Morgunblaðið - 23.11.1977, Page 2

Morgunblaðið - 23.11.1977, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1977 r Ný skáldsaga eftir Olaf Jóhann Sigurðsson MÁL og menning hefur gefið út nýja skáldsögu eftir Ólaf Jöhann Sigurðsson, sem heitir Seiður og hélog — úr fórum blaðamanns. Þetta er fyrsta bókin, sem frá Ólafi kemur eftir að hann hlaut bókmenntaverðlaun . Norður- landaráðs. A fundi með frétta- mönnum f gær skýrði Þorleifur Hauksson, útgáfustjóri MM frá þvf, að í undirbúningi væri að gefa út fyrri verk Ólafs Jóhanns Sigurðssonar í nýrri heildarút- gáfu með sama sniði og þessi nýju skáidsögu og taldi hann Ifklegt að fyrsta bókin, sem yrði væntanlega Fjallið og draumurinn, kæmi út á næsta ári, og reynt yrði að láta bókina Vorköld jörð fylgja f kjöl- farið. Þorleifur Hauksson sagði að skáldsagan Seiður og hélog, en seinna orðið merkti villueld eða maurildi, væri Reykjavíkursaga frá hernámsárunum. Aðalpersón- an er Páll Jónsson blaðamaður, sem „segir söguna og kynnist hin- um nýju og gerbreyttu aðstæðum í bænum, að sumu leyti sem áhorfandi, að sumu leyti af eigin raun“. Ólafur Jóhann Sigurðsson sagði, að bessi skáldsaga ætti sér langan aðdraganda; lengri að- draganda en nokkurt annað verka hans, þar sem hann gæti rakið sögu verksins allt aftur til ársins 1942. Þá hefði hann skrifað langa smásögu, sem fjallaði um ungan blaóamann. ,,En það stóðst nokk- urn veginn á endum, að þegar búið var að ganga frá sögunni til prentunar, þá var ég ekki alls kostar ánægður með hana, sér- staklega fannst mér ýmislegt van- gert við aðalpersónuna. Þessi persóna var svo alltaf að Framhald á bls. 19. Aðalfundur L.Í.Ú. hefst í Grindavík í dag Aðalfundur Landssambands ís- lenzkra útvegsmanna hefst í fé- lagsheimilinu Festi f Grindavfk f dag, kl. 14, og stendur fundurinn fram á föstudag. Þetta er f þriðja sinn, sem aðalfundurinn er hald- inn utan Reykjavfkur, en áður hefur hann verið haldinn í Vest- mannaeyjum og á Akureyri. Aðalfundurinn hefst með ræðu Kristjáns Ragnarssonar, for- manns samtakanna, og kl. 16 flyt- ur Sigfús Schopka fiskifræðingur erindi, Síðan verður kosið f nefndir og umræður verða á fimmtudegi, auk þess sem farnar verða kynnisferðir um Grindavik. A föstudag ávarpar Matthias Bjarnason sjávarútvegsráðherra aðalfundinn og lýkur fundinum síðan með stjórnarkjöri. Gert er Framhald á bls. 19. NEFND sú, sem samgönguráðherra Skipaði á sinum tima. til að sjá um byggingu jarðstöðvar á íslandi. hefur nú valið stöðinni stað. við Úlfarsfell i Mosfellssveit Þá er framkvæmda- nefnd stöðvarinnar stödd i Sviþjóð þessa dagana i þeim tilgangi að ganga frá útboðsgögnum. en áætlað er að stöðin verði tilbúin siðla árs 1979. Staðarval fyrir stöðína hefur tekið nokkurn tima. og auk Úlfarsfells- svaeðisins, voru staðir í nágrenni Hveragerðis og Akraness kannaðir gaumgæfilega. en að athuguðu máli fannst staður undir Úlfarsfelli, sem uppfyllti flest þau skilyrði sem þurfti Samkvæmt þvi, sem Morgunblaðinu var tjáð i gærkvöldi, réð framkvæmda- nefndin sér verkfræðing fyrir nokkrum mánuðum og hefur hann undanfarið unnið i Sviþjóð að gerð útboðs, ásamt