Morgunblaðið - 22.12.1977, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, EIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977
r
Bókaútgáfa Arnastofnunar:
Fjórar bækur
Á ÁRINU komu út fjögur rit hjá
Stofnun Árna Magnússonar í
Reykjavík eins og forstöðumaður
stofnunarinnar, Jónas Kristjáns-
son, skýrði blaðamönnum frá á
fundi síðastliðinn þriðjudag.
Var fyrsta ritið Hallfreðar saga
í búningi Bjarna Einarssonar og
reynir hann að komast sem næst
upphaflegum texta sögunnar, en
textum hefur verið brenglað sam-
an í mörgum útgáfum hennar. í
rækilegum inngangi að Hallfreð-
ar sögu gerir útgefandi grein fyr-
ir varðveizlu sögunnar í handrit-
um og flokkar mismunandi texta-
gerðir eftir skyldleika.
Þá var á árinu gefin út
Snorra—Edda, Ijósprentun fyrstu
útgáfu sem út kom i Kaupmanna-
höfn 1665 og heitir á latinu Edda
Islandorum. Það var danskur
fræðimaður, P.H. Resen, sem ann-
aðist útgáfuna og skrifaði inn-
gang að henni og er hún oft nefnd
Resens — Edda. Mun texti Resens
styðjast við Eddu séra Magnúsar
Ólafssonar i Laufási eða
Laufás—Eddu en sú var byggð á
Eddu Snorra Sturlusonar. Ljós-
prentinu fylgir iangur inngangur
eftir enska fræðimanninn
Anthony Faulkes.
Ut kom á árinu ársrit Árna-
stofnunar, annað bindi, en það
ber heitið Gripla og flytur ýmsar
greinar um islenzk fræði, einkum
bókmenntir og málfræði. I bind-
inu eru flest framlögin eftir
FRÁ LEIDBEININGASTÖÐ HÚSNIÆÐRA
Sjálflímandi miðar
Það er ekki ætíð auðvelt að
fjarlgæja verðmiða og aðra
vörumiða sem fyrirtæki festa á
framleiðslu sína. Sumir hafa
hringt í Leiðbeiningastöð
húsmæðra til þess að fá ráð-
leggingar um hvernig best sé að
framkvæma það verk.
Nýlega birti Statens Hus-
holdningsrád í Danmörku i
málgangi sinu „Rád og
Resultater" grein um sjálf-
límandi miða og verður hér
sagt frá helstu atriðum greinar-
innar.
Límið á slíkum miðum getur
verið samsett á mismunandi
vegu. I lími á flestum' verð-
miðum er aðaluppistaðan
gúmmi. Best er að fjarlægja þá
með því að draga fyrst pappírs-
miðann af vörunni og nudda
síðan gúmmílagið af með klút
sem vættur hefur verið í
bensíni, terpentínu eða
aeentóni.
Að vísu eru til sjáiflímandi
miðar þar sem límið er þannig
samsett að ekkert far verður
eftir á vörunni þótt miðinn sé
numinn burt. En slíkir miðar
eru sjaldan notaðir til að verð-
merkja vörur vegna þess að
þeir losna auðveldlega og
týnast.
En svo eru líka til límmiðar
af mjög varanlegri gerð. Slíkir
miðar eru t.d. notaðir, þegar
framleiðandinn setur vöru-
merki sitt á framleiðsluna. Þess
konar miðum getur verið erfitt
að ná burt. Ef sú vara sem
miðinn er festur á þolir það má
bleyta hann vel með vatni og er
þá oftast nær unnt að draga
miðann af og fjarlægja límaf-
gangana með bensíni. Ef
miðinn skyldi vera svo harður
að ekki er unnt að mýkja hann
með vatni verður að nota rak-
vélablað. En oft má fjarlægja
slika miða með þvi að bera á þá
eitthvert feitt krem t.d. júgur-
smyrsl. Með þvi að láta það
liggja á í nokkurn tíma getur
fitan leyst upp límið smám
saman.
