Morgunblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977
7
Atvinnugreinar
og mannafli
Það er fróðlegt að virða
fyrir sér þá þróun sem
orðið hefur í skiptingu
vinnuafls þjóðarinnar milli
hinna einstöku atvinnu-
greina þjóðarbúskaparins
sem og spár um slíka
skiptingu fram í tímann
Frumvinnsla, þ.e. land-
búnaður og sjávarútveg-
ur, tók til sín 22.000
mannár árið 1910, af
35.000 mannárum alls,
eða 62.9%. 1975 er sam-
svarandi tala 13.900
mannár af 94.300 alls
eða 14.7%. Spá iðnþró-
unarnefndar fyrir árið
1985 er 12.500 mannár
af 109.700 eða 11.4%.
Iðnaður hvers konar,
þar með talin úrvinnslu-
iðnaður hráefna frá land-
búnaði og sjávarútvegi,
tók til sín 4.270 mannár
1910 eða 12.2%. Árið
1975 er þessi tala komin i
35.100 mannár eða
37.3%. Spá fyrir 1985 er
38.900 mannár eða
35.5%.
Þjónusta hvers konar,
þ.m.t. samgöngur, við-
skipti, bankastarfsemi, og
opinber stjórnsýsla, tók til
sin 8.715 mannár 1910
eða 24.9%. 1975 tekur
þessi starfsemi 45.300
mannár eða 48%. Spá
iðnþróunarnefndar fyrir
árið 1985 er 58.300
mannár eða 53.1%.
Þessar tölur eru ihug-
unarefni, þó ekki verði
hér lagt út af þeim. Ef
spár rætast verður árið
1980 timamótaár að þvi
leyti, að þá fer það hlut-
fall vinnuafls þjóðarinnar
yfir 50%, er sinnir ýmis
konar þjónustustörfum.
Sparnaður í
fjármálakerfi
Tveir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, Eyjólfur
Konráð Jónsson og Pétur
Sigurðsson, hafa flutt til-
lögu til þingsályktunar,
sem gerir ráð fyrir þvi „að
rikisstjórnin beiti sér fyrir
sparnaði í fjármálakerf-
inu". „Skal stjórnin að
loknu jólaleyfi þingmanna
leggja fram tillögur um
fækkun starfsmanna ríkis-
banka, Framkvæmda-
stofnunar ríkisins og opin-
berra sjóða um allt að tí-
unda hluta og samræmdar
aðgerðir til sparnaðar og
hagkvæmari rekstrar, þ.á
m. um sameiningu lána-
stofnana, skorður við
óhóflegum byggingum og
fækkun afgreiðslu-
stöðva." í greinargerð er
vakin athygli á þeirri
„kaldhæðnislegu stað-
reynd, að fjármálastofn-
anir hafi þanizt einna
mesta út allra rikisfyrir-
tækja á sama tima og
sparifjármyndun minnk-
ar. . ." Ennfremur:
„Sjóðakerfið og hag-
stjórnarbáknið í heild þarf
lika að taka til gagngerðr-
ar endurskoðunar, enda
enginn efi á þvi, að þann
frumskóg má grisja, eng-
um til meins, en öllum til
góðs. Þessi aðgerð þyrfti
að spanna allt sviðið frá
Þjóðhagsstofnun til
minnsta sjóðsins."
Viðbrögð
Framkvæmda-
stofnunar og
bankastjóra
Jónas Haralz, banka-
stjóri Landsbanka, sagði
forráðamenn bankans
hlynnta hagræðingarað
gerðum. „Hins vegar tel
ég að við séum sjálfir
dómbærastir á það,
hvernig ætti að standa að
sliku. og ég skil ekki hvað
svona tillöguflutningur á
Alþingi á að þýða." Magn-
ús Jónsson, bankastjóri i
Búnaðarbanka, segir
m.a: „Ef við gætum
fækkað okkar starfsfólki
eitthvað, ég tala nú ekki
um 10%, þá yærum við
þegar búnir að þvi. Við
höfum reynt að halda
starfsmannafjölda okkar i
algjöru lágmarki og ég
held að hann sé i sam-
ræmi við stærð bankans
og fjölda útibúa." Magn-
ús benti og á að á vegum
bankanna starfaði nú
samstarfsnefnd um sparn-
að í bankarekstrinum og
ætti hún að skila tillögum
fyrir árslok. Nefndin
myndi kanna sérstaklega
opnunartíma útibúa og
aðrar leiðir til að draga úr
rekstrarkostnaði bank-
anna. . . Ármann Jakobs-
son, bankastjóri Útvegs-
banka, sagðist sammála
þvi að kannað yrði, hvort
ekki væri hægt að koma á
einhverri hagræðingu i
bankakerfinu og hjá
Framkvæmdastofnun.
