Morgunblaðið - 14.12.1977, Page 32

Morgunblaðið - 14.12.1977, Page 32
Demantur m æðstur eðalsteina - (fuill Sc é>ilfur Laugavegi 35 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977 Fjármálaráðherra á Alþingi i gær: Niðurskurður 3,7 milljarðar —tekjuöflun 3,7 milljarðar Sjúkratryggingagjald hækkar í 2% — 10% skyldusparnaður á hátekjur — Bensíngjald hækkar um kr. 7.50 MATTHlAS A. Matthiesen fjármálaráðherra skýrði frá því við 2. umræðu fjárlaga í gær, að sá fjárhagsvandi sem við væri að glfma við afgreiðslu fjárlaga nú, næmi um 7.6 milljörðum króna og h.vgðist rfkisstjórnin leysa hann bæði með lækkun gjalda og nýrri tekjuöflun. Fjármálaráðherra sagði, að launaliður fjárlaga mundi hækka um 13.1 milljarð króna frá fjáriagafrumvarpi og útgjöld almannatrygginga um 3.9 milljarða en samtals nemur útgjaldaaukning frá því, sem ráðgert var í fjárlagafrv. í haust, um 18.3 milljörðum króna. Hækkun áætlaðra tekna frá fjárlagafrumvarpi nemur um 10.7 milljörðum króna. Til þess að afla þeirra 7.6 milljarða, sem þarf til þess að afgreiða fjárlög greiðaluhallalaus hyggst ríkisstjórnin gera eftirfarandi tillög- ur um niðurskurð og nýja tekjuöflun: Lagt er til að útgjöld ríkissjóðs á næsta ári verði skorin niður um rúmlega 3.7 milljaðra króna. Þessi niðurskurður skiptist þann- ig: 0 Launaáætlun er lækkuð um 1720 milljónir með því að draga úr yfirvinnu og öðrum auka- greiðslum. • Útgjöld vegna lyfja og sér- fræðisþjónustu sjúkratrygginga verða lækkuð um 500 milljónir króna með hækkun gjaldskrár um hlut kaupenda i þeim kostnaði. 0 Frestað verður hluta áformaðrar skuldagreiðslu til líf- eyrissjóðs ríkisstarfsmanna vegna verðtryggingar um 200 milljónir króna. 0 Framlag til Þjóðarbókhlöðu er lækkað um 85 milljónir en lán- taka aukin um 35 milljónir þann- ig að framkvæmdafé lækkar um 50 milljónir. 0 Framlag til ríkisfangelsa er lækkað um 25 mílljónir króna. 0 Útgjöld vegna Landhelgis- gæzlu eru lækkuð um 150 milljón- ir með því að hætta rekstri varð- skipsins Alberts og selja skipið. 0 Útgjöld skv. sérstökum lögum eru lækkuð um 50 millj. 0 Framlag til Byggðasjóðs er lækkað um 300 milljónir. 0 Liðurinn óviss útgjöld er lækkaður um 300 milljónir. 0 Fyrri niðurgreiðsluáætlun er lækkuð um 200 milljónir. 0 Framlag til framræslu er lækkað um 25 milljönir og til jarð- Framhald á bls. 20 akuggamynd í skammdeginu. dagar til jóla Viktor Korchnoj í samtali við Mbl. eftir hinar óvæntu lyktir 8. einvígisskákarinnar: „Spassky er baráttumaður og einvígíð einkennist af baráttu” „YFIRLEGA yfir skákinni heima hafði leitt í Ijós að ég átti að ná jafntefli, en Spassky taldi aug- sýnilega að hann gæti unnið. Spassky hefur greinilega orðið fyrir vonbrigðum með spilin sem hann taldi sig hafa i höndunum, því að sfðan urðu honum á mikil mistök og hann tapaði," sagði Korehnoj í samtali við Morgun- blaðið í gær, þar sem hann var beðinn um að lýsa áttundu ein- vígisskák sinni við Spassky sem lauk svo óvænt með sigri Korchnojs. Vonbrigði hafa greinilega ríkt í herbúðum Spasskys i gærkvöldi, þvi að hann vildi ekki taka símann, eins og oftast hefur þó verið venja hans. Korchnoj var spurður að því hvort þróun þessa einvígis hefði orðið öðru vísi en hann hefði átt von á fyrirfram. „Einvíginu er ekki