Morgunblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977
Stéttarsamband bænda
kærir til Jafnréttisráðs
A FUNDI Jafnréttisráðs í gær-
morgun var tekið fyrir erindi frá
þremur forustumönnum Stéttar-
sambands bænda, þar sem þeir
skjóta tilteknu atriði í úrskurði
yfirnefndar Framleiðsluráðs
landbúnaðarins til jafnréttisráðs
þar sem þeir telja að í úrskurðin-
um felist mismunun kynjanna.
í stuttri greinargerð með kæru
Stéttarsambandsins kemur fram
að stéttarsambandið telur úr-
skurðinn i heild sinni óviðunandi,
en til Jafnréttisráðs skjóta þeir
sérstaklega úrskurði yfirnefndar
varðandi kröfu bændasamtak-
anna um jöfn laun bænda og hús-
freyja. í úrskurði yfirnefndar var
hins vegár ákveðið að bóndinn
skyldi fá rúmlega 611 kr. á tím-
ann en húsfreyjan liðlega 560
krónur. í þessu telja forráðamenn
Stéttarsambandsins fólgið launa-
legt misrétti.
Að sögn Guðrúnar Erlendsdótt-
ur, formanns Jafnréttisráðs,
hefur ráðið þegar óskað eftir
frekari greinargerð viðkomandi
aðila.
Léttsteypan í Mývatns-
sveit enn rafmagnslaus
Björk Mývatnssveit, 13. des.
MJÖG hagstætt veður hefur verið
hér um slóðir það sem af er des-
ember, og færð góð á öllum veg-
um. 1 óveðurskaflanum í nóvemb-
er varð að hætta dælingu úr Mý-
vatni upp í þrær kísiliðjunnar.
Nú er hins vegar dæling hafin á
ný fyrir nokkru og dælt á vöktum
allan sólarhringinn. Ég minnist
þess ekki að áður hafi verið dælt
hráefni úr Mývatni á vegum Kís-
iliðjunnar í desember.
Enn er léttsteypan í Bjarnar-
flagi rafmagnslaus og ekkert ver-
ið framleitt síðan rafmagnið fór í
nóvember, þegar staurar brotn-
uðu í rafmagnslínunni vegna ís-
ingar. Ljóst er að tjón er orðið
mikið af þessum sökum, og ekki
óeðlilegt þó að spurt sé hver beri
það tjón. Vart hefur orðið mikill-
ar óánægju hér, að ekki skuli vera
búið að leysa þetta mál, t.d. með
dísilstöð eða þá með þvi að styrkja
línuna með fleiri staurum. En
Telex-skákkeppnin;
ísland mætir
A-Þýzkalandi
DREGIÐ hefur verið í undanúr-
slitum Ölympíumótsins í telex-
skák. Varð niðurstaðan sú, að ís-
land mætir Austur-Þýzkalandi og
Sovétríkin mæta Hollandi.
Að sögn Einars S. Einarssonar,
forseta Skáksambandsins, eru
töluverðar líkur á því að ísland
komist í úrslit keppninnar, þar
sem ísland og A-Þýzkaland eru
talin áþekk að styrkleika í skák.
Hvor þjóð hefur á að skipa tveim-
ur stórmeisturum, ísland þeim
Friðrik Ólafssyni og Guðmundi
Sigurjónssyni, en A-Þýzkaland
þeim Uhlmann og Vogt.
Líklegt er að keppnin fari fram
21. janúar n.k.
sem sagt: nú þarf án tafar að
koma rafmagni í Léttsteypuna á
ný.
Samkvæmt síðustu mælingum
er vatnið í Grjótagjá nú orðið 49
stiga heitt C, og spáð er að það
muni verða orðið 50 stig um ára-
mót með sama áframhaldi.
Kristján
— Spassky er
baráttumaður
Framhald af bls. 32.
Timman. Nú, og kannski hefur
hann vanmetið mig fyrir þetta
einvígi, því að hann hafði ekki
teflt við mig í langan tíma og þá
var ég snöggtum veikari skák-
maður en ég er núna.“
— Hefur þú nokkru sinni teflt
betur en í þessu einvígi?
„Já, mér fannst ég sjálfur ekki
tefla illa i einvíginu við Poluga-
evsky, en ég er auðvitað hæst-
ánægður með hvernig framvinda
þessa einvigis er. Nú legg ég
áherzlu á að halda mér í þessu
formi og jafnvel að bæta mig þar
til þetta einvígi er í höfn.
— En ef þú berð saman þessi
tvö einvigi — við Polugaevsky og
við Spassky núna — teflir þú þá
betur núna?
„Ahh — það er dálítið erfitt að
bera þessi einvígi saman. Spasslty
berst meira og er meiri baráttu-
maður en Poiugaevsky og þess
vegna einkennist þetta einvigi
okkar af meiri baráttu en hin
fyrri. En hvað mig sjálfan snertir
held ég að þessi einvígi séu mjög
áþekk.“
AUGLÝSINfiASÍMINN ER:
^22480
/ JHareanblabiö
MYNDIN
AF KÓNGINUM
heitir hún,
nýja bókin eftir
Gunnar M. Magnúss.
Þetta er fimmtugasta
bók Gunnars.
Snjallar og skemmti-
legar smásögur.
Auðugt mál og lifandi
mannlýsingar.
BIÐSTÖÐ 13
eftir Orn Bjarnason er
lífsreynslusaga ungs
manns sem sekkur
djúpt — en stendur á
vegamótum í bókar-
lok.
HULIÐSHEIMUR
eftir Árna Óla er bók
um íslensk þjóðfræði.
Hér sýnir höfundur hin
nánu tengsl milli trúar
og hjátrúar frá örófi
aida.
SETBERG