Morgunblaðið - 14.12.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977
Haukur Guðmundsson:
Krafa um að fá að taka
við starfi á ný og fá
uppgerð vangreidd laun
LÖGMAÐUR Hauks Guðmunds-
sonar hefur gert kröfu um að
Haukur fái að taka aftur við starfi
sínu sem rannsóknarlögreglu-
maður og að gerð verði upp van-
greidd laun hans, en Haukur hef-
ur verið á hálfum launum í rúmt
ár meðan rannsókn í málum hans
fór fram. „Ég er búinn að senda
mlna umsögn til dómsmálaráðu-
neytisins, sem er úrskurðaraðili
um málið. Meira segi ég ekki að
svo stöddu," sagði Jón Eysteins-
son, bæjarfógeti í Keflavík. Bald-
ur Möller, ráðuneytisst jóri í
dómsmálaráðuneytinu, sagði í
gær, að ráðuneytinu hefði ekki
borizt úrskurður saksóknara né
forsendur hans, en væntanlega
Framhald á bls. 14
Iðnrekendur bíða enn
svars frá ríkisstjórn
„VIÐ HÖFUM ekki fengið nein
formleg svör frá stjórnvöldum við
málaleitun okkar og þau svör sem
fengizt hafa, þykja mér hafa ver-
ið heldur véfréttarleg," sagði
Davíð Scheving Thorsteinsson,
formaður Félags ísl. iðnrekenda,
þegar hann var spurður að þvf
hvort félagið hefði fengið einhver
viðbrögð frá stjórnvöldum við
beiðni iðnrekenda um einhliða
frestun á því að næstsfðasti
áfangi verndartollsins-gagnvart
frfverzlunarbandalögunum
evrópsku taki gildi.
„Mér sýnist á þeim svörum sem
hingað til hafa fengizt að ráðherr-
ar séu mótfallnir því að taka
þessa ákvörðun einhiiða, heldur
vilji hafa leyfi í höndunum til að
fá þessu framgengt, og þá er að
Framhald á bls. 14
Eldur kom upp í vb. Voninni II., þar sem hún lá við Grandagarð í Reykjavíkurhöfn á níunda tímanum
í gærkvöldi. Þegar slökkviliðið kom að bátnum reyndist eldurinn var í vélarrúmi skipsins, en fljótlega
tókst að slökkva hann. Þó nokkrar skemmdir urðu f vélarrúminu. Báturinn var mannlaus. Ljósm.: kax
Matthías Á Mathiesen, um lánsfjáráætlun 1978:
o
Erlendar lántökur vegna opin—
berra framkvæmda og f járfestingar
lánasjóða helmingur þess sem var í ár
Lán til einkaaðila hækka rnn 43% en lánveiting-
ar til opinberra aðila þriðjungur þess sem nú er
INNLENT
Borgarlög-
maður
biðst lausnar
PÁLL Lindal, borgarlögmaður,
baðst í gærlausnar frá storfum og'
var lausnarbeiðni hans samþykkl
á fundi borgarráðs í gærdag.
Matthfas A. Matthiesen
MATTHIAS A. Mathiesen fjár-
málaráðherra gerði Alþingi í gær
grein fyrir lánsfjáráætlun rfkis-
stjórnarinnar fyrir árið 1978 og
sagði, að samkvæmt henni mundu
erlendar lántökur vegna opin-
berra framkvæmda og fjárfest-
ingarlánasjóða aðeins verða um
helmingur af sambærilegum lán-
tökum á þessu ári. Sagði fjár-
málaráðherra, að erlendar lántök-
ur yrðu takmarkaðar við 20 millj*
arða króna á næsta ári og miðast
við að mæta afborgunum
erlendra lána og áætluðum við-
skiptahalla svo að ekki þurfi að
koma til rýrnandi gjaldeyrisstöðu
af þeim sökum. Sagði ráðherrann,
að með þessu væri erlendum lán-
tökum settar mjög þröngar skorð-
ur enda brýnt að stöðva skulda-
aukningu út á við um sinn og væri
ætlunin að ná þessu markmiði
m.a. með þvf að taka ekki lán
erlendis vegna fjárfestingarlána-
sjóða og draga úr erlendum lán-
um vegna opinberra fram-
kvæmda. Þá sagði fjármálaráð-
herra, að gert væri ráð fyrir
rýmri mörkum útlána bankakerf-
isins en viðurkennd voru í fyrri
iánsfjáráætlunum vegna rekstr-
arfjárþarfar atvinnuveganna. Er
gert ráð fyrir, að nokkuð dragi úr
fjármunamyndun og að innlend-
ur sparnaður renni f auknum
mæli til lánakerfisins. Er stefnt
að samdrætti í lánum til opin-
berra aðila og greiðari aðgangi
atvinnuveganna að innlendu láns-
fé. Er áætlað, að hækkun lána til
einkaaðila muni nema um 43%
en opinberir aðilar fái einungis
þriðjung þess lánsfjár sem þeir
fengu á þessu ári. Nettóaukning
lána er áætluð um 64 milljarðar á
næsta ári sem er 11% hærra en
spáð var fyrir yfirstandandi ár og
þar af er áætiað, að einkaaðilar
fái 59 milljarða en opinberir aðil-
ar 5 milljarða.
