Morgunblaðið - 22.12.1977, Side 29

Morgunblaðið - 22.12.1977, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977 29 Sjötugur: Þorlákur Jónsson r afvirk j ameis tari í dag, 23. desember, er sjötugur Þorlákur Jónsson, rafvirkjameist- ari hér i borg. A þessu ári eru jafnframt liðin 40 ár frá því að hann hóf starf sem meistari i iðn- grein sinni og enn gengur Þorlák- ur hress til fullra starfa á sinu sviði, eins og hann hefur gert með prýði öll þessi ár. Þorlákur hefur átt því láni að fagna að vera heilsuhraustur alla tíð og aldur- inn ber hann sérstaklega vel, eins og þeir vita sem til þekkja. Má Þorlákur vafalaust m.a. þakka þetta sinni léttu lund og reglu- semi í hvívetna, en bindindismað- ur á áfengi og tóbak hefur hann verið alla ævi. Og þess má geta að Þorlákur hefur um langt skeið verið einn dyggasti liðsmaður IOGT, og gegnt þar mörgum trúnaðarstörfum um dagana og gerir enn með sóma. Og sá, er þessar línur ritar, þekkir vel til hans mikla fórnfósa starfs i þágu þess málefnis. Þorlákur Jón, eins og hann heit- ir fullu nafni, er Vestfirðingur að ætt og uppruna, fæddur á Suður- eyri við Sigandafjörð á Þorláks- messu árið 1907. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Kristjánsdótt- ir, útvegsbónda á Suðureyri, og Jón Einarsson, skipstjóri og siðar íshússtjóri þar í bæ. Þorlákur ólst upp í systkinahópi: bræður eru þrír og systur tvær. Hann gerðist ungur sjómaður, eins og venja hefur verið um unga menn á þess- um slóðum. Var hann ýmist á bátum þar vestra eða hér syðra og réri m.a. á vertið frá Sandgerði og var á sildveiðum. Árið 1928 fluttist Þorlákur til Reykjavíkur og hefur átt heima hér siðan. Ári eftir að hann kom til borgarinnar, hóf hann nám í rafvirkjun hjá þeim landskunna manni Eiríki Hjartarsyni, raf- virkjameistara. Og meistari varð Þorlákur árið 1937 með lofsverð- um vitnisburði meistara sins. Varð Þorlákur síðar meistari fyrirtækisins Eirikur Hjartarson h.f. og hóf sjálfur að útskrifa raf- virkja. Munu þeir vera um hálfur annar tugur rafvirkja, sem hlotið Hafa sveinsbréf hjá Þorláki. Þor- lákur hlaut viðurkenningu hjá opinberum aðilum sem rafverk- taki á orkuveitusvæði Rafmagns- veitu Reykjavíkur árið 1944. Þá má geta þess að Þorlákur hefur átt sæti í prófnefnd rafvirkja og verið fulltrúi meistarafélagsins í ákvæðisvinnunefnd rafvirkja og er varamaður í stjórn landssam- bands rafverktaka. Árið 1933 kvæntist Þorlákur Kristjönu örnólfsdóttur frá — Minning Jóhannes Framhald af bls. 25. Það er þá líka sannast að segja, að ég hefði kosið að minnast Jóhannesar betur en hér er gert. Að leiðarlokum er margra góðra stunda að minnast og þakka og sakna, bæði við orgelið og utan þess. Lengi munum við og með mikilli ánægju minnast þess er þeir bræður Jóhannes ög sr. Sig- urður voru staddir hér á heimilinu, ásamt Gunnari bróður- syni sínum. Þá lék Jóhannes á orgelið en þeir frændurnir sungu af fjöri og list. Þetta var hin mesta ánægjustund. Og ég trúi því, að éins og Drottinn dæmdi þessu barni sinu mildan dauða, þá hafi þau vistaskipti, sem hann að vísu kveið og óttaðist, fært honum ylgeisla þeirrar sólar, er ljómaði yfir hans síðasta beði svo þeir vermi hann um eilífa tið. Guðjón Jósefsson, Ásbjarnarstöðum. Suðureyri, hinni mætustu konu. Kristjana lést árið 1969 og varð þeim Þorláki þriggja sona auðið og auk þess ólu þau upp dóttur, systurdóttur Kristjönu. — Þeim Kristjönu og Þorláki tókst á sín- um tima með dugnaði og reglu- semi að verða vel efnum búin þó einkenni nýríkra hafi aldrei sett svip sinn á þau. Þau byggðu húsið Grettisgötu 6, eitt stærsta hús við þá götu. Þorlákur hefur verið áhuga- samur um málefni brottfluttra Súgfirðinga og tengsl þeirra