Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977
27
Steinþór Gestsson:
Tillögur f járveitinga-
nefndar gera ráð fyrir
183 millj. greiðsluafgangi
STEINÞÓR Gestsson, formaður
f járveitinganfndar, gerði við upp-
haf þriðju umræðu f járlaga grein
fyrir störfum fjárveitinganefnd-
ar miili umræðna. Kom fram hjá
honum, að nefndin hefði tekið
ýmsa þætti fjárlagafrumvarpsins
til nánari athugunar og einnig
erindi, sem lágu hjá nefndinni.
Gerði Steinþór I ræðu sinni grein
fyrir breyting:rtillögum fjárveit-
inganefndar og einnig tillögum
meiri hluta nefndarinnar og
sagði að ef þær tillögur yrðu sam-
þykktar næmu heildarútgjöld
rfkissjóðs 1978 um 138 milljörð-
um og 493 milljónum króna.
Tekjur rfkissjóðs munu nema um
139 milljörðum og 496 milljónum
krónum tekjur umframgjöld
nema þvf 1003 milljónum krðna.
Gert er ráð fyrir að halli á lána-
hreyfingum verði 820 milljónir
króna og greiðsluafgangur um
183 milljónir króna. Hér fer á
eftir kafli úr ræðu Steinþórs:
„Ég gat um það við 2. umræðu
að nú væru fyrir hendi breyttar
forsendur fyrir grundvelli fjár-
lagafrv. frá þvi sem var þegar frv.
var samið. Verðlags- og launa-
breytingar hafa siðan átt sér stað
og valda þvi að verulega raskast
sá grundvöllur sem frumvarpið
var byggt á. Þjóðhagsstofnunin og
fjárlaga- og hagsýslustofnunin
hafa tekið allan þjóðarbúskapinn
til endurskoðunar og skýrt fyrir
fjárveitinganefnd niðurstöður
sinar og fengið nefndinni í hend-
ur upplýsingar um áhrif þeirra á
fjárlagagerðina.
t greinargerð Þjóðhagsstofnun-
arinnar kemur m.a. fram, að nú
liggur fyrir vitneskja um inn-
heimtu ríkissjóðs fyrstu 11 mán-
uði ársins 1977. Samkvæmt henni
er talið líklegt að rikistekjur
verði i heild nálægt þeirri áætlun,
sem fjárlagafrumvarpið var reist
á, þó sennilega frekar undir en
yfir. Nokkrar breytingar verða
hinsvegar á einstökum liðum til
hækkunar eða lækkunar.
Þjóðhagsstofnunin telur, að for-
sendur um vöxt þjóðarfram-
leiðslu og tekna á næsta ári verði
óbreyttar frá fjárlagafrumvarpi.
Með kjarasamningunum i haust,
fyrst og fremst kjarasamningum
opinberra starfsmanna, var stefnt
í meiri aukningu einkaneyzlu á
næsta ári en miðað var við i fjár-
lagafrumvarpi, sem felur i sér
hættu á vaxandi viðskiptahalla.
Með þeim ráðstöfunum, sem fyr-
irhugaðar eru í tengslum við :f-
greiðslu fjárlaga, aðallega hækk-
un sjúkratryggingagjalds og
álagningu skyldusparnaðar, má
ætla að aukning einkaneyzlu á
næsta ári verði nálægt 6% eða
svipað og við var miðað í fjárlaga-
frumvarpi. Opinberar fram-
kvæmdir dragast saman um nær
9% eða nokkru meira en sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpi.
Aukning þjóðarútgjalda og þjóð-
arframleiðslu gæti fylgt 6—7%
aukning almenns vöruinnflutn-
ings. Endurskoðun tekjuáætlunar
1978 er miðuð við þessar forsend-
ur, sem mestu ráða um magn-
breytingu helztu stofna óbeinna
skatta. Meiri aukningu þjóðarút-
gjalda en hér er miðað við fylgdi
óhjákvæmilega hætta á vaxandi
viðskiptahalla, sem ekki getur
orðið undirstaða varanlegrar
tekjuaukningar ríkissjóðs.
Kauplagsforsendur fjárlaga-
frumvarpsins voru i aðalatriðum
reistar á kjarasamningum ASl og
vinnuveitenda að þvi er tekur til
grunnkaupshækkana, en ekki var
reiknað með verðbótum á laun
eftir 1. september. Hið sama átti
við um verðlagsforsendur, sem i
aðalatriðum voru miðaðar við
verðlag i október, en þó var rein-
að með þeim verðbreytingum,
sem telja mátti að fylgt gætu
grunnkaupshækkun samninga
auk þess sem einnig var ætla9
fyrir hækkun innflutningsverðs í
erlendri mynt. Við endurskoðun
tekju- og gjaldahliða fjárlaga-
frumvarpsins er miðað við sömu
verðlagsforsendur og við gerð
lánsfjáráætlunar, þ.e. nálægt
30% meðalverðhækkun milli ár-
anna 1977 og 1978. Forsenda fjár-
lagafrumvarps fól i sér 18—10%
meðalverðhækkun.
Gert er ráð fyrir nýrri tekjuöfl-
un um leið og dregið hefur verið
úr útgjöldum ríkissjóðs.
