Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977 Bragi Asgeirsson: Undirstaða rúmtaksvitundar BARNALEIKUR nefnist óvenjuleg bók sem fyrir nokkru er komin á markaðinn, en höfund- ur hennar er Einar Þorsteinn As- geirsson hönnuður og húsameist- ari (arkitekt). Bókin er ætluð „börnum á aldrinum 5—95 ára“ og mun hér vera um frumraun á því sviði að ræða hérlendis, að gera flatarmáls- og rúmfræði að- gengilega fyrir fólk á öllum aldri. Höfundurinn hittir sannarlega naglann á höfuðið þegar hann nefnir bók sina „barnaleik", því að franjfarir á öllum sviðum lista og vísinda byggjast á því, að menn nálgist viðfangsefni sín af um- búða-, -fölskvalausri og áleitinni forvitni barnsins. Það er nefni- lega ekki til neitt er nefnist „ein- getin reynsla“, og svo sem stend- ur í merkum formála snillingsins R. Buckminster Fuller, — þá er þetta bók fyrir einu sönnu vís- indamennina — börnin — og þá, sem hugsa um hlutina með sama hugarfari og þau.Hann vísar til ummæla heimspekingsins ^ir James Jean: „Vísindin eru til- raun til þess að raða niður þeim staðreyndum, sem reynslan kenn- ir okkur." — „Eðlisfræðingurinn nafntogaði frá Vínarborg, Ernst Mach, lét einnig svo ummælt: „Eðlisfræðin fjallar um tilraun þess að raða staðreyndum reynsl- unnar i hagkvæmustu röðina." Eina hráefni til allra vfsinda er reynslan. — Börnin eru fæddir vísindamenn. Fyrir þeim er til- raunin sjálfsögð og þau reyna hlutina enn og aftur. Þau reyna einnig að raða niður árangri reynslu sinnar. Hvað er mest? Hvað er minnst? Þau athuga alla hluti með öllum hugsanlegum aðferðum án tillits til skoðana annarra.“ — Þetta eru gagnmerk og algild sannindi hjá Buckminst- er Fuller og hinum frægu vísinda- mönnum er hann vitnar í, — og við þetta má bæta, að börn eru einnig opin fyrir að hagnýta sér reynslu annarra, en leggja svo sitt mat á árangurinn. Það er sannarlega gott að fá slíka bók á tímum er allt virðist eiga að birtast alskapað og einget- ið. Þeim fjölgar stöðugt er finna upp „heita vatnið“ þ.e. álíta sig uppgötva það fyrstir, sem fyrir öðrum eru algildar staóreyndir. Það var vissulega ekki út í bláinn sem G. Bernhard Shaw sagði eitt sinn og andvarpaði um leið: „Æskan er dásamleg, — synd að splæsa henni á unga fólkið...“ A síðustu timum hefur það orð- ið að meinlegri áráttu í skólum að leggja allt sem ljósast og skil- merkilegast fyrir nemendur, — helst dauðhreinsað af öllu fóðri fyrir ímyndunaraflið — nemand- inn á helst ekki að þurfa að hugsa neitt sjálfstætt, né ómaka sig við að bjóta hlutina til mergjar að eigin frumkvæði. Námið verður því ósjálfrátt að eins konar plast- iðnaði, rifið úr tengslum við lög- mál hins lífræna og upprunalega, — hin skapandi kennd og sjálf- bjargarviðleitni hvers og eins óþörf og gamaldags atriði úr for- tíðinni — rakin forneskja. . . — Rafeindaheilar, tölvur og hvers konar háþróuð hjálpartæki eiga að vísa hinum „fullorðna nútíma- manni“ veginn. Það gleymist að það eru hins vegar einmitt „börn á aldrinum 5—95 ára“ sem eru höfundar vísinda og tæknideildar nútímans.. . Enginn skyldi álíta, að sá er hér ritar vilji leggja allt sem óljósast fyrir nemendur, — slíkt er víðs fjarri, en hann vill vísa til og minna á, að ef hæfileikinn til að uppgötva og upplifa er tekinn frá ungu fólki verður árangurinn „stöðluð plastmenni“. Allt það sem hér að framan hefur verið drepið á, er í beinum UM ÞÓR MAGNUSAR ÞÓR MAGNÚSSON ÞJÓÐMINJAVÖRÐ- UR RITAR UM HINA NÝJU BÓK MAGN- ÚSAR MAGNÚSSONAR, HAMAR ÞÓRS, ( DAGBLAÐIÐ 19. NÓV. OG BER GREININ OFANSKRÁÐA FYRIRSÖGN. ÞÓR SEGIR M.A. í GREIN SINNI: HRIFANDI FRÁSÖGN „Þetta er ekki fræðirtt, heldur er reynt á einfaldan og mjög aðgengllegan hátt að opna hinn foma trúarbragða- og goð- sagnaheim öllum almenningi, bæðl á myndrænan hátt og með frásögum. Víða hAITIAR pÓRS eru endursagðar sögur úr Eddu og tekln upp einstök erlndi úr eddukvæðum .. ....