Morgunblaðið - 07.12.1977, Blaðsíða 32
Lækkar
hitakostnaðinn
UTVEGSSPILIÐ
sölusími 53737
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1977
Skylduspamaðar-
fjárhæðin hefur
hækkað um 80%
FRA OG með 1. febrúar 1978 verður unnt að innleysa þann skyldu-
sparnað, sem lajíður var á skattgreiðendur samkvæmt lögum nr. 11 frá
1975, en álagður skyldusparnaður varð þá 238.551.000 krónur. Bréfin,
sem gefin voru út af þessu tilefni, bera vexti frá og með 1. janúar 1976
til 1. febrúar 1978 eða lengur, þar sem mönnum er eigi skylt að
innleysa bréfin strax. Með vöxtum og verðtryggingu er þessi upphæð
orðin um 440 milljónir króna, ef allir kysu að leysa út bréfin 1.
febrúar.
Hinn 1. nóvember 1975 var vísi-
tala framfærslukostnaðar 491
stig, en nú í nóvember 1977 er
þessi sama vísitala 840 stig. Eins
og áður segir bera bréfin 4% árs-
vexti. Lætur þvi nærri að hvert 10
þúsund króna bréf verði innleys-
anlegt i febrúar af 18 þúsund
krónum.
Upphaflega var skyldusparnað-
ur tekinn af skattgreiðendum,
sem höfðu skattgjaldstekjur um-
fram ákveðið mark, en með skatt-
gjaldstekjum er átt við tekjur að
frádregnum persónufrádrætti.
Einstaklingar, sem höfðu skatt-
gjaldstekjur umfram eina milljón
króna, greiddu 5% í skyldusparn-
að, en hjón greiddu 5% af fjár-
hæð, sem var umfram 1.250.000
krónur. Við hvert barn hækkaði
þessi upphæð um 75 þúsund
krónur. Ef hjón töldu fram til
skatts hvort í sínu lagi var mark
hvors um sig 750 þúsund krónur.
J ólatr éssalan
hefst á föstudag
Sá mikli eggjaskortur, sem herjað hefur á íbúa höfuðborgarsvæðisins
að undanförnu, hefur leitt til þess að miklar biðraðir hafa myndazt
þegar von hefur verið á eggjum, eins og f Hagkaup þar sem Friðþjófur
tók þessa mynd við slfkt tækifæri. Verzlunarstjóri Hagkaups, sagði að
nær 500 manns hefðu beðið f biðröð þegar mest var.
Júní seldi í
Bremerhaven;
Aflaverð-
mætið jókst
um 1 imlljón
í hádeginu
TOGARINN Júníseldi 169
tonn af góðum fiski í
Bremerhaven í gærmorg-
un fyrir 32,7 milljónir
króna. Meðalverðið var
193,40 krónur kg, sem er
mjög gott verð.
Samkvæmt upplýsingum
Jónasar Haraldssonar hjá
LÍÚ var sala Júní gerð á
því gengi, sem gilti í gær-
morgun. Á hádegi í gær
var tilkynnt nýtt gengi og
hafði heildarsöluverðmæt-
ið þá hækkað um tæpa
milljón vegna sigs islenzku
krónunnar gagnvart þýzka
markinu og meðalverðið
hefði orðið 196,70 krónur,
ef gert hefði verið upp á
nýja genginu.
Verdhækkunin 18-26% frá því í fyrra
JÓLATRESSALA hofst á föstu-
daginn, samkvæmt upplýsingum
Kristins SkærinKSSonar fram-
kvæmdastjóra hjá Landgræðslu-
sjóði.
Nokkur hækkun hefur orðið á
trjánum frá jólunum í fyrra og er
hækkunin á bilinu 18—26%.
Jólatré af algengustu stærð,
1,25—1,50 em og 1,50—1,75 em,
kosta 2800 og 3000 krónur stykkið
og hafa hækkað um 3—400 krón-
ur frá í fyrra. Hinsvegar verður
engin hækkun á jólagreinum.
Að sögn Kristins er þriðjúngur
trjánna, sem seld eru í Reykjavík,
úr Skorradal og Þjórsárdal en af-
gangurinn er innflutt tré, að
mestu leyti frá Danmörku.
Sem fyrr segir hefst sala
trjánna á föstudaginn og verða
þau tíl sölu víða á höfuðborgar-
svæðinu en aðalsalan verður úr
birgðastöð Landgræðslusjóðs við
Fossvogskirkjugarð.
2 menn dæmdír í örygg-
ísgæzlu fyrir manndráp
DÓMUR var í gær kveðinn
upp í sakadómi Reykjavík-
ur í máli, sem ákæruvaldið
höfðaði hinn 1. nóvember
s.l. gegn Guðmundi
Antonssyni og Grétari
Vilhjálmssyni fyrir mann-
dráp.
Niðurstaða dómsins var
sú, að talið var sannað að
ákærðu hefðu orðið Hrafni
Jónssyni, Bjargarstíg 6,
Reykjavík, að bana í fanga-
geymslu lögreglunnar við
Hverfisgötu í Reykjavík að
kvöldi 19. júlí í sumar með
því að slá hann og herða ól
að hálsi honum.
Hins vegar þótti andleg-
um þroska og geðheilbrigði
hinna ákærðu þannig hátt-
að, að refsing væri tilgans-
laus, og voru báðir dæmdir
til þess að sæta öruggri
gæzlu á viðeigandi stofnun.
