Morgunblaðið - 27.11.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÖVEMBER 1977
Sinfóníutónleikar
Brahms
Háskólaforleikurinn op. 88
Tsjaikovsky Píanókonsert
nr. 1
Prokofjeff Sinfónia nr. 5.
Stjórnandi:
James Blair
Einleikari:
Lubov Timofeyeva
Héskólaforleikurinn eftir Brahms
er ágætt dæmi um það hvað mark-
miðið er stórt atriði i gerð verka í
Háskólaforleiknum fjallar Brahms
um stef, sem mótast hafa í ákveðnu
menningarumhverfi, verið notuð við
sértakar athafnir og eru að formi til
eins og dægurlög Aðferðin sem
Brahms notar, er að vinna úr stef-
bútum ýmissa stúdentasöngva eða
raddsetja þá í heird. Inn á milli
kemur þungbúinn Brahms í Ijós.
Dægurlagagerð laganna fellur illa að
sinfóniskum vinnubrögðum og þarf
að gera á lögunum mjög róttækar
breytingar. þvi dægurlag. eins og
t d „Gaudeamus', sem kemur
óbreytt undir lokin umvafið þykkum
kontarpunkti, verður aldrei annað en
dægurlag, þrátt fyrir viðhafnarmik-
inn hljómbálk Brahms þurfti að
þola margvislegar athugasemdir
samtímamanna sinna og voru þá
miklir flokkadrættir meðal aðdáenda
alvarlegrar tónlistar. Aðdáendur-
Bruckners sögðu Brahms þjást af
listrænu getuleysi og um Háskóla-
forleikinn og þann „Tragiska” var
sagt, að sá „tragiski" væri ekki sorg-
Tónlisl
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
legur en það væri Háskólaforleikur-
inn aftur á móti
Brahms stendur fyrir sinu og Há-
skólaforleikurinn var minniháttar til-
tekt af hans hálfu Verkið var hressi-
lega leikið og augljóst að James
Blair nýtur þess að stjórna
Píanókonsertinn eftir Tsjaikovksy
er stórkostleg tónsmíð og i höndum
Timofeyevu varð verkið ævintýraleg
tæknisýning, en þó nokkur „músik"
upplifun Tekniskir yfirburðir hennar
sátu í fyrirrúmi og má vera að óvið-
búnum hlustanda verði það á að
taka meira eftir ofboðslegri og að
því er virðist fyrirhafnarlausri tækni
hennar, en hugi minna að tónlistinni
sjálfri, gleymi Tsjaikovsky og tali
aðeins um Lubovu Timofeyevu
Tónleikunum lauk með fimmtu
sinfóníunni eftir Prokoffjeff
Verkið er mjög sérstætt en varla
heppilegt verk fyrir sveitina eins og
hún er í dag Erfitt er að gera sér
grein fyrir flutningnum því þunga-
miðja sinfóníunnar, sem er afar sér-
kennileg tónsmíð og á köflum stór-
kostleg, liggur á sviðum, sem hljóm-
sveitin er óvön á fást við og tónferlið
verður ekki hreint fyrr en það er
orðið flytjandanum eiginlegt.
Leikbrúðuland
með jólaleikrit
NU fer jólamánuöur í hönd, og í I
tilefni af því hefjast í dag sýning-
ar á jólaleikriti Leikbrúðulands
að Frikirkjuvegi 11. Leikþáttur-
inn fjallar um lítinn dreng, sem
er einn heima með ömmu sinni á '
jólanótt. Þá taka álfar og jóla-
sveinar að flykkjast heim að bæn-
um. Einnig koma þau nokkuð hér
við sögu hjónin Leppalúði og
Grýla.
Sunnudaginn eftir þessa fyrstu
sýningu fellur ein sýning niður,
vegna þess að Leikbrúðulandi
hefur verið boðið með jólasveina
sína til Luxemburg, en eftir heim-
komuna hefjast sýningar að nýju.
Ein graffkmynda Jens Kristleifssonar á sýningunni.
Grafíksýning á ísafírði
JENS Kristleifsson, er stundað
hefur nám í myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands og Listahá-
skólanum í Kaupmannahöfn, opn-
ar grafíksýningu f bókasafninu á
Isafirði á morgun mánudag. Á
sýningunni verða dúkristur frá
árunum 1968 — 1977 og eru allar
til sölu.
Jens hefur á undanförnum tíu
árum tekið þátt í fjölmörgum sýn-
ingum hér á landi og erlendis og
var hann heiðursgetur á samsýn-
ingu Félags sænskra grafíklista-
manna á þessu ári, en sýningin er
haldin þriðja hvert ár.
Sýningin verður opin til 5.
desember og á venjulegum út-
lánstíma bókasafnsins.
Fyrirlestur um
norska Ferðafélagið
I TILEFNI af 50 ára af-
mæli Ferðafélags Islands
hefur Den Norske Turist-
forening sent fulltrúa sinn
til að taka þátt í afmælis-
hátíðinni. Er það Truls
Kierulf bankastjóri, en
hann á sæti í stjórn félags-
ins.
Á morgun mun hann halda
fyrirlestur í húsi lagadeildar,
Lögbergi, um starfsemi Den
Norske Turistforening og jafn-
framt sýna myndir frá Noregi.
Norska ferðafélagið er meira en
100 ára og hefur haldið uppi mjög
öflugri starfsemi í fjallabyggðum
og óbyggðum Noregs og stuðlar að
auknum gönguferðum með bygg-
ingu fjölda sæluhúsa og merk-
ingu gönguleiða. Verður vafa-
laust fróðlegt að kynnast þessari
starfsemi Truls Kierulfs, — segir
i fréttatilkynningu frá Ferðafé-
lagi íslands. Fyrirlesturinn hefst
klukkan 20.30 og er aðgangur öll-
um frjáls.
Helgi sló íslandsmetió:
Vann 9 blindskákir af 10
UM síðustu helgi tefldi
Helgi Ólafsson blindskák
við 10 andstæðinga á Eið-
um, og hefur enginn ís-
lendingur teflt jafnmargar
blindskákir samtímis áður
Helgi sigraði í 9 skákum,
en beið ósigur fyrir Jóni
Þráinssyni og samkvæmt
þeim upplýsingum sem
Mbl. hefur aflað sér er
þetta íslandsmet í blind-
skák.
Eftir að Helgi tefldi blind-
skákirnar á Egilsstöðum tefldi
hann blindandi við 9 andstæðinga
á Egilsstöðum. Þá vann hann 7
skákir en tapaði tveimur, fyrir
Hjálmari Jóelssyni og Mána Sig-
fússyni.
AUCLÝSISCASÍ.MINN ER:
22480