Það verður að leysa upp
miðann en ekki vöruna
Alla miða sem nema á burt
áður en varan er tekin í notkun
verður að vera unnt að fjar-
lægja án þess að skemma
vöruna. Ef það er ekki hægt er
um gallaða vöru að ræða og því
ástæða til að kvarta við fram-
leiðanda eða seljanda. En það
getur stundum verið erfitt fyrir
neytandann að átta sig á hvað
varan þolír og hvað hún þolir
ekki.
Gler, postulín og málmar þola
þau leysiefni sem hér er um að
ræða. Ef ef yfirborðið á slíkum
hlutum hefur sætt sérstakri
meðferð er ástæða til að gæta
varúðar. Sem dæmi má nefna
að á lakkaða málmhluti má ekki
nota aeetón þar sem aeetón
leysir upp lakk. Gúmmítæki og
áhöld þola ekki bensín eða
terpentínu.
Plastvörur eru þó erfiðastar
viðfangs þar sem þær geta
verið mjög viðkvæmar fyrir líf-
rænum leysiefnum. Ef menn
vita ekki úr hvers konar plasti
varan er gerð, verða þeir að
gera smá tilraun á henni ein-
hvers staðar þar sem lítið ber á.
Eftirfarandi yfirlit má hafa
til híiðsjónar:
Plastefni sem ekki þola acetón:
Acrylplast t.d. öskjur, snyrti-
tæki, burstar, gluggar,
rafbúnaður.
Polyeargonat t.d. leikföng,
handföng, gluggagler.
PVC (polyvinylchlorid) t.d.
töskur, skór, belti, flöskur.
Stífur PVC t.d. byggingavörur,
flöskur, bakkar.
Styrenplast t.d. dósir, leikföng,
hrærivélar og aðrar vélar í eld-
húsi, simtól, lítil ferðaútvörp.
Plastefni sem ekki þola bensfn:
Polyethylen t.d. fötur, balar,
matarkassar, leikföng, flöskur.
Polypropylen t.d. eldhúsáhöld,
stólsetur.
Styrenplast
Plastefni sem ekki þola
terpentínu
Polyethylen (nokkrar gerðir)
Polypropylen
PVC
St.vrenplast
Tekið skal fram að nokkrar
plastvörur þola Ieysiefnin í
mjög stuttan tíma en tærast ef
þau eru látin liggja á þeim í
lengri tíma.
Einnig skal á það bent að
acetón, bensín og terpentína
eru eldfimir vökvar og einnig
heilsuspillandi ef notað er
mikið magn af þeim. Það
verður þvíað viðra vel á meðan
unnið er með slíkum vökvum.
Að lokum skal einnig á það
bent úr því að talað er hér um
sjálflímandi miða að láta aldrei
slíka miða á rúskinn t.d. á
mokkajakka. Það verður oft lím
eftir í skinninu. Ekki er unnt
að fjarlægja það án þess að
eftir verði stór blettur.
— S.H.
• °; A f EF ÞAÐ ER FRÉTT-
/ NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
7 MORGUNBLAÐINU
á árinu
starfsmenn Árnastofnunar en
einnig eru þar birt nokkur gömul
rit og brot og er hið stærsta þeirra
áður óprentuð saga og rímur af
Calliniusi sýslumanni, sem Davið
Erlingsson hefur búið til prentun-
ar.
Fyrir nokkru kom loks út rit-
gerðasafn heigað Jakobi
Benediktssyni 20. júlí 1977. Þetta
er fyrri hluti og ber heitið Sjötíu
ritgerðir. Er seinna bindisins
vænzt snemma á næsta ári og
verður ritið alls á 9. hundrað
síðna. Af ritgerðunum i fyrra
bindinu eru 30 á íslenzku og 40 á
Norðurlandamálum, ensku og
þýzku.
Jónas Kristjánsson skýrði frá
því að fyrirhugað væri að gefa út
fimm bækur á næsta ári. Auk
seinna bindis afmælisrits Jakobs
Benediktssonar eru það fyrra
bindi Eddu með ýtarlegum inn-
gangi, safn Biblíutilvitnana í
fornislenzkum og norskum trúar-
bókmenntum í gerð I.J.Kirbys,
doktorsrit Álfrúnar Gunnlaug-
dóttur um Tristramsögu og loks
þriðja bindi ársritsins Griplu.
