Morgunblaðið - 07.12.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1977
11 lestum af fiski landað úr m.b. Vlkingi III á tsafirði s.l. mánudags-
kvöld. LJÓsm. ('lfar Agústsson.
Þorskganga í Húnaflóa
Línuaflinn 9-12 lestir í róðri
tsafirrii K. tles.
Læknir og verk-
fræðingur bjóða
í Guðmund RE
Prófkjör
Framsóknar:
Þórarinn og
Einar gefa
kost á sér
FRESTUR til að skila framboð-
um í prófkjör Framsóknarflokks-
ins vegna þingkosninganna í
Reykjavfk næsta vor rennur út á
föstudaginn. Morgunblaðið hefur
það eftir ábyggilegum heimild-
um, að þeir menn, sem skipuðu
þrjú efstu sæti listans við sfðustu
kosningar, hafi allir tilkynnt þátt-
töku í prófkjörinu, þ.e. Þórarinn
Þórarinsson alþingismaður, Ein-
ar Agústsson utanrfkisráðherra
og Sverrir Bergmann læknir.
Skákinni
lauk með
jafntefli
Sjá skákina virttól virt a<V
stortarmenn Kortsnojs og tékkneska
stórmeistarann llort á hls. 17.
BIÐSKAKINNI úr sjöttu um-
ferð einvígis þeirra Korchnois
og Spasskys í Belgrad um rétt-
inn til að skora á Karpov lauk í
gær með jafntefli eftir aðeins
fjóra leiki. Korchnoi hefur því
enn tveggja vinninga forystu í
einvíginu, hefur hlotið fjóra
vinninga gegn tveimur vinn-
ingum Spasskys og sex skákum
loknum.
Alls verða tefldar 20 skákir
nema anrrar hvor hljóti áður
þann 10!ó sem þarf til þess að
tryggja sér sigur í einvígínu.
Sjöunda skák einvígisins verð-
ur tefld i dag. Þá hefur
Korchnoi hvítt.
r
Ami Friðriksson
í síldarleiðangur
RANNSOKNASKIPIÐ Arni Friö-
riksson lagði í gær upp í rann-
sóknaleiðangur undir stjórn
Jakobs Jakobssonar fiskifræð-
ings. Er ætlunin að kanna ástand
síldarstofnsins útaf Suðurlandi að
lokinni síldarvertíð og áætla
stærð hans.
MJÖG góður afli hefur ver-
ið hjá línubátum héðan
A batavegi
HILMAR Gunnarsson frá
Þórshöfn, sem höfuðkúpu-
brotnaði er hann féll á
steingólf, um tveggja
metra fall, á mánudaginn,
var á batavegi í gærkvöldi,
þar sem hann lá á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri. Hilmar höfuðkúpu-
brotnaði við fallið og var
hann fluttur í skyndi til
Akureyrar, þar sem gerð
var á honum aðgerð í fyrri-
nótt.
undanfarið, eða 9—12 lest-
ir í róðri á 40 bala. Hafa
bátarnir sótt norður á
Húnaflóa.
Sigurhjörtur Jónsson, skip-
stjóri á m.b. Víkingi III, sagði i
gærkvöldi, að góð þorskganga
virtist vera að ganga inn flóann.
Hefðu þeir fyrst lagt nokkuð
djúpt en í síðustu legu hefðu þeir
verið suð-austur af suðri frá
Horni. Aflinn er svo til eingöngu
þorskur og eru stærðarskipti
þannig, að rúm 50% fara í 1. flokk
en um 40% í 2. flokk.
Eftir stirða og lélega haustver-
tíð eru sjómenn að vonum ánægð-
ir með að fá slikan jólaglaðning.
Veður hefur verið með eindæm-
um gott undanfarið, logn eða
hægviðri og hiti allt upp í 12 stig.
—Olfar.
AFLASKIPIÐ Guðmundur RE
hefur verið á sölulista um skeið
og hafa nokkrir kannað mögu-
leika á að kaupa skipið. f sam-
tali við Hrólf Gunnarsson út-
gerðarmann í gær staðfesti
hann að meðal þeirra sem
hefðu gert tilboð í skipið hefðu
verið fjórmenningar, læknir.
un erlends
GENGISSIG hefur verið nær sám-
fellt, allt frá þvf er kjarasamning-
ar voru undirritaöir milli Alþýðu-
sambands fslands og Vinnuveitt
endasamhands Islands hinn 22.
júní 1977. Að meðaltali hefur sá
erlendi gjaldeyrir, sem Seðla-
bankinn skráir og gefur út lista
yfir hækkað um 11,4% á þessum
tíma. Mest er hækkun svissneskra
franka, 29,1%, en pesetar hafa
hins vegar lækkað gagnvart krón-
unni um 8,5%.
