Morgunblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977 17 Ekkert hey rist f rá ræningjum Lotte Böhm Vínarborg, 13. des. Reuter AP. í KVÖLD hafði enn ekkert heyrzt frá mönnum þeim sem rændu Lottu Höhm, eiginkonu auðusgs austur- ríks kaupsýslumanns af Gyðingaættum. Erwin Lanc innanríkisráðherra sagði að enn væri of snemmt að segja til um hvort hér væru á ferðinni pólitískir öfgasinnar sem hefðu ef til vill í huga að krefjast lausnargjalds fyr- ir hönd einhverra skæru- liðasamtaka er stæðu að baki ráninu á konunni. Talsmaður lögreglunnar sagði að það hefði valdið þeim furðu að enn heyrðist ekkert frá ræn- ingjunum, en verið væri að kanna hvort hugsanleg tengsl kynnu að vera þarna á milli og mannráns sem framið var I Vínarborg í sl. mánuði. Þá stóðu vestur-þýzkir borgarskæruliðar fyrir ráni á Walter Michael Palmers, milljónamæringi, einnig af Gyðingaættum. Hann var látinn laus fjórum dögum siðar eftir að greitt hafði verið lausnargjald fyrir hann, tvær milljónir dollara. Eiginmaður Lotte Böhm var staddur á Italíu, þegar konu hans var rænt, en fór samstundis flug- ieiðis til Vínarborgar er honum voru færðar fréttir af ráninu. Grikkland: Þingforseti kjörinn Aþenu, 13. des. AP. DIMITRIOS Papaspyrou var í dag kjörinn forseti hins nýja gríska þings. Hann var frambjóðandi stjórnarflokks Raramanlis Nýja Demókrataflokksins en fékk að- eins 157 atkvæði af þeim 172 sem flokkurinn ræður yfir á þingi. Þykir þetta gefa vísbendingu um að ólga og ágreiningur sé að byrja að gera vart við sig innan flokks Karamanlis er geti haft afdrifa- ríkar afleiðingar, ekki hvað sízt þegar það er haft í huga að Kara- manlis Iagði áherzlu á að þing- menn flokks síns greiddu Papaspyrou atkvæði. Ioannis Alevras, þingmaður PASOKS, fékk öll 93 atkvæði flokks síns á þinginu. Fundum Callaghans og Giscards lokið London, 13. des. AP. JAMES CALLAGHAN forsætisráðherra Bret- lands og Giscard d’Estaing Frakklandsforseti luku í dag tveggja daga viðræð- um sínum og í tilkynningu sem beir gáfu út um fund- inn létu þeir í ljós þá ein- dregnu von að Frakkar og Bretar efli samstarfið á sem flestum sviðum, svo sem efnahags- og fjármál- um, iðnaðarmálum og varnarsamstarfi. Gallaghan Giscard. Þetta gerðist Þettagerðist 14. des. AP. 1976 — Kommúnistaflokkur Vietnam hélt sitt fyrsta þing, síðan árið 1960. 1973 — Henry Kissinger utan- ríkisráðherra Bandarikjanna hvatti Faisal konung Saudi Arabíu til að aflétta olíusölu- banninu á Bandaríkin. 1972 — Geimfarar Apollo 17 yfirgáfu tunglið eftir að hafa rannsakað yfirborð þess í þrjá daga. 1971 — Richard Nixon forseti Bandaríkjanna og Georges Pompidou Frakklandsforseti gerðu samning um áætianir um að bæta gjaldeyrisstöðuna i heiminum. 1967 — Konstantine Grikk- landskonungur var gerður út- lægur af herforingjastjórninni í Aþenu. 1946 — Þihg Sameinuðu þjóð- anna greiddi atkvæði með því' að reisa höfuðstöðvar sínar i New York. 1939 — Rússar voru reknir úr Þjóðabandalaginu. 1916 — Þjóðaratkvæði í Dan- mörku um að selja Bandarikj- unum dönsku Vestur-Indiur fyrir 20 milljónir dollara. 1911 — Norski landkönnuður- inn Roald Amundsen komst fyrstur manna á Suður- Heimsskautið. 1542 — Maria Stuart komst til valda i Skotlandi, eftir lát Jam- es V. Afmæli: Tycho Brahe, danskur stjörnufræðingur (1546—1601), James Bruce, skoskur landkönnuður (1730—.1794), Roger Fry, breskur listamaður (1866—1934), Lee Remick, bandarísk leikkona (1935—.). Setning dagsins: „Sá sem þekk- ir aðra er vitur. Sá sem þekkir sjálfan sig er upplýstur". Lao Tse, kínverskur heimspeking- ur, (604—531 f. kr.). Myndin er af sovézku geimförunum Romanenko og Greehko skömmu áður en þeir lögðu upp í geimferð sína, sem virðist ætla að ganga að óskum. Hefur þeim tekizt að tengja far sitt við SaljutgeimstÖðina og