Morgunblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977 J®ltri0ntiwMííífoiiííi> Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar R itst jórnarf u lltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavlk. Haraldur Sveinsson. M atthías J ohannessen, Styrmir Gunnarsson Þorbjórn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Ámi GarSar Kristinsson. ASalstræti 6, slmi 10100. ASalstræti 6. simi 22480. Áskriftargjald 1500.00 kr. á minuSi innanlands. j lausasölu 80.00 kr. eintakiS. Morgunblaðið- sjálfstætt blað Sú skoðun, sem Iengi var út- breidd, að Morgunblaðið sé sérstakt málgagn Sjálfstæðis- flokksins, að forystumenn Sjálf- stæðisflokksins stjórni skrifum Morgunblaðsins og að þau sjónar- mið, sem fram koma í forystu- greinum Morgunblaðsins og öðr- um stjórnmálaskrifum beri að lita á sem stefnu Sjálfstæðisflokksins á sér ekki lengur fylgismenn. Lesendur Morgunblaðsins og al- menningur í landinu hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir því, að Morgunblaðið er sjálfstætt blað, sem markar sjálfstæða stefnu til þeirra mála, sem á döfinni eru hverju sinni. Því heyrist ekki lengur fleygt, að Morgunblaðið sé málgagn Sjálfstæðisflokksins og raunar keppast ýmsir trúnaðar- menn Sjálfstæðisflokksins við að afneita blaðinu sem slíku. En nú þegar ekki er lengur stætt á því að halda því fram, að Morgunblaðið sé sérstakt mál- gagn Sjálfstæðisflokksins finna menn upp á því að halda því fram, að Morgunblaðið sé sérstakt mál- gagn Geirs Hallgrímssonar for- sætisráðherra, sem jafnframt er stjórnarformaður útgáfufélags Morgunblaðsins, Arvakurs hf. 1 útvarpsþætti fyrir skömmu sagði einn af þingmönnum Sjálfstæðis- flokksins, Albert Guðmundsson, um Morgunblaðið: „Ja, það má nú segja að það sé blað forsætisráð- herrans, sem er formaður stjórn- ar Arvakurs og Arvakur hefur engu öðru hlutverki að gegna en að gefa út Morgunblaðið." Eftir- farandi orðaskipti fara síðan fram milli þingmannsins og fyrirspyrj- anda: „Þannig að Morgunblaðið túlkar fyrst og fremst og ein- göngu stefnu Geirs Hallgrímsson- ar? — Ég vil ekki segja að það túlki eingöngu stefnu Geirs Hall- grímssonar. — En þetta er blað hans sem sagt. — Það hlýtur að segja sig sjálft.“ Þessi ummæli þingmannsins benda til þess, að ýmsir eigi afar erfitt með að sætta sig við þá staðreynd, að Morgun- blaðið lúti sjálfstæðri ritstjórn, sem óháð er sjónarmiðum útgáfu- stjórnar. Ritstjórar Mbl. eru hvorki vika- drengir stjórnmálamanna né ann- arra. Sú hefð er gömul og rótgróin á Morgunblaðinu, að útgáfustjórn Árvakurs ræður ritstjóra að blað- inu og i þeirri ráðningu felst að þeir hafa algerlega frjálsar hendur um að móta afstöðu blaðs- ins til manna og málefna hverju sinni. Hvorki formaður útgáfu- stjórnar né aðrir eigendur Morgunblaðsins gera nokkru sinni tilraun til þess að hafa áhrif á stefnumótun blaðsins. Hún er eingöngu í höndum ritstjóra blaðsins, þeir einir bera á henni ábyrgð og það er út í hött, þegar tilraun er gerð til þess að gera aðra menn ábyrga fyrir þeim ákvörðunum og þeirri stefnu- mörkun, sem ritstjórar Morgun- blaðsins einir standa að og bera ábyrgð á. Geir Hallgrímsson for- sætisráðherra og formaður út- gáfustjórnar Morgunblaðsins heldur fast við þessa hefð og þessi vinnubrögð, sém eru í samræmi við þau