Morgunblaðið - 07.12.1977, Síða 7
MUKUUNBLAOlt). MIUVIKUDAGUK 7. DESEMBEK 1977
7
Ólýðræðislegt?
Raddir heyrast um það,
að ólýðræðisleg hafi verið
sú afstaða Morgunblaðs-
ins fyrir skömmu að lýsa
þvi yfir, að niðurstaða i
skoðanakönnun samfara
prófkjöri sjálfstæðis-
manna i Reykjavik um
fjárframlög varnarliðsins
til vegagerðar, yrði blað-
inu hvatning til þess að
standa svo að upplýsinga-
miðlun um þessi mál, að
meirihluta þjóðarinnar
yrði Ijóst að út i ófæru
mundi stefna, ef gripið
yrði til þess að fá Banda-
rikjamenn til að leggja hér
vegi og byggja önnur
mannvirki fyrir okkur.
Jafnframt hafa komið
fram raddir, sem gagnrýnt
hafa Geir Hallgrimsson,
forsætisráðherra og for-
mann Sjálfstæðisflokks-
ins, fyrir þá eindregnu af-
stöðu, sem hann hefur
tekið þess efnis, að ekki
komi til greina að taka
leigugjald af Bandarikja-
mönnum vegna dvalar
varnarliðsins hér. Hefur i
þvi sambandi verið bent
á, að rúmlega 7.000
stuðningsmenn Sjálfstæð-
isflokksins séu annarrar
skoðunar. Sjálfsagt er að
huga nánar að þvi, hvort
þessi afstaða Morgun-
blaðsins og þessi afstaða
formanns Sjálfstæðis-
flokksins sé ólýðræðisleg.
Hver tekur
ákvörðun um
stefnu Sjálf-
stæðisflokksins?
Þess er þá fyrst að geta,
að samkvæmt lögum og
reglum Sjálfstæðisflokks-
ins er það landsfundur
flokksins, sem tekur
ákvörðun um stefnu hans
i öllum meginmálum, en
það ár sem landsfundur er
ekki haldinn er flokks-
ráðsfundur æðsta stefnu-
mótandi vald í málefnum
flokksins. Á þessu hefur
engin breyting orðið.
Skoðanakönnun af þvi
tagi, sem efnt var til i
tengslum við prófkjörið
og er i sjálfu sér gagnrýn-
isverð á margan hátt, get-
ur með engu móti gefið
Sjálfstæðisflokknum eða
formanni hans fyrirmæli
um það, hver stefna hans
skuli vera i þessu máli eða
öðrum. Hins vegar geta
þeir fulltrúar á landsfundi,
sem ákvörðun taka um
endanlega stefnumörkun,
auðvitað gert það upp við
sig, hvort þeir vilja láta
slíka skoðanakönnun i
þessu máli eða einhverj-
um öðrum, hafa áhrif á
afstöðu sina til þeirrar
stefnumótunar, sem fram
fer á landsfundi. Munu þá
sjálfsagt margir hafa i
huga, að hlutverk stjórn-
málaflokka ekki sizt þegar
um er að ræða slika kjöl-
festu i islenzku þjóðfélagi
sem Sjálfstæðisflokkurinn
er, hlýtur að vera annað
en það að hlaupa eftir al-
menningsálitinu hverju
sinni, þvi að reynslan hef-
ur sýnt, að sviptingar i þvi
eru miklar og sú skoðun,
sem almenn er i dag á
litlu fylgi að fagna á morg-
un. Þá er ástæða til að
benda á, að þeir 7.000
stuðningsmenn sjálfstæð-
isflokksins, sem hér um
ræðir eru ekkert nálægt
þvi að vera meirihluti
kjósenda Sjálfstæðis-
flokksins i Reykjavik í sið-
ustu kosningum, svo
dæmi sé tekið. Þá fékk
S jálfstæðisf lokkurinn um
24.000 atkvæði i höfuð-
borginni, þannig að hér er
um að ræða innan við
þriðjung þess kjósenda-
fjölda, sem greiddi Sjálf
stæðisflokknum atkvæði i
Reykjavik í þeim kosning-
um og þegar af þeirri
ástæðu gæti skoðana-
könnun af þessu tagi og
niðurstaða hennar á eng-
an hátt verið bindandi,
hvórki fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn eða formann
hans, þótt ekki kæmi ann-
að til að auki. Geir Hall-
grimsson hefur þær skyld-
ur einar sem formaður
Sjálfstæðisflokksins að
standa fast við stefnumót-
un siðasta landsfundar og
siðasta flokksráðsfundar
og aðrar ekki. Loks má
nefna það, að ákveðinn
hópur stuðningsmanna
Sjálfstæðismanna i
Reykjavík getur með engu
móti gert kröfu til þess að
ráða stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í einu máli eða
öðru. Sjálfstæðisf lokkur
inn nýtur mikils fylgis um
land allt og trúnaðarmenn
hans og stuðningsmenn
utan Reykjavikur eiga
ekki minni rétt á þvi að
hafa áhrif á afstöðu hans
til meginmála en stuðn-
ingsmenn i Reykjavik.
Niðurstaða af þessari rök-
semdafærslu verður þvi
sú, að sú krafa er i meira
lagi ólýðræðisleg, að
S jálfstæðisf lokkurinn og
formaður ■ Sjálfstæðis-
flokksins skuli fara eftir
niðurstöðum skoðana-
könnunar af þessu tagi.
Talsmenn þess eru þvi
talsmenn ólýðræðislegra
vinnubragða. Þeim hefur
sjálfum orðið á, það sem
þeir saka aðra um.
Afstaða
Morgunblaðsins
Hér að framan hafa ver-
ið færð rök fyrir þvi, að
það er krafa um ólýðræð-
isleg vinnubrögð, þegar
sagt er, að Sjálfstæðis-
flokkurinn og formaður
hans, skuli taka tillit til
skoðanakönnunar af
þessu tagi. En hvað um
afstöðu Morgunblaðsins?
Morgunblaðið er sjálf-
stætt dagblað, gefið út af
einkafyrirtæki. Útgáfu-
stjórn þess hefur gefið rit-
Framhald á bls. 20
Glæsilegir hvítir og svartir náttkjólar 100%
Dioline
LIFSTYIŒJABUm
Laugavegi 4 sími 14473
KÓRÓNA BÚÐIRNAR
BANKASTRÆTI 7. SÍMI 29122. AÐALSTRÆTI 4. SÍM115005.
Pyrir nnga fólkið
Fœst í plötuverslunum
Dreifing um Karnabæ simi 28155