Roman Polanski fyrir utan geðveikrahælið í Chino í
Kaliforníu, en hann var dæmdur til að sæta þar 90
daga geðrannsókn, fyrir að hafa átt mök við þréttán
ára gamla telpu.
Dr. Bragi Jósepsson endurkosinn
formaður Islenzkrar réttarverndar
AÐALFUNDUR ‘ Islenzkrar
réttarverndar var haldinn að
Hótel Loftleiðum um síðustu
helgi. t skýrslu formanns, Braga
Jósepssonar, kom m.a. fram að
rúmlega 200 einstaklingar höfðu
leitað til félagsins um aðstoð á
árinu 1977, en tslenzk réttar-
vernd starfrækir lögfræðilega
upplýsinga- og þjónustuskrif-
stofu fvrir almenning.
Þorsteinn Sveinsson hefur um
nokkurt skeið verið lögfræðingur
félagsins, en lætur nú af störfum
og við tekur Björn Baldursson.
Miklar umræður urðu á fundin-
um um ýmis mál tengd réttar-
vernd og var m.a. samþykkt álykt-
un aðalfundarins. t henni kom
m.a. fram, að bent er á að hið
mikla misrétti sem viðgengst í
þjóðfélaginu, sé að miklu leyti því
um að kenna að mikill seinagang-
ur er í öllu dómskerfinu. „Félags-
leg og réttarfarsleg röskun á lífs-
háttum þeirra, sem árum saman
þurfa að bíða eftir afgreiðslu
mála sinna fyrir dómsstólum,
hlýtur að vera áhyggjuefni allra
þeirra, sem trúa á frjáls og heil-
brigt réttarfar á íslandi," segir að
lokum í ályktun aðalfundarins.
Dr. Bragi Jósepsson var endur-
kjörinn formaður félagsins, en
auk hans voru kosin í stjórn, Gísli
G. ísleifsson, Gunnlaugur
Stefánsson, Valborg Böðvarsdótt-
ir, Jörmundur Ingi, Guðný Bergs-
dóttir, Hjördís Þorsteinsdóttir,
Sigurður Þóroddsson og Jónína
Jónsdóttir.
— Hryðju-
verkakona
Framhald af bls. 1
setningarnúmerum bifreiða.
Hún var látin laus í marz 1975
ásamt fjórum öðrum vestur-
þýzkum hryðjuverkamönnum í
skiptum fyrir Peter Lorenz,
leiðtoga kristilegra demókrata í
Vestur-Berlín sem var rænt.
Níu mánuðum síðar tók hún
þátt í árásinni á aðalastöðvar
OPEC og myndir birtust í blöð-
um af konu sem veifaði skamm-
byssu og rak olxuráðherra út úr
byggingunni. Nokkrir ráðherr-
anna sögðu seinna að þessi
kona hefði verið frú Köcher-
Tidemann. Þeir sögðu að hún
hefði hlaupið um ganga í bygg-
ingunni og skotið út í loftið.
Maðurinn sem var handtek-
inn um leið og frú Köcher-
Tidemann heitir Christian
Möller og er grunaður um að
hafa tekið þátt í nokkrum
bankaránum. Vestur-þýzka lög-
eglan handtók hann í aprfl
vegna gruns um að hann hefði
rænt tvo banka í Kassel 30.
marz og 21. aprfl en sleppti
honum vegna ónógra sönnunar-
gagna.
Norbert, eiginmaður frú
Köcher-Tidemann, var hand-
tekinn í Stokkhólmi í apríl,
ákærður fyrir að hafa skipulagt
rán á sænskum ráðherra og var
framseldur Vestur-Þjóðverjum.
Rebmann ríkissaksóknari
sagði í dag að hann tæki alvar-
lega hótun hryðjuverkamanna
um að myrða sig um jólin á
sama hátt og fyrirrennara sinn,
Siegfried Buback. öryggis-
ráðstafanir i skrifstofu hans
hafa verið hertar.
