Morgunblaðið - 14.12.1977, Síða 12
é
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977
12
—Deila um auða stóla
Framhald af bls. 1
að að setjast til borðs með PLO —
sem þeir líta á sem hryðjuverka-
samtök — og skiptir þá ekki máli
þó að þeir hinir sömu muni ekki
koma til fundarins. Búizt var við
að málið yrði leyst i kvöld án þess
að til neinna tíðinda drægi.
Egypskir og ísraelskir embætt-
ismenn héldu fyrsta fund sinn í
dag til undirbúnings ráðstefn-
unni á morgun og stóð sá fundur í
einn og hálfan klukkutima og var
mjög vinsamlegur. Borið var fram
kaffi og kökur. Snérust viðræður
einkum um framkvæmd formsat-
riða og dagskrár ráðstefnunnar.
Þessi undirbúningsfundur var
haldinn i bækistöðvum egypsku
sendinefndarinnar i Mena-hóteli
þar sem ráðstefnan sjálf verður
einnig.
Blaðafulltrúi Israela sagði að
þessar viðræður hefðu verið eðli-
legar og nauðsynlegar til undir-
búnings svo óformlegum fundi
sem Kairófundinum væri ætlað
að vera, þar sem ekki væri fyrir-
fram fastákveðin dagskrá. Þá
sagði blaðafulltrúinn að ísraelska
sendinefndin hefði einnig átt við-
ræður við forsvarsmenn banda-
rísku sendinefndarinnar á ráð-
stefnunni.
Talsmaður Sameinuðu þjóð-
anna sagði í kvöld að Kurt W.ald-
heim framkvæmdastjóri S.Þ.
hefði hafnað tillögu frá Egyptum
um að fulltrúi Waldheims á ráð-
stefnunni, Finninn Enio Siilasvuo
hershöfðingi, yrði í forsæti. Sagði
í tilkynningunni að Siilasvuo
myndi fylgjast með fundunum og
gefa Waldheim siðan skýrslu um
þá. Talsmaðurinn neitaði frétt
sem birt var i New York Times
þar sem sagði að S.þ. myndu vera
hinn opinberi forsvarsmaður
fundarins og sagði hana ekki á
rökum byggða. Hann staðfesti þó
að þetta hefði komið til tals en
slíkt væri ekki í samræmi við
starfsvettvang Siilasvuo og kæmi
því ekki til mála. Hann staðfesti
einnig að Egyptar hefðu sett
þessa hugmynd fram þegar sendi-
herra Egypta hjá S.þ. hefði rætt
við Waldheim á mánudag, en þeir
hefðu siðan orðið ásáttir um að
slíkt væri ekki við hæfi nú.
Talið er að Waldheim hafi tekið
þessa ákvörðun til að forðast að
óþörfu aukna reiði Sýrlendinga
og annarra Arabaríkja sem eru
andsnúin fundinum og hefðu
túlkað þetta sem fjandsemi sam-
takanna við sig.
Sendinefnd ísraela og tugir
blaðamanna komu með sérstakri
flugvél til Kairó í dag og fengu
hlýjar viðtökur. Vélin var af gerð-
inni Boing 707 og málað á hana
orðið friður, á arabisku og he-
bresku. Athöfnin á flugvellinum
var ekki löng en vakti hina mestu
athygli. Skammt frá vellinum
voru arabiskir verkamenn að
störfum. Þyrptust þeir að og hróp-
uðu „ísraelarnir eru komnir" og
„vonandi fara þeir með friði nú“,
Mikil og öflug öryggisvarzla var
á vellinum við komu Israelanna.
Engin flögg voru uppi við og þjóð-
söngvar Iandanna voru ekki
leiknir og sagt að það ætti ekki
við vegna ráðstefnu af slíkum
toga.
A hinn bóginn var greinileg
mikil eftirvænting meðal ísra-
elsku gestanna og þegar ýmsir
blaðamannanna gengu niður
landgang þotunnar voru egypskir
starfsbræður þeirra sem þeir
höfðu kynnzt í Jerúsalem komnir
til að taka á móti þeim og urðu
hinir mestu fagnaðarfundir.
