Morgunblaðið - 07.12.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1977
Hefur einhver
fundið banka-
bók og peninga?
UNG HJÓN urðu fyrir því óláni á
mánudaginn að týna aleigu sinni
í peningum, 180 þúsund krónum,
og bankabók að auki.
Ungu hjónin tóku sér far með
strætisvagni um tvöleytið um dag-
inn frá Grensásstöð að Hiemmi.
Fóru þau í verzlanir við Laugaveg
en þá uppgötvaðist hvarfið.
Þeir, sem vita um veski eigin-
konunnar með peningunum og
bankabókinni, eru beðnir að hafa
samband við lögregluna.
Þungt hald-
inn eftir fall
ÁTTRÆÐUR maður liggur þungt
haldinn á sjúkrahúsi í Reykjavík
eftir að hafa fallið á gangstétt við
Gunnarsbraut á mánudagsmorg-
uninn. Afleiðingar fallsins urðu
þær, að gamli maðurinn fékk
heilablæðingu og er hann nú lífs-
hættulega sjúkur.
Liverpool vann
Hamburger 6:0
ÚRSLITALEIKURINN í „Super-
cup" Evrópu, milli Liverpool,
Evrópumeistara félagsliða og
Hamburger SV, Evrópumeistara
bikarliða fór fram í Liverpool í
gærkvöldi og lauk með stórsigri
Liverpool 6:0. Mörk liðsins skor-
uðu Mc Dermott 3, Thompson,
Fairclough og Daglish. Áhorfend-
ur voru tæplega 40 þúsund.
Sjálfsbjörg:
Mjög fatlaðir öku-
menn fái talstöðv-
ar í bíla sína
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi samþykkt frá Sjálfs-
björg, félagi fatlaðra i Reykjavik:
Félagsfundur Sjálfsbjargar, fé-
lags fatlaðra i Reykýavík, haldinn
1. nóvember 1977, beinir þeim
tilmælum til hæstvirts alþingis,
að unnið verði að því á þessu
alþingi, sem nú situr, að mjög
fatlaðir ökumenn fái talstöðvar i
bifreiðar sinar, þeim að kostnað-
arlausu.
Lilja fer
í sveitina
STAFAFELL hefur gefið út
unglingasöguna „Lilja fer í sveit-
ina“ eftir Catherine Woolley.
Þýðingu gerði Oddný Björgúlfs-
dóttir. Margre teikningar prýða
bókina, sem er 148 blaðsíður að
stærð.
Sagan segir frá Lilju. 12 ára
borgarbarni, sem dvelst í sveit
sumarlangt og þeim nýja heimi
sem opnast henni.
Bókin ér prentuð í Félagsprent-
smiðjunni,. .
— Löndunar-
bannið...
Framhald af bls. 32.
arbanninu á islenzk fiskiskip
verði aflétt en það var á sinum
tíma sett á fyrst og fremst að
kröfu löndunar- og flutninga-
jverkamanna. I þvi efni voru þeir
að ieita eftir hve mikið við gætum
selt af fiski til Bretlands á næst-
unni. Kom greinilega í ljós i við-
ræðunum, hve mikill skortur er á
fiski í Bretlandi eftir að Bretar
hættu veiðum á Islandsmiðum.
— I þessum efnum gátum við
ekki gefið nein fyrirheit, heldur
aðeins visað til þess að þegar
ástandið var eðlilegt á árunum
1960 —'70 seldum við milli 10 og
15 þúsund tonn af fiski á brezkum
markaði. En við gáfum engin
fyrirheit en sögðum að það færi
eftir okkar eigin veiðum og verði
á markaðnum, hve mikið við gæt-
um selt þeim af fiski. Þeir sýndu
sérstakan áhuga á þvi að fá aukið
magn af kola. Við bentum þeim
aftur á móti á, að í samningum
okkar við Efnahagsbandalagið
væri tollur á kola svo hár, þ.e.
15%, að það stæði i vegi fyrir því
að við gætum seit þeim kola svo
nokkru næmi. Þetta atriði tóku
þingmennirnir sérstaklega upp og
sögðust ætla að beita sér fyrir því
að þetta yrði lagfært. I öðru lagi
bentum við á, að i Bretlandi yrð-
um við að greiða hærri löndunar-
kostnað en Bretar sjálfir og vísuð-
um í þvi efni til samnings við
Þjóðverja frá 1975, en samkvæmt
honum greiðum við sama i
löndunarkostnað i Þýzkalandi og
Þjóðverjar sjálfir og aðrar þjóðir
í EBE. Ætluðu þeir að taka þetta
til sérstakrar athugunar.
— Það var ákveðið að við
myndum hittast að nýju i þing-
húsinu í London á föstudaginn og
ætla brezku aðilarnir að nota tím-
ann til þess að kanna skoðanir
fulltrúa annarra stétta á því að
aflétta löndunarbanninu svo og á
fleiri atriðum, en þetta mál er
nokkuð erfitt, þar sem margir hér
i Hull og Grimsby og þá aðailega
sjómenn eru ennþá æstir vegna
þorskastriðsins siðasta. En það
var greinilegur vilji allra þeirra,
sem áttu fulltrúa á fundinum hér
i morgun, að aflétta banninu og fá
fisk frá Islandsmiðum á brezkan
markað aftur, sagði Kristján
Ragnarsson að iokum.
DESEMBERTILBOÐ
Graskögglar feitiíblandaðir kr.42.000
tonnið við verksmiðju
: Þetta verð gildir fyrir alla köggla sem
greiddir eru í desember
Hannes Pétursson
KVÆÐASAFN
1951-1976
Ileúdarúlgiifa á kiwðutn Ilannesar frá 25 e'tra
skáldferli, [>ar sem birtast kvœðt úr öllum
Ijóðabókutn skáldsins, kvaði úr bókinni I 7
hugskoti, kva'ði sem birst hafa I tírnariturn en ekki
verið prentuð í bókum og /oks nokkur áður óbirt
kvatði. I bókinru er skrá urn kveeðin i átraröð og
skrá urn kvceðaheiti og uþphafsorð í stafrófsröð.
Jóhannes Geir listmálari myndskreytti
bókina og gerði kápumvnd.
Fögur og vegleg heildarútgáfa á ljóðum
eins okkar albesta skálds.
Kjiirgripur á sérhverju menningarheimili.
„11 ■
mmn
Bræöraborgarstíg 16 Slmi 12923-19156