„Ég tala ekkert sérstak-
lega um Útvegsbankann,
þegar ég segist álita, að
það megi fækka starfs-
mönnum bankanna. Held-
ur á ég við bankakerfið i
heild."
Davið Ólafsson, seðla-
bankastjóri, minnti á til
lögur Seðlabanka um
sameiningu banka og
fækkun þeirra. „Það var
lagt til að Útvegsbankinn
og Búnaðarbankinn yrðu
sameinaðir og einnig var
rætt um fleiri möguleika i
þvi sambandi," sagði
Davið. Umspurða tillögu
eða greinargerð með
henni hefði hann hins
vegar ékki enn séð.
„Mér lízt ágætlega á
það að skera eitthvað nið-
ur mannahald hjá bönkum
og öðrum rikisstofnunum
og draga úr ofvextinum,
sérstaklega hjá bönkun-
um. . sagði Tómas
Árnason, forstjóri Fram-
kvæmdastofnunar. „En
ég lit nú á þessa þings-
ályktunartillögu sem
hverja aðra kosninga-
brellu, þvi ef einhver al-
vara fylgdi málum. þá
ætti auðvitað að setja lög
um þetta. Auðvitað þarf
að meta málið gaumgæfi-
lega, en ekki skjóta á
10% i blindni. Athugun
gæti leitt i Ijós, að sums
staðar mætti skera meira
niður. . . sums staðar
minna," sagðiTómas.
Viö SKIL heimilisborvélar fæst gott úrval hagnýtrafylgihluta,
svo sem hjólsög, stingsög, smergel, pússikubbur og limgerðis-
klippur. Alla þessa fylgihluti má tengja við borvélina meðeinkarauðveld-
um hætti, svo nefndri SNAP/LOCK aðferð, sem er einkaleyfisvernduð
uppfinning SKIL verksmiðjanna. Ekkert þarf að fikta með skrúfjárn eða
skiptilykla heldur er patrónan einfaldlega tekin af, vélinni stungið itengi-
stykkið og snúið u.þ.b. fjórðung úr hring, eða þar til vélin smellur í
farið. Fátt er auðveldara; og tækið er tilbúið til notkunar.
Auk ofangreindra fylgihluta eru á boðstólum hjólsagar-
borð, láréttir og lóðréttir borstandar,
skrúfstykki, borar, vírburstar,
skrúfjárn og ýmislegt
fleira, sem eykur stór-
lega á notagildi SKIL
heimilisborvéla.
Komið og skoðið, hringið eða skrifið
eftir nánari upþlýsingum og athugið hvort
SKIL heimilisborvél og fylgihlutir eru ekki
hagnýt gjöf til heimilis ykkar eða vina ykkar.
ÞEIR SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI.VELJA SK/t
Einkaumboð á Islandi fyrir SKIL rafmagnshandverklæri:
FALKIN N
SUÐU RLAN DSBRAUT 8, SÍMI 84670
IlHIINIlllill^^
Flutningur til og frá Danmörku
og frá húsi til húss Skipaafgreiðsla
Jes Símsen.
Skapraunið ekki sjálfum yður að 'oþörfu — Notið margra ára reynslu
okkar Biðjið um tilboð það er okeypis — Notfærið yður það, það
sparar.
Uppl. um tilboð.
Flyttefirmaet AALBORG Aps.,
Lygten 2—4, 2400 Köbenhafn NV.
simi (01) 816300, telex 19228
NÝ KYNSLÓÐ
Auglýsum nýja kynslóð af snúningshraðamæl-
um.
Ljósgeisli plús rafeindaverk.
Fáanlegt hvort sem er, með skífu eða vísi, eða
skífulaus með Ijós-tölum.
Mæíisvið 25.000, 50.000, 100.000.
SQwfeMDtyiB* cJ(6)(rQ©©®ini <& REYKJAVIK, IdLAND
VESTURGOTU 16-SÍMAR 1 4 6 8 0 -1 3 2 80 - TELEX: 2057 STURIA 1S
K AS SAKÚLAN
BÝR TIL: KASSAKULUKASSA
KASSAKÚLUKÓRÓNU** KASSA-
KULUHÚS,° KASSAKÚLUSKUTLU
KASSAKULURAOKUBB°KASSA-
KÚLUGESTAÞRAUT0 OG FLEIRA
FÆST í ÖLLUM BÓKABÚÐUM