Vélinni til Kairó stjórnuðu þrír
ísraelskir flugmenn sem allir
hafa verið skotnir niður yfir
Egyptalandi í þeim styrjöldum
sem háðar hafa verið milli land-
anna tveggja. Sendinefndin og
blaðamenn frá Israel munu flest-
ir búa á Mena House Hotel, svo og
ýmsir erlendir blaðamenn sem
eru komnir til að fylgjast með
fundinum. Hótelið er skammt frá
pýramídunum og hefur verið
unnið þar nótt og dag upp á síð-
kastið til að allt væri tilbúið þegar
gestirnir tækju að streyma að.
Var haft fyrir satt að málningin
nýja á veggjunum væri sums stað-
ar varla þornuð enn.
Vance þurrlega tekið
í Sýrlandi
Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandarikjanna fékk kurteislegar
en heldur þurrlegar móttökur
þegar hann kom til Sýrlands i
kvöld að sögn fréttastofa. Aður en
Vance kom höfðu sýrlenzkir ráða-
menn gefið yfirlýsingu þar sem
þeir sögðust ekki vera í neinu
skapi til að láta af andstöðu við
Kairófundinn sem hefst á morg-
un. Blað stjórnarinnar sagði að
með því að halda stefnu sinni til
streitu væru Bandaríkjamenn að
reyna að þvinga Arabaþjóðir til
undansláttar. Þeir kæmu með
olifugrein i annarri hendi en
væru til þess albúnir að reka
Araba hnífi í bakið. Bandariskur
embættismaður sem var við at-
höfnina þegar Vance koma sagð-
ist aldrei hafa orðið vitni að jafn
kuldalegum móttökum sem
bandarískur utanríkisráðherra
hefði fengið.
Athöfnin var stutt og aðeins
fylgt nauðsynlegustu formsatrið-
um. Eftir að utanríkisráðherra
Sýrlands, Abdel Halin Khaddam,
hafði heilsað Vance, ekki hlýlega
að sögn, var Vance ekið inn í
borgina og mikil öryggisvarzla
var á vellinum og við leiðina sem
hann ók.
Vance virtist þó enn hafa von
um að geta á einhvern hátt stuðl-
að að því að draga úr biturð Sýr-
lendinga og reiði vegna Kairó-
fundarins og í stuttorðri yfirlýs-
ingu sinni til fréttamanna lagði
hann áherzlu á hve hann og Cart-
er forseti teldu mikilvægt að
halda viriáttu og vinnusambandi
við Assad Sýrlandsforseta og
Khaddam utanrikisráðherra.
Hann ítrekaði síðan fyrri yfirlýs-
ingar Bandarikjastjórnar um von
um varanlegt og viðunandi sam-
komulag í Miðausturlöndum. Að-
ur en Vance hóf viðræður við
sýrlenzka ráðamenn átti hann
fund með sendiherra Bandaríkj-
anna i Sýrlandi. Síðar í kvöld var
svo ætlunin að hann hiíti Assad
forseta en ekki er búizt við til-
kynningu um fund þeirra að svo
stöddu.
Hussein til Saudi
Arabíu um helgina
Hussein Jórdaniukonungur
sem hefur reynt eftir megni að
jafna ágreininginn i röðum
Arabaleiðtoga mun ekki sækja
Kairófundinn að því er tilkynnt
var í Amman í dag. Hafði raunar
ekki verið búizt við þvi, en það
þykir lofa góðu að Jórdaníukon-
ungur fór til viðræðna við Sadat á
dögunum og hann fer til Saudi
Arábiu á laugardag að því er sagt
var frá i Riyadh-útvarpinu í morg-
un. Hussein hefur einnig átt við-
ræður við Assad Sýrlandsforseta
og í gær átti hann svo fund með
utanríkisráðherra Bandarikj-
anna, Cyrus Vance. Hussein mun
að öllum líkindum fara í heim-
sókn til furstadæmanna við
Persaflóa, en þau ríki veita miklu
fjármagni til Jórdaníu, Sýrlands
og Egyptalands.
