Morgunblaðið - 23.11.1977, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1977 21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Sóknarnefnd Sel-
tjarnarness
biður alla þá. er gefa vilja
kökur á bazarirm, sunnudag-
inn 27. nóv. að afhenda þær
i félagsheimilinu, kl. 1 —2
sama dag.
Hörgshlíð12
Samkoma i kvöld miðviku-
dag kl. 8.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
tilkynningar
Athygli er vakin á því, að árgjöld 1 977 af
lánum við Stofnlánadeild landbúnaðarins
og Veðdeild Búnaðarbankans eru fallin i
gjaldaga.
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Veðdeild Búnaðarbankans.
Vestur-Skaftafellssýsla
Félagsfundur Sjálfstæðisfélags Vestur-SkaftafellsSýslu verður
haldinn að Eyrarlandi laugardaginn 26. nóvember kl. 1 5.
Fundarefni.
1 . Undirbúningur framboðslista fyrir n.k.
alþingiskosningar.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Tilkynning frá
Stofnlánadeild
landbúnaðarins
FÉLAG SJÁLFSTÆÐISMANNA í ÁRBÆJAR-
OG SELASHVERFI HELDUR
Árshátíð
í Skiðaskálanum, Hveradölum laugardaginn
26. nóvember
Dagskrá:
1 . Lagt verður af stað í rútum frá nýju félagsheimili að
Hraunbæ 102bkl. 18.00.
| 2. Matur (framreiddur af chef staðarins).
3. Skemmtiatriði.
4. Dans.
| 5. Happdrætti — vandaðir vinningar.
6. Borgarstjóri Birgir ísl. Gunnarsson og frú Sonja Bachman
eru gestir stjórnar.
7. Veizlustjóri er Skúli Möller.
8. Verði á veitingum mjög stillt i hóf. og miðaverð aðeins kr.
| 5.000 -
Frekari upplýsingar um árshátíðina fúslega
veittar í síma 86697 og 81406 öll kvöld meðan
miðar endast.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélagið Óðinn Selfossi
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í sjálfstæðishúsinu að Tryggvagötu 8
miðvikudaginn 23. þ.m. kl. 20.30.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaupstaðarréttindi fyrir Selfoss.
Sjálfstæðishúsið
Önnur mál. Stjórnin.
FUS STEFNIR HAFNARFIRÐI
Frjáls útvarpsrekstur
FUS Stefnir heldur almennan fund i Sjálf-
stæðishúsinu miðvikudag 23. nóv. n.k.
kl. 8.30
Fundarefm:
Frjáls útvarpsrekstur.
Framsögumaður verður Guðmundur H.
Garðarsson.
Allir velkomnir.
Ath. breyttan fundartíma
Stjórnin.
Hveragerði
Sjálfstæðisfélagið
Ingólfur
Aðalfundur verður haldmn i Hótel Hveragerði þriðjudaginn
29. nóv. kl. 21.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Rætt um væntanlegar kosningar.
3. Inntaka nýrra félaga.
4. Önnur mál. Stjórnm.
Bóksala
Til sölu eru eftirfarandi ritverk
á þýzku: Das Buch von Gold.
Mythen der Welt, König-
reich des Pferdes, Zehn-
tausend Jahre Sahara,
Wiener Porzellan, Porzellan-
maler Lexikon. Hringið i sima
52084.
Gröfur
Bröyt X2 = — 73 S. kr
1 10.000 - Bröyt X2 — 6 7
S. kr. 44.000.— — Gröfurn-
ar eru i góðu ásigkomulagi.
ABI-Produkter, Tengelhags-
vágen 15, S— 17576
Járfálla, Sweden, simi
0758/506 42.
□ Helgafell 59771 1237
IV/V. — 2
IOOF 7 = 1591 1238'/2 =
E.T. I.S.P.K.
□ Glitnir 5977231 17 — 1
Frl.
IOOF 9 E 1591 1 238'/2 =
E.T. I.
Spilakvöld —
Félagsvist
Spilað i Safnaðarheimili
Bústaðakirkju. i kvöld kl.
8.30. Fjölmennið. Verðlaun
veitt. Allir velkomnir.
Bræðrafélagið.
Laugarneskirkja
Bibliulestur i kvöld kl.
20.30. Ástráður Sigurstein-
dórsson guðfræðingur skýrir
Filippibréfið. Kaffiveitingar.
Sóknarprestur.
Kristniboðssambandið
Almenn samkoma verður í
Kristniboðshúsinu, Lauf-
ásvegi 13 í kvöld kl. 20.30.