vinna þar nú að ýmsum rannsóknarstörfum. Corvalan: Enn má efla mannréttindin París 13. dos. Reuter. LUIS Corvalan, fyrrver- andi forystumaður komm- únistaflokks Chile, sem býr nú í Sovétríkjunum, sagði í dag að meira mætti að gera til að efla mannréttindi. Á blaðamannafundi í París var hann spurður hvort hann teldi að mannréttindi væru í heiðri höfð í Sovét- ríkjunum og svaraði hann þá: „Rannsókn mannsins á manninum er stærsta tak- markið í baráttunni fyrir mannréttindum. Það hefur ekki leyst öll vandamálin, en ég tel að framfarir hafi orðið töluverðar, en meira megi enn gera.“ Corvalan var sleppt úr chile- önsku fangelsi árið 1976 í skipt- um fyrir Vladimir Bukovsky sem var þá leyft að fara til Vestur- Luis Corvalan landa. Corvalan sagðist líta svo á að Bukovsky hefði verið pólitísk- ur fangi samkvæmt skilgreiningu sovézkra laga. Þegar hann var inntur eftir þvi hvað hann segði við Bukovsky ef þeir hittust kvaðst Corvalan ekki ala með sér neinar óskir um að verða á vegi Bukovskys. Argentína: 15-25 manns teknir í nafni lögreglmmar Buenos Aires.10. desember. Reuter. ÖEINKENNISKLÆDDIR menn, sem sögðust vera lögreglumenn, yfirbuguðu ættingja manna, sem saknað er í Argentínu, eftir fund, sem haldinn var i húsakynnum kirkjunnar í útjaðri Buenos Aires s.l. fimmtudagskvöld, að því er sjónarvottar hafa skýrt frá. Höfðu árásarmennirnir að minnsta kosti sex bifreiðar til umráða, og var fólkinu hrundið inn í þær, og síðan ekið á braut. Hefur ekkert til fólksins spurzt síðan, en þarna var um að ræða ntilli 15 og 25 manns, sein flest voru konur, að sögn heimildar- mannanna. Rómversk-kaþólskur prestur er einn sjónarvottanna, og segist hann hafa horft á er tvær kvenn- anna voru dregnar á hárinu að bifreiðunum. Ættingjar manna, sem saknað er, og talið er að nú séu ýmist pólitískir fangar eða ekki lengur i tölu lifenda, hafa um nokkurt skeið komið reglulega saman á þessum fundarstað, jafnframt þvi sem þeir hafa gengizt fyrir viku- legum mótmælaaðgerðum og krafizt þess að fá fólkiö levst úr haldi. P’rá því að herforingjastjörnin tók sér völd i landinu fyrir fjörum Framhald á bls 14. Leikskáld segist son- ur Musso- linis Rómarborg 13. d«»s. Rpulcr. GLAllCO di Salle, 57 ára gamall leikritahöfundur og gagnrýnandi lýsti því yfir í dag að hann væri óskilgetinn sonur Benitos Musso- linis fyrrum einræðisherra ítalíu. Glauco sagði blaðamönnum að móðir sín Bianca Ciccato hefði átt ævintýri með Mussolini t eitt ár eða svo, 1919—1920, en hann var þá ritstjóri blaðs fasista sem hét II Popolo d’Italia. Rithöfundurinn sem er fæddur þann 20. október 1020 kvaðst vera ávöxtur þessa sambands og hefði móðir sín skýrt sér frá því þegar hann var ungur drengur. Di Salle hefur ritað frásögn um málið sem birtist í ítölsku blaði og hann sagði að hefði síðar tekið nafn stjúpföður síns eftir að móðir hans giftist. Di Salle kvaðst hafa haldið þessu leyndu þar til nú af ýmsum ástæðum, bæði persónulegum og svo þeim að hann hefði álitið að þessi uppljóstrun myndi skaða sig meðan hann væri að ryðja sér braut til frama. Mussolini var drepinn af þjóð- ernissinnum 1945. Hann var kvæntur Rachele Mussolini og áttu þau saman fjögur börn. Ekkja Mussolinis lifir enn, 86 ára gömul. VEÐUR víða um heim Amsterdam 8 skýjað Aþena 6 skýjað Berlin 6 skýjaS Brússel 12 rigning Kairó 20 skýjað Chicago 5 rigning Kaupmannah. 4 skýjað Frankfurt 6 rigning Genf 10 sól. Helsinki 1 snjókoma Jóhannesarborg 30 sól Lissabon 16 skýjað London 12 skýjað Los Angeles 19 skýjað Madrid 13 skýjað Miami 23 skýjað Moskva +10 bjart New York + 2 skýjað Ósló 2 skýjað Paris 12 bjart Rómaborg 9 skýjað Stokkhólmur 3 skýjað Tel Aviv 18 rigning Toronto O skýjað Vancouver 8 skýjað Vínarborg 0 bjart

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.