starfsmönnum sænska rikissímans Sviar buðu íslendingum samvinnu i þessari framkvæmd. þar sem þeir ætla sér að reisa á næstunni nýja jarðstöð. jafn stóra og eins að allri gerð og þá sem íslendingar reisa Verða þessar stöðvar siðan borðnar út samtímis Vél Kröfluvirkjunar afl- prófuð um mánaðamót Ólafur Jóhann Sigurðsson „EF þessi reynslukeyrsla, sem við ætlum að byrja um mánaðamófin gengur vel, þá förum við eðlilegs í það að framleiða rafmagn og ég vona að það gæti þá orðið um eða upp úr áramótunum," sagði Einar Tjörvi Elfasson, verkfræðingur Kröflunefndar, í samtali við Mbl. í gær, en um mánaðamótin verður byrjað að aflprófa vél Kröflu- virkjunar númer eitt með afli frá þremur holum; 7, 9 og 11. Einar Tjörvi sagði, að ef allt gengi að óskum ættu holurnar að gefa 5 — 10 MW, sem væri nóg afl til prufukeyrslu og framleiðslu. Með holu 11 hafa áður verið gerðar ýmsar prófanir á búnaði Viðræður hæstbjóðenda Hjalteyrareignir? / 1 HREYFING komst á Hjalteyrar- málið um helgina, en þá hittust lögmaður Arnarneshrepps og Davíð S. Kristjánsson á Akureyri. „Ég tel að þeir vilji viðræður og ég fyrir mitt leyti vil þær sem fyrst, ef af þeim verður,“ sagði Davfð, er Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi. Nokkuð er um liðið síðan tilboð í eignir Landsbankans á Hjalteyri voru opnuð. Arnarneshreppur bauó í allar eignir bankans, land og hús, en Davió S. Kristjánsson í tvö íbúðarhús og verksmiðjuhús- in á eyrinni. Af hálfu Landsbank- ans var sú hugmynd sett fram, að þessir aðilar reyndu að samræma tilboð sin, en ekkert hefur gerzt í því máli þar til nú, að aðilar hafa skipzt á skoðunum. Tilboð Daviðs er hærra en hreppsins og sagði Ingimar Brynjólfsson, oddviti Arnarneshrepps, í viðtali við Mbl., að hreppurinn treysti sér Framhald á bls 18. Jarðstöðin, verður reist við Úlfarsfell Sæmileg færð á vegum landsins Mikil hláka var um allt land í fyrrakvöld og allt þar til í gærmorg- un. að veður fór að ganga á ný meira til norðurs. Voru þvi allflestir vegir á landinu færir i gær. en siðari hluta dags var færð þó viða farin að spill- ast vegna skafrennings og ofan- komu. Morgunblaðið fékk þær upplýsingar hjá vegaeftirlitinu i gær, að í gærmorg- un hefði verið fært um Borgarfjörð. Snæfellsnes og um Bröttubrekku, Svinadal og Gilsfjörð, allt vestur i Reykhólasveit Af norðanverðum Vest- fjörðum var það að frétta, að vegurinn milli Flateyrar og Þingeyrar var ruddur i fyrradag og var þessi leið vel fær i gær, Breiðdals- og Botnsheiði voru hins vegar ófærar Prófkjör Sjálfstæðismanna: Albert, Geir og Ragnhildur fengu yfir 70% atkvæða Kröfluvirkjunar, en 1 — 2 MW vantaði á að hægt væri að láta rafalinn snúast. Einar Tjörvi sagði, að fyrst yrði endurteknar fyrri prófanir til að ganga úr skugga um að engar breytingar hefðu átt sér stað og að því loknu yrði farið i það að láta rafalinn framleiða rafmagn. Nú er búið að endurvinna fjór- ar holur, 7, 9, 10 og 11. Verið er að tengja holu 9 inn á virkjunirta, en hún hefur ekki verið tengd áður, en holur 7 og 11 voru tengdar áður. Sennilega verður ekki farið í að koma holu 10 í samband fyrr en eftir áramót. Einar