1. Sjúkratryggingagjald, sem
SAMEINAÐ þing afgreiddi frum-
varp til fjárlaga fyrir komandi ár
sem lög f gær. Frumvarpið var
samþykkt með 41 samhljóða at-
kvæði, eftir að breytingartillögur
meirihluta f járveitinganefndar
höfðu verið felldar inn í það. Aðr-
ar breytingartillögur voru felld-
ar, utan ein, um kaup á dagblöð-
um fyrir rikisstofnanir, er Þórar-
in Þórarinsson, Benedikt Gröndal
og Ragnar Arnalds fluttu. Sam-
kvæmt fjárlögum, þannig af-
greiddum, nema heildarútgjöld
ríkissjóðs á árinu 1978 138 millj-
öðrum og 493 milljónum króna.
Tekjur ríkissjóðs eru hins vegar
verið hefur 1% af brúttótekjum,
hækkar i 2% og skilar það um
1.900 m. kr. á árinu 1978.
2. Flugvallargjald á utanlands-
ferðir verði tvöfaldað og skilar
það um 300 m. kr. á árinu.
3. Heimild til álagningar leyfis-
gjalds á gjaldeyrisyfirfærslur
verður rýmkuð í 2% og henni
beitt að fuilu á ferðagjaldeyri, en
að hálfu á flest annað. Tekju-
aukning vegna þessa er áætluð
220 m. kr.
Benzingjald og þungaskattur
verður hækkaður heldur minna
en gert er ráð fyrir i fjárlaga-
frumvarpi og verða tekjur þvi um
áætlaðar um 139 milljarðar og
496 milljónir króna. Tekjur um-
fram gjöld eru þvi áætluð um 183
m. kr.
Fjöldi breytingartillagna, sem
flestar voru til hækkunar út-
gjalda rikissjóðs, voru felldar.
Þar á meóal voru tillögur sem
Albert Guðmundsson flutti ásamt
Magnúsi Kjartanssyni, Gylfa Þ.
Gíslasyni, Eggert G. Þorsteins-
syni, Eðvarði Sigurðssyni og
Svövu Jakobsdóttur um hækkað-
ar fjárveitingar til skóla- og
sjúkrahúsabygginga í Reykjavík.
Nafnaköll voru um ýmsar þessar
tillögur og stöku þingmenn gerðu
300 m. kr. minni. Til viðbótar
þessari tekjuöflun verður inn-
heimtur 10% skyldusparnaður af
hátekjum og gæti hann numið allt
að 1.000 m. kr. Þessi liður kemur
til viðbótar á lánahreyfingum en
er ekki færður í tekjulið.
Eins og fram kemur i breytinga-
tillögum fjárveitinganefndar, er
um verulega útgjaldaaukningu að
ræða og munar mest um eftir-
talda liðiA- Vegna launamála
11.414 þ. kr. sem fært er á einn lið
undir fjármálaráðuneytið og deil-
ist að sjálfsögðu á einstaka launa-
og gjaldaliði frumvarpsins. Þessi
upphæð er i raun allmiklu hærri
sérstaka grein fyrir atkvæðum
sínum.
Að Ioknum fundum á Samein-
uðu þingi voru fundir i báðum
þingdeildum. I efri deild var Jóna
Guðjónsdóttir, form. verkakv.fél.
Framsóknar, kjörin gæzlustjóri
Söfnunarsjóðs Islands til fjögurra
ára, frá 1. jan. 1978 til 31. desem-
ber. 1981. I neðri deild var ríkis-
reikningurinn fyrir árið 1975
samþykktur.
Forsetar þingdeilda Þorvaldur
G. Kristjánsson og Ranghildur
Helgadóttir, þökkuðu þing-
mönnunum, starfsmönnum Al-
þingis og þingfréttarriturum sam-
Steinþór Gcstsson
en hér var tilgreint en áformað er
að draga úr eftirvinnu opinberra
starfsmanna miðað við fyrri ár
um 1.720.000 kr. og er sú upphæð
sem ég nefndi áðan þannig feng-
in.
Einnig hækkar framlag til
Trygg>ngasl°fnunar rikisins um
3.390 þ. kr.“
Þá gerði formaður fjárveitinga-
nefndar grein fyrir breytingartil-
lögum varðandi einstaka liði fjár-
lagafrumvarpsins, bæði hvað
snertir útgjaldaliði frumvarpsins
og eins heimildarákvæði þess.
starf á vetrinum og árnuðu við-
komendum gleðilegra jóla og far-
sæls komandi árs. Eggert G. Þor-
steinsson (í efri deild) og Magnús
T. Ölafsson (í neðri deild) þökk-
uðu forsetum sanngjarna fundar-
stjórn og árnuðu þeim gleðilegra
jóla og farsæls komandi árs.
Að loknum fundum í þingdeild-
um kom Sameinað þing saman á
ný. Ásgeir Bjarnason, forseti S.Þ.,
flutti þingmönnum og starfsliði,
þakkir og jóla- og nýjársóskir, en
Ragnar Arnalds galt í sömu mynd
fyrir hönd þingmanna. Geir Hall-
grimsson forsætisráðherra las for-
setabréf um frestun þings frá
deginum í gær að telja. Þing kem-
ur saman á ný í síðasta lagi 23.
janúar n.k.
Austurstræti 22
2. hæð,
sími 28155.
Þingmenn komnir í jólaleyfi:
Fjárlög 1978139,5 milljarðir
Hallalaus ríkisbúskapur tryggður áfram