Morgunblaðið - 22.12.1977, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22, DESEMBER 1977
31
„Ef þið verðið ekki bún-
ir að fá ofhæmi fyrir hand-
knattieik um miðjan janúar
hef ur eitthvað brugðist7'
„VIÐ ERUM í miðju erfiðu æf-
ingaprógrammi og það fer ekki
hjá því að það komi fram f leikj-
unum," sagði Jón H. Karisson fyr-
irliði fslenzka landsliðsins eftir
leikinn í gærkvöldi.
„Æfinga áætlunin sem Janus
landsliðsþjálfari hefur lagt fyrir
okkur er svo ströng að hann sagði
áður en hann fór að ef við værum
ekki búnir að fá ofnæmi fyrir
handknattleik um miðjan janúar
hefði eitthvað brugðist,“ sagði
Jón ennfremur. „Það er keyrt á
fullu hvern einasta dag og svo
bætast leikirnir við og mannskap-
urinn er því ekki f sem beztu
formi. En um miðjan janúar verð-
ur farið að hægja ferðina og þeg-
ar heimsmeistarakeppnin byrjar
á að vera komið jafnvægi á þetta,“
sagði Jón.
Margir góðir einstaklingar
„Það er svo langt síðan ég lék
með landsliðinu siðast að ég get
ekki almennilega dæmt íslenzka
liðið en þó sýnist mér að í þvi séu
margir mjög góðir einstaklingar,"
sagði Gunnar Einarsson eftir leik-
inn. „Við, sem erum nýbyrjaðir í
þessu, eigum eftir að læra kerfin
og þess vegna er ekkert að marka
þennan leik í kvöld. Ég hef þá trú
að þetta eigi eftir að smella sam-
an. Um sjálfan mig má segja að ég
var ekki ánægður með sjálfan mig
í leiknum, ég féll í sömu gryfju og
aðrir í iiðinu að skjóta vitlaust á
markvörðinn. Dómararnir voru
samkvæmir sjálfum sér og mér
fannst þeir dæma vel,“ sagði
Gunnar.
Ekki alltaf jólin
„Það eru ekki alltaf jólin,“
sagði Geir Hallsteinsson. Við vor-
um einfaldlega orðnir þreyttir.
Þegar svo er fer hausinn fyrst úr
sambandi og þá er skotið í vit-
leysu, t.d. alltaf niðri á markvörð-
inn í þessum leik í stað þess að
skjóta uppi. Það hafði lika sitt að
segja að menn eru ekki almenni-
lega komnir inn í kerfin og þegar
þau ganga ekki upp er hætta á að
leiktöf verði dæmd og þá er
kannski skotið í tómri vitleysu."
Ánægður að vera
kominn í færin
„Það er alltaf erfitt að spila
blómaleiki," sagði Björgvin
Björgvinsson, sem lék sinn 100.
landsleik.
„Ég er að sumu leyti ánægður
með minn þátt og að sumu leyti
óánægður. Ég var ánægður með
það að komast í þessi góðu færi,
því það sýnir að ég er að komast í
góða æfingu en ég er óánægður
með að ég skyldi ekki nýta þau
betur. En það kemur ekki fyrir
aftur.“
Björgvin sagði að lokum að
hann væri mjög ánægður með að
komast i hinn fræga 100 lands-
leikja klúbb, en fyrir i honum eru
þeir Geir Hallsteinsson, Viðar
Símonarson og Ólafur H. Jónsson.
Breytingarnar
nauðsynlegar
„Ég var alltaf hræddur við það
að liðið þyldi ekki annan svona
leik,“ sagði Birgir Björnsson
landsliðseinvaldur.
„Það er alltaf hætta á ferðum
þegar gera þarf svona miklar
breytingar á liðum en það er
nauðsynlegt í því undirbúnings-
starfi, sem nú er unnið að. Það
sem brást fyrst og fremst var að
ekki var skotið upp á markmann-
inn eins og gera átti. En það er
ekki ástæða til að æðrast þrátt
fyrir þessi úrslit," sagði Birgir að
lokum.