lýðræðissjónarmið, sem Sjálfstæðisflokkurinn byggír á. Það er því rangt, þegar nú er gerð enn ein tilraun til þess að halda því fram, að Morgunblaðið sé sérstakt málgagn núverandi forsætisráðherra. Hins vegar er það alveg ljóst, að Morgunblaðið styður eindregið þá stjórnmála- stefnu, sem Sjálfstæðisflokkur- inn og Geir Hallgrímsson berjast fyrir, enda þótt ágreinings geti gætt í ýmsum atriðum. En sá stuðningur kann að koma fram með öðrum hætti en ýmsir stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisfiokksins frekast vildu, enda ríkir ekki, sem betur fer, ein skoðun í flokknum í öllum málum(!) Það er líka ljóst, að Morgunblaðið styður stefnu þeirrar ríkisstjórnar, sem Geir Hallgrímsson er í forsæti fyrir, enda telur Morgunblaðið, að sú ríkisstjórn sé trausts verð og hafi unnið gott endurreisnarstarf í ís- lenzkum þjóðmálum á þeim rúm- lega þre'mur árum, sem hún hefur setið að völdum, og i sumum mál- um hefur rikisstjórnin unnið stór- virki eins og i landhelgismálinu. Um það fjallaði blaðið sérstaklega á sinum tíma og voru þá ékki allir sjálfstæðismenn á einu máli um skoðun blaðsins. Það breytir engu um þennan stuðning Morgunblaðsins við nú- verandi ríkisstjórn, þótt hún hafi átt taisverðum andbyr að mæta í störfum sínum og eigi enn. Það er ekki háttur Morgunblaðsins að hlaupa eftir hvaða goluþyt sem er eins og ýmsir aðrir. A Morgunblaðinu hvílir mikil ábyrgð og ritstjórar blaðsíns og aðrir starfsmenn gera sér þá ábyrgð ljósa. Stundum kemur það fram, að menn furða sig á því að Morgunblaðið fylgi fram sjónar- miðum sem litlum vinsældum eiga að fagna þá stundina. En skoðanir Morgunblaðsins eru ekki til sölu, hvorki í blaðsölu- turnum né annars staðar. Morgunblaðið fylgir ákveðinni grundvallarstefnu í málefnum is- lenzku þjóðarinnar, það berst fyrir ákveðnum hugsjónum og þeir, sem vita, að þeir hafa fyrir góðum málstað að berjast, hafa ekki áhyggjur af því, þótt þeir fái stundum mótbyr og þótt almenn- ingsálitið fari um stundarsakir í annan farveg. Það er-eðlilegt og lýðræðislegt og af þvi hefur Morgunblaðið engar áhyggjur, en blaðið breytir ekki stefnu sinni til þess eins að þóknast skyndiskoð- unum, sem uppi kunna að vera við og við. A þessi meginatriði í viðhorfum Morgunblaðsins til þjóðmálabar- áttunnar er ástæða til að minna nú, þegar úr ýmsum áttum er vegið að Morgunblaðinu og þeim stefnumálum, sem það vill berjast fyrir. Sjálfstætt blað, sem gerir sér grein fyrir ábyrgð sinni, hvik- ar ekki frá stefnumálum sínum og óttast ekki hávaðasamar umræð- ur, sem of oft einkenna þjóðlíf okkar. Morgunblaðið lætur sér ekki sízt í léttu rúmi liggja merk- ingarlaus vígorð eins og „sér- trúarsöfnuður", „flokkseigenda- málgagn", „rikismanna fjölmið- ill“ og annað þess háttar, sem frekar á heima í Speglinum en alvöru blöðum. En það skilur slík- ar freistingar — og svarar að- hrópsmönnum sínum í gaman- sömum tón með tilvitnun í Tómas skáld, að þeir skuli halda iðju sinni áfram því að freistingar séu ekki til að standast þær(!) Vopnin snerust í höndum Spasskys LÁNIÐ lék svo sannarlega ekki við Boris Spassky fyrrum heimsmeistara í skák í gær Eftir að hafa unnið vel úr betri biðstöðu missti hann algjör- lega þráðinn í skákinni. Fyrst varð hönum á töluverð ónákvæmni í yfir- burðastöðu Við