Morgunblaðið - 23.11.1977, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.11.1977, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. NÖVEMBER 1977 t Maðurinn minn, ARNBJORN GUÐJÓNSSON rafvirkjameistari, Erluhrauni 9, Hafnarfirði, lézt í Landspítalanum, mánudaginn 21 nóvember Jóna Ásgeirsdóttir + Eiginmaður minn og faðir okkar. JÓNL ÞÓRÐARSON. forstjóri, frá Laugabóli, andaðist að Vifilsstöðum aðfaranótt 22 nóvember Brynhildur Pétursdóttir, Halla V. Jónsdóttir Cramer, Hanna Brynhildur Jónsdóttir. t Móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR J. MAGNÚSSON, lézt 2 1 nóvember Börn og tengdaborn + Dóttir okkar GUÐRUN ARNBJORNSDÓTTIR Mávanesi 9, Garðabæ sem andaðist sl föstudag í Barnaspitala Hringsins verður jarðsungin frá Fossvogskirkju laugardag 26. nóvember klukkan 2 síðsegis. Ragnhildur og Arnbjörn Kristinsson. + Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR Grundargerði 8, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 25 nóvember kl 1 5 Blóm vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vildi minnast hinnar látnu er bent á liknarstofnanir Guðjón Tómasson, Birgir Örn Guðjónsson, Svana Guðrún Guðjónsdóttir, Guðmundur Einarsson, Bilbert Ólafur Guðjónsson, Guðný Maria Sigurðardóttir og barnabörn. + VILMA MAGNÚSDÓTTIR, Klettahlíð4, Hveragerði, verður jarðsungin frá Kotstrandarkirkju, föstudaginn 25 nóv kl 2 Haukur Baldvinsson, börn, tengdabörn og barnabom + Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför SÓLVEIGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, á Sandi, Aðstandendur. Jón H. Fjalldal frá Melgraseyri F. 6. febrúar 1883. D. 14. nóvember 1977. Hinn 14. þ.m. andaðist í Borgar- spitalanum i Reykjavík, Jón Hall- dórsson Fjalldal, fyrrum bóndi á Melgraseyri í Isafjarðardjúpi, ní- tíu og fjögra ára að aldri. Hann var fæddur á Rauðamýri í Naut- eyrarhreppi 6. febrúar 1883, son- ur Halldórs bónda þar Jónssonar, Halldórssonar á Laugarbóli í Isa- firði, og konu hans Ingibjargar Jónsdóttur frá Skarði á Skarðs- strönd. Halldór á Rauðamýri var eng- inn hversdagsmaður. Hann hafði framast erlendis við búnaðarnám og búnaðarstörf, m.a. fyrir at- beina Jóns Sigurðssonar forseta. Eftir heimkomuna gerðist hann bóndi á Rauðamýri og vann ötul- lega að umbótum heima í héraði sínu Djúpinu. Hann var brenn- andi áhugamaður fyrir hverskon- ar framförum og lét mikið til sín taka í hérðasmálum, bæði sveitar- málum Nauteyrarhrepps og í sýslunefnd Norður- ísafjarðarsýslu. Jón H. Fjalldal fór ungur til náms í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og lauk þaðan gagn- fræðaprófi. Þá fór hann utan til Noregs og stundaði bóklegt bún- aðarnám í Vinterlandsbrugskolen i Kristjaniu-Ösló, og vann siðan búnaðarstörf á fyrirmyndarbúum þar í landi. Eftir 3ja ára dvöl í Noregi kom hann heim. Var hann við barnakennslu i heimasveit sinni í 2 vetur, eitt sumar vann hann búnaðarstörf fyrir Búnaðar- félag Nauteyrarhrepps og annað sumar í Gróðrarstöð Isafjarðar- kaupstaðar. Arið 1909 kvæntist Jón Fjalldal ungri og glæsilegri konu, Jónu Kristjánsdóttur frá Tungu í Dalamynnum í Nauteyr- arhreppi. Hún mun hafa verið að sögn þeirra er henni kynntust um margt óvenjuleg kona, sakir góðra gáfna, hugsjóna og mann- gæsku. Sama ár hófu þau búskap á Melgraseyri í Nauteyrarhreppi, er varð í höndum þeirra hjóna landskunnur staður og varpaði ljóma á athafnir þeirra. Ungu hjónin höfðu varið æsku- árunum til að leita sér þekkingar og menntunar og voru full áhuga og athafnalöngunar. Þess sáust og brátt merki að hugsjónum fylgdi sköruleg