Þegar maður fær þessa bók í hendur dettur manni í hug skartgrlpur úr góð- málmum skreyttur eðalstelnum. Allt ytra útlit bókarinnar er með miklum glæsl- brag, prentun og frágangur einkarvand- aður og fallegur, enda er þessi íslenzka útgáfa unnin nákvæmlega eftir hinni ensku og myndaprentunln gerð samtfmis fyrfr báðar útgáfurnar. Þýðing Dags Þorleifssonar er með miklum ágætum, lipur og skýr, og kemur hann vel tll skila léttleika höfundar sem svo víða birtist í frásögnlnni. Þór Magnússon, þjóðminjavörður" • • • • Om&Orlygur Vestwgötu 42 sími:25722 Höfundur bókarinnar Barnaleiks, skýrir hvernig vinna á flötunguna, en skilgreiningum bókarinnar fylgja svokallaðar rúmmyndir á lituð- um blöðum, sem klippa má út og líma saman á um 50 mismunandi vegu eftir lögmálum rúmfræðinnar. og óbeinum tengslum við hug- myndina að baki bókinni „Barna- leikur“ sem hér er fyrir gilda verðleika sína vakin athygli á, — og útkoma þessarar bók’ar álít ég markvert og tímabært framtak. Hér á námsefnið, sem er svið rúm- málsfræðinnar, að vera sem að- gengilegast fyrir börn og ungl- inga og raunar allt smáfólk, allt leitandi fólk á öllum aldri. Slíkt er auðveldast gert með því að gera námsefnið að leik, sem flétt- ast inn í vitund lesandans og verð- ur undirstaða skilnings viðkom- andi á stærðfræði, — reglulegum flötungum og rúmmálsfræði — rúmtaki. Og þessi leikur getur orðió býsna skemmtilegur, ef far- ið er rétt að, og jafnframt opnað augu viðkomandi iðkenda fyrir töfrum lífsins. — Vesalings náttúran hefur einungis yfir að ráða örfáum frumformum fyrir starfsemi sina — engin hjálpar- tæki, engin gerviefni og engar tölvur, — skelfilega má hún vera einsöm, gamaldags og „lummó". En trútt um talað hefur hún þó, þrátt fyrir allt, bjargast á þessum fáeinu lögmálum og unnið af frá- bærri, makalausri snilld úr þeim, svo sem hvarvetna getur að líta vökulu augu og öllum þeim, er vilja og telja sig ekki yfir það hafna að taka þátt í leik hennar. Bókin „Barnaleikur" býður þeim er það vilja að kynnast þess- um grundvallarlögmálum náttúr- unnar að hluta, og nálgast þau með eigin starfi og áleitinni for- vitni, og þá munu viðkomandi uppgötva, likt og skáldið Rainer Maria Rilke reit eitt sinn: „Hið smáa er jafnlitið smátt og hið stóra er stórt. — Það mótast mikil og eilíf fegurð gegnum veröld alla, og henni er réttlátlega dreift yfir stóra og smáa hluti." Guðmundur Guðjóns- son — Minningarorð Félagar knattspyrnufélagsins Vals kveðja i dag Guðmund verzl- unarstjóra Guðjónsson, en hann lézt 12. des. sl. 84 ára að aldri. Guðmundur Guðjónsson var ásamt Guóbirni Guðmundssyni prentara frumkvöðull að stofnun knattspyrnufélagsins Vals, hinn 11. maí 1911. Valur, svo sem önnur félög áhugamanna, sera starfað hafa um árabil, hafa á löngum ferli sínum eignast marga dugmikla fé- laga, sem gert hafa garðinn fræg- an á sviði stefnumála sinna, bæði í leik og starfi, menn sem af kappi og með forsjá hafa hrifið félög sín fram á leið. Án slíkra félagá, fórn- fýsi þeirra og sívökullar elju, um það sem betur mætti fara, væru stutt framfaraspor stigin. I hópi slíkra félagslegra elju- manna var einmitt Guðmundur Guðjónsson. Starfsþreki hans og starfsgleði ásamt ljúfri skaphöfn var viðburgðið og gerði samstarf- ið við hann sérlega eftirsóknar- vert. Eins og fyrr segir, var hann annar aðalstofnandi Vals fyrir 66 árum. Mikió vatn hefir til sjávar runnið síðan það gerðist. En allt frá stofndegi til aldurtilastundar fylgdist Guðmundur með Val bæði i blíðu og stríðu og meðan hann mátti tók hann þátt í störf- um félagsins, átti sæti í fulltrúa- ráði og stjórnc.m félagsdeilda og lét sig aldrei vanta á fundi eða þar sem hann var til kjörinn. Var á því sviði sem öðrum fögur fyrir- mynd hinum yngri. A yngri árum tók Guðmundur mikinn þátt í íþróttum, auk knatt- spyrnu hafði hann mikið dálæti á hlaupum og var m.a. einn af þátt- takendum í fyrsta víðavangs- hlaupi l.R. Guðmundur Guðjónsson var Dalamaður að uppruna, fæddur 3. júlí að Innri-Fagradal í Saurbæj- arhreppi, foreldrar hans voru hjónin Gunnhildur Guðmunds- dóttir og Guðjón Jónsson. Arið 1906 fluttust þau til Reykjavíkur og hér ól Guðmundur allan sinn aldur. Lífsstarf Guðmundar voru verzlunarstörf, allt frá árinu 1910 og til aldurtilastundar vann hann hjá V.B.K. og hin síðari ár sem verzlunarstjóri. Um leið og við vinir og félagar Guðmundar í Val þökkum honum brautryðjandastarfið og hans mikilsverða þátt að starfsemi fé- lagsmáia Vals um áratuga skeið, kveðjum við hann sem samferða- mann á vegamótum. Vinarkveðj- ur okkar fylgja honum eftir er hann Ieggur upp í þann áfanga, sem öllum er fyrirbúinn. Við látum í Ijós innilega samúð okkar með eiginkonu hans og öðr- um ættingjum og skylduliði, Guð- mundar verður ætíð minnzt sem eins bezta félaga Vals. Knattspyrnufélagið Valur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.