Morgunblaðið - 14.12.1977, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977
Guðmundur Emilsson lauk
tónmenntakennaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykja-
vík tvítugur að aldri, og
kenndi síðan tónlist tvo vetur
aðallega við Hliðaskólann í
Reykjavík og Laugarvatns-
skóla. Undanfarin fjögur og
hálft ár hefur hann stundað
háskólanám í tónlist við East-
man skólann, í borginni
Rochester í New York riki, og
Myndin er tekin við flutning Auschwitz Oratorio í musteri Gyðinga i Rochester s.l. vor.
Stjórnandinn, Guðmundur Emilsson, sést á miðri mynd.
Guðmundur Emilsson stjórnar við einn
frægasta tónlistarskóla í Bandaríkjunum
ágætiseinkunn fyrir tveimur
árum og lýkur M.M. prófi,
eða meistaraprófi, næsta vor.
Guðmundur hefur lagt sig
eftir ýmsum greinum tón-
mennta, bæði fræðilegum pg
praktískum, en mun þó hafa
hlotið mesta viðurkenningu
kennara sinna og gagnrýn-
Guðmundur Emilsson.
í síðasta mánuði kaus
stúdentaráð hins kunna East-
man-tónlistarháskóla í
Bandaríkjunum 26 ára gaml-
an íslending, Guðmund
Emilsson, til að stjórna hin-
um árlegu jólatónleikum
skólans 16. þ.m. með úrvals-
tónlistarfólki, 50 manna
hljómsveit og kór, sem flytja
munu Kantötu nr. 140 eftir
J.S. Bach (Wachet auf, ruft
Uns die Stimme).
Var Guðmundur valinn úr
hópi 10 ungra stjórnenda,
sem höfðu óskað eftir að
stjórna þessum tónleikum.
Valið var einróma.
hlotið ótvírætt lof fyrir árang-
ur í námi og starfi eins og
þessi frétt ber meðal annars
með sér. Hann lauk B M.
háskólaprófi með fyrstu
Upprennandi íslenzk-
ur hljómsveitarstjóri
enda sem kór- og hljóm-
sveitarstjóri. Hann hefur
stjórnað opinberum hljóm-
leikum i Rochester að stað-
aldri með náminu undanfarin
ár, bæði flutt sígild tónverk
eins og Messías Hándels og
nútima stórverk, svo sem
Auschwitz Oratorio eftir
pólska tónskáldið
Penderecki. Meðfylgjandi
mynd er frá flutningi þessa
verks í musteri Gyðinga i
Rochester fyrir skömmu.
Eins og nafnið ber með sér er
verkið tengt harmsögu kyn-
stofns gyðinga í seinustu
heimsstyrjöld.
Guðmundur Emilsson var
formaður Nemendafélags
Tónlistarskólans i Reykjavík
og tónlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins um skeið
áður en hann sigldi til fram-
haldsnáms og munu margir
tónlistarmenn þvi kannast
við hann. Ennfremur hefur
hann að tilhlutan skólarann-
sóknardeildar menntamála-
ráðuneytisins skrifað tón-
menntakennslubók fyrir
gagnfræðaskóla
Guðmundur hefur nýlega
verið samþykktur doktors-
próf kandidat í kór- og hljóm-
sveitarstjórn við tónlistarhá-
skólann í Bloomington í Indi-
anariki i Bandaríkjunum, og
jafnframt ráðinn aðstoðar-
kennari við skólann frá og
með næsta hausti. Tónlistar-
háskólinn í Bloomington
mun vera stærsti tónlistarhá-
skóli Bandaríkjanna
Parhús —
Langholtsvegur
Var að fá í einkasölu parhús við Langholtsveg, sem er jarðhæð, hæð og
rishæð. Húsið er með 2 samþykktum íbúðum, en einnig er hægt að
nota það sem eina stóra íbúð. Á jarðhæðinni er rúmgóð 3ja herbergja
íbúð. Á 1. hæð er stór stofa, eldhús, skáli, snyrting og forstofa. Þessu
fylgir í rishæðinni 3 herbergi, bað, þvottahús ofl., á jarðhæðinni fylgir
stór geymsla og loks bílskúr. Húsið afhendist fokhelt í maí 1 9 78. Beðið
eftir Húsnæðismálastjórnarlánum. Teikning til sýnis á skrifstofunni.
Árni Stefánsson, hrl.,
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
83000
Okkur vantar einbýlishús eða
raðhús, helzt miðsvæðis »
borginni. Þarf að hafa
möguleika á tveim íbúðum.
Öruggir kaupendur.
Öruggir kaupendur.
Til sölu
Við Kleppsveg
Góð 4ra herb. ibúð og herb. í
risi.
Við Hraunteig
5 herb. risibúð um 1 40 ferm.
Við Kirkjuteig
Góð 4ra herb. risíbúð.
Við Laugarás
Vandað og fallegt einbýlishús og
bilskúr.