framkvæmd. Þau byggðu og ræktuðu jörð sína af meiri stórhug og glæsimennsku en þá var almennt títt í sveitum landsins. Híbýlaprýði og heimilis- menning var i hávegum höfð. Markvisst var unnið að því að skapa eitt af fegurstu býlum landsins og reka þar gagnsamt bú. Fyrst varð að reisa öll peningshús úr torfi og grjóti, girða túnið og slétta það. 191'9 — 1921 byggðu þau öll hús jarðarinnar að nýju úr steinsteypu, myndarlegt sérbyggt íbúðarhús og gripahús fyrir 300 fjár og 20 nautgripi. Túnræktin var stóraukin og garðrækt var mikil. Þessar miklu framkvæmdir kostuðu mikið fé og oft mun hafa verið þungt fyrir fæti, fjárhags- lega. Framundan voru erfiðir tím- ar fyrir framkvæmdamennina, tímar mikils verðfalls á landbún- aðarvörum, en með óþrjótandi dugnaði sínum og hugkvæmni í framleiðslubaráttunni tókst hon- um að verja sig og býli sitt áföll- um yfir hin erfiðu ár. Þar sem miðlungsmaðurinn sá aðeins eina leið, hina troðnu slóð, sá Jón Fjalldal margar; sumar reyndust færar, aðrar gáfust misjafnlega eins og gengur. Hinar miklu framkvæmdir og umsvif í búrekstri fullnægðu þó ekki áhuga, starfsþreki og félags- lund Jóns Fjalldals. Hann gerðist brátt athafnasamur í málum sveitar sinnar og héraðs og lét margt og mikið til sín taka og á hann hlóðust margvísleg trúnað- arstörf. Hann va formaður Búnað- ar- og nautgriparæktarfélags sveitarinnar. Hann beitti sér fyrir skipulagsbundinni mjólkursölu bænda í Inn-Djúpinu til isafjarð- ar, en mjólkur- og vöruflutningar urðu síðan bein undirstaða að reglubundnum ferðum Djúpbáts- ins tvisvar í viku frá Isafirði, um Djúpið. Jón var hreppstjóri, hreppsnefndarmaður, sýslu- nefndarmaður, formaður yfir- kjörstjórnar, búnaðarþingsfull- trúi og fulltrúi á stéttarsam- bandaþingi bænda. Hann beitti sér fyrir félagslegum búnaðar- framkvæmdum og hagkvæmari verzlunarháttum bænda. Hann var upphafsmaður að stofnun Reykjanesskólans og formaður skólanefndar hérðasskólans þar frá byrjun og þar til hann fluttist til Reykjavíkur 1955. A þeim vett- vangi urðu kynni okkar mest og nánust. Stórhugur hans i því máli og höfðingslund, heiðarleiki og einlægni verður okkur sem unn- um með honum ógleymanlegt vitni um fagra mannlega viðleitni til þess að búa i haginn fyrir þá, sem upp eru að vaxa og landið eiga að erfa. Það rýrir ekki hlut Jóns í þessu máli, þótt sama megi segja um aðra sem unnu að fram- gangi skólamálsins. Það var oft glatt og bjart um höfuðból Jóns á Melgraseyri. Þeg- ar mjög traust bygging var risin af grunni, þegar nýjar túnasléttur klæddust skrúði vorsins, þegar góð og mannvær.leg börn uxu úr grasi og við blöstu bjartar vonir um framtíð þeirra, þegar eitthvað hafði miðað frá á leið í félagsleg- um verkefnum til hagsbóta og + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og jarðarfarar eigmmanns míns, föður okkar og tengdaföður, HERMANNS KRISTJÁNSSONAR. forstjóra, Hvassaleiti 87 Guðrún Einarsdóttir, börn og tengdabörn. + Inmlegar þakkir tyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför, ÁGÚSTU B.JARNADÓTTUR, Skúlagótu 58. Jóhann Valdimarsson. Sesselja Sigurðardóttir, Erla Valdimarsdóttir. Svavar Sigurðsson, Esther Valdimarsdóttir, Daniel Þorsteinsson + Okkar innilegustu þakkir, til allra, sem vottuðu okkur, samúð sína við andlát og jarðarför, SIGBJÖRNS ÁRNA BJÓRNSSONAR. frá Múlastekk. Eiginkona. böm. tengdabörn og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vmarhug við andlát og jarðarför fósturbróður míns, SIGURÐAR GUÐMANNS SIGURÐSSONAR Sérstakar þakkir færi ég M úrarafélaginu fyrir þeirra aðstoð Lára