Páfi sendir
boðskap til fundarins
Páfagarður sendir sérstök boð
til Kairófundarins og mun
Monsignor Francesco Monterisi
bera boðin og hefur innihald
þeirra ekki verið birt. Páfagarður
hefur farið mjög lofsamlegum
orðum um frumkvæði Egypta-
landsforseta og talið hana „góðan
fyrirboða um frið“. I gær birti
málgagn Páfagarðs ræður þeirra
Sadats og Begins sem þeir fluttu í
Knesset í sl. mánuði i heild og er
slík meðferð óvenjuleg i því blaði.
„Arabar hafa farið
fram á yztu nöf til
að sanna friðarvilja"
Útvarpið í Saudi Arabiu sagði í
morgun að Arabar hefðu farið
fram á yztu nöf til að sýna vilja til
friðar og nú væri röðin komin að
ísraelum að lýsa þvi skýrt og skor-
inort yfir — og umfram allt með
aðgerðum — að þeir vildu frið.
Konungur Saudi Arabiu, Khaled,
hefur forðast að taka undir gagn-
rýni á Sadat Egyptalandsforseta
vegna ísraelsfarar hans sem al-
kunna er og mun Sadat hafa notið
stuðnings hans, þótt ekki væri
það opinbert þegar hann tók af
skarið og ákvað að halda til Jerú-
salem.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
lega grein fyrir hinu bágborna
efnahagsástandi í landinu.
Frá Lissabon bárust þær fréttir
í kvöld að fulltrúar stjórnmamála-
flokkanna hefðu byrjað viðræður
hver fyrir sig til að freista þess að
Ieggja fram tillögur um lausn á
stjórnarkreppunni. Eanes forseti
hafði óskað eftir þvi að skriflegar
tillögur þessa efnis yrðu tilbúnar
frá hverjum flokki þegar hann
kæmi aftur úr ferð sinni til Vest-
ur-Þúzkalands.
Talsmaður sósíalista, Antonio
Reis, sagði að flokkurinn myndi
reyna að leita samstöðu við hina
flokkana um einhvers konar
lausn á vandanum og hefðu
kommúnistar og sósíaldemókrat-
ar falHst á að eiga aðild að slikum
viðræðum. Aftur á móti hefði
Miðdemókrataflokkurinn — CDS
— sem telst hægriflokkur í Portú-
gal, ekki viljað taka þátt í þeim.
— Stjórn
Schmidts
Framhald af bls. I
kanslara fyrir þremur árum. En
ihaldssamir leiðtogar I stjórnar-
andstöðu hafa krafist þess að
sökunautarnir í þessu njósnamáli
verði skotnir.
Varnarmálaráðherrann hefur
lýst því yfir að hann muni ekki
segja af sér, en hann sagði að þaö
yrði rannsakað til grunna hver
hefði veitt dagblaðinu Frankfurt-
er Allgemeine upplýsingarnar um
þetta mál sem það birti í grein í
gær. Þær upplýsingar kvaðst
hann telja vera fengnar úr leyni-
skýrslu sem ráðuneyti hans útbjó
fyrir saksóknaraembættið, þar
sem metið var það tjón gegn
öryggi landsins sem af þessu máli
leiddi. Hanh sagði frásögn blaðs-
ins ekki alveg rétta, en tilgreindi
ekki hvað hefði verið rangt
hermt. En þann sem hefði látið
blaðinu í té þessar upplýsingar,
sagði hann vera jafn sekan þre-
menningunum um landráð, ekki
síst þar sem starfsmenn ráðuneyt-
isins væru bundnir þagnarskyldu.
m
i
m
S
jji
m
I
I
i
i
S
I
m
S
I
S
S
I
I
i
i
s
i
Ensku húsgögnin komin:
Boröstofuskápar, hornskápar, innskotsborð,
sófaborð og stakir skápar og
m.fl. í eik, maghogny og hnotu.
-
LAUFAS S.F.
Laufásvegi 1 7. Sími 1 2411. (ath. breytt símanúmer).