Morgunblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 269. tbl. 64. árg. MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Myndin var tekin í Miinchen í gær skömmu áður en réttarhöld voru sett yfir bankaræningjanum Ludwig I.ugmeier (til hægri) og Gerhard Linden. Þeir eru ákærðir fyrir aö hafa rænt banka í Munchen og Frankfurt árin 1972 og 1973. Höfðu þeir upp úr krafsinu um 2,6 milljónir marka. Þeir náðust í Mexico og voru framseldir til V-Þýzkalands árið 1974. Lugmeier tókst síðan að sleppa úr réttarsal þá og var leitað að honum með milligöngu Interpol unz hann var handtekinn hér á tslandi á þessu ári. Healey leikur galdrakarl London, 13. des. Reutrr. DENIS Healey fjármálaráð- herra Bretlands mun leika tit- ilhlutverkið í Galdrakarlinum f Oz sem flutt verður f sjón- varpi á mánudaginn sem liður f sérstakri jóladagskrá. Var þetta tilkynnt f dag. Healey Eanes ræddi vid Schmidt í gær I Lissabon komu fulltrúar flokkanna saman Deila um „auðu stólana” kom upp á síðustu stundu Waldheim hafnaði tillögu um að Siilavsuo yrði í forsæti Kaín, TelAviv Amman, Damakus ÞEGAR Kairóráðstefnan hefst kl. níu í fyrramálið verða fimm bekkir auðir þar sem ætlað var sæti fulltrúum Sovétríkjanna, Sýrlands, PLO, Jórdanfu og Líbanon. Tvö sfðastnefndu ríkin hafa borið við diplómatiskum ástæðum fyrir að koma ekki á fundinn. Forsvarsmaður egypsku sendi- nefndarinnar er dr. Maguid og er sagt að Sadat forseti hafi brýnt fyrir honum að sýna sveigjan- leika, svo að engum hurðum yrði skellt f lás og síðar yrði hægt að færa slfka ráðstefnu upp á utan- ríkisráðherrastig og þá ef til vill einnig með þátttöku þeirra sem nú sitja heima. í kvöld var ákveðið að Egyptaland yrði i forsæti. Búizt er við að ráðstefnan standi a.m.k. 10 daga. t fréttum frá Kairó i kvöld sagði að nokki rt missætti hefði á sið- ustu stundu komið upp við undir- búning vegna ,,auðu stólanna" sem ætlaðir voru Palestínumönn- um. Var þetta haft eftir heimild- um innan egypsku og ísraelsku sendinefndanna en bætt við að Bandaríkin hefði gengið í málið og reyndu eftir megni að jafna ágreininginn sem ekki er sagður alvarlegs eðlis. Deilan snýst að sögn heimilda um hvort standa eigi á spjaldi við sæti hinna fjar- stöddu „Palestina" eða „Frelsis- samtök Palestinumanna — PLO“. Egypskir embættismenn hafa sagt að útbúnir verði stólar og borð með skiltum yfir alla þá að- ila sem til fundarins voru boðaðir þar á meðal Sovétrikjanna. Israel- ar hafa á hinn bóginn alltaf neit- Framhald á bls. 12 Dollarinn lækkar London, 13. des. AP. BANDARÍKJADOLLAR lækkaði mjög í verði gagn- vart ýmsum gjaldmiðlum í dag, einkum þó gagnvart þýzka markinu, hollenzku guilderni og svissneskum og belgískum frönkum. Þessi snögga lækkun sem varð enn á dollar í dag er sögð eiga rætur sínar að rekja til umræðna þeirra sem farið hafa fram á fundi bankastjóra í Basel í Sviss, en þar hefur komið fram að Bandaríkin hafa engin áform á prjónunum að svo stöddu er styrkt gætu á ný stöðu dollarans. Segir AP- fréttastofan að þessi af- staða Bandaríkjanna hafi vakið bæði kvíða og von- brigði og sé búist við áframhaldandi ókyrrð á gjaldeyrismálunum vegna þessa. Verð á gulli var svipað og