Morgunblaðið - 22.12.1977, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 22.12.1977, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977 t Viggó Sigurðsson átti stórleik f byrjun. Hann ^ % ... var markhæstur f fslenzka liðinu með þrjú mörk. Ljósm. RAX. ÍSLENZKA handknattleikslandsliðinu tókst ekki að fylgja eftir góðum leik og jafntefli frá í fyrrakvöld er aftur var leið á móti Ungverjum í gærkvöldi. Ungverjarnir sigruðu örugglega í leiknum. skoruðu 18 mörk gegn 13 eftir að staðan hafði verið 10:6 í hálfleik. Það var sérstaklega tvennt sem bjátaði á hjá landsliðinu ■ þessum leik í fyrsta lagi hve Ungverjarnir skoruðu mörg mörk úr hraðaupphlaupum, en landanum virtist fyrirmunað að koma í veg fyrir þau. í öðru lagi var sóknarleikurinn mjög einhæfur og ráðleysislegur í gærkvöldi. Var Geirs Hallsteinssonar gætt sérlega vel í þessum leik og var enginn maður til að taka við hlutverki hans i liðinu. Það er ekki hægt að treysta á það í hverjum leik að Geir eigi leik á heimsmælikvarða það verða að vera aðrir til að taka við hlutverki hans. Fleira mætti nefna neikvætt I leik Islenzka liðsins i gærkvöldi. hinn há- vaxni Peter Kovacs fékk of mikið svigrúm og hefði verið full ástæða til að setja sérstakan mann honum til höfuðs — það hefði ekki sakað að reyna þaS. Þá voru skiptingar of örar I þessum leik. en það á sér e.t.v. eðlilegar skýringar. Ýmislegt jákvætt var vissulega i leik islenzka liðsins i gærkvöldi. Fyrst og fremst varnarleikurinn — að undanskildum hraðaupphlaupun- um og þvi hve Kovacs var laus. Þrátt fyrir þessi atriði var góð barátta i vörninni og í leiknum skoruðu Ung- verjarnir aðeins niu mörk eftir spil — hinn helmingur markanna kom úr hraðaupphlaupum. Þá var mark- varzla þeirra Gunnars Einarssonar og Kristjáns Sigmundssonar ágæt i leiknum. en það er ekki hægt að krefjast þess af nokkrum markverði. að hann verji betur eftir hraðaupp- hlaup en þeir gerðu i gær. Já það eru ekki alltaf jólin — hvorki i handknattleik né annars staðar. Eftir að handknattleiks- mennirnir höfðu haldið sin „litlu jól" i fyrri leiknum gegn Ungverjum bjóst maður hálft i hvoru við að liðið.fengi skell i leiknum i gærkvöldi — og sú varð raunin á. Enn þá er þó mánuður til stefnu fram að HM og á þeim tima er hægt — og verður að gera margt. Það býr mikið i islenzka landsliðinu og sá timi. sem enn er til stefnu. verður að nýtast eins og framast er hægt. Leikurinn í gærkvöldi byrjaði með þvi að Viggó Sigurðsson kom Ung- verjunum þrivegis i opna skjöldu og skoraði þrjú af fyrstu mörkum is- lenzka liðsins. Var landinn yfir 4:3 þegar 1 1 minútur voru af leik, en þá var þjálfari Ungverjanna búinn að sjá Viggó út og fékk hann ekki tækifæri eftir það til að keyra meðfram vörn- inni eins og i upphafi leiksins. Geirs var sérstaklega gætt og nú fór að halla uggvænlega undan fæti. Stað- an breyttist úr 4:3 i 4:8 — fimm ungversk mörk i röð. Staðan i hálf- leik var 10:6. í seinni hélfleiknum reyndi Geir meira en i þeim fyrri og gerði þá tvö