Við Öldugötu
190 ferm. sérhæð og 90 ferm.
kjallari.
Við Fellsmúla
Góð 4ra herb. íbúð á 4. hæð i
blokk.
I Smíðum
Parhús og bilskúr á einurh bezta
stað i Mos. Eingarland.
Við Langholtsveg
Góð 3ja herb ibúð i kjallara. Sér
inngangur. Laus strax.
Einbýlishús í
Garðinum
Einbýlishús (timbur) nýtt, um
1 25 ferm. Frágengin lóð.
í Njarðvik
Góð sérhæð um 120 ferm.
ásamt 50 ferm. bilskúr.
Við Asparfell
Sem ný 3ja herb. ibúð á 4. hæð.
Verð 6.5 millj. Útb. 4.5 millj
Opið alla daga til kl. 10 e.h.
Geymið auglýsinguna
FASTEICNAÚRVALIÐ
SÍMI83000 SilfurteigM
Sölustjóri. Auðunn Hermannsson Benedikt Björnsson lgf.
FASTEIGNA
HÖLLIN
FASTEIGN AVIÐSKIPTI
MIÐBÆR -HÁALEITISBRAUT58 60
SÍMAR-35300&35301
Við Ásbraut
einstaklingsíbúð á 2. hæð. Laus
fljótlega.
Við Asparfell
einstaklingsíbúð á 4. hæð.
Við Æsufell
3ja herb. íbúð á 7. hæð. Mikil
og góð sameign.
Við Hraunbæ
2ja herb. íbúð á jarðhæð. Laus
nú þegar.
Við Seljaveg
4ra herb. nýstandsett risíbúð.
Við Kleppsveg
4ra herb. íbúð á 3. hæð.
Við Framnesveg
Einbýlishús, hæð og kjallari. 7 5
ferm. að grunnfleti. Húsið er 3
herb. og eldhús. Þvottahús og
geymsla í kjallara.
Við Lindarbraut
Glæsilegt einbýlishús, ein hæð
og bílskúr. Húsið skiptist i 4
svefnherb., húsbóndaherb., tvær
stofur, skála, eldhús með borð-
krók, búr, þvottahús o.fl. Lóð
frágengin og ræktuð. Falleg
eign.
í smíðum
við Hæðarbyggð, glæsilegt ein-
býlishús á tveim hæðum. Mögu-
leikar á sér ibúð á neðri hæð.
Húsið selst fokhelt með járni á
þaki og gleri í gluggum. Frábært
úrsýni.
Við Brekkutanga
endaraðhús tilbúið undir tréverk,
með innbyggðum bílskúr.
Við Orrahóla
eigum eina 3ja herb. íbúð á 3.
hæð, tilb. undir tréverk til af-
hendingar í október á næsta ári.
Fast verð. Góð greiðslukjör.
Vegna mikillar sölu undanfarið
vantar okkur allar stærðir fast-
eigna á söluskrá.
Fasteignaviðskipti
Agnar Ólafsson
Arnar Sigurðsson,
Hafþór Ingi Jónsson hdl
Heimasími sölumanns
Agnars 71714.
Kjötmiðstöðin
stækkar við sig
HUSNÆÐI Kjötmiðstöðvarinnar
við Laugalæk hefur verið stækk-
að að mun. Verzlunin var áður
aðeins kjötbúð, en nú er þar á
boðstólnum öll matvara, og að
sögn eigandans, Hrafns Bach-
manns, er öli þjónusta í verzlun-
inni nú meiri.
Þar eru starfandi 17 manns og
þar af 4 faglærðir kjötiðnaðar-
menn.
Að sögn Hrafns hefur undan-
farið orðið geysileg aukning í
kjötsölu, en hann sagðist vanda
vel val á öllu hráefni. I sumum
tilfellum væri fylgzt með slátur-
fénu allt frá fæðingu til slátrun-
ar. Verzlunin leggur að sögn hans
áherzlu á að greiða fyrir þeim
neytendum sem vilja fylla frysti-
Aðventu-
kvöld í Krists-
kirkju
FÉLAG kaþólskra leikmanna
gengst fyrir aðventukvöldi í Dóm-
kirkju Krists konungs, Landakoti,
næstkomandi fimmtudagskvöld,
15, desember, kl. 8.30. A dagskrá
verða tónleikar, söngur og lestur.
öllum er velkomið að taka þátt í
þessu aðventukvöldi.
kistur sínar kjöti eða öðrum mat,
enda fælust í því mikil þægindi
fyrir fólkið og það yki jafnframt
neyzlu almennings á þessum vör-
um.
í sumar var i verzlununni gerð
tilraun með sölu á hamborgar-
reyktum unghænum og kjúkling-
um sem gafst mjög vel og er áætl-
unin að taka upp þá nýjung fyrir
alvöru á næsta ári.
A myndinni er Hrafn Bach-
mann, eigandi og verzlunarstjóri
Kjötmiðstöðvarinnar, fyrir innan
kjötborðið.