Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977 Almannavarnir: Aðeins fjármagn fyrir nýju viðvörunar- kerfi á Kötlusvæði — VIÐ áætluðum að kostnaður við að koma upp fullkomnunum viðvörunarkerfum á Kröflusvæð- inu og f Mývatnssveit væri um 3,2 millj. kr. en við aðra umræðu fjárlaga fyrir næsta ár, er aðeins gert ráð fyrir 1,5 millj. kr. fjár- veitingu til þessara hluta, sagði Guðjðn Petersen fulltrúi hjá Al- mannavörnum þegar Mbl. ræddi við hann í gær. Guðjón sagði að þar sem núver- andi viðvörunarkerfi á Kröflu- svæðinu yrði lagt niður á næsta ári, með því að þá hættir starf- ræksla lóranstöðvarinnar á Reynisfjalli, þá hefði verið nauð- synlegt að koma upp nýju viðvör- unarkerfi og Almannavarnir hefðu ætlað sér að koma upp eins kerfi í Mývatnssveit. En þar sem Framhald á bls. 19. Stefán Jóhannsson f.v. aðalvarðstfóri látmn Deila flugumferðarstjóra: Miklar tafir á innanlands flugi Flugfélags íslands STEFAN Jóhannsson, fyrrver- andi aðalvarðstjóri við lögreglu- lið Reykjavfkur, andaðist á Borgarspítalanum á þriðjudaginn 71 árs að aldri. Stefán var fæddur á Skálum á Langanesi 23. apíl 1906. Ungur að árum fluttist hann til Reykjavík- ur og réðst til lögreglunnai* í Reykjavík, þar sem hann starfaði í rúmlega 40 ár þar af sfðustu árin sem aðalvarðstjóri. Stefán hefur m.a. um áratuga skeið haft það verkefni með höndum að hafa eftirlit með áramótabrennum í borginni fyrir hönd lögreglu- Nafn drengsins, sem drukknaði LITLI drengurinn, sem drukkn- aði í Rangárvallasýslu í fyrradag hét Guðmundur Garðar Guðmundsson, fjögurra ára, til heimilis að Hólmi í Austur- Landeyjum. stjóraembættisins og hélt hann þvi starfi áfram eftir að hann lét af störfum við embættið í fyrra fyrir aldurs sakir. Eftirlifandi kona Stefáns er Anna M. Jóns- dóttir og eiga þau uppkomin börn. A tsaf jarðarflugvelli fyrir skömmu. VEGNA deilu flugumferðar- stjóra og flugmálayfirvalda hafa orðið verulegar tafir á innan- landsflugi Flugfélags tslands að undanförnu. Forráðamenn Flug- leiða hafa rætt við deiluaðila og lýst þeim vandræðum sem af þessu hefur hlotist og farið fram á að úr málum yrði greitt, þannig að þessi deila, sem er Flugleiðum alls óviðkomandi, verði farþegum félagsins og félaginu sjálfu ekki til frekara tjóns. sagði Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flug- leiða I samtali við Mbl. f gær. Ekkert hefur gerst í þessu máli og virðist sem hvor aðili sitji við sinn keip. Vegna tafa sem í dag- hafa hlotist vegna aðgerða flug- umferðarstjóra hafa mun færri farþegar verið fluttir en annars hefði orðið og færri ferðir verið farnar, en hver flugferð hefur tekið mun lengri tíma en við venjulegar aðstæður. Verði ekki fundin lausn á þessari deilu hið bráðasta er því alls óvíst að takist að flytja alla þá farþega, sem bók- að hafa far með flugvélum félag- sins fyrir jólin. Ljósmyndari Mbl. Ulfur Agústsson. Eftir alger frátök í gær var í dag hægt að fljúga til Akureyrar og voru sendar þangað fjórar vél- ar, ennfremur ein til Neskaups- stðar. Um hádegisbilið opnaðist flugleiðin til Isafjarðar en þangað hefur verið ófært vegna veðurs siðan fyrir helgi. Var þá ákveðið að senda allar Fokker-vélar Flug- félagsins til Isafjarðar. Allar urðu flugvélarnar fyrir meiri og minni töfum við brottför frá Reykja- víkurflugvelli og einnig sumar frá Isafjarðarflugvelli, vegna þess að flugumferðarstjórar gáfu ekki flugtaksheimildir. T.d. varð ein flugvél að bíða i 45 mínútur með farþega um borð eftir því að leyfi yrði gefið. I kvöld á að fljúga þrjár ferðir til Egilsstaða og varð veruleg töf á fyrstu brottfoör vegna þess að flugleyfi var ekki gefið. I gær átti að fljúga tvær ferðir til Akureyrar, eins átti að fljúga til Hafnar í Hornafirði, Húsavík- ur og Sauðarkróks. Þegar til kom var ófært til Hafnar og eins til Húsavíkur, en hins vegar fóru þrjár vélar til Sauðárkróks. Með einni vélinni voru farþegar til Akureyrar, sem síðan fóru akandi til Akureyrar, því ljóst er, að á meðan yfirvinnubann flugum- ferðarstjóra er í gildi komast ekki allir milli Reykjavíkur