Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977
t
Sonur minn, bróðir og mágur,
SIGURGÍSLI KJARTANSSON
Völlum, Ölfusi
lést að heimili sínu 20 desember
Gíslína Gísladóttir, Björn Jónasson.
Sigríður Kjartansdóttir,
+
Hjartkær eiginmaður minn
ÓLAFUR ASGEIRSSON
fyrrverandi tollvörður
andaðist þann 21 desember
Freyja Rósantsdóttir.
+
STEFÁN JÓHANNSSON
fv. aðalvarðstjóri
Hæðargarði 4
andaðist i Borgarspítalanum 20 desember
Anna María Jónsdóttir
+
Unnusli minn. sonur okkar og bróðir.
AGNAR AGNARSSON.
lést af slysförum þann 1 9 desember
Inga Ólafsdóttir
Margrét Sigmundsdóttír.
Agnar Guðmundsson
og systkini.
+
Útför konunnar minnar.
RAGNHEIÐAR ELÍSABETAR JÓNSDÓTTUR,
frá Hjarðarholti, Stafholtstungum,
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 23 desember kl 1 3 30
Númi Sigurðsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför
eiginmanns mins. föður. fósturföður og afa okkar,
RAGNARS BJARNASONAR,
T résmiðs,
Eikjuvogi 26.
Guð blessi ykkur öll
Guðrún Guðjónsdóttir,
Guðrún Björk Ragnarsdóttir,
Kristín Lára Ragnarsdóttir,
Guðjón Þór Ragnarsson,
Áslaug Harðardóttir,
og barnaborn
+
Innilegar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við
fráfall og útför móður okkar.
MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUR,
og föður okkar
GUÐJÓNS TÓMASSONAR
Sérstakar þakkir til starfsfólks handlækninga- og gjörgæsludeildar
Landspitalans
Svana Guðjónsdóttir, Guðmundur Einarsson,
Gilbert Guðjónsson, GuðnýM. Sigurðardóttir,
Birgir Guðjónsson.
barnabörn og systkini hinna látnu.
+
Inmlegt þakklæti færum við öllum þeim. sem vottuðu okkur samúð og
vináttu við fráfall og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og
afa.
ARNBJORNS GUÐJÓNSSONAR
rafvirkjameistara
Erluhrauni 9
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á Landspitalanum
Jóna Ásgeirsdóttir,
Guðjón Arnbjornsson,
Ásgeir Arnbjörnsson,
Oddný Gunnarsdóttir,
Kristinn Arnbjörnsson,
Sjöfn Arnbjörnsdóttir,
Edda Arnbjörnsdóttir,
Sveinn Auðunn Jónsson,
og Gunnar Þór.
Rannveig Magnúsdótt-
ir — Minningarorð
Þegar jeg frjetti lát Rannveigar
Magnúsdóttur, vöknuðu tvenns
konar kendir i huga mínum. Ann-
ars vegar var feginleikinn yfir
þeirri lausn, er hún hafði hlotið,
hins vegar eftirsjá, tengd við
kynni, sem heyra liðnum tima til.
Þegar gamall prestur rifjar upp
minningar starfsæfinnar, fer ekki
hjá því, að í huga hans komi
myndir þeirra, sem svo að segja
áttu heima i kirkju hans, og voru
þar jafn-sjálfsagðir og hann sjálf-
ur, er hringja skyldi til tíða. Eins
og nú er háttað islenzku þjóðlífi,
þurfa ekki kynnin við messurnar
að hafa í sjer mikinn kunnings-
skap þar fyrir utan. Þrátt fyrir
það tel jeg mig hafa eignast heil-
an hóp persónulegra vina vegna
kirkjurækninnar út af fyrir sig.
En kynni mín og konu minnar af
Rannveigu áttu sjer einnig aðra
orsök. Tengdasonur hennar síra
Sigurbjörn Einarsson var minn
nánasti samverkamaður við Hall-
grímskirkju, og mikil kynni milli
heimilanna.
Þegar hjer var komið sögu, var
Rannveig þegar orðin roskin kona
og átti merkan starfsferil að baki.
Af því leiðir, að jeg er lítt kunn-
ugur fyrri hluta æfi hennar, en
enginn gat komist í kynni við
hana án þess, að finna, að þar var
kona, sem hafði þroskast í starfi
sínu og hafði yfir sjer reisn og
höfðingsbrag, sem átti uppruna
sinn hið innra i hugsun hennar,
skapgerð og andlegri mótun. Hún
var einlæg trúkona, frjáls og um-
burðarlynd í hugsun og dómar
hennar um menn og málefni
kveðnir upp af hlýju og stillingu.
í viðmóti og fasi var hún glaðleg
og vingjarnleg, en djúp alvara var
henni eðlislæg. Jeg held, að eng-
inn hafi verið á flæðiskeri stadd-
ur, sem átti traust sitt hjá henni,
ef rjetta þurfti hendi til hjálpar.
Þannig kom hún mjer fyrir sjónir
frá þvi fyrst, að jeg hafði af henni
nokkur kynni.
Rannveig var fædd 18. febrúar
1885 á Hörgslandi á Síðu. Foreldr-
ar hennar voru Magnús bóndi
Þorkelsson, síðar hreppstjóri að
Fossi, og kona hsns Ingigerður
Jónsdóttir. Attu þau bæði hjónin
ættir sinar austur þar. Börn
þeirra urðu fimm, og eru þau nú
öll fallin frá.
