Morgunblaðið - 23.11.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. NÖVEMBER 1977
5
Rétt spor írétta átt,
sporin í TorgiÖ!
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Samtök sykursjúkra
með fund í Glæsibæ
FÉLAGSFUNDUR Samtaka
sykursjúkra verður fimmtudag-
inn 24. þ.m. kl. 20.30 i veitinga-
Leiðrétting
I frétt í Mbl. í gær um Félag
farstöðvaeigenda féllu niður tvö
nöfn stjórnarmanna, en aðal-
stjórnin er þannig skipuð: Þorlák-
ur Asgeirsson, formaður, Sverrir
Þorleifsson ritari, Bjarni Jónas-
son gjaldkeri, Sævar Sveinsson og
Ólafur Friðjónsson meðstjórn-
endur. Þá skal það einnig leiðrétt
að liðin eru 7 ár siðan félagið var
stofnað en ekki tvö eins og sagt
var og er beðið veivirðingar á
þessu ranghermi.
húsinu Glæsibæ, Álfheimum 74.
Á dagskrá verða félagsmál, þá
mun Ingibjörg Marteinsdóttir
söngkona syngja einsöng við
undirleik Guðna Þ. Guðmunds-
sonar, síðan flytur Þórir Helgason
yfirlæknir erindi er hann nefnir:
„Orsakir sykursýki, erfðir og um-
hverfi.'1 Að erindinu loknu gefst
fundarmönnum kostur á að koma
með fyrirspurnir. Þá mun Bjarni
Finnsson garðyrkjumaður sýna
gerð jólaskrauts.
Á fundinum verða afhent jóla-
kort og jólapappír þeim sem vilja
hjálpa til við sölu þess varnings
fyrir samtökin. Veitingar verða á
boðstólunum og kosta 750 kr. All-
ir félagar samtakanna eru hvattir
til að mæta.
Rússneskur píanóleikari og
skoskur hljómsveitarstjóri
Konur og kosningar
— bók Gísla Jónssonar um
kosningarétt íslenzkra kvenna
Næstu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar tslands verða haldn-
ir í Háskólablói n.k. fimmtudags-
kvöld klukkan 20.30. Á efnis-
skránni að þessu sinni er Aka-
demfski forleikurinn eftir
Brahms, Píanókonsert nr. 1 eftir
Tsjaikovsky og sinfónfa nr. 5 eftir
Prokofieff.
Öll þessi verk hafa verið flutt
hér áður, en Pianókonsertinn
mun þó vera hvað þekktastur og
hefur farið við góðar viðtökur
víða um heim, eða frá þvi að hann
var fyrst fluttur fyrir rúmum 100
árum.
Einleikari á þessum tónleikum
er rússneski pianóleikarinn
Lubov Timofeyeva. Hún hlaut
tónlistarmenntun sina i Moskvu
og kom fyrst fram opinberlega 8
ára gömul. Hún hefur hlotið verð-
laun í ýmsum keppnum, m.a. í
Prag, Montreal og Paris.
James Blair hljómsveitarstjóri
er ungur Skoti, aðeins 27 ára.
Hann stundaði nám i London og
James Blair
hlaut þar hin eftirsóttu Ricordi-
verðlaun, en þau eru aðeins veitt
fyrir frábæra hæfileika.
Lubov Timofeyeva
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs og
ÞjóSvinafélagsins hefur gefiS út bók-
ina „Konur og kosningar" eftir Gisla
Jónsson. menntaskólakennara á
Akureyri.
í bókinni rekur hann itarlega sög-
una um baráttuna fyrir kosningarétti
islenskra kvenna og mannréttind-
anna sem henni eru tengd. Er ritiS aS
stofni til sex sunnudagserindi sem
höfundur flutti i útvarp og birt voru i
Lesbók Morgunblaðsins 1971—'72.
en hér hefur Gisli Jónsson tekið efni
þeírra til endurskoðunar og gert þvi
frekari skil.
