Morgunblaðið - 14.12.1977, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977
15
Minni hluti fjárveitinganefndar:
Skiléir ekki nefndaráliti
um fj árlagafrumvarpið
NEFNDARÁLIT minnihluta
fjárveitinganefndar (stjórnar-
andstöðu) um frumvarp til fjár-
laga fyrir árið 1978, lá ekki fyrir í
gær, er frumvarpið kom til ann-
arrar umræðu í Sameinuðu þingi.
Þetta mun vera eindæmi I síðari
tlma þingsögu. Það kom fram I
ræðum talsmanna minnihlutans,
Geirs Gunnarssonar (Abl), Sig-
hvats Björgvinssonar (A) og
Karvels Pálmasonar (SFV), að
þeir töldu sig ekki hafa fengið
umbeðnar upplýsingar frá full-
trúum stjórnvalda, einkum um
stærð útgjaldaauka ríkissjóðs
vegna launahækkana, sem væru
forsendur álitsgerðar um fjár- ■
lagadæmið. Sögðu þeir að stjórn-
arandstöðu hefði verið synjað um
þessar upplýsingar.
Það kom hins vegar fram í
nefndaráliti meirihluta fjárveit-
inganefndar „að útgjaldahlið fjár-
laga hækki um fulla 17 milljarða
kröna vegna kauphækkana 1.
desember, nýrra kjarasamninga
og áætlaðra 9,8% verðbótahækk-
ana á næsta ári. Eru þessar hækk-
anir á laun, lifeyrisgreiðslur og
sjúkratryggingar...“ Sömu upp-
lýsingar komu fram í ræðu Stein-
þórs Gestssonar, formanns fjár-
veitinganefndar.
Mbl. mun gera efnisatriðum úr
máli þingmanna, er þátt tóku i 2.
umr. fjárlaga í gær, nokkur skil á
þingsíðu, væntanlega á morgun. .
Leiðrétting
I FRÉTT Morgunblaðinu í gær
var sagt að Sigurður Finnsson i
Siglufirði hefði fest kaup á skut-
togara frá Frakklandi. Það er
Togskip h.f. i Siglufirði, sem
keypti togarann, en Sigurður er
framkvæmdastjóri og einn hlut-
hafa félagsins. Eru viðkomandi
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Þorgrímur S. Eyjólfs-
son í Keflavík látinn
ÞJÖÐKUNNUR Suðurnesjamað-
ur Þorgrímur S. Eyjólfsson i
Keflavík er látinn, 72ja ára að
aldri. Hafði hann átt við van-
heilsu að striða mánuðum saman.
Þurfti hann þá oft að fara í
sjúkrahús.
Allt frá því að Þorgrímur kom
heim að loknu verzlunarnámi i
Kaupmannahöfn árið 1927 tók
hann að hafa afskipti af verzlun
og viðskiptum Suðurnesjamanna
og haslaði sér völl á því sviði og
kom víða við sögu. Geta má þess
t.d. að hann var um áratuga skeið
meðal framámanna Sparisjóðs
Keflavikur. Hann Iét og til sín
taka á sviði sveitastjórnarmála í
Keflavík og var lengi bæjarfull-
trúi og forseti bæjarstjórnar var
hann.
Kona Þorgríms Eiríka G. Arna-
dóttir lifir mann sinn ásamt tveim
börnum þeirra hjóna.
Þorgrímur heitinn var 2ja ára
er hann fluttist til fóstur foreldra
sinna í Keflavík Þorgríms læknis
Þórðarsonar og' konu hans
Jóhönnu Ludvigsdóttur Knudsen.
Fæddur var Þorgrimur að Borg-
um í Nesjum 2. maí 1905.
Aður ósögð saga af heimskauíaferð
Vilhjálms Stefánssonar
( þessari bók er i fyrsta sinn rakin öii
saga Kartuks, forystuskips f lelöangri
Vllhjálms Stefánssonar til norðurhafa á
árunum 1913—1918, en það brotnaði
og sökk í ísnum, áður en letðangurinn
var raunverulega haflnn. Tuttugu og
fimm menn voru sklldlr eftir skiprelka á
ísnum, meöan foringl þeirra fór i fimm
ára landkönnunarferð noröur.
Við þessar aðstæður gat ekki hjá þvf
farið aö endlr sögunnar yröi hörmuleg-
ur. Átta manns létust á leið yfir íslnn,
einn skaut sig, tveir sveltu í hel og hinir
drógu með naumindum fram líflð, uns
hjálpin barst. Frásagnimar um þol-
raunir þelrra eru átakanlegar, en bera
vott um ótakmarkaðan iffsvilja.
( bókinnl eru einstakar ijósmyndir,
teknar f lelðangrinum og hafa fiestar
þeirra aldrel blrst áður.
Hina næsta ótrúlegu sögu um örvænt-
ingarfuiia lífsbaráttu fákunnandi og
forystuiausra manna, segir segul- og
veðurfræðlngur ielðangursins, William
McKinlay, sem þá var hálfþrítugur
kennari.
• •
• •
Om&Orlygur
Vesturgötu 42 símL25722
BANKASTRATI
g-14275
LAUGAVEGUR
®-21599
RÚLLUKRAGAPEYSUR
I ITIR. VERÐ KR. 3.750.