Þórir Guðbergsson félags-
fræðingur talar. Allir
velkomnir.
— Þörunga-
vinnslan
Framhald af bls. 10
um og hún hefði lagt nafn sitt
undir miklar áætlanir á öllum
tímum og taldi hann áætlun fyrir
næsta ár svipaða og hinar áætlan-
irnar en þær hefðu aldrei staðist.
Arið 1976 var t.d. bókfærð áætlun
um 75 milljón króna verðmæti af
þara og það hefði sýnt sig að hægt
hefði verið að afla hans en þá var
verksmiðjan þannig i stakk búin
að hún gat ekki unnið hann og var
því aflanum sem á land var komið
mokað í sjóinn aftur. Þá lýsti
Bragi afköstum prammanna og
taldi að þeir gæfu engin fyrirheit
frekar en áður. Hann taldi að
þfóa þyrfti betur handöflunar-
tækni. En hann hefur hannað net,
sem gefur ný fyrirheit um það að
prammarnir séu óþarfir ti! að
sekkja hið handskorna þang.
Bragi varaði við prömmunum
vegna lélegrar sjóhæfni og að
flotholt, sem þeir ættu að fljóta á
væru ekki þannig úr garði gerð
sem ætlast var til og hefði legið
við stórslysi i sumar er pramma
hvolfdi. Aður hafði pramma
hvolft þegar hann lá bundinn við
akkeri. Engar reglur munu vera
til um sjóhæfni þeirra eða útbún-
að. Bragi taldi að gera þyrfti
prammastjórum fyllilega grein
fyrir því hvernig tæki þeir væru
með i höndunum.
Þá tók Sveinn Guðmundsson til
máls og deildi á stjórn Þörunga-
vinnslunnar fyrir sífelldar upp-
sagnir á starfsfólki og vitað væri
að síðustu uppsagnir væru gerðar
til þess að losa fyrirtækið við öfl-
unarstjóra, en hann hafði höggvið
á þann hnút, .sem stjórnin hefði
verið búin að koma fyrirtækinu í i
vor og væri ekki hægt að þegja
yfir því að einn starfsmaður væri
hundeltur fyrir það eitt að vilja
•hag fyrirtækisins sem mestan. Ef
starfsmaður má ekki segja skoðun
sina á fyrirtæki, sem er i eigu
skattborgara rikisins, þá er illa
komið lýðræði okkar. Siðan gerði
Sveinn Guðmundsson nokkrar
fyrirspurnir til Vilhjálms varð-
andi þaraöflun, cn hann taldi að
fara yrði með varúð um þetta
lífriki sem önnur og benti á það
að ef allir lausir steinar, sem þar-
inn festir heftiflögur sínar á,
væru fjarlægðir þá mundi með
tímanum stór hluti svæðisins
verða gróðurvana eyðimörk. Enn-
fremur endurtók Sveinn tilboð
sitt um að fylgjast með hlunnind-
um sínum á Miðhúsum og bera
þær upplýsingar saman við aðra
hlunnindajörð, þar sem Þörunga-
vinrislan hefði óskoraðan rétt til
þangtöku.
Vilhjálmur svaraði fyrri spurn-
ingunni um grjótið á þá leið, að
hann teldi enga hættu vera á ferð-
um vegna þéss að steinar væru
alltaf að færast frá landi út á
þaramiðin og gerði því þaraöflun-
inni á umræddum svæðum ekkert
til.
A þessum fundi kom ekki til
umræðu hrygningartími og upp-
vöxtur hrognkelsa, en eins og
kunnugt er hrygnir grásleppan á
þessum svæðum. Síðari spurning-
unni varðandi samanburð á
hlunnindamagni á friðaðri hlunn-
fndajörð og þeirri, sem leyfði
þangtöku var ekki svarað. Þá kom
Sveinn fram með þá tillötu að
skora á forstjóra og stjórn Þör-
ungavinnslunnar að endurráða
allt starfsfólk ug skora á alla aðila
að láta verksmiðjuna gegna þvi
hlutverki, sem henni var upphaf-
lega ætlað.
Af óskiljanlegum ástæðum
gerði fundarstjóri þetta að tveim-
ur tillögum og við fyrri tillöguna
flutti Vilhjálmur Lúðvíksson frá-
vísunartillögu og var hún sam-
þykkt með atkvæðum nokkurra
Framsóknarmanna og fulltrúa
iðnaðarráðherra.
Steingrimur Hermannsson
flutti ávarp og tillögu þess efnis
að kanna möguleika á þvi að auka
við og nýta heita vatnið sem bezt.