áður. Bonn, Lissabon 13. desember. AP. HELMUT Sehmidt, kanslari Vest- ur-Þýzkalands, og Antonio -Ramalho Eanes Portúgalsforseti áttu viðræður í dag og Schmidt fullvissaði þar Portúgalsforseta um að Vestur-Þjóðverjar væru áfram um að lýðræðið fengi að styrkjast og eflast sem mest í Portúgal. Þeir ræddu saman í eina og hálfa klukkustund og þar staðfesti Schmidt fyrri heit Vest- ur-Þjóðverja um að þeir myndu veita Portúgölum verulega efna- hagsaðstoð-á næstunni. Er talið að sú hjálp verði Portúgölum geysi- lega mikilvæg, enda má ráða þýð- ingu ferðar Eanesar af því að hann fór í Þýzkalandsferðina þó svo að stjórnarkreppa væri heima fyrir. Talsmaður kanslarans sagði að málin hefðu verið rædd af mikilli hreinskilni, Vestur-Þjóðverjar gerðu sér grein fyrir því hversu nauðsynlegt væri að Portúgal væri í hópi lýðræðisþjóðanna í Evrópu og Eanes hefði gert ítar- Framhald á bls. 12 Kairófiindurinn hefst í dag: Egypskur vegabréfseftirlitsmaður á flugvellinum í Kairó kannar hér vegabréf ísraela við komu þeirra þangað í gær. Handrit fundið eftir Jane Austen London, 13. des. AP. HANDRIT að áður óþekktu leikriti eftir Jane Austen, hinn þekkta 19. aldrar rithöfund var selt fyrir 17 þúsund sterlings- pund eða um það bil sex og hálfa milljón ísl. króna á upp- boði hjá Sothebys f London í dag. Leikritið heitir „Sir Charl- es Grandson’s or The Happy man — gamanleikur.” Er talið að það sé skrifað I kringum 1800 eða um svipað leyti og hið fræga verk hennar „Pride and Prejudice.” Handritið var sett í sölu af niðjum skáldkonunnar. Sf sem festi kaup á því var bókabúðar- eigandi í Oxfordshire, David Astor að nafni. Hann sagðist hafa keypt það vegna þess hann hefði jafnan dáð verk Jane Austen og hann vildi ekki að handritið lenti utanlands. Stjórn Schmidts hefur veikzt í sessi Guillaumemálið barnaleikur hjá njósnamálinu nú Bonn, 13. des. Reuter. RÍKISSTJÖRN Helmut Schmidt kanslara er óstöðugri í sessi en nokkru sinni allan valdatíma sinn eftir að skýrt var frá þvl, að njósnahringur hefði komið hundruðum leyniskýrslna og skjala í hendur A-Þjóðverja. Nokkur dagblöð lýstu njósna- hneykslinu sem því mesta og al- varlegasta í sögu Þýzkalands frá strfðslokum og stjórnarandstaðan hefur krafist róttækra ráðstafana á æðri stöðum. Varnarmálaráðherrann Georg Leber tilkynnti í dag, að yfirmað- ur deildar innan ráðuneytisins yrði settur frá starfi á meðan rannsókn þessa máls stæði yfir. Ráðherrann sagði á fundi með blaðamönnum að málssókn yrði hafin gegn embættismanninum Herbert Laabs, að hluta að kröfu hans sjálfs, en einkaritari hans, Renate Lutz, hefur verið tilgreind sem höfuðpaurinn i málinu. Renate Lutz, 37 ára gömul, er sökuð um að hafa látið A- Þjóðverjum í té yfir þúsund leyni- skjöl Nato og v-þýzkar hernaðar- áætlanir. Hún var handtekin ásamt eiginmanni sinum Lothar- Erwin og þriðja vitorðsmannin- um, Juergen Wiegel, i júní í fyrra. Ríkissaksóknarinn Kurt Rebmann lét hafa það eftir sér í gær, að þetta njósnamál hefði orsakað langtum meiri hernaðar- •tjón fyrir V-Þýzkaland heldur en þegar upp komst um a-þýzka njósnarann Guillaume á skrif- stofu Willy Brandts þáverandi Framhald á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.