Hækkun Bandaríkjadollars
gagnvart krónunni er 9,0% miðað
við gengisskráningu hinn 22. júní
1977 kl. 12 og gengisskráningu
hinn 6. desember klukkan 13. A
sama tíma hefur sterlingspund
hækkað um 16,5%, Kanadadollar
um 4,9%, danskar krónur um
10,4%, norskar um 10,3%, en
sænskar krónur hafa aðeins
hækkað um 1,7%.
Hækkun finnskra marka er
7,0% á þessu tímabili, franskra
franka 11,7%, belgískra franka
15,7% og svissneskra 29,1.%.
7 skip með loðnu
FRÁ miðnætti í fyrrinótt þar til í
gærkvöldi tilkynntu sjö skip um
afla til loönunefndar, samtals
2,930 lestir.
Skipin voru Svanur RE sem var
með 310 lestir, Fifill GK 240, Ósk-
ar Halldörsson RE 400, Þórsham-
ar GK 150, Loftur Baldvinsson
EA 700, Örn KE 530 og Harpa RE
.600.
verkfræðingur og tveir sjó-
menn.
Vildu þeir kaupa skipið
á 430 millj.kr. og borga út í því
120 millj.kr. Eigendur skipsins
vildu láta útborgunina standa,
en hækka kaupverðið um 15
millj.kr. og á því strandaði að
sinni a.m.k.
gjaldeyris
Hollenzk gyllini hafa hækkað um
15,8%, vestur-þýzk mörk um
19,1%, lírur um 10,3%, austur-
riskir schillingar um 18,0%,
portúgalskir escudos um 5,0% og
yen um 18,4%. Eini gjaldmiðill-
inn, sem staðið hefur sig verr en
islenzka krónan eru pesetarnir,
sem lækkað hafa um 8,5%.
Bandarikjadollar var í gær
skráður á 212,30 krónur, sölu-
gengi, sterlingspund á 390,30
krónur, Kanadadollar á 192,30
krónur, danskar krónur á 35,46
krónur hver einstök króna, norsk-
ar á 40,48, sænskar á 44,67 krónur
og finnska markið á 51,06 krónur.
Hækkun hjá
hárskerum og
efnalaugum
RÍKISSTJÓRNIN staöfesti
í gær 11% hækkun á taxta
hárskera og hárgreiðslu-
meistara og 14% hækkun á
taxta efnalauga og þvotta-
húsa, en þessar hækkanir
höfóu hlotið samþykki
verðlagsnefndar á mánu-
daginn. Hækkanirnar eru
nær eingöngu til komnar
vegna launahækkana 1.
desember.
Hans Kristján
Arnason hætt-
ir hjá S.Í.S.
í NVÚTKOMNUM Sambands-
frétlum kemur fram að Hans
Kristján Árnason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Innflutningsdeild-
ar S.Í.S., hefur sagt starfi sínu
lausu frá 1. desember s.tl. að
telja. Hans Kristján er viðskipta-
fræðingur frá Viðskiptadeild Ilá-
skóla íslands 1973 og stundaði
framhaldsnám við London
Buissness School í rekstrarhag-
fræði 1973—1975.
Hans Kristján hóf störf hjá
S.I.S. árið 1975 sem aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeildar
með aðsetri í Reykjavík, en réðast
til Innflutningsdeildar, þegar
Gísli Theodórsson tók við fram-
kvæmdastjórn skrifstofu SÍS í
London. Hans Kristján, sem sagði
starfi sínu lausu af persönulegum
ástæðum, starfar þó um stundar-
sakir við sérverkefni á vegum
Innflutningsdeildarinnar.
Andvígur leigugjaldi fyr-
ir varnarstöð
GUNNAR Thoroddsen kvaddi
sér hljóðs utan dagskrár á Al-
þingi í ga-r í tilefni af umræð-
um á þingi f.vrr, um ræðu hans
á flokksráðsfundi Sjálfstæðis-
flokksins. t ræðu sinni lagði
Gunnar Thoroddsen áher/.lu á
eftirfarandi.
