Morgunblaðið - 14.12.1977, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977 X1
Kórsöngur
Kirkjukór Akraness hélt tón-
leika sl. sunnudag í sal Mennta-
skólans vió Hamrahlíð. Undir-
ritaður gat aðeins hlýtt á fyrri
hluta tónleikanna vegna tón-
leika Kammersveitar Reykja-
víkur. Svona árekstra í hljóm-
leikahaldi er auðvelt að lagfæra
og auglýsing á breyttum hljóm-
leikatíma engin goðgá. Tónleik-
arnir hófust á lagi eftir
Praetorius, Hin fegursta rósin
er fundin. Hljómurinn i kórn-
um var góður en söngmátinn
eilítið hikandi. Tvö næstu lög
eru meðal fallegustu trúar-
söngva okkar íslendinga. Radd-
setning Róberts A. Ottóssonar á
Tðnllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Kom þú, ó Immanuel var mjög
fallega sungin, en flutningur
kórsins á Heyr himna smiður,
eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
var i áherzlum og blæ ekki í
samræmi við fyrri kynni af lag-
inu. Fyrsta hluta tónleikanna
lauk með Helgisöng eftir
Mendelssohn. Einsöngvarinn
Ágústa Ágústsdóttir hefur
mjög fallega rödd og fór þokka-
lega með erfitt sólóhlutverk., I
Helgisöng Mendelssohns var
hljóðfallskrafturinn áberandi
linur, svo kórinn náði aldri að
reisa mynd tónverksins í fulla
hæð. Við lestur efnisskrár verð-
ur það ljóst, að samsetning
hennar er vægast sagt furðuleg.
Þarna ægir saman alls konar
tónlist, dægurlögum. þjóðlög-
um í amerískum „sing along"-
stíl, brúðarkórum og sálmalög-
um. Að frádregnum fyrsta
Ágústa Ágústsdóttir
hluta efnisskrár, tveimur ætt-
jarðarlögum eftir Emil Thor-
oddsen og Þórarin Guðmunds-
son, Ave Maríu eftir Kaldalóns
og lokaþættinum úr Skálholts-
kantötu Páls ísólfssonar, er
varla hægt að segja ð annað en
að efnisskráin er fuðrulegasti
samsetningur og að hluta til
hálf hæpin kynning á íslenskri
tónmennt.
Það er auðvitað allt i lagi að
syngja dægurlög og þjóðlög í
amerískum sjoppustil, þar sem
það á við og auk þess með meiri
hrynsveiflu en hér átti sér stað.
Dægurlögin voru svo linkulega
flutt að raun var á að hlýða.
Síðasta lagið, sem undirritaður
hlustaði á, Hver á sér fegra
föðurland, var þróttlaust en
bliðlegt í meðferð kórsins. Það
má vel vera að, seinni hluti
tónleikanna hafi tekið þeim
fyrri fram. Samt sem áður
breytir það ekki því, að fyrri
hlutinn er kyndug samsetning
og hæpin kynning á íslenzkri
tónmennt.
195T SKÁTAMERKI 19T7
ISLAND
Jólamerki
skáta
KOMIÐ er út í 21. sinn jólamerki
skáta, sem Bandalag islenzkra
skáta gefur út. 1957 komu fyrstu
merkin út, þá með mynd af Baden
Powell. 1 ár ber skátamerkið yfir-
skriftina „Skátalíf er útilíf", en
það er yfirskrift starfsárs skáta i
ár, en myndin á merkinu er frá
Skátaskálanum á Úlfljótsvatni og
er kirkjuklukka úr Kristskirkju í
forgrunni, en klukkuna fengu
skátar að gjöf og komu henni
fyrir á Úlfljótsvatni.
Enn eru til öll jólamerki skát-
anna og er hægt að fá þau á
skrifstofu Bandalagsins, segir í
fréttatilkynningu frá Bandalagi
íslenzkra skáta.
r
„Orabelgur
— dagbók”
komin út hjá
Prenthúsinu
BARNABÓKIN „Orabelgur —
dagbök" er komin út hjá Prent-
húsinu. Söguhetjan er átta ára
drengur, Pétur Haekett, og segir
hann sjálfur frá. Sagan gerist í
þorpi einu í Bandaríkjunum fyrir
aldamót. Drengnum virðist full-
orðna fólkið skilningsvana, en
hann er, eins og bókartitillinn
bendir til, örabelgur, og hags-
munir þeirrar manntegundar og
fullorðinna falla ekki alltaf jafn-
vel saman.
Sagna birtist fyrst á islenzku
sem framhaldssaga í blaðinu
Norðra árið 1911. I nýju útgáf-
unni er stuðst við þá þýðingu, sem
þar birtist, en í fréttatilkynningu
bókaforlagsins segir m.a. að is-
lenzkufræðingur hafi fært text-
ann til nútímamáls.
Baltasar hefur myndskreytt
bókina, sem er 232 blaðsiður og
kostar 1.980 krónur.
I'rábærar,
ódýrar hljómplötur
frá Karnabæ.
2 RECORD SET
Chad Allan
* The
Ouass Who
Dol Shannon
Bobby Lewlt
Roy Orblton
Jlmmy Jonot
Duane Eddy
New Sookort
Paul Anka
Chlffons /
Dion /A
Nell Sodaka
Llttle Rlchard
Jan &Dean
Oone Pltney
Huey Smlth
The
Sllhouettes
Johnny& The
Hurricanet
L Curtlt Lee
\ Freddy
Vk Cannon
Jerry Lee
5»^ Lewlt
2ALBUM SET <^> O
ORIGINAL HITS 20 ORIGINA^TflRS
^BESTof o
britaiiv
KARNABÆR
Hljómdeild
Austurstræti 22
Laugavegi 66.
sími 28155
og Glæsibæ
sími 81*91 5.
Öll lögin eru flutt af upphaflegum
flytjendum, ekki eftirlikingar.
Þetta er bara brot af úrvalinu.
Verið velkomin í eina eða allar af
þremur verslunum okkar við
Laugaveg, Austurstræti eða i Glæsibæ
Hver um sig af þessum plotum
inniheldur a.m.k. 20 lög, sérstak-
lega samvalin, þannig að líki þér
eitt, likar þér öll.
Engu að síður eru þær 30%—40%
ódýrari en aðrar plötur.