Hingað til Reykjavíkur flutti
Rannveig einhverntíma kringum
síðustu aldamót, og árið 1909,
hinn 2. október, giftist hún Þor-
keli Magnússyni, er einnig var
Skaftfellingur að uppruna, Þor-
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar.
tengdamóður og ömmu,
SIGURBORGU GÍSLADÓTTUR.
Óðinsgötu 1 7 A.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum auðsýnda samúð við fráfall tengdaföður og afa. eiginmanns mins, föður okkar.
SIGURÐAR R GUÐMUNDSSONAR
Ingibjórg Ólafsdóttir,
Olafur Jón Sigurðsson, Elín Gróa Sigurðardóttir,
Arnbjörg Guðmundsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson,
Guðmundur Sigurðsson, Aðalheiður Þóra Sigurðardóttir,
Sigrún Ósk Ingadóttir, og barnaborn Ingibert Pétursson
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar og mágs,
GUÐMUNDAR GUOMUNDSSONAR,
Bólstaðahlíð 8,
Ásgeir Guðmundsson, Borghildur Hjartardóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Guðmundur Vernharðsson,
Margrét Aðalsteinsdóttir, Sigurborg Sigurbjörnsdóttir.
Sigríður Aðalsteinsdóttir, Þorsteinn Bjarnason,
Jóhanna Aðalsteinsdóttir, Jón Magnússon
+
Hjartanlega þökkum við ollum vlðkomandi auðsýnda samúð og hlut-
tekningu vegna andláts og jarðarfarar eiginmanns míns og föðjr okkar,
HERMANNS JAKOBSSONAR.
frá Reykjarfirði.
Sérstakar einlægustu þakkir færum við móður hans, systkinum, vensla-
og tengdafólki öllu. Óskari Halldórssyni. Pólgötu 6, ísafirði, sem og
öllu starfsfólki við sláturhúsið á ísafirði, fyrir alla aðstoð og góðvild á
allan hátt
Guð blessi ykkur
SigriSur Jensdóttir, Jenný Hermannsdóttir.
Benedikt Hermannsson.
Lokað í dag
fimmtudag milli kl. 12—16
vegna jarðarfarar
GUÐMUNDAR KR. GUÐJÓNSSONAR,
fyrrverandi framkvæmdarstjóra.
Vefnaðarvörubúð V.B.K.
Vesturgötu 4.
kell var lengi vjelstjóri á togur-
um, en síöan um langt skeið sótari
hjer í bænum. Hann varð bráð-
kvaddur 10. júní 1956. Þeir eru
margir, sem muna hann, hinn
yfirlætislausa og trausta mann,
sem í engu vildi vamm sitt. Jeg
minnist þess enn, hversu vel
Rannveig heitin bar missi sinn.
Samvinna þeirra hafði verið með
ágætum, en trú hennar og lífs-
skoðun, auk hennar traustu skap-
gerðar hjálpaði henni til að lita
björtum augum á vistaskiftin,
sem eiga sjer stað við komu dauð-
ans.
Eftir dauða manns síns átti
Rannveig heimili með Ingu Guð-
ríði dóttur sinni, sem ljet sjer
mjög annt um móður sína, og þeg-
ar elli og veikindi fóru að segja til
sín fyrir alvöru, fórnaði Inga
kröftum sínum fyrir móður sína,
hjúkraði henni og vakti yfir heill
hennar, unz ekki varð hjá þvi
komist, að hún færi á sjúkrahús.
Hafði hún þá orðið fyrir heila-
blæðingu. Síðustu tvö árin voru
kraftar gömlu konunnar þrotnir
og einskis lengur að bíða nema
dauðans. Kallið kom 17. december
siðastliðinn.
Arum saman átti Rannveig
heima í sama húsi og frú Magnea
dóttir hennar og síra Sigurbjörn,
og naut þess að hafa barnabörnin
nær sjer i uppvextinum. Jeg
minnist nokkurra smáatvika, sem
sýndu, hvert rúm þau skipuðu i
hjarta hennar. A Freyjugötu 17
voru þrjár kynslóðir undir sama
þaki og hefur það löngum þótt
hollt fyrir frumvöxt þjóðarinnar.
Það er gömul þjóðtrú, að það sje
gott að deyja um jólin. Ekki hefi
jeg heyrt neinn rökstuðning fyrir
þeirri trú. En ef við lifum jólin í
raun og sannleika, finnum við
fyrir þeim friði, sem fæðing frels-
arans hlýtur að vekja í sálum okk-
ar, sem stundum hættir við að sjá
ekki annað fram undan en svart-
nætti skammdegis og auðnar. Við
finnum ekki aðeins návist guðs í
þessum heimi, heldur návist
eilífðarinnar, himininn opinn yfir
jörðinni, guðs dýrð yfir þeim, sem
lifa — og einnig yfir þeim, sem
deyja. Margir eru þeir, sem hugsa
til dáinna vina á jólunum, ekki
aðeins vegna minninganna, held-
ur einnig vegna vonanna — og þá
fyrst og fremst vegna þeirrar von-
ar, að þeir eigi sina jólagleði í
samfjelagi hans, sem fæddist á
jörðu og reis upp til himinsins.
Megi þau ,,jól“ verða Rannveigu
Magnúsdóttur „gleðileg jól“.
Jakob Jónsson
Afmælis-
0g
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afma'lis- og minningargreinar
verða að berast hlaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast 1 sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibrófsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
línubili.