Konur og kosningar skiptist i þrjá
meginkafla sem nefnast: Karlar i
farabroddi. Konur á sóknarsvæði og
Lokatakmörkum náð. Bókin er 133
bls. að stærð, prentuð i Eddu.
Gisli Jónsson
LOÐFÓÐRAÐIR KULDASKÚR
Framleiðandi Iðunn, Akureyri
1. 34 —41 Brúnir 6400 -
2. 34 —41 Brúnir/svartir 7870 -
3. 42 —46 Brúnir/svartir 8960 -
4. 40 — 46 Svartir 11520-
5. 37 —42 Brúnir 8965 -
Austurstræti lÖ^KÐ^sínii: 27211
Póstsendum um allt land
V öruskiptaiöfnuður-
inn óhagstæður um
36 millj. kr. i október
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR
landsmanna var óhagstæður um
36,8 milljónir króna f október s.I.
1 mánuðínum voru fluttar út vör-
ur fyrir 8.236,3 millj. kr. en inn
fyrir 8.273,1 millj. kr. 1 sama
mánuði í fyrra var vöruskipta-
jöfnuðurinn hagstæður um 684,5
millj. kr. I þeim mánuði voru
fluttar út vörur fyrir 7.304,1
millj. kr. og innfyrir 6.619,6 millj
kr.
Það sem af er þessu ári er vöru-
skiptajöfnuðurinn við útlönd
óhagstæður um 9.057,0 millj. kr.,
en á sama tima í fyrra var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður
um 4.516,5 millj. kr.
Fyrstu 10 mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir
82.514.2 millj. kr. og inn fyrir
91.571.2 millj. kr. Fyrstu 10 mán-
uði síðasta árs voru fluttar út
vörur fyrir 60.671,2 millj. kr., en
inn fyrir 65.187,7 millj. kr.
I fréttatilkynningu frá Hag-
Dómkirkjan
DÓMKIRKJAN. Dregið hefur
verið í happdrætti kirkjunefndar
kvennæDómkirkjunnar. Upp kom
númer 248. Vinningsins, sem er
olíumálverk eftir Veturliða
Gunnarsson, má vitja til
Dagbjartar Stephensen, sími
33687.
Kirkjunefndin þakkar öllum,
sem styrktu störf hennar með þvi
að sækja bazarinn og kaffisöluna í
Tjarnarbúð s.l. sunnudag.
stofu ísland segir, að á þessu ári
sé búið að flytja út ál og álmelmi
fyrir 11.844,5 millj. kr. miðað við
11.556,9 millj. kr. á sama tima !
fyrra. í október mánuði s.l. voru
þessar vörutegundir fluttar út
fyrir 455,9 millj. kr. en í sama
mánuði í fyrra fyrir 1.556,9 millj.
kr. Það sem af er árinu hafa verið
fluttar inn vörur til islenzka járn-
blendifélagsins fyrir 143,2 millj.
kr., til Landsvirkjunar fyrir 598,2
millj. kr. og til Kröfluvirkjunar
fyrir 416,7 millj. kr. Þá hafa verið
fluttar inn vörur til islenzka ál-
félagsins fyrir 7.240,1 millj. kr.
Vörubílstjóri
er bedinn að
gefa sig fram
ÞAÐ óhapp varð í Engidal við
Hafnarfjörð í gær um klukkan
15.20 að grjót féll af palli vörubíls
og á mosagrænan Fiatbíl með P-
númeri. Fiatinn var á leið suður
Hafnarfjarðarveg en vörubillinn
kom af Reykjanesbraut og beygði
norður Hafnarfjarðarveg. Tölu-
verðar skemmdir urðu á Fiatbiln-
um en bilstjóri vörubilsins, sem
liklega hefur verið rauður Scania-
bill, tók ekki eftir neinu og ók á
brott. Er hann beðinn að gefa sig
fram við rannsóknarlögregluna i
Hafnarfirði, svo og vitni, ef ein-
hver eru.