Hann lagðist á móti því að flokka
sundur fólk, þvi allir sem að mál-
efnum þörungavinnslu hefðu
unnið væru á sama báti. Tillaga
Steingrims var einróma sam-
þykkt.
Sveinn Guðmundsson gerði þá
fyrirspuun til stjórnar Þörunga-
vinnslunnar þess efnis hvort hon-
um væri heimilt að gefa eftirtóld-
um dagblöðum i Heykjavik 5000
kr. hlutabréf hverju þeirra i Þör-
ungavinnslunni. Stjórnin óskaði
eftir skriflegri beiðni og eiga
hluthafar forgangsrétt á seldum
hlutabréfum. Dagblöðin eru: Al-
þýðublaðið, Dagblaðið, Morgun-
blaðið, Vísirog Þjóðviljinn.
Fréttaritari vill vekja athygli á
því að fjölmiðlar tala um blómg-
unartíma þörunga, en slikt er
alger rökleysa, þar sem þeir eru
blómleysingjar og aðeins ein
planta, sem honum er kunnugt
um er blómplanta og vex hér við
land, þ.e. marhálmurinn.
Fréttaritari.
— Vegamál
Framhald af bls. 10
Breytingar urðu á stjórn félags-
ins þar sem fráfarandi formaður
Eggert Steinsen verkfræðingur
og Kristinn Helgason gjaldkeri
báðust undan endurkjöri.
í stjórn voru kjörnir Tómas H.
Sveinsson, formaður og Valgarð
Briem hæstaréttarlögmaður,
gjaldkeri, en auk þeirra eru i
stjórninni Guðmundtir Sigurðs-
son, Þorlákshöfn, Þór Hagalín,
Eyrarbakka og Þórarinn Óskars-
son, Reykjavík.
Bridgedeild
Víkings
Hraðsveitarkeppni Vfkings f
bridge er nú hálfnuð, en alls
verður spilað fjögur kvöld.
Að loknum tveimur kvöldum
er staðan þessi:
Sveit Stig
Sigfúsar Arnar Arnas. 1282
Guðmundar Ásgrímss. 1120
Magnúsar Ingóifss. 1080
Óla Valdimarss. 1069
Næst verður spilað i Félags-
heimili Víkings við Hæðargarð
mánudaginn 28. nóvember.
Frá Bridgesambandi
Suðurlands
Sveitakeppni Bridgesam-
bands Suðurlands fer fram i
Vestmannaeyjum dagana
25.—27. nóvember n.k. Þátt-
taka tilkynnist til Jóns Hauks-
sonar, simi 98-2001, eða Vil-
hjálms Pálssonar, sími 99-1562.
Hér er jafnframt um að ræða
undankeppni fyrir islaridsmót i
sveitakeppni og öðlast 2 sveitir
þátttökurétt.
Bridgefélag
Reykjavíkur
1 kvöld miðvikudaginn 23.
nóv. lýkur hraðsveitakeppni fé-
lagsins. Sautján sveitir taka
þátt og er spiluð heil umferð
hvqrt kvöld. Að loknum tveim
umferðum og fyrir síðustu er
staða efstu sveita þessi:
Sveit. Stig
1. Hjalta Eliassonar (As-
Brldge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
mundur Pálsson, Einar Þor-
finnsson, Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn
Arnþórsson) 1298
2. Guðmundar T. Gislasonar
(Guðmundur Pétursson, Jakob
Armannsson, Karl Sigurhjart-
arson og Páll Bergsson) 1289
3. Páls Valdimarss. 1259
4. Esterar Jakobsd. 1225
5. Steingrims Jónass. 1221
6. Vigfúsar Pálssonar- 1220
Eins og sjá má af upptaln-
ingu þessari má búast við
spennandi keppni.
Næsta keppni félagsins
verður tvímenningur, sem ráða
mun átta sætum af sextán i
meistarakeppni félagsins en
hún verður haldin í mars. Hin-
um átta sætunum mun ráða
samtala bronsstiga, spilara og
para hinn 1. mars. Er því um að
gera að vera með strax til að
auka möguleika sina. Tvimenn-
ingurinn hefst 30. nóvember og
er skráning hafin. Rétt er að
benda væntanlegum þátttak-
endum á að skrá sig strax á
miðvikudag eða hjá einhverj-
um stjórnarmanna þvi hugsan-
legt er að takmarka þurfi þátt-
töku.
EFÞAÐERFRÉTT- 8) NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í morgunblaðinu