Morgunblaðið - 14.12.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977
5
r
Irsku kaup-
endurnir
ekki ánægð-
ir með fisk-
inn úr
Mánatindi
MANATINDUR frá Djúpavogi
kom til New Ross á S-lrlandi í
gærmorgun með tæplega 50 lestir
af fiski, sem seldar voru á föstu
verði til kaupenda þar. Löndun
úr bátnum hófst I gær, og sam-
kvæmt því sem Morgunblaðið
frétti frá New Ross slðdegis í gær,
voru kaupendurnir ekki fyllilega
ánægðir með gæði fisksins. Lönd-
un úr Mánatindi lýkur f dag, en
þetta er í fyrsta sinn, sem íslenzt
skip seiur fisk í írska lýðveldinu.
Þá á skuttogarinn Stálvik frá
Siglufirði að landa fiski í
Scheveningen í Hollandi í dag, en
fiskurinn úr Stálvík hefur þegar
verið seldur á föstu verði til kaup-
enda í Englandi. Verður fiskinum
skipað jafnóðum inn í kælivagna,
sem fara síðan rakleiðis með ferj-
um til Hull og Grimsby, þar sem
fiskinum verður strax komið i
dreifingu, en gífurleg eftirspurn
er nú eftir fiski i Englandi.
Fulltrúaráð sjálfstæð-
isfél. í Hafnarfirði:
Jón Kr.
Jóhannsson
kjörinn
formaður
AÐALFUNDUR sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði var haldinn
fyrir nokkru og kom m.a. fram í
skýrslu formanns fulltrúaráðs og
formanna Stefnis, Vorboðans,
Fram og Þórs, að félagslíf hefði
verið blómlegt á nýloknu starfs-
ári og að sjálfstæðismenn væru
þess albúnir að takast á við þau
verkefni sem bíða þeirra í vænt-
anlegum bæjarst jórnar- og al-
þingiskosningum, segir í frétt frá
fulitrúaráðinu.
Jón Kr. Jóhannesson.
, Jón Kr. Jóhannsson var ein-
róma endurkjörinn formaður en
með honum í stjórn eru Sólveig
Eyjólfsdóttir, Trausti Ö. Lárus-
son, Haraldur Sigurðsson, Einar
Einarsson, Erna Mathiesen, Hörð-
ur Hallbergsson, Sverrir Kaaber
og Þórður Guðjónsson.
annað eins úrval,
maður minn lifandi...
sími: 27211