Morgunblaðið - 14.12.1977, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.12.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977 23 Stundum lét hann fjölrita þessi ljóð og gaf vinum sínum, en seinna langaði hann til að kosta prentun á þeim, og það varð úr. Þau ljóð voru ekki til þess gerð að standa af sér strauma bókmennta- sögunnar, en þau voru vitnisburð- ur um barnslegan hug og einlæga ást þessa gamla, góða iðnaðar- manns, til bernskustöðva sinna, jafnframt því að vera einskonar tákn kynslóðar sem nú er að hverfa. Enok var heimilisvinur okkar hjónakornanna á efri árum sínum og gaukaði þá jafnan einhverju smálegu að lítilli dóttur okkar, þegar hann kom í heimsókn, kvaöst þá hafa rekist á einhverja álfkonu eða einhvern huldumann á leiðinni og verið beðinn fyrir þetta til lítillar stúlku. Margt handtakið gerði hann einnig fyrir okkur án endurgjalds, og munum við öll þrjú geyma minningu um góðan vin sem trúði meira á mátt kærleika og göfgi en ofsa og hörku. Síðustu árin var Enok á elliheimili á Akranesi, þar sem hann hafði þráð að verja ellidög- um sínum. Blessunaróskir okkar fylgja honum yfir landamærin. Jón Óskar. Foreldrar voru Helgi Jörgens- son síðasti bóndi Elínarhöfða af Klingenbergsætt og Guðríður Guðmundsdóttir frá Ölvaldsstöð- um Ingimundarsonar. Þreyttur maður fær hvíld eftir langan starfsdag, kynni mín af honum voru ekki löng, samt lang- ar mig að senda honum kveðju- orð. Hann ólst upp í Elínarhöfða á ættaróðali sínu og var síðasti ábú- andi þar, fór þaðan 1914 en það býli sem hann var á hét Höfðavík. Hann by'rjaði búskap i Höfn á Akranesi 1916 með unnustu sinni Guðrúnu S. Jónsdóttur, en þeirra sambúð varð stutt, hún lést :f slysförum 14. jan 1917. Hana mun hann hafa tregað alla ævi. Hann tók vélstjórapróf hér á Akranesi 1917 og um sinn var hann við þau störf en hóf síðan nám 1 rafvirkjun 1920 og vann svo við þau störf fyrst hér á Akranesi m.a. þegar Bjarni Ölafsson skip- stjóri gaf rafmagn I kirkjuna hér, lagði Enok í hana, siðan flutti hann til Hafnarfjarðar og átti þar heima í áratugi, kvæntist þar Sveinbjörgu Sveinbjörnsdóttur og átti með henni þrjú börn. En alltaf þráði hann æskustöðvarnar og 1970 flutti hann aftur á Akra- nes, og lifði þar í minningu lið- inna starfa og gladdist innilega yfir þegar hann var 1972 heiðrað- ur fyrir langt og gott starf að raflögnum. Enok var tryggur maður, hann Framhald á bls. 21. + Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir og afi okkar, RAGNAR BJARNASON, trésmíður, Eikjuvogi 26, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag miðvikudaginn 14 desem- ber kl 10.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra GuSrún Guðjónsdóttir, Guðrún Björg Ragnarsdóttir, Kristín Lára Ragnarsdóttir, Guðjón Þór Ragnarsson, Áslaug Harðardóttir, og barnabörn. + ÞÓRHALLUR ÞORKELSSON, húsgagnasmiður, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 16 desember og hefst athöfnin kl 1 5, kl 3 síðdegis Halldóra Ólafsdóttir, Ásbjörg Þórhallsdóttir, Dóra Þórhallsdóttir, Heimir Steinsson. + Útför systur minnar ÞÓREYJAR KOLBEINS, Túngötu 31, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 1 5 desember kl 1 3 30 Þeir sem vilja minnast hinnar látnu er vinsamlga bent á Skálatúnsheim- ilið. Páll Kolbeins. + JÓN BJARNASON, Hliðavegi 20, Kópavogi, fyrrverandi bóndi að Mosum á Siðu, verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju laugardaginn 17 des n k Athöfnin hefst kl 1 3 30 Minningarathöfn verður i Fossvögskapellu föstudaginn 1 6 desember kl 10 30 Börn, tengdabörn og barnabörn. + Minningarathöfn um konu mína, móður, fósturmóður og tengdamóð- ur, JÓNÍNU BJÖRNSDÓTTUR, Glaðheimum 18, fer fram i Dómkirkjunni fimmtudaginn 15. þ m kl 3 e h Jarðað verður að M unkaþverá föstudaginn 1 6 þ.m kl 1 3 30 Benjamin Kristjánsson, Björn I ngvarsson, Margrét Þorsteinsdóttir, Þóra Björk Kristinsdóttir, Jósef H. Þorgeirsson Það er árið 1932. Kreppan leggur dauða hönd sína á atvinnulíf um land allt. í Reykjavík er fimmti hver maður atvinnulaus. Það á að lækka kaupió um þriðjung. Verka- menn úr öllum flokkum sameinast. Það slær í blóóugan bardaga. Yfir 20 lögregluþjónar særast og eru óvígir. Verkamennirnir hafa Reykjavík á valdi sínu. Verka- mannauppþot? Byltingartilraun? Þetta er 9. nóvember 1932. Þetta er Gúttóslagurinn. Om&Oriygur Vesturgötu 42 sími:25722 Ólafur R. Einarsson Einar Karl Haraldsson nóvember baráttuárið mikla í miðri heimskreppunni. ÓGLEYMAJSTLEGIR eftir Gylfa Gröndal hefur að geyma svip- myndir af 18 íslending- um. Brugðið er upp myndum af ógleyman- legum mönnum úr öllum stéttum. SETBERG SVIPMYNDIR AF ATJAN ISLENDINGUM Gvlfí GiötKkil ÓGLEYMANLEGIR MENN SVIPMYNDIR AF ATJÁN ÍSLENDINGUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.