Tjörvi sagði að nokkur óvissa rikti um það, hvernig holur Framhald á bls. 19. Forval hjá sjálfstæðis- mönnum á Suðurnesjum FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélag^ anna í Grindavik, Gullbringusýslu, Keflavik og Njarðvik, hafa samþykkt að fram skuli fara forval á frambjóð- endum af Suðumesjum til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins i Reykjaneskjör- dæmi. Framboðum til forvals skal skilað fyrir kl. 12.00 á hádegi laugardaginn 26. nóvember ásamt meðmælend- um, minnst 5 og mest 10 flokks- bundinna sjálfstæðismanna á Suður- nesjum. Forvalið fer siðan fram sunnudag- inn 27. nóvember kl. 1.30 i félags- heimilinu Stapa i Njarðvik. Vegurinn frá Reykjavik til Akureyrar var fær í gær, og i gærmorgun átti að moka veginn til Siglufjarðar, en vegur- inn lokaðist aftur vegna snjókomu og skafrennings. Þá var búist við að veg- urinn yfir Öxnadalsheiði lokaðist í gær- kvöldi vegna mikils skafrennings og snjókomu á heiðinni Frá Akureyri var fært til Ólafsfjarðar og eins um Dalsmynni til Húsavíkur, þaðan var svo fært í Mývatnssveit, og um Tjörnes og Sléttu til Raufarhafnar Frá Raufarhöfn komust stærri bílar og jeppar til Vopnafjarðar Af Austfjörðum höfðu þær fréttir borizt, að Fjarðarheiði var rudd í fyrra- dag og því fær í gær, Fagridalur var vel fær, og í gær átti að ryðja Oddsskarð Þá var fært suður með fjörðum, og síðan frá Hornafirði til Reykjavíkur Bíræfinn bílstuldur við Laugardalshöll SÉRSTÆÐUR bflstuldur var framinn á mánudaginn og hefur bíllinn ekki fundizt þrátt fyri mikla leit. Málavextir eru þeir, að maður nokkur brá sér á æfingu í Laugar- dalshöllinni um klukkan 18 á mánudaginn. Læsti hann bíl sín- um og skildi eftir í honum ýmsa lausamuni, þar á meðal veski og úr. Þegar maðurinn var b.úinn á æfingunni tók hann eftir þvi að bíllyklarnir voru horfnir úr vasa hans og þegar betur var að gáð, var billinn einnig horfinn og hef- ur hann ekki sést siðan. Bíllinn er af gerðinni Simca 1100, árgerð 1974, hvítur á lit, einkennisstafir R-40240. Bíllinn er tveggja dyra með toppgrind. Ef einhver getur veitt lögreglunni upplýsingar um bílstuldinn og hvar bifreiðin er nú niöur komin er hann vinsamlega beðinn að hafa samband við rannsóknadeild lögreglunnar. Mesta þátttaka í prófkjöri til þessa ALBERT Guðmundsson fékk flest atkvæði ( prófkjöri sjálf- stæðisflokksins til alþingis- kosninga, sem haldið var um helgina. Hlaut Albert 75,7% greiddra atkvæða, en í prófkjöri til borgarstjórnarkosninga 1974 hlaut Albert 77.7% greiddra at- kvæða. Næstur f prófkjörinu var Geir Haiigrfmsson, sem nú hlaut 71,4% greiddra atkvæða, en f síð- asta prófkjöri til alþingis- kosninga, sem haldið var f sept- ember 1970 hlaut Geir 71,2% greiddra atkvæða. 