lokið ennþá," svaraði hann. „En ég hefði átt von á að róðurinn yrði þyngri." — Hefur Spassky teflt veikar en þú reiknaðir með eða ert þú einfaldlega f'betra formi en áður? „Þarna kemur hvort tveggja til, held ég. Spassky sigraði að vísu í nokkrum einvigjum, en tafl- mennska hans var ekki sérlega sannfærandi — hann gerði mörg jafntefli og sigrar hans virkuðu stundum tilviljanakenndir, og mér féll til dæmis ekki hvernig hann innbyrti vinningana í ein- víginu á móti Portisch og einnig Framhald á bls. 18 Skattayfirvöldum verði heimilt að veita gjald- eyriseftirliti upplýsingar Kostnaður við þorskastríðið: Tjónagreiðslur vegna varðskipa '/4 milljarður NÆRRI lætur að tjónagreiðslur I vegna varðskipanna eftir sfðustu landhelgisdeilu við Breta nemi um fjórðungi milljarðs króna — sagði Páll Sigurðsson, forstjóri Samábyrgðar Islands á fiskiskip- um, en það fyrirtæki er með öll varðskip Landhelgisgæzlunnar í tryggingu og endurtryggir þau í London. Hins vegar er Samábyrgð ekki með togarana Baldur og Ver í tryggingu, en það er Trygginga- miðstöðin h.f. Páll Sigurðsson kvað uppgerð tjón verða 466.152 sterlingspund, sem er jafnvirði um 180 milljóna króna. Hafa brezkir endurtryggj- endur þegar greitt þessi tjón, en útistandandi er enn tjónið á várð- skipinu Tý, sem enn er í viðgerð i Álaborg í Danmörku. Páll kvaðst telja að enn hefði ekki verið upp- gert tjónið á togurunum tveimur, en þar sem endurtryggjendurnir hefðu þegar viðurkennt tjóna- greiðslur á varðskipunum, myndi það einnig fást viðurkennt. Sam- tals kvað Páll Sigurðsson heildar- tjónagreiðslur, þegar allt yrði upp talið, mundu verða á bilinu 250 til 260 milljónir króna. Ekkert hefur verið uppgefið í London, hvert tjónið varð á freigátum brezka flotans, en búizt er við að það hafi ekki verið minna en tjónið á varðskipunum, enda sigldu freigátur oftar en einu sinni af Islandsmiðum með sundurtætt stefni. FJARHAGS- og viðskiptanefnd efri deildar hefur flutt breyting- artillögu við lög um tekju- og eignaskatt, sem mun veita skatta- yfirvöldum heimild til þess að veita gjaldeyriseftirliti upplýs- ingar um gjaldeyrismál, sem skattyfirvöld hafa undir höndum, verði tillagan samþykkt. Eins og kunnugt er hafa skattayfirvöld ekki talið sig hafa heimild til þess að veita gjaldeyriseftirliti Seðlabanka tslands aðgang að upplýsingum, sem skattayfirvöld- um hafa borizt frá Danmörku um bankainneignir ísienzkra ríkis- borgara þar. Breytingartillagan er svohljóð- andi: „Við 44. gr. laganna bætist ný málsgrein, er verði önnur máls- grein og orðist svo: „Skattayfir- völdum er þrátt fyrir ákvæði 49. gr. laga þessara heimilt að veita gjaldeyriseftirliti Seðlabanka Is- lands upplýsingar er nauðsynleg- ar eru til eftirlits með gjaldeyris- málum, enda standi ákvæði milli- rikjasamninga ekki í vegi fyrir því.“ 1429 millj. í afborganir og vexti „VEGNA Kröfluvirkjunar eru 1429 milljónir króna á fjár- lagafrumvarpinu og sú upp- hæð er tekin upp í lánsfjár- áætlun,“ sagði Gísli Blöndal hagsýslustjóri, er Mbl. spurði hann í gær, hver yrði kostnað- ur af Kröfluvirkjun á næsta ári. „Þessar 1429 milljónir skipt- ast i 1151 milljón í afborganir og vexti vegna stöðvarhússins Framhald á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.