna: MIDVIKUDAGlJR 23. nóvember 1977 18.00 Litli sótarinn Tvær stuttar, tékkneskar teiknimyndir. 18.10 Dádf flytur á mölina Leikinn, sænskur mynda- flokkur f fjórum þáttum um ungan pilt f Kenýa. Lokaþáttur. Þýðandi og þulur Hallveig Thorlacius. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) 18.40 Cook skipstjóri Bresk teiknimyndasaga f 26 þáttum. 2. þáttur. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 19.00 On WeGo Enskukennsla. Sjötti þáttur frumsýndur. Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Vaka (L) 21.25 Varnarræða vitfirrings <L) Sænskur niyndaf lokkur f fjórum þáttum. byggður á skáldsögu eftir August Strindberg. 3. þáttur. Þýðandi Vilborg Sigurðar- dóttir. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) 22.15 Fóður úr fiskúrgangi (L) Nörsk fræðslumynd um til- raunir vfsindamanna til betri nýtingar sjávarafla og úrgangs, sem til fellur. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. (Nordvision — Norska sjón- varpið) 22.45 Undir sama þaki Islenskur framhaldsmynda- flokkur f léttur dúr. Endursýndur lokaþáttur, Veislan. 23.10 Dagskrárlok. „Utilegubörnin f Fannadal" eftir Guðmund G. Hagalín. Sigríður Hagalín leikkona les. (8). 17.50 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDIÐ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Gestur í útvarpssal: Philip Jenkins leikur Píanó- sónötu nr. 3 op. 36 eftir Karol Szymanowski. 20.00 A vegamótum. Stefanía Traustadóttir sér um þátt fyrir unglinga. 20.40 Dómsmál. Björn Helga- son hæstaréttarritari segir frá. 21.00 „Víkið burt, sorgar- skuggar", kantata nr. 202 eftir Bach. Margaret Mar- shall syn'gur með kammer- sveit útvarpsins í Saarbrúck- en; Hans Zender stjórnar. 21.25 Ljóð eftir Jón Dan. Val- gerður Dan og Þorsteinn Gunnarsson iesa. 21.40 Fiðlukonsert nr. 2 í d- moll eftir Henryk Wieniawski Ida Haendel og Sinfóníuhljómsveitin f Prag leika; Vaclav Smetacek stj. 22.05 Kvöldsagan: „Fóst- bræðra saga“. Dr. Jónas Kristjánsson les (5). 22.30 Veðurfregnir og fréttir. 22.45 Frá Sameinuðu þjóðun- um. Karl Steinar Guðnason ræðir við Tómas Tómasson sendiherra. 23.00 Djassþáttur f umsjá Jóns Múla Arnasonar. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Ensku- kennslan 1. He can paint a birthday card for her. 2. They can buy a camel for her. 3. She has some glass animals. 4. It's in the cupboard. 5. He is in the living room. 6. Has she got any camels? 7. She has got some dogs, a giraffe.. . 8. She hasn’t got a camel. 9. Kate does. 10. No, he doesn’t. 11. Yes, he does. 12. She leaves it on the shelf. 13. It breaks (isbroken). 14. til 20. svarið fyrir ykkur sjálf. Exercise 2. Dæmi: Mrs. Yates has got a giraffe in her collection. Exercise 3. Dæmi: The postman has got some letters for Mrs. Yates. Exercisé 4. Þarfnast ekki skýringar. Exercise 5. Dæmi: At a birthday party there are things to eat for the birthday tea. Exercise 6. Dæmi: Can I have a packet of rice. Can I have some sugar. Exercise 7, til 9. Þarfnast ekki skýringa. Exercise 10. Dæmi: These are bottles of orangeade, those are bottles of vinegar. Exercise II. Dæmi: These bottles bave got orangeade ín them. Exereise 12. P’or — four, know — no — sew, wear — where, too — two, buy — by, right — write, meat — meat, flower — flour, hear — here. í KVÖLD hefur göngu sina í útvarpi nýr þáttur fyrír ungl- inga „A Vegamótum’' í umsjá Stefaníu Traustadóttur.% Áformað er að hafa þennan þátt á dagskrá aðra hverja viku í vetur og hefst hann klukkan 20. • í fyrsta þættinum mun stjórnandinn ræða við nokkra nemendur í grunnskólum Reykjavíkur, sem allir eiga sæti í nemendaráði síns skóla. Einkum mun verða rætt um félagsmál nemenda og þá möguleika sem þeir hafa til að koma sínum mál- um á framfæri í viðtali sem blm. átti við Stefaníu Traustadóttur, kom fram að nemendum var alls ókunn- ugt um ýmis lög og reglur skólanna, svo sem að forseti nemendaráðs hafi rétt til að sitja á kennarafundum og, að hafa eigi samráð við nem- endur, þegar nýjar skólaregl- ur eru settar. Þá mun í þættinum verða fjallað um söngleikinn „Grænjaxlar" og rætt verður við þá Pétur Einarsson, Þór- hall Sigurðsson og Valgeir. Milli atriða í þættinum verður leikin tónlist af plötum og verður reynt að velja tónlist- ina í samhengi við efni þátt- anna hverju stnni 1 kvöld klukkan 18.40 er á dagskrá annar teiknimyndaþátturinn af 26 um landkönnuðinn James Cook. Fyrsti þátturinn fjallaði um bernsku Cooks og fyrstu kynni hans af sjónum, auk þess sem fjallað var um frama hans í sjóhernum. Cook var, eins og fram kom í þættinum, fæddur árið 1728 í Englandi. Hann kannaði mikið Kyrrahafið og löndin við það, en endaði lif sitt á því að vera étinn þar af mannætum 1779. Myndin að ofan sýnir Cook og félaga ræða við frumbyggja Suðurhafseyja. „Á vegamótum ”, nýr þáttur fyrir ungtínga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.