Morgunblaðið - 07.12.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBKR 1977
p&lllil
:W:'ííííííí:Wíííííá
mmqmm
ÍÍÍSSS
mm
/fllafoss
ÉG ER ÁVALLT ÞÆGUR OG GÓOUR SVO ER ÉG LIÐUGUR, MJUKUR OG
ÓBRJÓTANLEGUR SJÁUMST f NÝJU GJAFAVÓRUDEILDINNI I ÁLAFOSSI
Vesturgötu 2, Reykjavik,
simar: 13404 og 22091.
ndunnið sett
I frá
myndalista
„Islendingum er
sœmd og stgrkur
að vináttu Finna ”
AVARP Einars Agústsonar,
utanríkisráðherra, í tilefni 60
ára afmælis finnska lýðveldis-
ins:
Herra forseti.
Mér er það mikill heiður og
gleði að flytja yður og finnsku
þjóðinni árnaðaróskir og kveðj-
ur frá íslensku þjóðinni í tilefni
af 60 ára afmæli finnska lýð-
veldisins.
Fjarlægðin milli landa vorra
á vafalaust þátt sinn í því, að
náin samskipti þjóða vorra ná
ekki langt aftur i aldir, en því
betur þróuðust þau síðar og eru
nú góðu heilli mjög náin.
Segja má, að 60 ár séu lágur
aldur í lifi þjóðar, og örlítið
brot af langri þjóðarsögu
Finna. Síðast liðin 60 ár hafa þó
verið óvenju viðburðarík í
finnskri sögu og m;rkuð af
harðri baráttu og-þolraunum en
jafnframt hafa þau verið tími
mikilla sigra, sem hvarvetna
hafa vakið aðdáun, ekki sist á
tslandi.
Lýðveldin tvö í hinu norræna
samfélagi, Finnland og Island,
eru útverðir þess í austri og
vestri. íslenska lýðveldið er
enn yngra :ð árum en hið
finnska, en stofnun þess átti
sér langan aðdraganda og tor-
sóttan, enda þótt Islendingar
hafi ekki þurft að færa sam-
bærilegar blóðfórnir til þess að
heimta rétt sinn og frelsi.
Landshættir í báðum löndum,
þótt ólikir séu, hafa krafist elju
og þrautseigju ibúðanna öldum
saman við frumstæð skilyrði.
Við Islendingar fylgjumst með
nútímauppbyggingu Finnlands
á öllum sviðum með mikilli að-
dáun þar sem haldast í hendur
gróska í Iistum, vísindum og
tækni.
Kunnara er en frá þurfí að
segja framlag Finna til menn-
ingar heimsins að fornu og
nýju.
Þá mun það heldur ekki hafa
verið af tilviljun, að Finnar
höfðu frumkvæði að bættri
sambúð þjóðanna, sem leiddi til
undirritunar Helsinkisáttmál-
ans. Þá ber að þakka ötult starf
þeirra til þess að tryggja fram-
tíðarárangur af þeim gerningi í
raun.
Við Islendingar bindum mikl-
ar vonir við norrænt samstarf
og er okkur ljúft og skylt að
þakka hinn drjúga skerf Finna
til þess. Jafnframt erum við
tslendingar mjög þakklátir
Finnum fyrir náið samstarf hjá
Sameinuðu þjóðunum og hin-
um ýmsu stofnunum þeirra.
Okkur er mikill styrkur að
sliku samstarfi.
Islendingum er sæmd og
styrkur að vináttu Finna, sem
þeir vona að haldist traust um
aldurogævi.
Megi gæfa og gengi fylgja
forseta Finnlands og finnsku
þjóðinni.
(Flutt í llelsinki, 5. desember 1977.)
Fulltrúar Flugleiða. þeir Einar Helgason. forstöðumaúur innanlandsflugs. og Sveinn Sæ-
mundsson, hlaðafulltrúi, voru mættir úti á Reykjavíkurflugvelli um hádegisbilid í gær þegar
Fokker-vél félagsins lenti eftir áætlunarferð frá Patreksfirði. Tilefnið var, að Flugleiðamenn
höfðu reiknað út með aðstoð Hagstofunnar, að f þessu flugi væri 223.100. farþeginn sem
félagið hefur flutt innanlands frá sfðustu áramðtum og þar með hafi félagið f fvrsta sinn í
sögu ínnanlandsflugsins flutt jafnmarga farþega og svarar til áætlaðrar fbúatölu landsins
þessa dagana. Það reyndist vera farþegi nr. 10 f Patreksfjarðarvélinni, sem náði að skáka
fhúatölunni, en það var ung kona, Kristfn Torfadóttir að nafni. Þeir félagar Einar og Sveinn
færðu henni blómvönd fyrir hönd féiagsins auk þess sem Flugleiðir gáfu henni 2ja vikna ferð
f -*» tvo til Kanaríeyja. (Ljósm.: Mbl. Friðþjóf**-'
Gudrun ,
Helgadóttir
HqI|ó krokkor!
Hver haldiði að sé að svamla í jólabókaflóðinu?
Já, það er ég, PÁLL VILHJÁLMSSON. Algjörlega
ósyndur maðurinn. Maður getur ekki einu sinni
hrokkið í — nei, haldið sér í kút.
Ef ykkur er ekki alveg sama um mig, verðíði að
kaupa mig í hvelli. Annars bara sekk ég. Globb . . .
globb.....bb.
Sko, þið farið í næstu bókabúð og segið: Er til
bókin PÁLL VILHJÁLMSSON eftir Guðrúnu Helga-
dóttur? Þá segir búðarfólkið kannski: Er það sú
sem skrifaði JÓN ODD OG JÓN BJARNA og í AFA-
HÚSI? Einmitt, segið þið.
Þið getið líka gert annað:
Biðjið mömmu ykkar eða pabba, afa eða ömmur,
frænkur og frændur að gefa ykkur bókina í jóla-
gjöf. Krafan er: harðan pakka í ár.
Ég rígheld mér í bakkann á meðan .. . globb.
Ykkar
Palli
n P.s. Munið að þakka fyrir ykkur.
Bræöraborgarstíg 16, Sími 12923-19156
Svæði lokað á
Strandagrunni
HAFRANNSÓKNA-
STOFNUNIN beitti á
sunnudaginn skyndilokun
á svæði utarlega á Stranda-
grunni, þar sem í ljós hafði
komið að of smár fiskur
var í afla togaranna, sem
þar voru á veiðum.
Guðni Þorsteinsson fiskifræó-
ingur sagði í samtali við Mbl. í
gær, að rannsóknaskipið HatpoF
væri við athuganir þarna nálægt
og myndi hann kanna ástandið á
Strandagrunni núna í vikunni.
Hið lokaða svæði er um 10 mílur á
hvorn kant.
Féll og
rotaóist
ÞAÐ slys varð í bifreiðaverkstæði
í Dalshrauni í Hafnarfirði í f.vrra-
kvöld að 67 ára gamall maður,
sem var þar við vinnu, féll á gólf-
ið. Við fallið kom höfuð hans í
stöng á tjakki og var höggið svo
mikið að maðurinn rotaðist og
hlaut heilahristing. Við nán&ri at-
hugun kom í Ijós, að bein við
gagnauga hafði brákast.