Þorsteinsdóttir + Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR DAGFINNSSONAR. Tysgotu 4, R Sveinn Guðmundsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Borgþór Jónsson, Salvör Guðmundsdóttir, Jón Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. menningar fyrir sveit og neiau, sameiginlega fyrir fólkið í samtíð og framtið. En það hefur einnig syrt að. Maður, sem stóð i svo margvísleg- um umsvifum sem Jón Fjalldal, hlaut að verða fyrir ýmis konar vonbrigðum. Hjá því gat naumast farið. En þá sýndi Melgraseyrar- bóndinn, hver málmur í honum var, hann lét ekki bugast. Hin ágæta og samhenta kona Jóns Fjalldal, Jóna Kristjánsdótt- ir, andaðist 1932. Það var harmur stór. Rétt fyrir jólin 1948, þegar Jón var nær 65 ára gamall, brann ibúðarhús hans með öllum búnaði og húsum. Þótti þá sem það væri sjálfgert að hann hætti búskap, og færi frá jörð sinni, svo margir sem erfiðleikarnir voru á þeim árum, m.a. hvað fólkshald snerti, og heilsa hans sjálfs var tekin að bila. En slíkt var honum fjarri skapi. Hann byggði íbúðarhúsið upp að nýju stórmannlega og vel eins og hans var von og vísa. Þetta voru Jóni erfið ár. Hann stóð nú raunar einn uppi yfir brunarúst- um heimilisins. Eftir fráfail Jónu konu hans höfðu dóttir hans og fósturdætur staðið fyrir heimil- inu til skiptis af miklum myndar- skap, sömuleiðis höíðu sum fóst- urbörn þeirra hjóna starfað að búinu á ýmsum timum, en nú hafði lífið kallað þetta fólk allt til annarra starfa eins og gerist og gengur. En þá birti yfir og Jóni Fjalldal hlotnaðist mikil ham- ingja. Arið 1950 kvæntist Jón Tómasinu Tómasdóttur úr Reykjavík, ágætri velgefinni og tápmikilli konu sem bjó honum þá þegar hlýtt og ástúðlegt heim- ili síðustu 27 ár ævi hans. Árið 1955, var heilsu Jóns orðið svo háttað að honum var með öllu um megn að starfa lengur að bú- störfum. Hann seldi þá jörðina ungum myndarlegum hjónum, bróðurdóttur sinni og manni hennar, og þau hjónin fluttust til Reykjavíkur með ungan son sinn. Börn Jóns Fjalldals eru: Af fyrra hjónabandi, Halldór Fjalldal, kaupmaður í Keflavík, kvæntur Sigríði Skúladóttur og Þorgerður Fjalldal, frú i Reykjavík, ekkja Odds Ólafssonar forstjóra. Af síð- ara hjónabandi Magnús Fjalldal, sem nú stundar háskólanám í Bandaríkjunum, kvæntur Jóhönnu Armannsdóttur. Stjúpsynir Jóns Fjalldals, synir frú Tómasínu, eru Oddur Bene- diktsson og Jón Benediktsson. Fósturbörn hans eru átta og barnabörnin fimm. Á Hrísateigi 12 i Reykjavík hefur heimili þeirra staðið, lengstan þann tima eftir að þau fluttust til Reykjavik- ur. Þar hefur ríkt sama gestrisni og höfðingsskapur og áður fyrr, meðan heimilið var á Melgras- eyri. Ekki hefur þar verið setið auðum höndum. Jón Fjalldal vann lengstum fullan starfsdag frá því hann fluttist til Reykjavik- ur við umgjónarstörf í vélsmiðj- unni Héðni, allt fram að níutíu og tveggja ára aldri og kona hans gegnir störfum á Loftleiðahótel- inu. En heimilið var ekki vanrækt fyrir því. Það er friðsælt og hlýtt og var Jón umvafinn ást og um- hyggju eiginkonu og barna og annarra ástvina. Á yfirstandandi ári tók heilsu hans að hraka og síðustu mánuð- ina þjáðist hann mikið þar til yfir lauk. Þreyttum og sjúkum eftir langa og starfssama ævi er hvild- in kær. Jóni Fjalldal var ýmiss konar sómi sýndur fyrir unnin störf. Hann hlaut heiðursverðlaun úr styrktarsjóði Kristjáns konungs IX 1930. Hann va-r sæmdur ridd- ’arakrossi fálkaorðunnar. Heiðurs- félagi var hann kjörinn í Búnað- ÍX. í.í íi l i i'.i .0 1 i 4.) I) í • c c l«,.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.