1 þriðja sæti varð Ragnhildur Helgadóttir með 70.9% atkvæða 1970: 43.0%), f f jórða sæti varð Ellert B. Schram með 64.9% (42.3%), í fimmta Gunnar Thoroddsen með 63.4% (61.9%), f sjötta sæti Friðrik Sophusson með 54.1% og f sjö- unda sæti Guðmundur H. Garð- arsson með 53.9% atkvæða (25.2%). Öll þessi sjö fyrstu sæti eru bundin kosning, þar sem við- komandi fengu helming greiddra atkvæða og kosningaþátttaka fór yfir 8.007, sem er þriðjungur af atkvæðisfylgi flokksins við sfð- ustu alþingiskosningar. Úrslit prófkjörsins nú urðu, sem hér segir: Samtals kusu 9.877. Flest atkvæói hlutu Albert Guðmundsson 7.475 (75.7%), Geir Hallgrímsson 7.053 (71.4%), Ragnhildur Helgadóttir 6.998 (70.9%), Ellert B. Schram 6.410 (64.9%), Gunnar Thoroddsen 6.261 (63.4%), Friðrik Sophusson 5.348 (54.1%), Guðmundur H. Garðarsson 5.324 (53.9%), Pétur Sigurðsson 4.708 (47.7%), Geir- þrúður Hildur Bernhöft 4.122 (41.7%), Elin Pálmadóttir 4.016 (40.7%) Gunnlaugur Snædal 3.206 (32.5%), Haraldur Blöndal 3.084 (31.2%). Til samanburðar eru hér birtar niðurstöður úr nokkrum eldri prófkjörum Sjálfstæðisflokksins, en fyrir alþingiskosningarnar 1974 gafst ekki tóm til að halda prófkjör, þar sem kosningar bar að með svo skjótum hætti sem menn rekur minni til. Síðast var þvi prófkjör vegna skipunar á lista flokksins við alþingiskosn- ingar, sem fram fóru 1971, en prófkjörið sjálft var haldið í sept- ember 1970. Atkvæði greiddu þá 9.271. Þá hlutu flest atkvæði: Geir Hallgrímsson 6.605 (71.2%), Jó- hann Hafstein 6.040 (65.1%), Gunnar Thoroddsen 5.738 (61.9%), Auður Auðuns 5.584 (60.2%), Pétur Sigurðsson 4.568 (49.3%), Ragnhildur Helgadóttir 3.990 (43.0%), Ellert B. Schram 3.919 (42.3%), Birgir Kjaran 3.443 (37.1 %), Geirþrúður Hildur Bernhöft 2.990 (32.3%), Olafur Björnsson 2.892 (31.2%), Höróur Einarsson 2.381 (25.7%), Guðmundur H. Garóarsson 2.340 (25.2%). í byrjun marz 1974 fór fram prófkjör vegna skipunar á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosningarnar það vor. Atkvæði greiddu 8.470. Úrslit urðu sem hér segir: Birgir Isleif- ur Gunnarsson 7.776 (91.8%), Al- bert Guðmundsson 6.580 <77-7%), Ólafur B. Thors 6.509 (76.8%), Markús Örn Antonsson 4.771 (56.3%), Elín Pálmadóttir 4.420 (52.2%). Þessir 5 aðilar hlutu bundna kosningu. Magnús L. Sveinsson 3.587 (42.3%), Ragnar Júliusson 3.491 (41.2%), Úlfar Þórðarson 3.481 (41.1%), Páll Gislason 3.267 (38.6%), Davið Oddsson 2.811 (33.2%), Valgarð Briem 2.800 ((33.1%), Margrét S. Einarsdóttir 2.618 (30.9%), Sveinn Björnsson kaupmaður 1.956 (23.1%), Sveinn Björnsson, verkfræðingur 1.670 (19.7%), Hilmar Guðlaugs- son 1.604 (18.9%), Sigriður Ás- geirsdóttir 1.380 (16.3%), Bessý Jóhannsdóttir 1.288 (15.2%), Ragnar Fjalar Lárusson 1.281 (15.1%). Fjármálaráðherr- ar Norðurlanda þinga í Reykjavík FUNDUR f j ármálaráðherra Norðurlanda verður haldinn að Hótel Sögu dagana 24.-25 nóvember n.k. og munu ráóherr- arnir Matthias Á. Mathiesen frá íslandi, Knud Heinesen, Dan- mörku, Esko Rekula, Finnlandi, Per Kleppe, Noregi og Gösta Bohman frá Svíþjóð sitja fund- inn. Slíkir fundir eru haldnir tvisvar á ári. Ráðherrarnir munu ræða ýmis sameiginleg málefni á sviði tolla- og skattamála, auk þess sem ástand og horfur í efnahagsmál- um hvers lands eru jafnan á dag- skrá þessa funda. Auk ráðherr- anna sitja þessa fundi ýmsir em- bættismenn fjármálaráðuneyta landanna. Á föstudag siðdegis er ráðgerð ferð á Reykjanes, þar sem »hitaveita Suðurnesja verður m.a, skoðuð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.