— Ráðherrann er andvígur
því, að leigugjald verði tekið
fyrir varnarliðið. — Nauðsyn-
legt er að efla almannavarnir
og líta á þa*r sem hluta af vörn-
um íslands. — lslendingar
þurfa að eignast sérmenntað
fólk á sviði landvarna. — Varn-
arliösmenn eiga ekki að mati
ráðherra að njóta tollfrjáls- og
söluskattsfrjáls varnings, þeir
eiga að fá laun sín greidd í
íslenzkum peningum, varnar-
liðið ætti að kaupa meira af
Islenzkum iðnaðarvörum og bú-
vörum og greiða benzíngjald
vegna afnota af Islenzkum veg-
um, en hér á eftir fer ræða
ráðherrans f heitld:
Á þingfundi 28. nóvember
gerði einn háttvirtra þing-
manna, Kjartan Ólafsson, að
umtalsefni utan dagskrár frá-
sögn í blaðinu Vísi þann sama
dag. 1 blaóinu er sagt frá um-
mælum, sem Gúnnar Thorodd-
sen hafi viðhaft í umræðum um
varnarliðið á flokksráðsfundi
Sjálfstæðismanna tveim dögum
áður.
1 fyrirsögn Vísis eru mér lögð
í munn þessi orð, innan tilvitn-
unarmerkja: „Getum ekki lagt
vegi af eigin rammleik". 1 frá-
sögninni sjálfri er haft eftir
mér, einnig innan tílvitnunar-
merkja: „Við getúm ekki lagt
varanlega vegi af eigin ramm-
leik.“
Þessi frásögn er röng, báðar
útgáfurnar. Hin tilvitnuðu orö
hef ég aldrei viðhaft og slík
ummæli éru mér víðs fjarri.
Þennan þingfundardag og þá
næstu á eftir hafði ég fjarvist-
arleyfi frá þingi, þar sem ég
sótti fund iðnaðarráðherra
Norðurlanda í Óslö.
1 þessum umræðum var óskað
eftir skýringum frá minni
hendi. Ég mun verða við þeim
tilmælum og gera í stuttu máli
grein fyrir þeim viðhorfum
mínum, sem virðast hafa'orðið
tilefni þesSarar blaðafréttar og
umræðu á Alþingi.
Ég er andvígur þeirri hug-
mynd, að Islendingar taki
leigugjald fyrir varnarstöðina.
Ég get heldur ekki fallist á, að
Gunnar Thoroddsen.
— segir Gunnar
Thoroddsen,
sem vill efla
almannavarnir
og endurskoða
ýmis fram-
kvæmdaratriði
allt skuli óbreytt standa um
framkvæmd varnarmála. En oft
er unnt að byggja brú milli
ólikra sjónarmiða.
Hér skulu nefnd nokkur þau
atriði, sem ég tel tímabært að
taka til nýrrar athugunar og
umræðu.
1) I öllum öðrurp löndum
Norður-
Atlantshafsbandalagsins er
ekki aðeins séð fyrir landvörn-
um, heldur einnig hugað að
vörnum fyrir fólkið sjálft, al-
mannavörnum. I lögum okkar
um almannavarnir eru hugsan-
legar hernaðaraðgerðir nefnd-
ar fyrst áf þeim atriðum, sem
almannavarnir eigi að beinast
að. Þessu mikilvæga verkefni
höfum við íslendingar ekki
sinnt sem skyldi, fyrst og
fremst vegna kostnaðar. Margs-
konar varnarviðbúnað fyrir
fólkið vantar. Ástand vega og
brúa er víða þannig, að torvelt
yrði að flytja fjölda manna
skyndilega burt frá hættu-
svæði. Ef til ófriðarátaka kem-
ur eru borgararnir ofurseldir
hættu og hörmungum, sé þess-
um málum ekki gerð skil. Þetta
hafa aðrar þjóðir skilið og sýnt
þann skilning i verki. Allar
slíkar varnaraðgerðir vegna
fólksins sjálfs kosta mikið fé.
Þótt þær yrðu að sjálfsögðu
undir stjórn íslendinga sjálfra,
Framhald á bls. 18
Gengissig frá því í júní:
11,4% meðaltalshækk-