Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977
19
Kishon fær
þýzka
húmor-orðu
ÞVZKA blaðið Frankfurter
Rundschau segir frá því á
dögunum að ísraelski
höfundurinn Ephraim Kishon
'•— en viðtal við hann birtist í
Morgunblaðinu á sunnudag,
svo og þrír kaflar úr bókum
hans — muni fá sérstaka
viðurkenningu sem veitt er af
Aachener Karnevalsverein.
Viðurkenningu þessa mætti í
lauslegri þýðingu kalla
„riddaraorðu gegn hrikalegri
alvöru“ og verður rithöfundur-
inn sæmdur þessum verðlaun-
um við hátlðlega athöfn í
Aachen í næsta mánuði.
Þessi verðlaun hafa áður
fengið 29 „riddarar" frá níu
löndum. Kishon er fyrsti
ísraelinn sem þessa viður-
kenningu hlýtur og hann er
einnig fyrsti rithöfundurinn í
hópnum, en í honum eru
meðal annarra Adenauer,
Walter Scheel, Helmut Scmidt,
Bruno Kreisky og Denis Healy.
I frétt Frankfurter
Rundschau er farið nokkrum
orðum um rithöfundarferil
Kishons og framlag hans til
bókmennta lofað mjög
Eldur í eld-
flaugastöð
Vandenberg, Kalifornfu, 20. des. Reuler
ELDUR geisaði I eldflaugastöð-
inni Vandenberg og varð þremur
mönnum að bana í dag.
Að sögn talsmanna eldflauga-
stöðvarinnar lokuðust mennirnir
inni er þeir reyndu að slökkva
eldinn. Meðal þeirra sem fórust
var ofursti.
Einn eldflaugaskotpallur eyði-
lagðist í eldinum, en engar eld-
flaugar voru á skotpallinum,
þegar eldurinn kom upp.
Vandenberg er norðaustur af
Los Angeles og þaðan er skotið
bæði evrópskum og bandariskum
gervihnöttum út í geiminn.
Eldurinn breiðist út á óbyggðu
svæði og stefnir í átt til hafs.
Mikið hvassviðri var og komst
vindhraðinn í 160 km á klukku-
stund.
Kafnaði í
bókaflóði
New Vork. 20. des. AP.
SJÖTUG kona lést í dag eftir að
hún grófst undir stafla af bókum,
blöðum og fréttaúrklippum.
Að sögn lögreglu féll staflinn
ofan á konuna, er hún lá i rúmi
sínu síðastliðinn sunnudag, og
köfnuðu óp hennar i bökunum.
Lögreglan varð að brjóta upp
dyrnar á herbergi hennar til að
komast inn, þvi bókaskápur hafði
fallið þvert fyrir dyrnar.
I húsinu fannst mikið af bók-
um, tímaritum, palstpokum og
blaðaúrklippum.
Leiðrétting
NOKKUR orð féllu niður i fyrstu
grein minni um Jafnaðarstefnuna
eftir Gylfa Þ. Gíslason si. þriðju-
dag, og afskræmdist merkingin.
Rétt er málsgreinin svo: „Kalla
má sósíalisma sem viðhorf, samúð
með lítilmagnanum og ósk um
samhjálp allra manna, „sam-
hyggju" (og andstæðuna „mann-
hyggju"), sósialisma sem aðferð-
arkenningu „skipulagshyggju"
(og andstæðuna „einstaklings-
hyggju") og sósíalisma sem
stjórnmálastefnu „jöfnunar-
stefnu“ (og andstæðuna „réttar-
stefnu“).
Ilannes H. (iissurarson
— Almanna-
varnir
Framhald af bls. 2
fjárveitingarvaldið hefði aðeins
gert ráð fyrir 1,5 millj. kr. fram-
lagi til þessara hluta, væri ljóst að
aðeins yrði hægt að setja upp við-
vörunarkerfi á öðru svæðinu og
yrði það liklega sett upp á Kötlu-
svæðinu, en Mývatnssveit yrði að
biða.
— Forsætis-
ráðherra
Framhald af bls. 28.
verðbólguvandans ef tiltækar
eru.
Geir Hallgrímsson sagði það
óvænt traust af hálfu stjórnar-
andstöðu í garð stjórnarinnar, er
fram kæmu getgátur um, að ríkis-
stjórnin myndi leysa efnahags-
vandann að fullu í mánaðar þing-
hléi, þann veg, að stjórnarand-
staðan kæmi að leystum hnútum
og orðnum hlutum í byrjun kom-
andi árs. Naumast færi saman orð
þeirra um umfang vandamála og
svo skjót lausn þeirra.
Siðan fór forsætisráðherra
nokklum orðum um vandamál
einstakra atvinnugreina, sem
væri ærin, og féllu inn á þann
heildarvanda, sem tekinn yrði til
áframhaldandi athugunar í þing-
hléi. Heilbrigð ríkisfjármál og
stefnumörkun í lánsfjárætlun eru
forsendur þess, að aðrir þættir
efnahagsmála verði færðir til
betri vegár. Ríkisstjórnin fjallar
um þessi mál innan ramma heim-
ilda í stjórnarskrá meðan Alþingi
er í jólaleyfi.
Aðrir sem til máls tóku í um-
ræðunni, voru: Stefán Jónsson
(Abl), Lúðvík Jósepsson (aftur)
og Jón Ármann Héðinsson (A).
— Góður
markaður
Framhald af bls. 32.
þeirra upplýsinga i gær, að
mjöl og lýsismarkaðir í Evrópu
væru nú taldir frekar góðir, og
að t.d. lýsi hefði stigið í verði á
siðustu vikum og fengust
440—460 dollarar fyrir tonnið
þessa dagana, hins vegar væri
ekkert lýsi til á Islandi til að
selja um þessar mundir og yrði
ekki fyrr en í byrjun Ioðnuver-
tíðar á næsta ári.
— Scanhouse
Framhald af bls. 32.
vildu reyna hafa sem mest ís-
lenzkt vinnuafl við þessar fram-
kvæmdir, en hins vegar væri auð-
velt að fá menn til starfa þar
suður frá, t.d. frá Þýzkalandi.
Hlutafjáreign í Scanhouse
skiptist þannig að 60% hlutafjár
er i eigu Islendinga um 40% í
eigu Nigeriumanna.
Þorskveiðibann
Framhald af bls. 32.
Vinnslu aflans yrði þó ekki alls
staðar lokið fyrir jól og það sem
eftir væri yrði unnið milli jóla og
nýárs.
Jón Páll Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Norðurtanga h.f. á
Isafirði, sagði, að Isafjarðartogar-
ar væru nú allir i höfn og hefðu
komið til hafnar í fyrradag, en
síðustu dagana hefðu þeir verið á
karfa- og ufsaveiðum. Taldi Jón,
að togararnir færu ekki út fyrr en
eftir nýár, nema eitthvað sérstakt
kæmi til.
Togarar frá Reykjavik munu
flestir hafa hætt þorskveiðum i
byrjun desember og verða þvi á
veiðum um jólin eins og Akureyr-
artogarar.
Bang & Olufsen
HLJÓMTÆKI
OG NÓATUNS
SIMI 29800 ( 5 LÍNUR)
26 AR Í FARARBRODDI