— SS.
I fír V
r
Björgvin Björgvinsson lék sinn 100. landsleik og sýndi að hann er óðum að ná sér eim meiðslin.
„Lét hafa sérstak-
ar gætur á Geir"
„ÉG lét hafa sérstakar gætur á Geir Hallsteinssyni f seinni leiknum," sagði Mihály
Faludi, landsliðsþjálfari Ungverja, þegar Mbl. ræddi við hann að leik loknum f
gærvköldi.
Um leikinn sagði Faludi: „Ég
lagði sérstaka áherslu á það að
gæta helstu sóknarmanna fs-
lenzka liðsins og það tókst hæri-
lega. 1 heild fannst mér þetta þó
ekki sérstaklega góður leikur en
leikirnir tveir við Islendinga hafa
þó verið ákaflega mikilvægir fyr-
ir okkur og jafnframt mjög
ánægjulegir.
Faludi var beðinn að bera sam-
an fslenzka liðið og það danska en
hann kvaðst ekki vilja gera það,
sagði að blaðatnaðurinn hefði
vafalaust séð fleiri leiki hjá þess-
um tveimur þjóðum en hann.
Ilann vildi heldur ekki ræða fs-
ienzka liðið, galla þess og styrk-
leika.
Hins vegar kvaðst hann fyrir-
fram hafa þekkt til tveggja fs-
lenzku leikmannanna, Geir Hall-
steinssonar og Björgvins Björg-
vinssonar og sagðist hafa vitað að
þeir voru mjög góðir.
Ennfremur
kvað hann Viggó Sigurðsson hafa
vakið sérstaka athygli sfna f leikn-
um f gærkvöldi.
— SS.
Italir
unnu
Belga
BELGIA og Italfa léku vináttu-
lansleik f knattspyrnu f gær-
kvöldi og var leikið f Liege f
Belgfu. Leiknum lauk með
sigri Itala 1:0. Mark Itala skor-
aði Antonogni þegar mfnúta
var til leiksloka.
SKAGAMENN
HAFAENDUR-
RÁÐIÐ KIRBY
„VIÐ fengum staðfest-
ingarskeyti frá Kirby í
dag um að hann verði
þjálfari hjá okkur næsta
sumar,“ sagði Gunnar
Sigurðsson formaður
knattspyrnuráðs ÍA í
samtali við Mbl. í gær.
Akurnesingar lögðu drögin
að endurráðningu George Kir-
by áður en hann fór heim til
Englands í haust. Nýverið
sendu þeir honum tilboð, sem
hann staðfesti með skeytinu í
gær.
George Kirby hefur þajlfað
Akurnesinga þrjú sumur á und-
anförnum fjórum árum og náð
þeim frábæra árangri að gera
liðið að Islandsmeisturum öll
árin. Hlýtur það að vera öllum
Akurnesingum mikið ánægju-
efni að lið þeirra fái að njóta
starfskrafta þessa frábæra
þjálfara enn eitt sumarið.
— SS.
GISLI MAGG
TEKUR VIÐ
ÍSFIRÐINGUM
ÍSFIRÐINGAR hafa ráðið Gísla Magnússon úr Vestmanna
eyjum sem þjálfara 2. deildar liðs ÍBÍ í knattspyrnu fyrir
næsta keppnistímabil. Mun Gísli halda vestur um áramót
og þá halda fundi og stjórna nokkrum æfingum með liðinu
og ganga frá þjálfunaráætlun fyrir liðið fram að páskum. Þá
fer hann á ný vestur, æfir liðið í nokkra daga og útdbýr
„ þjálfunarprógramm" fram í maí, en þá lýkur hann
kennslustörfum í Eyjum og heldur til ísafjarðar.
