Morgunblaðið - 23.11.1977, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1977
11
Gjafir og góðar óskir
til Amtsbókasafnsins
Akureyri. 21. nóv.
EITT hundrað og fimmtfu ára af-
mæli Amtsbókasafnsins á Akur-
eyri var minnst á veglegan hátt á
laugardaginn. Um hádegið bauð
bókasafnsnefnd vmsum gestum
til hádegisverðar á Hótel KEA, en
klukkan 14 hófst hátfðarsam-
koma í húsakynnum Amtsbóka-
safnsins við Brekkugötu. Gísli
Jónsson, formaður bókasafns-
nefndar, stýrði athöfninni og
flutti ávarp, en Lárus Zóphónías-
son amtsbókavörður flutti erindi
um sögu safnsins frá upphafi til
þessa dags. Blásarakvartett úr
Tónlistarskóla Akureyrar lék og
söng sextettinn GAMMI nokkur
íslenzk þjóðlög.
Þá voru flutt ávörp gesta. Run-
ólfur Þórarinsson, deildarstjóri í
Afmælisþing
Farmanna- og
fiskimanna-
sambandsins
FARMANNA- og fiskimannasam-
band Islands heldur 28. þing sitt á
Hótel Loftleiðum dagana 22.-26.
nóv. Þingið verður sett kl. 15 í
Kristalsal, en aðal málaflokkar
þingsins verða: Nýting fiskveiði-
lögsögunnar, Vita- og hafnamál,
öryggismál og kaupgjaldsmál.
Sambandið varð 40 ára i júní s.l.
sumar og er þetta þvi afmælis-
þing.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
^22480
J |B»r0unI»I«liiþ
menntamálaráðuneytinu, flutti
kveðjur og áranaðaróskir mennta-
málaráðherra sem ekki gat komið
þvi við að vera viðstaddur. Einnig
afhenti hann safninu að gjöf bók-
ina heimsmeistaraeinvígið i skák
1972, innbundna í kiðlingaskinn.
I'innbogi Guðmundsson lands-
bókavörður færði safninu Is-
landskort runnið frá Guðbrandi
biskupi Þorlákssyní að gjöf frá
Landsbókasafni Islands. Helgi
Hallgrímsson náttúrufræðingur
flutti kveðjur Náttúrugripasafns-
ins á Akureyri og Tryggvi Gísla-
son skólameistari þakkaði safn-
inu og starfsfólki þess lipurð og
greiðvikni við nemendur skól-
anna í bænum. Helgi Bergs
bæjarstjóri flutti kveðjur bæjar-
stjórnar Akureyrar og skýrði frá
tillögu sem fram hefur komið i
bæjarráði og nýtur stuðnings
allra bæjarráðsmanna þess efnis
að á fjárhagsáætlun ársins 1978
verði tekin upp fjárveiting að
upphæð 1 millj. kr. til kaupa á
stofnbúnaði hljómsafns við Amts-
bókasafnið.
Að því búnu las formaður bóka-
safnsnefndar kveðjur sem borizt
höfðu frá Háskólabókasafninu
sem gaf fræðilegar handbækur,
frá Halldóru Bjarnadóttur fyrr-
verandi stjórnarmanni Amtsbóka-
safnsins, sem ritaði kveðjuna eig-
in hendi 104 ára gömul og elzt
núlifandi Islendinga, frá bóka-
verði og bókasafnsnefnd Garða-
bæjar, frá Bjarnveigu Bjarnadött-
ur og Snorra Sigfússyni, frá
starfsfólki og stjórn Bókasafns
Kópavogs, frá Bókasafni Vest-
mannaeyja og frá Gunnlaugi Hall-
dórssyni arkitekt, sem teiknaði
Bókhlöðuna sem hýsir Amtsbóka-
safnið og héraðsskjalasafn.
Að lokum voru bornar fram
veglegar kaffiveitingar.
— Sv. P.
Gísli Jónsson formaður bókasafnsnefndar og Lárus Zóphónlasson
amtsbókavörður. Ljósm.vnd Mbl. Sv.p.
Peningaverd-
laun í bodi
á helgarskák-
móti TR
TAFLFÉLAG Revkjavíkur
gengst fyrir helgarskák-
móti um niestu helgi.
Tefldar verda sjö umferðir
eftir Monrad-kerfi og er
umhugsunartími ein
klukkustund á skák.
Mótið hefst á föstudagskvöldið
kl. 20 og verða þá tefldar þrjár
umferðir. Tvær siðustu umferðir
mótsins verða síðan tefldar á
sunnudag og hefst keppnin þá kl.
14.
Góð verðlaun eru í boði. Fyrstu
verðlaun eru 40 þúsund krónur,
en veitt eru fimm aðalverðlaun i
mótinu þau lægstu 8 þúsund
krónur. Einnig verða veitt tvenn
verðlaun fyrir 14 ára og yngri.