við æskustöðvarnar vestra. Hann var einn af stofnendum Súgfirðinga- félagsins og formaður þess um 5 ára skeið. Hann er nú heiðurs- félagi. Þá er Þorlákur gjaldkeri Vestfirðingafélagsins. Eins og fyrr var greint frá, hef- ur Þorlákur Jónsson lagt bind- indismálinu lið mað starfi innan vébanda góðtemplarareglunnar og unnið bæði fyrir sina stúku, Eininguna, þar sem hann er nú heiðursfélagi, og Þingstúku Reykjavikur, en þar er hann gjaldkeri. Jafnframt á Þorlákur sæti í húsráði Templarahallarinn- ar og hefur verið formaður Skemmtifélags góðtemplara um 10 ára skeið, en SGT stendur fyrir starfsemi í húsinu. Þá hefur Þor- lákur látið að sér kveða í upp- byggingarstarfinu í Galtalækjar- skógi á vegum sunnlenskra templ- ara undir forystu Umdæmisstúk- unnar. Á þessari upptalningu ætti að vera ljóst að ekkert er ofsagt hér að framan um hið mikla og fórnfúsa starf, sem Þorlákur hef- ur lagt af mörkum og gerir enn i þágu góðtemplarareglunnar og bindindismálsins. Að sið hugsandi og velgerðra manna, hefur Þorlákur heilbrigð og skemmtileg áhugamál í frí- stundum, en það eru ferðalög og veiðiskapur í ám og vötnum, að ógleymdum myndatökum. Oft höfum við félagar hans í stúkunni notið fróðlegra og skemmtilegra stunda, þegar hann hefur sýnt okkur litskyggnur frá ferðalögum sínum um landið okkar fagra. Og sem fyrr segir, hefur Þorlákur sótt sér hvíld og hressingu í lax- veiðar og silungadorg og býr lengi að þeim veiðiferðum. Að lokum vil ég fyrir hönd stúk- unnar Einingarinnar og ég persónulega færa Þorláki og fjöl- skyldu hans bestu árnaðaróskir í tilefni dagsins og þakkir fyrir samstarf og góð kynni. Einar Hannesson. Þorlákur Jónsson mun taka á móti gestum á heimili sínu að Grettisgötu 6 í dag. Gylfi Gröndal Gylfi Grímdal Þegar bam fæðist ICndurminningar I k l«u M Nielsdóttur liosmoður > p' \ Gísli J. Ástþórsson ÞEGAR BARN FÆÐIST endurminningar Helgu Níelsdóttur Ijósmóður. Helga þorir aó standa á eigin fótum i þjöðfélagi þar sem karlmenn ráóa ríkjum. Hún hefur meðal margs annars tekið á móti 3800 börnum um dagana. Helga segir hér hispurslaust frá því sem fyrir hana hefur borið. FIFA Skáldsagan Fífa er háðsk nútímasaga, ádeilusaga og ástar- saga. Hún segir frá Fífu ráðherradóttur, sem neitar að gerast þátttakandi í framakapphlaupi föður síns, og gerir yfirleitt allt andstætt því sem faðirinn hefði kosið. Sir Andrew Gilechrist Guðmundur Daníelsson OG HVERNIG Á AÐ TAPA ÞEIM Hvers konar starfsemi fer fram innan veggja erlendra sendiráða í Reykjavík og hvert er hlutverk sendiherr- anna? Lesió berorða lýsingu Sir Andrews Gilchrists fyrrum sendiherra Breta á íslandi á samskiptum hans við forystumenn þjóðarinnar á dögum þorskastríðsins mikla 1958—60. VEST AN GULPUR GARRÓ Aðdáendum vel skrifaðra sakamálasagna býðst nú mikill fengur. í skáldsögunni Vestangúlpur Garró skröltum við eftir gamla Keflavíkurveginum að næturþeli í forn- fálegum vörubíl. Á pallinum eru líkkistur. Um innihald þeirra vitum við ekkert. E.L. Doctorow u P* Jf Íwr Spennandi saga úr bandarisku þjóðlifi í byrjun þessarar aldar. Við kynnumst hetjum og úrhrökum, auðmönnum, sósíaliskum byltingarseggjum og kynþátta,hatri. Viður- kennd einhver merkasta skáldsaga síðustu ára. Þýðandi Jóhann S. Hannesson. Gréta Sigfúsdóttir SOL RISIVESTRI Norður er nú uppeftir, suður niðureftir, austur er til hægri og vestur er til vinstri — eða öfugt. Svo er jafnvel komið að sól rís í vestri. Þannig lýsir Gréta siðgæðisvit- und okkar. Hún sýnir okkur stéttamismun, vafasama viðskiptahætti, pólitískan loddaraleik og siðspillingu. ík Almenna bókafélagið Auslurstræti 18, Bolholti 6, slmi 19707 sfmi 32620

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.