Morgunblaðið - 14.12.1977, Side 31

Morgunblaðið - 14.12.1977, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977 31 Stjörnukvöld í Laugardalshöll MIKIL íþróttahátið er áformuð f Laugardalshöilinni annað kvöid. Samtök íþróttafrétta- manna hafa skipulegt þessa hatfð og er tilgangurinn sá að gefa fólki kost á tilbreytingu núna í mesta skammdeginu. Verður þarna fléttað saman bæði gamni og alvöru. „Alvarlegasti" liður hátíðar- innar verður leikur milli lands- liðs og liðs íþróttafréttamanna í handknattleik. Landsliðið hef- ur verið valið, og mun Janusz Cerwinski að sjálfsögðu stjórna því en Pétur Bjarnason mun stjórna liði fréttamannanna, en það verður valið i dag. Landsliðið verður þannig skipað: Gunnar Einarsson, Haukum, Kristján Sigmundsson Vikingi, Janus Guðlaugsson FH, Geir Hallsteinsson FH, Þorbjörn Guðmundsson Val, Jón H. Karlsson Val, Bjarni Guðmundsson Val, Björgvin Björgvinsson Vikingi, Arni Indriðason Víkingi, Ölafur Einarsson Víkingi, Páll Björgvinsson Víkingi. Auk þessa leiks mun íslenzkt úrvalslið i körfuknattleik leika gegn iiði Bandaríkjamannanna, sem hér dvelja. Iþróttafrétta- menn, sem eru ósigrandi í handkn^ttleiknum, mæta úrvalsliði lyftingamanna, Ómar Ragnarsson „All star,„ en I því liði eru Ómar, Halli og Laddi og leiri góðir munu keppa við úrval Alþingis í knattspyrnu, þá Albert, Ellert, Karvel og Bjarna Guðnason, sem kemur inn sem lánsmaður, þar sem vantaði mann á vinstri kantinn. Fleira i þessum dúr er á dag- skrá og verður skýrt nánar frá því í blaðinu á morgun. Æ' Ovæntur sigur Fylkis^ gegn ÍR TVEIR leikir fóru fram í Reykja- víkurmótinu í handknattleik f gærkvöldi og urðu þau óvæntu úrslit að Fylkir vann ÍR 17:16, eftir að staðan hafði verið 11:8 í hálfleik og Ármann 'vann Þrótt 27:22. Ahugi á þessu móti er f lágmarki eins og bezt sést á því að 6 áhorfendur borguðu sig inn í gærkvöldi en því verður ekki mót- mælt að þetta mót er mjög nauð- synlegt fyrir félögin í 1. deild á meðan deildarkeppnin liggur niðri. Það voru töluverðar sviptingar í leik Armanns og Þróttar. Ar- menningar náðu fljótt yfirburða- stöðu en í seinni hálfleik tókst Þrótti að komast eitt mark yfir en Armann var betri á endasprettin- um og vann örugglega. Mörk Ármanns: Jón Viðar 10, Þráinn 7 (6 v), Björn 3, Valur 2, Smári 2, Einar, Óskar og Friðrik 1 mark hver. Mörk Þróttar: Konráð 11 (6 v), Trausti 4, Sveinlaugur 3, Halldór 2, Jóhann og Ari 1 mark hvor. Fylkismenn höfðu lengst af undirtökin í leiknum gegn 1. deildarliði IR og um tíma var munurinn orðinn 6 mörk í s.h. En þá fór allt í baklás hjá Fylki eins og gegn Fram í þessu sama móti, IR tókst að jafna metin en Fylkir átti siðasta orðið og vann 17:16. Mörk Fylkis: Gunnar 6, Halldór 4, Einar Ag. 2, Jón 2, Kristinn, Hilmar og Sölvi 1 mark hver. Mörk IR: Brynjólfur 7, Asgeir 4, Sigurður 3, Vilhjálmur 2 (2 v). —SS. Öruggur sig- ur Stenmarks INGIMAR Stenmark sigraði með miklum yfirburðum f stórsvigs- keppni f ltalíu í gær. Ingimar hefur þar með tekið örugga for- ystu í keppninni um heimsbikar- inn á skfðum, sem hann hefur unnið til sl. tvö ár. Ingimar hefur hlotið 50 stig samtals en næstur er Austurrfkismaðurinn Klaus Heidegger. r V AEG UPPÞVOTTA- VÉLAR Heimilishjálpin, sem gerir uppþvottinn aó leik einum ✓ NýttfráLEGO LEGO tæknikubbar eru ætlaðir tæknilega sinnuðu fólki frá 9 ára aldri, og upp úr. í LEGO tækniöskjunni felast ótrúlegir möguleikar, sem veita tæknifræðingum framtíðarinnar verðug viðfangsefni að glíma við. Myndirnar gefa hugmynd um möguleikana sem bjóðast. REYKJALUNDUR LEGO er nýtt leikfang á hverjum degi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.