mörk, Árni Indriðason gerði einnig 2 mörk, Jón Karlsson 2 úr vitum og Gunnar Einarsson eitt mark. Lauk seinni hálfleiknum með 8:7 sigri Ungverjanna og leiknum 18:13 eins og áður sagði. Úrslitin urðu þvi ekki eins slæm og útlit var fyrir um tima. Axel Axelsson hafði verið valinn til þessa leiks. en hann komst ekki til landsins i tæka tið og var Viggó Sigurðsson valinn i hans stað, en einnig var Þorbergi Aðalsteinssyni bætt i hópinn. Gunnar Einarsson. Göppingen. lék með landsliðinu að þessu sinni eftir nokkurt hlé með þvi. Fer tækni Gunnars ekki á milli mála og stórkostlegt var að sjá sam- vinnu hans og Geirs nokkrum sinn- um i leiknum Þrátt fyrir þetta kom ekki nógu mikið út úr Gunnari að þessu sinni. skot hans voru ekki nógu hnitmiðuð og Gunnar virtist ekki nógu vandvirkur i leik sinum. Beztu menn islenzka liðsins i þess- um leik ásamt markvörðunum voru þeir Geir Hallsteinsson og Viggó Sig- urðsson i byrjun leiksins. Þeir Árni Indriðason og Jón Karlsson komust vel frá sinu i vörninni og Árni var sá eini sem nýtti öll skot sin i leiknum — tvö skot i lokin gáfu tvö mörk. í heildina má segja að islenzka liðið hafi leikið undir getu að þessu sinni, þeir geta allir betur skrákarnir. Af Ungverjunum var Bartalos markvörður sá sterkasti og varði hann grimmt frá islenzku leikmönn- unum. Skutu þeir sýknt og heilagt i gólfið. en í leiknum í fyrrakvöld skor- aði Geir flest marka sinna með skot- um uppi. Einnig átti Mihaly Suvoltos góðan leik, stjórnaði sókninni og gætti Geirs i vörninni. Kovacs er góður fyrir sitt lið, þó hann sé hálf stirðbusalegur. og ævinlega marka- hæstur i ungverska liðinu. Ungverj- unum er spáð velgengni i HM i Oanmörku og það kæmi ekki á óvart þó þeir færu langt með að sigra i keppninni — en þrátt fyrir það á islenzka liðið að gcta unnið þessa kalla á góðum degi. Dómarar i leiknum voru frá V- Þýzkalandi og hafa ekki i langan tíma sést eins furðulegir dómar og i leiknum i gærkvöldi. T.d var ekkert vitakast dæmt fyrstu 58 minútur leiksins. en þá allt i einu fékk is- lenzka liðið þrjú vítaköst og tvö þeirra fyrir mun minni brot en sést höfðu hjá Ungverjunum allan leik- inn. Það er allt í lagi að leyfa mikið i handknattleik. JR samræmi verður að vera i hlutunum og halda verður leiknum innan vissra marka. í STUTTU MÁLI: ísland — Ungverjaland 13:18 (6:10) MÖRK ÍSLANDS: Viggó Sigurðs- son 3, Geir Hallsteinsson 2. Árni Indriðason 2. Jón Karlsson 2 (2v). Gunnar Einarsson 2, Einar Magnús- son 1, Björgvin Björgvinsson 1. MÖRK UNGVERJA: Kovacs 5. Kontra 3, Gubanyi 2, Koscis 2. Suvoltos 2. Szabo 2. Kenyeres 1, Janowsky 1. MISHEPPNAÐ VÍTAKAST: Barto^ los varði vitakast frá Jóni Karlssyni. BROTTVÍSANIR AF LEIKVELLI Gunnari Einarssyni og Kenyers var vikið af velli i 2 minútur hvorum. — ÁIJ ÚRVALS KASSETTUR ...tóngæöi fyrirþá semgera kröfur iT? .V Fást nú þcgar á yf ir 80 stödum um land allt ___ Dreífingarsímí: 36347 Sóknarleikur íslenzka liðsins of fálmkenndur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.