Þeir voru einnig dæmdir
til að greiða kostnað sakar-
innar.
„Greinilegur áhugi á þvi
að aflétta löndunarbaImi,,
—sagði Kristján Ragnarsson eftir viðræður við Breta
ingur L.Í.U., og Jón Olgeirsson
ræðismaður Islands í Grimsby og
umboðsmaður okkar hér. Af
hálfu Breta tóku þátt í viðræðun-
um þingrpennirnir John Prescott
frá Hull, Austin Mitchell frá
Grimsby, David Cairns frá sam-
tökum flutningaverkamanna og
fleiri verkalýðsleiðtogar auk fisk-
kaupmanna.
— Það kom greinilega fram hjá
öllum þessum mönnum mjög
greinilegur áhugi á því að löndun-
Framhald á bls. 15
— ÞAÐ VAR greinilegur áhugi
allra þeirra, sem við ræddum við i
morgun, á að aflétta löndunar-
banninu og fá íslenzkan fisk á
brezkan markað aftur, sagði
Kristján Ragnarsson formaður
Landssambands fslenzkra útvegs-
manna í gærkvöldi, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann úti
f Grimsby. Kristján og þrír aðrir
fulltrúar útgerðar á Islandi áttu í
gærmorgun fund með brezkum
þingmönnum, verkalýðsleiðtog-
um og fiskkaupmönnum um
möguleikana á því að aflétta lönd-
unarbanninu, sem hefur verið I
gildi gagnvart íslenzkum fiski-
skipum í Bretlandi frá síðasta
þorskastríði. íslendingarnir
munu hitta brezku fulltrúana aft-
ur að máli í þinghúsinu f London
á föstudaginn, en fundurinn i ga*r
var haldinn skammt frá Hull.
— Ég vil taka það fram, sagði
Kristján Ragnarsson, að þessi
fundur er haldinn að beiðni
brezkra aðila og þá fyrst og
fremst Johns Prescott þing-
manns, sem kom til íslands fyrir
skömmu. Fundurinn var haldinn
á hótéli nálægt Hull í morgun,
(þ.e. þriðjudagsmorgun) og stóð
hann í um það bil eina og hálfa
klukkustund. Við vorum þarna
fjórir af íslands hálfu, ég, Vil-
helm Þorsteinsson formaður Fé-
lags íslenzkra botnvörpuskipaeig-
enda, Ágúst Einarsson hagfræð-
Lézt eftir umferðarslys
KONAN, sem slasaðist lífshættu-
lega er hún varð fyrir bifreið í
Alfheimum í Reykjavfk fimmtu-
daginn 24. nóvember s.l., lézt af
völdum meiðsla sinna á gjör-
Nýtt búvöruverð:
Nær sama verð á ný-
mjólk og undanrennu
Vörur sem seljast dræmt, hækka lítið sem ekkert í verði
NÝTT búvöruverð tekur gildi í
dag, en Framleiðsluráð landbún-
aðarins auglýsti hið nýja verð í
gærkvöldi. Afurðaverðið sem nú
tekur gildi er byggt á ákvörðun-
um yfirnefndar framleiðsluráðs-
ins um bækkun á verðlagsgrund-
velli landbúnaðarins og felur í
sér rösklega 18% hækkun á
grundvallarverði búvaranna, að
því er Sveinn Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri framleiðsluráðsins,
sagði í samtali við Mbl. í gær-
kvöldi. Hækkun cinstakra vara er
þó nokkuð mismunandi og t.d.
hækka þær vörur þar sem veru-
legrar sölutregðu hefur gætt, svo
sem smjör og rjómi, lítið sem
ekki neitt en undanrennan ha'kk-
ar hins vegar um 66% svo að litlu
munar á verði hennar og ný-
mjólkur, en neyzla undanrennu
hefur farið sívaxandi síðustu
misseri.
I samtali vió Morgunblaðið um
forsendur þessa nýja afurðaverðs
sagði Sveinn Tryggvason að flest-
ir liðir landbúnaðargrundvallar-
ins hefðu hækkað, t.d. viðhald og
fyrning útihúsa um 59%, kostnað-
ur við búskapinn um 68% og
launaliður bóndans og skylduliðs
hans hefði hækkað um 17.8%.
Sveinn sagði, að ásamt þeim
drætti er orðið hefði á verðlagn-
ingu búvöru og gert væri ráð fyrir
hefði framangreint í för með sér
18.14% hækkun á grundvelJinum.
Auk þess hefði vinnslu- og dreif-
ingarkostnaður mjólkur hækkaö
um 3.09 kr. á hvern lítra eða um
12.2 prósent.
Um verðhækkun á einstökum
vörum sagði Sveinn m.a. að t.d.
hefði verið ákveðið að hækka
smjör ekki fyrst um sinn, en tölu-
Framhald á bls. 20
gæzludeild Borgarspítalans 1 gær-
morgun.
Hún hét Guðrún Ögmundsdótt-'
ir, Goðheimum 9, Reykjavík. Guð-
rún heitin var 68 ára gömul, fædd
6. nóvember 1909. Guðrún var
ekkja Friðriks A. Jónssonar stór-
kaupmanns og lætur hún eftir sig
uppkomin börn.
Guðrún ögmundsdóttir er 38.
Islendingurinn, sem lætur lífið af
völdum umferðarslyss hér heima
og erlendis það sem af er þessu
ári. Hafa banaslys í umferðinni
aldrei orðið fleiri.
Guðrún Ögmundsdóttir.