Morgunblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977
— Haukur
Guðmundsson
Framhald af bls. 2
yrði tekin einhver afstaða af
háifu ráðuneytisins í dag.
Jón E. Ragnarsson, lögmaður
Hauks Guðmundssonar, sagði að
þar sem það lægi nú fyrir, að af
hálfu ákæruvaldsins væri ekki
krafizt frekari aðgerða vegna
handtökumálsins svonefnda,
handtöku og yfirheyrslu á tveim-
ur varnarliðsmönnum né vegna
rannsóknar á meðferð Hauks á
máli varðandi innstæðulausar
ávísanir Hauks sjálfs, hefði hann
fyrir hönd Hauks sett fram kröfu
um að Haukur tæki við starfi sínu
að nýju og fengi uppgerð van-
greidd laun á yfirstandandi ári.
,,Það virðist ekkert þvi til fyrir-
stöðu að Haukur hefji störf á ný
og það er sjálfsögð réttlætiskrafa
að rikissjóður greiði honum strax
þau laun, sem hann á inni fyrir
yfirstandandi ár,“ sagði Jón.
„Varðandi tékkamálið sjálft þá
virðist mér það ekki stórvægilegt,
enda miklar málsbætur fyrir
hendi, sagði Jón ennfremur“.
Saksóknari hefur þó gefið út
ákæru í málinu, sem er mjög
óvenjulegt, þar sem venjulega er
heimilað að Ijúka slíkum málum
með sómssátt. Eg tel þetta tékka-
mál fráleitt vera með þeim hætti
að það eigi að varða Hauk stöðu-
missi, enda efast ég mjög um að
nokkur fordæmi séu fyrir slíku.“
Þá kvaðst Jón vilja benda á, að
enn hefði saksóknari ekki tekið
ákvörðun um hvort höfðað yrði
mál á hendur ábyrgðarmanni
Tímans eða ekki vegna skrifa í
því blaði um embættismenn í
starfi, þ.e. Hauk Guðmundsson og
Kristján Pétursson, þrátt fyrir
ítrekaðar kröfur um það. Slík
ákvörðun virtist þvi ekki um-
fangsmikið verk, þegar litið væri
til þess fordæmis, þar sem væri
málshöfðun ákæruvaldsins gegn
ábyrgðarmanni Morgunblaðsins
vegna birtingu skopmynda af
Karli Schútz, hinum þýzka rann-
sóknarlögreglumanni, en þar
væri um að ræða sömu refsilaga-
grein og að því er virtist svipaðar
málsástæður.
— Iðnrekendur
Framhald af bls. 2
vænta þess að rikisstjórnin beiti
sér fyrir þvi að slíkt leyfi fáist,“
sagði Davíð Sch. Thorsteinsson
ennfremur. „Það er enginn vafi á
þörfinni fyrir þessari ráðstöfun
og hún verður okkur nauðsynleg,
helzt núna strax því að annars
óttast ég að sá tollur sem eftir
stendur eftir áramótin, verði okk-
ur hreinlega ekki nægilegur.
Þetta er óumflýjanleg ráðstöfun
vegna hinna ríkjanna innan
EFTA og EBE, því að þessi lönd
eru sjálf búin að þverbrjóta alla
þessa samninga og við sitjum ein-
ir eftir, sem höldum þessa samn-
inga, og hverjum dettur virkilega
í hug að halda að íslenzkur iðnað-
FAGURRAUÐ DELICIOUS
fást í næstu matvöruverzlun
Einkaumboð:
Björgvin Schram heildverzlun — Reykjavík— Sími 24340
Söluumboð:
AKUREYRI: Valgarður Stefánsson hf., heildverzlun
VESTMANNAEYJAR: Heiðmundur Sigurmundsson — heildverzlun
ur sé svo langtum fremri iðnaði
nágrannalandanna, að hann geti
þarna keppt á jafnréttisgrund-
velii. þegar iðnaðurinn úti í hin-
um stóra heimi nýtur hvers kyns
forréttinda."
Davíð sagði ennfremur, að iðn-
rekendur hefðu lagt fleiri mál
fyrir ríkisstjórn til úrlausnar, en
ekki hefðu enn fengizt svör við
þessum atriðum heldur. „Eitt
helzta málið er að við viljum fá til
að bæta upp þann mismun sem
stafar af því að hér er ekki virðis-
aukaskattur heldur söluskattur.
Við leggjum til að lagt verði jöfn-
unargjald á innflutning, alveg
eins og gert er i Finnlandi og
hefur þar verið gert frá 1971, og
eins og gert var í V-Þýzkalandi
þar til þar var tekinn upp virðis-
aukaskattur, þvi að það er algjör-
lega vonlaust að keppa með þenn-
an bagga sem söluskatturinn er á
herðunum. Við erum ekki búnir
að fá svör við þessu, eins og ég
sagði, en ég er bjartsýnn á þetta
atriði,“ sagði Davíð.
Davíð kvaðst þó vilja undir-
strika að hvorug ráðstöfunin, sem
hér á undan er nefnd, væri til
nokkurs gagns nema allir fjár-
munir sem á þennan hátt fengjust
yrðu látnir renna beint til upp-
byggingar iðnaðarins.
— Ríkisútgjöld
hækki ekki í. . .
Framhald af bls. 2
stjórnarinnar og gera frekari
grein fyrir aðhaldsaðgerðum og
tekjúöflun til að mæta sýnileg-
um útgjaldaauka. Dregið verð^
ur úr framkvæmdum opinberra
aðila með ýmsum hætti og það
haft að endanlegu marki að
tryggja greiðslujöfnuð hjá
ríkissjóði á næsta ári, viðskipta-
jöfnuð við útlönd og koma í veg
fyrir hækkun eriendra skulda.
Formaður fjárveitinganefnd-
ar gerði síðan grein fyrir breyt-
ingartillögum við fjárlagafrum-
varp, sem nefndin hafði orðið
sammála um, sem og breyt-
ingartillögum meirihluta fjár-
veitinganefndar, og vísast um
þau atriði til ræðu hans, sem
birt verður í heild í Mbl. á
morgun, fimmtudag.
— Kröfluvirkjun
Framhald af bls. 2
og véla,“ sagði Gísli, „og 279
milljónir í afborganir og vextir
vegna borhola og aðveitukerf-
is.“
Páll Flygenring, ráðuntfytis-
stjóri i iðnaðarráðuneytinu,
sagði, að engin rekstraráætlun
lægi fyrir varðandi Kröflu-
virkjun á næsta ári, „enda ligg-
ur ekki ljóst fyrir með hverj-
um hætti reksturinn verður."
— Ásbjörn
Ólafsson
Framhald af bls. 2
dauðadags. Asbjörn var kunnur
fyrir að gefa iðulega rausnarlegar
peningagjafir til ýmiss konar
líknarmála. Hann stofnaði einnig
sjóð í minningu um foreidra sína
til að styrkja læknanema til náms
og hafa margir læknar notið
styrks úr þessum sjóði.
Asbjörn var fráskilinn en lætur
eftir sig tvær dætur.
— Argentína
Framhald af bls. 17
árum hafa þúsundir manna horf-
ið, án þess að frekar hafi til þeirra
spurzt. Er hér í langfelstum til-
vikum um að ræða vinstrisinna,
að þvi er talið er, og er vitað um
fjölmarga sem rænt hefur verið
af vopnuðum mönnum, sem hafa
sagzt vera á vegum öryggissveita
hersins.