Gísli er ísfirðingum að góðu stöðuleysi og eru knattspyrnumenn-
kunnur, hann kom liðinu á sinum
tima upp i 2 deild og hyggja ísfirð-
ingar gott til glóðarinnar með Gisla
við stjórnvöllinn i sumar Hefur Gisli
undanfarin ár verið við þjálfunar-
störf í Færeyjum á sumrin og gert
góða hluti ísfirðingar verða með
allan þann mannskap, sem skipaði
lið þeirra i sumar og e.t.v bætast
einhverjir við
Starf knattspyrnumanna á ísafirði
var mikið á siðastliðnu ári og upp-
skera þeirra góð á flestum sviðum,
þó þeir hafi verið óheppnir i
nokkrum leikjanna i 2. deildinni
Knattspyrnulega er lið ÍBÍ á uppleið.
um það er ekki spurning, og á
félagslega sviðinu var mikið starfað
á siðastliðnu starfsári Það sem helzt
háir iróttamönnum á ísafirði er að-
irnir t d orðnir langeygir eftir úr-
bætum á knattspyrnuvellinum en
hann er einn sá lélegasti. sem lið í
2 deild býður upp á
Það kostar mikið fé að reka knatt-
spyrnulið i 2 deild og þurftu leik-
menn ÍBÍ þvi að leggja mikið á sig til
fjáröflunar á siðasta ári Var gripið til
ýmissa ráða og af þeim hefðbundnu
má nefna bingó. dansleiki og blaða-
útgáfu En ísfirðingarnir létu ekki
þar við sitja Þeir seldu blóm fyrir
páskana og voru páskaliljurnar frá
þeim eindæma vinsælar Leikmenn
liðsms unnu við útskipun á freðfiski
og fleira mætti nefna Útkoman varð
sú að knattspyrnuráðinu tókst að4|
stytta skuldahalann um 800 þús-
und, úr 1 1 milljón i um 300 þús-
und krónur
— áij.
Sóknarnýtingin
var aöeins 29%
SÓKNARNVTINGIN var
miklu lélegri hjá fslenzka lió-
inu í gærkvöldi en f fyrri leikn-
um gegn Ungverjum. I gær-
kvöldi fékk fslenzka liðió 44
upphlaup og 13 þeirra enduóu
meö marki og er þaó 29% nýt-
ing, sem er slakt. 35 sinnum
enduðu sóknarloturnar með
skoti og er skotnýtingin 37% en
9 sinnum tapaói islenzka liðið
boltanum.
Þegar litiö er á skotnýtingu
einstakra leikmanna má sjá að
Árni Indriðason er með 100%
nýtingu, 2 skot og 2 mörk;
Viggó Sigurðsson er með næst
beztu nýtinguna, 5 skot að
marki ög skoraði 2 mörk og er
nýting hans þvi 50%; Geir Hall-
steinsson átti 5 skot að marki og
skoraði 2 mörk, nýtingin 40%;
Einar Magnússon skoraði 1
mark i 3 skotum eða 33% nýt-
ing; Björgvin Björgvinsson
skoraði sömuleiðis 1 mark í 3
skotum og er það 33% nýting;
Gunnar Einarsson átti 6 skot að
marki og skoraði 2 mörk og er
það 33% nýting; Jón Hjalmta-
lín skaut 4 skotun*en skoraði
ekki mark og Þorbergur Aðal-
steinsson, Þorbjörn Guðmunds-
son og Bjarni Guðmundsson
áttu 1 skot að ntarki hvor en
skoruðu ekk'i mark.
Sem fyrr segir tapaði is-
lenzka liðið boltanum 9 sinnum
þar af Geir og Gunnar oftast
eða tvisvar. Geir átti 2 línu-
sendingar sem gáfu mark og
Viggó eina. Geir, Þorbjötn og
Bjarni kræktu í eitt víti hver.
Kristján Sigmundsson stóð f
markinu í tæpar 40 mínútur og
varði 7 skot, 4 af linu óg 3
iangskot en fékk á sig 13 mörk.
Gunnar Einarsson var inná í 20
mínútur og varði 4 skot, 2 af
línu og 2 langskot en fékk á sig
5 mörk.
— SS.