Dierk Hoff, málmverkamað-
ur sem smíðaði sprengjur fyrir
Baader-Meinhof-samtökin, var i
dag dæmdur í fjögurra ára og
átta mánaða fangelsi í Frank-
furt. Hann játaði að hafa smfð-
að sprengur sem voru notaðar í
árás á bandarísk hernaðar-
mannvirki i Heidelberg og
Frankfurt 1972 þegar fjórir
biðu bana og 18 særöust.
— Samkomulag
um Sinai
Framhald af bls. 1
haldandi nærveru fsraelskra her-
manna.
Ferð Weizmans til Egyptalands
átti að vera ley.nileg en hann sagði
fréttamönnum að Egyptar hefðu
lekið fréttinni. Hann sagði að við-
ræðurnar hefðu fjallað um Sinai
en ekki vesturbakkann. Hann
vildi ekki segja frá viðræðunum í
einstökum atriðum en kvaðst hafa
fengið frábærar móttökur og
sagði: „Þetta var einstaklega
ánægjulegt fyrir mann sem hefur
barizt við Egypta í 30 ár“.
Weizman neitaði að svara þegar
hann var að því spurður hvort
hugsanlegt samkomulag um Siani
mundi stofna öryggi Israels i
hættu. Þegar hann var að því
spurður hvort hann væri bjart-
sýnni á friðarhorfur eftir ferðina
sagði Weizman að hann væri
„vonbetri".
Frá þvi var skýrt í Egyptalandi
í dag að Moshe Dayan utanríkis-
ráðherra og Weizman yrðu í fylgd
með Begin þegar hann kæmi á
sunnudaginn. Auk Sadats taka
þátt í viðræðunum af hálfu
Egypta Mandouh Salem forsætis-
ráðherra, Mohammed Abdel-
Ghani Gamassi hermálaráðherra
og Boutros Ghali settur utanríkis-
ráðherra.
Jafnframt lýsti Saudi-Arabía
yfir stuðningi við Egypta í dag í
fyrsta skipti siðan Sadat fór til
Jerúsalem en gætilega. Fahd Bin
Abdul Aziz rikisarfi sagði í blaða-
viðtali að Saudi-Arabar væru
bræður Egypta og Sadats og
mundu aldrei slíta sambandi við
þá.
Rússar semja
við Japani
um fiskveiðar
Moskvu, 21. dt»smeber. Reuter.
RUSSAR og Japanir hafa ákveðið
að framlengja i eitt ár bráða-
birgðasamning um fiskveiðar í
200 mílna lögsögu hvort um sig og
halda aflakvótum óbreyttum að
sögn Tass í dag.
Samkvæmt samningnum mega
Rússar veiða 650.000 lestir í Iög-
sögu Japana og Japanir 850.000
lestir í lögsögu Rússa á næsta ári
eins og í fyrra.
Viðræður fara jafnframt fram
um langtíma fiskveiðisamning
milli þjóðanna. Japanskar heim-
ildir herma að Rússar hafi viljað
minnka aflakvóta Japana í
sovézku lögsögunni.
— Olíuverð
óbreytt
Framhald af bls. 1
varð nánast óhjákvæmilegt að
engin breyting yrði á olíuverðinu.
Kuwait, Qatar og Arabíska fursta-
sambandið lýstu yfir stuðningi
við Saudi-Arabíu og íran.
Á fundinum vísuðu ráðherrarn-
ir á bug þeirri tillögu Carlos
Andres Perez Venezúelaforseta
að verðið yrði hækkað um 5—8%
og hækkunin notuð til að greiða
skuldir þróunarlanda. Olíuráð-
herra Líbýu lét í ljós óánægju
með fundinn þar sem hann taldi
að efnahagsmál hefðu ekki setið í
fyrirrúmi heldur stjórnmál.
Framkvæmdastjóri OPEC sagði
að ,,ákvörðunin“ um að halda
olíuverðinu óbreyttu jafngilti
fórn olíusöluríkja og sýndi þann
vilja þeirra að hjálpa iðnaðarrikj-
um að sigrast á efnahagserfiðleik-
um sínum. En hann tók fram að
OPEC vildi fá svör frá iðnríkjum
við tillögum um sameiginlegan
sjóð til að tryggja stöðugt verð á
hráefnum frá þriója heiminum.