Morgunblaðið - 07.12.1977, Side 23

Morgunblaðið - 07.12.1977, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1977 23 skipstjóri og sundkennari i Kefla- vík kvæntur Ingibjörgu Pálsdótt- ur og Ragna ekkja Björns Franz- sonar tónskálds og fræðimanns í Reykjavík, ein eftirlifandi af þeim systkinum. Öll börn Þor- varðar og Margrétar voru vel gef- ið hæfileikafólk. Kristín verður jafnan minnis- stæð sakir góðvildar sinnar og glæsileiks. Jóh. Gunnar Olafsson. í leiðarlok staldrar maður gjarnan við og rennir huganum til baka yfir liðnu árin. Árið 1951 kom ég í Garðastræti 33 og hitti þá frú Kristínu í fyrsta sinn, broshýra og elskulega konu, sem átti fallegt heimili og allt virtist leika í lyndi. Það var ekki fyrr en ég kom aftur á heimili hennar að Háyallagötu 17 að ég kynntist Kristínu og þeirri djúp- stæðu sorg sem lá sem steinn á hjarta hennar alla tíð síðan 1942 að hún missti dóttur sína Mar- gréti, 6 ára gamalt indælt barn. Kristín var heilsteypt kona og hreinskiptin. Hún fór aldrei dult með það að hún þráði endurfund- ina við dóttur sína mjög heitt, og síðan hún missti mann sinn Ólaf Helgason lækni 1970 var biðtím- inn oft erfiður. Kristín var mjög barngóð og bar mikla-umhyggju fyrir barnabörn- um sínum. Gjafmildin var einstök og einlæg, og hjálpsemin oft meiri en hún megnaði. Viljastyrk hafði Kristín í ríkum mæli og lét hún aldrei tísku eða umhverfi hafa áhrif á sig eins og flest samferðafólkið. Að lokum langar mig til að þakka alla hjálp og velvild, sem fjölmargir sýndu Kristínu í veik- indum hennar sérstaklega Alfreð Gíslasyni lækni á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, sem síðustu árin reyndist henni hin mesta hjálparhella. Að hennar ósk fór útförin hennar fram í lát- leysi að viðstöddum nánustu vin- um og vandamönnum. S.K. Guðmundur var vakandi maður. Hann fylgdist vel mað landsmálunum og var heima í bókstaflega öllum þáttum stjórn- sýslunnar. Gaman var að spyrja hann um hin ýmsu málefni Siglufjarðar, því hann var ávallt tilbúinn að ræða um þá hluti, sem efst voru á baugi hverju sinni í bæjarfélag- inu og ætíð hafði hann ákveðna skoðun á þvi sem hann ræddi Vtm. Árið 1976 kvæntist Guðmundur Sigurjónu Lúthersdóttur og eign- uðust þau tvo syni: Víði Óla og Guðmund Gauta og voru þeir augasteinar pabba síns. Það er erfitt hlutskipti fyrir konu hans að sjá á bak honum frá svo ungum sonum. Já, erfitt er að hugsa um þá staðreynd, að jafn lífsglaður og atorkusamur maður sem Guð- mundur var, sé horfinn af sjónar- sviðinu. Mikið mun ég sakna ágæts vinar, en öll eigum við hon- um mikið að þakka. Mér finnst Siglufjörður hafa misst einn af sínum nýtustu sonum. Ég bið Guð að blessa ástvini hans og votta þeim innilegustu samúð mína. Þórsteinn Ragnarsson. Jónína Helga Fríðríks- dóttir — Kveðja F. 29. nóvember 1907 D. 14. nóvember 1977 Aðfaranótt 14. nóvember lést að heimili sýnu húsfreyjan Jónína H. Friðriksdóttir, Grenimel 31, Reykjavík. Hún lagðist til hvílu, að því er virtist heilbrigð að kvöldi, en var liðið lík að morgni. Eftir stendur ástvina- og vinahópur og spyr: Hvers vegna? Skáldið Jóhannes úr Kötlum sagði: Vor sál er svo rík af trausti og trú að trauðla mun bregðast huggun sú, þó ævin sem elding þjóti Guðs eilffð blasir oss móti. Þeir eru margir sem eiga um sárt að binda við lát frú Jónínu Friðriksdóttur. Allir þreyttir, all- ir sjúkir, mæddir, áttu vísa þína líkn og fró. Hún var óvenjulega umhyggjusöm við sjúka og þá sem báru skarðan hlut frá borði, og ævilangt þakklát þeim sem sýndu skilning öllum þeim sem byrðar báru. íslensk gestrisni var ríkur þáttur í fari húsbændanna á Grenimel 31, þau tileinkuðu sér orð Hallgríms Jónssonar: t samfylgd skaltu vera sem sólargeisli hlýr við ylinn er góðum glatt. Með öðrum ok að bera er öllum fengur dýr. t verkinu þú verðlaun finnur. Fyrir tæpum 50 árum bast Jón- ína vináttuböndum við föður minn og stjúpmóður, sú vinátta styrktist i reynslueldi áranna. Ég og börn mín sendum úr fjarlægð samúðarkveðjur eiginmanni hennar, Guðmundi Magnússyni, syni, fóstursyni óg fjölskyldum þeirra og biðjum þeim öllum styrks í þessu þunga reiðarslagi. Ekki síst ömmubörnunum 8, sem öll hafa misst svo óumræðilega mikið, þó sum skilji ekki ennþá hve ófyllt skarðið í ástvinahópn- um er stórt, nöfnurnar hennar báðar vona ég að erfi fórnarlund og mannkosti ömmu sinnar. Mun það reynast gott veganesi út i lífið. Að eigin ósk var Jónian sál- uga jörðuð í kyrrþey 23. nóvem- ber að viðstöddum stórum hópi ástvina og vina. Drottin gefi dánum ró, hinum líkn sem lifa. Guðbjörg S. Gunnlaugsdóttir. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast t sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera I sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnuhili. Vatteraóir vindjafefear í stæróum 13008 & 12861 öllum bjóóum vetrinum byrginn í vindjafefea frá Faco 14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.