Loks sagði f jármálaráðherra,
að gert væri ráð fyrir, að útlán
mundu aukast um 22%, þegar á
heildina væri litið. lltlánaaukn-
ing atvinnuvegasjóða mundi
nema um 19% en íbúðalánasjóða
um 27%,
Steinþór Gestsson, formaður fjáryeitinganefndar:
Ríkisútgjöld hækki ekki í
hlutfalliviðþjóðarframleiðslu
Hallalaus ríkisbúskapur, lækkun vidskipta-
halla og viðnám gegn erlendri skuldasöfnun
SAMKVÆMT sfðustu áætlun-
um þarf útgjaldahlið fjárlaga
fyrir komandi ár að hækka um
17.000 milljónir króna sem
tengjast gerðum kjarasamning-
um á yfirstandandi ári: um-
sömdum kauphækkunum,
kauphækkunum samkvæmt
kjaradómi, vísitöluhækkunum
launa, Iffeyrisgreiðslum og
sjúkratryggingum, auk þess
sem launahækkanir hafa áhrif
á ýmis rekstrargjöid og við-
haldsliði fjárlagafrumvarpsins.
Þetta kom fram í máli Stein-
þórs Gestssonar, formanns fjár-
veitinganefndar Alþingis, í
sameinuðu þingi í gær, er hann
mælti fyrir breytingartillögum,
er fjárveitinganefnd varð sam-
mála um, en þær hljóða upp á
rúmlega 125. mkr. hækkun á
útgjöldum ríkissjóðs. Verður
að því stefnt, sagði formaður
fjárveitinganefndar, „aö
þjóðarútgjöld aukist ekki á
næsta ári miðað við þjóðar-
framleiðslu og þjóðartekjur" á
árinu 1978 sem og að viðskipta-
hallinn við útlönd verði ekki
meiri en á árinu 1977.
Eftirfarandi atriði komu m.a.
fram í ræðu Steinþórs Gests-
sonar:
0 1) Heildarútgjöld ríkisins á
árinu 1975 urðu 31.4% af
þjóðarframleiðslu en á yfir-
standandi ári var þetta hlutfall
komið niður í 27.3%
0 2) Fjölgun starfsmanna við
opinber störf varð 0.76%, eða
90 manns, á sama tíma og aukn-
ing á vinnumakaði í heild varð
1.9% eða 1800 manns. Þetta
hlutfall ríkisútgjalda af þjóðar-
framleiðslu og fjölgun ríkis-
starfsmanna miðað við aukn-
ingu á vinnumarkaði verður
svipað á árinu 1977 og 1976.
0 3) Jákvæð þróun varð í
verðlagsmálum á árinu 1976 og
fram á mitt ár 1977 en þá var
verðbólga mæld 26% á síðustu
12 mánuðum þar á undan.
Hafði hún minnkað um helm-
ing frá því hún var mest. Ahrif
launasamninga á árinu hafa
hins vegar leitt til um 17 mfll-
jarða króna útgjaldaaukningar
launatengdra gjaldaliða fjár-
laga 1978.
0 4) Við 3ju umræðu fjárlaga
mun fjárveitinganefnd fella
saman við fjárlagafrumvarpið
áhrif lánsfjáráætlunar ríkis-
Framhald á bls. 14
Steinþór Gestsson, formaður
fjárveitinganefndar.
Asbjörn
Olafsson
stórkaup-
maður
látinn
ASBJÖRN Ölafsson stórkaup-
maður lézt ( gærkvöldi f Reykja-
vík. Hann var 74 ára að aldri.
Asbjörn fæddist í Keflavik 23.
ágúst 1903, sonur hjónanna Ólafs
Asbjörnssonar, kaupmanns í
Njarðvíkum og Vigdisar Ketils-
dóttur frá Höfnum. Hann stund-
aði siðan nám í Samvinnuskólan-
um og útskrifaðist þaðan, en hélt
nokkru eftir það til Kanada þar
sem hann dvaldist um tíma og
fékkst við ýmis störf.
Ásbjörn stofnaði heildverzlun
sína í Reykjavík stuttu fyrir
heimsstyrjöldina og rak hana til
Framhald á bls. 14