það virtist hann fara gjörsamlega úr jafnvægi og næsti leikur hans var sennilega grófasti afleikur í einvíginu til þessa Þar með var vinningsstaða orðin að tap- aðri og Viktor Korchnoi veittist létt að notfæra sér mistökin Þessi óvænti ósigur heimsmeistarans fyrr- verandi hefur líklega gert allar vonir hans um að honum takist að jafna metin í einvíginu að engu, því for- skot Korchnois er orðið ógnvekj- andi. Korchnoi hefur nú hlotið sex vinninga, en Spassky aðeins tvo, en sá sem verður fyrri til að hljóta 1 0 og hálfan vinning ber sigur úr být- um í einvíginu. Fréttamaður Morgunblaðsins í Belgrad. Miroslav Milanovich sagði í skeyti til blaðsins í gær að Spassky hefði teflt fyrstu leikina eftir bið hratt og vel, en síðan hafi honum greini- lega verið mjög brugðið er hann hafði leikið gróflega af sér í 50 og 51 leik Aðalaðstoðarmaður Korchnois, enski stórmeistarinn Raymond Keene, sem dregur ávallt að sér mikla athygli í skákskýringasölum, fyrir djarflegar yfirlýsingar um stöð- una á borðinu og hnyttin tilsvör, var að sögn Milanovichs mjög þögull í gær meðan fyrstu leikir biðskákar- Skák eftir MARGEIR PÉTURSSON (Hvitur verður að fórna skiptamun til að halda vinningslikum sinum, því að eftir 46 Rxf7 — Rxh4 blasir jafnteflið við) Ha7, 47. h5 — Hda2, 49. f4 — (Eftir 48 h6 — H2a6 heldur svartur sinu Hins vegar kom 48 Kg3 sterklega til greina) d4. 49. h6 — d3. jafntefli eftir 50. Hg7!? — H2a6l, þvi að 51. Hxa7 — Hxa7. 51. g4 gengur ekki vegna 51. . . Hh7!, en 50 f5! gefur hvitum vinningsmögu- leika T.d. 50. d2, 51. Re4+ — Kd4, 52. Rxd2 — Hxd2. 53 Hg7 — Ha8, 54 f6! með góðum vinn- ingshorfum Sama er upp á teningn- um eftir 51 Kc4, 52 Hd6! og 51 Kb5, 52 Rc3 + — Kc4, 53 Hc6+ Svartur verður þvi e.t.v. að reyna 50 . H2a6, en vandamál hans eru enn óleyst eftir 51 f6 50. Kc4 yrði svarað með 51 Rf3) H2a6!, 51. h7?7 (Hörmulegur afleikur, sem minnir reyndar mikið á mistök Spasskys i 13. einvigisskák hans við Fischer 1972 Nauðsynlegt var 51 Hh8, sem leiðir að öllum likindum til jafnteflis) Hxh7 + ! (Þar með er draumurinn búinn Lokin eru aðeins tæknilegt atriði fyrir svartan) 52. Kg3 — (Eftir 52 Rxh7 — d2, 53 Hd7 — Hd6 rennur svarta peðið upp) Hd7, 53. Hc8+ — Kb4, 54. Hb8 + — Ka3, 55. Re4 — d2, 56. Rxd2 — Hxd2, 57. Hg8 — Kb4, 59. g3 — Ha3 + , 60. Ke4 — He2 + , 61. K«5 — Kd6. 62. g4 — Ha5 + , 63. Kg6 — He6 + , 64 Kh7 — Ha7 + , 65. Hg7 — Hxg7 + , 66. Kxg7 — He4. Hvitur gafst upp Þessi biðskák fór því á annan hátt en ætlað var i upphafi hennar og úrslit hennar hafa orðið Spassky sár vonbrigði, þvi að hann mætti til leiks fullur sjálfstrausts Hér sjást þeir Spassky og Korchnoi fyrir hina afdrifaríku áttundu skák. Spassky er á leið á skákstað ásamt eiginkonu sinni, Marinu, en Korchnoi giettist við einkaritara sinn. innar voru tefldir. Hann játaði síðar að þrátt fyrir að þeir Korchnoi og Stean hefðu rannsakað biðstöðuna í tólf klukkustundir hafi þeim ekki tekist að finna jafnteflisleið Sigur Korchnois kom því honum eins og flestum öðrum mjög á óvart Framhald skákarinnar eftir bið var þannig: Svart: Viktor Korchnoi 42. . Hf7, (Biðleikurinn Svartur átti ekki annars úrkosta en að láta peðið á h7 af hendi) 43 Rxh7 — Kc5, 44 Hxg6 — Re5, 45. Rg5 — Hxg6, 46. Hxg6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.