og Akur- eyrar sem vilja fyrir jól. bá sagði Sveinn Sæmundsson að ófært hefði verið í allan gærdag til Vest- mannaeyja, ennfremur til Pat- reksfjarðar og Þingeyrar. Skipstjórinn á Hrönn lilaut 2,8 m. kr. sekt I GÆR var kveðinn upp I saka- dómi Reykjavíkur dómur í máli skipstjórans á skuttogaranum Hrönn RE 10. Hlaut skipstjórinn 2,8 millj. kr. sekt, sem greiða skal innan fjögurra vikna ella komi sex mánaða varðhald í staðinn. Skipstjórinn áfrýjaði dóminum þegar til Hæstaréttar. Auk þess sem skipstjóranum er gert að greiða fyrrgreinda sekt, var afli og veiðarfæri skipsins gert. upptækt. Aflinn um borð í Hrönn var lítill að þessu sinni, — metinn á um 2 millj. kr. enda var togarinn nýfarinn á veiðar. Það var varðskipið Ægir sern kom að Hrönn, þar sem togarinn var með vörpuna fasta í botni um 1,2 sjómilur innan við 12 mflna mörkin vestur af Dritvík á Snæ- fellsnesi. Dóminn yfir skipstjóranum á Hrönn kvað upp Birgir Þormar, og meðdómendur hans voru skip- stjórarnir Karl Magnússon og Sig- urður Þórarinsson. Verjandi skip- stjóra var Benedikt Blöndal hrl. Hvernig kemur skyldu- sparnaðurinn niður? FRUMVARP rfkisstjórnarinn- ar um skyfdusparnað og ráð- stafanir I ríkisfjármálum var afgreitt sem lög frá albingi sl. þriðjudag, en eins og Mbl. hef- ur skýrt frá gera þessi lög m.a. ráð fyrir að þeir einstaklingar sem hafa yfir 1,4 millj. króna skattgjaldstekjur á árinu 1977 og ekki eru orðnir 67 ára fyrir ISkattqialdstekjur í þús. kr. 2.409 2.410 2.595 2.596 2.781 2.782 2.967 2.968 3.000 4.000 3.109 3.110' 3.295 3.296 3.481 3.482 3.667 3.668 4.000 5.000 áramótin næstu greiði 10% af því sem fram yfir er, en hafi þessir aðilar börn innan 16 ára aldurs hækkar þetta mark um 186 þúsund. kr. Hjá samskött- uðum hjónum miðast skatt- gjaldstekjumarkið við 3,1 milljón en hjá sérsköttuðum hjónum reiknast 10% af skatt- gjaldstekjum umfram 1.860.000 kr. hjá hvoru þeirra. SkyIdusparnaðurinn er bund- inn vaxtalaus en verðtryggður til 1. febrúar 1984. A þessi ráð- stöfun að færa rfkissjóði aukið ráðstöfunar fé um nær einn milljarð króna. Þess hefur orðið vart að ekki er öllum ljóst hvað átt er við með skattgjaldstekjum, og í því tilefni leitaði Mbl. til Sigur- björns Þorbjörnssonar ríkis- skattstjóra og bað hann um nánari skilgreiningu á því hug- taki ásamt dæmum um það hvernig skyldusparnaður kæmi hugsanlega niður á fólk í mis- munandi tekjuflokki. Sigurbjörn sagði, að væri sjálft skattaframtalseyðublaðið haft til viðmiðunar, þá væri þar fyrst að nefna liðinn III., þar sem færðar væru allar tekjur eitthvert tiltekið ár og væru það alla jafna kallaðar brúttó- tekjur. A sömu siðu væru síðan liðurinn IV, þar sem væru breytingar til lækkunar á fram- töldum tekjum samkvæmt liðn- um á undan e'n þarna væri um að ræða m.a. skyldusparnað, frádrátt frá tekjum barna, bíla- styrk og 50% af greiddu með- lagi, svo að eitthvað væri nefnt. Þegar samtala þessa IV. liðs hefði verið dregin frá heildar- tekjunum samkvæmt III. lið fengist það sem kallað væri vergar tekjur og er það mjög nærri þvi að vera sá grunnur sem notaður er við álagningu útsvara. Þá væri komið á V. liðnum sem væri frádrátturinn, en þar væri m.a. um að ræða kostnað vegna íbúóarhúsnæðis, vaxta- gjöld, iðgjald af lífeyristrygg- ingu og lífsábyrgð, stéttarfé- lagsgjald, 50% af launum eigin- konu o.fl. Samtala þessa liðs væri nú dregin frá vergum tekj- um og mismunurinn, sem þarna væri á milli, væri nefndur skattgjaldstekjur. Þar hæfist skattheimtan. Sigurbjörn sagði, að þó gætu skattgjaldstekjur lækkað frá þessu ef um væri að ræða íviln- Framhald á bls. 20 Skyldusparnaöur ■ í þús. kr. Einstaklinqar þ.m.t. einstæó foreldri m/1 barn m/2 börn m/3 börn Barnlausir á framfæri á framfæri á framfæri 0 0 0 0 1 0 0 0 19 0 0 0 19 1 0 0 38 19 0 0 38 19 1 0 56 38 19 0 56 38 19 1 60 41 22 4 160 141 H j ó 122 n 104 Barnlaus m/1 barn m/2 börn m/3 börn 0 0 0 0 1 0 0 0 19 0 0 0 19 1 0 0 38 19 0 0 38 19 1 0 56 38 19 0 56 38 19 1 90 71 52 34 190 171 152 134

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.