Skráning i mótið er hafin og er
öllum heimil þátttaka meðan hús-
rúm leyfir, en keppnin fer fram í
skákheimilinu að Grensásvegi 46.
INNLENT
Frænka á flandri í Ölafsvík og nágrenni
Ólafsvfk. 21. nóv.
LEIKFÉLAG Ólafsvíkur
frumsýndi s.l. fimmtudag
gamanleikinn Frænku
Charleys eftir Brendon
Thomas í styttu og um-
breyttu handriti leikstjór-
ans, Harðar Torfasonar.
Sýningar eru þegar orðnar
fjórar og hafa undirtektir
veriö með fádæmum góðar.
Formaður leikfélagsins,
Gréta Jóhannesdóttir, tjáði
undirrituðum að hún
myndi varla jafn ágætar
undirtektir síðan Leyni-
melur 13 var færður á svið
fyrir mörgum árum. Með
aðalhlutverk fara Emil
Kristinsson, Jóhann
Stefnisson og ívar
Steindórsson. Aðrir leik-
endur eru Pétur Jóhanns-
son, Kristin Kjartansdótt-
ir, Steinunn Kolbeinsdótt-
ir, Hreiðar Skarphéðins-
son, Kolbrún Björnsdóttir
og Elín Egilsdóttir. Þess
má geta að enginn þessara
leikara og leikenda hefur
stigið á leiksvið áður. Ráð-
gert er að sýna leikritið í
nálægum byggðarlögum.
Stjórn Leikfélags Ólafsvík-
ur skipa: Gréta Jóhannes-
dóttir, Kristján Helgason
og Sjöfn Aðalsteinsdóttir.
— Helgi.
Hér birtist síðari hluti hins
mikla ritverks um sævíkinga
fyrri tíma við Breiðafjörð,
sannar frásagnir mikillar
sóknar á opnum bátum við
erfiðar aðstæður, sem stund-
um snerist upp í vörn eða
jafnvel fullan ósigur. Nær
hvert ár var vígt skiptöpum
og hrakningum, þar sem hin-
ar horfnu hetjur buðu óblíð-
um örlögum byrginn, æðru-
og óttalaust. Aflraunin við
Ægi stóð nánast óslitið árið
um kring og þessir veður-
glöggu, þrautseigu víkingar,
snillingar við dragreipi og
stýri, tóku illviðrum og
sjávarháska með karl-
mennsku, þeir stækkuðu í
‘stormi og stórsjó og sýndu
djörfung f dauðanum, enda
var líf þeirra helgað hættum.
— Um það bil 3000 manna er
getið í þessu mikla safni.
I (
ANDI
KöRNiÁKUR
HER
GOÐUR
Er andinn mikiivægari en
efnið? Hefur góður hugur og
fyrirbænir eitthvert gildi?
Skiptir það máli hvernig þú
verð lífi þínu? Þessar áieitnu
spurningar vilja vefjast fyrir
mönnum og víst á þessi bók
ekki skýlaus svör við þeim
öllum, en hún undirstrikar
mikilvægi fagurra hugsana,
vammlauss lífs og gildi hins
góða. Hún segir einnig frá
dulrænni reynslu níu kunnra
manna, hugboðum þeirra, sál-
förum, merkum draumum og
fleiri dularfullum fyrirbær-
um, jafnvel samtali látins
manns og lifandi, sem sam-
leið áttu í bíl. Og hérerlangt
viðtal við völvuna Þorbjörgu
Þórðardóttur, sem gædd er
óvenjulegum og fjölbreyttum
dulargáfum. — Vissulega á
þessi bók erindi við marga, en
á hún erindi við þig? Ert þú
einn þeirra, sem tekur and-
ann fram yfir efnið?
„Ef ég hefði ekki vitað það, að
Guð er til, mundi ég hafa
trúað á hestana mína“, sagði
eyfirzki bóndinn Friðrik í
Kálfagerði, og skáldjöfurinn
Einar Benediktsson sagði:
„Göfugra dýr en góðan ís-
Ienzkan hest getur náttúran
ekki leitt fram“. — Þannig
hafa tilfinningar íslendinga
til hestsins ávalit verið og eru
enn og sér þess víða merki. 1
ríki hestsins undirstrikar
sterklega orð þessara manna.
Þar eru leiddir fram fræði-
menn og skáld, sem vitna um
samskipti hestsins, mannsins
og landsins, og víða er vitnað
til ummæla erlendra ferða-
manna. Bókin ihun halda at-
hygli hestamannsins óskiptri,
eins og hófatakið eða jó-
reykurinn, hún mun ylja og
vekja minningar, hún er
óþrjótandi fróðleiksbrunnur
hverjum hestamanni, heill-
andi óður tii Islands og ís-
lenzka hestsins.
íf I I I
! I 1 I ) I l i )
l I f
TITnTmijTmTTrTTITTTTTTTiITTTTmTTTÍTTTTTTTTTTmi*