Morgunblaðið - 22.12.1977, Side 32

Morgunblaðið - 22.12.1977, Side 32
Pels er jólagjöfin - Pelsinn vermir Pelsinn, Njálsgötu 14, simi 201 60. AUGLÝSDJGASÍMINN ER: 22480 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977 r Isbjörninn fær ad leigja Norglobal SJÁVARÚTVEGSRÁÐU- NEYTIÐ hefur nú veitt ís- birninum h.f. í Reykjavík leyfi til að taka norska bræðsluskipið Norglobal á leigu á komandi vetrar- loðnuvertíð. Breiðni Is- bjarnarins um að taka bræsðluskipið á leigu var tekin fyrir á síðasta ríkis- stjórnarfundi og í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi sagði Matthías Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra að leigubeiðni ís- bjarnarins hefði verið sam- þykkt. Stjórnir Sjómannasam- bands Islands, Landssam- bands ísl. útvegsmanna og Farmanna- og fiskimanna- sambands íslands höfðu þegar leigubeiðnin var tek- in fyrir á ríkisstjórnar- fundinum, lýst yfir stuðn- ingi sínum við að bræðslu- skipið yrði fengið hingað til lands í vetur. Það verður ugglaust mikill fengur fyrir loðnuflotann að Nor- giobal verði hér við land í vetur, því að vitað er að burðaraukning flotans nemur um 8000 lestum frá sl. loðnuvertíð, en aftur á móti hefur afkastageta loðnubræðsln- anna aðeins aukist lítillega frá síðustu vertíð. Norglobai hefur tvisvar áður verið á tslandsmiðum að vetri til og brætt loðnu. Var það veturna 1975 og 1976 og í bæði skiptin var skipið leigt Isbirninum h.f. og Hafsíld h.f. Fyrri veturinn tók Norglobal á móti 74.319 lestum, en þá var heildarloðnuveiðin 455.885 lestir. Seinni veturinn tók Norglobal á móti 60.253 lestum af 332.112 lesta veiði. Nú eru aðeins tveir dagar til jóla og í vikunni voru „litlu jólin“ haldin hátíðleg víða í skólum borgarinnar. Myndin hér að ofan var tekin á „litlu jólurn" nemenda Laugarnesskóla. Ljósm. Mbl.: RAX Scanhouse með 6 milljarða kr. byggingaframkvæmdir í Nígeríu ÍSLENZKA byggingar- ingarframkvæmdir fyrirtækið Sacnhouse Ltd. er nú að hefja miklar bygg- Þorskveiðibannið: Minni togarar og bátaflotinn í höfn Stóru togararnir að veiðum um jól Svo til allir skuttogarar af minni gerð liggja nú bundnir við bruggju sökum þorskveiði- bannsins sem tðk gildi á miðnætti 20. desember og stendur fram yf- ir áramðt og sömu sögu er að segja af bátaflotanum. Hins vegar eru allflestir stærri skuttogar- anna á veiðum, en þeir hættu flestir þorskveiðum f byrjun des- ember og sðttu þá f karfa og ufsa. Verða þvf flestir stðru togaranna á veiðum um jöl og áramðt. Vilhelm Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri (Jtgerðarfélags Akureyringa, sagði þegar Morg- unblaðið hafði samband við hann, að allir Akureyrartogararnir að undanskildum Sólbaki, sem væri af minni gerð, yrðu við veiðar um jól og væru farnir til veiða. Akur- eyrartogarar hefðu verið frá þorskveiðum i 12 daga i byrjun mánaðarins. Um aðra togara á Norðurlandi sagðist Vilhelm ekki vita gjörla, en sagði að togararnir á Dalvik og Ölafsfirði, sem allir væru að minni gerð hefðu hætt veiðum og yrðu í höfn fram yfir áramót. Jóhann K. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Sildarvinnslunnar i Neskaupstað, sagði að Austfjarð- artogarar hefðu allir komið til hafnar að morgni 20. des og færu ekki út á ný fyrr en eftir nýár. Framhald á bls. 19. Nígeríu, bæði fyrir stjórn- völd þar í landi og eins einkafyrirtæki t.d. stór olíufélög. Sacanhouse hef- ur nú gert bindandi samn- inga um húsbyggingar í Nígeríu sem hljóða upp á 6 milljarða fsl. króna og hef- ur fyrirtækið þegar aug- lýst eftir íslendingum til starfa í Nígeríu. Björn Emilsson, einn af eigend- um Scanhouse, sagði f viðtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að gerðir hefðu verið samningar við hermálaráðuneyti Nlgeríu um byggingu á 1200 smáfbúðum. Þá hefði Scanhouse tekið að sér að byggja stórt hús fyrir stærsta dag- blað Nígeríu, Daily Mail, og sfðan hefði fyrirtækið tekið að sér að byggja 170 einbýlishús meðal annars fyrir olfufélögin Gulf Oil, Shell og BP, en sem kunnugt 1 væri, færi fram mikil olfuvinnsla vantaði t.d. verkfræðingar, tækni- undan strönd Nfgerfu. Þá sagði Björn að Scanhouse hefði þegar auglýst eftir Is- lendingum til starfa í Nígeríu, en reiknað væri með að þær fram- kvæmdir, sem nú væri verið að byrja á, tækju l'h ár. Það væru helzt stjórnendur, sem fyrirtækið fræðingar og húsasmiðir. Kvað Björn Scanhouse nota sömu bygg- ingartækni og Breiðholt h.f. hefði notað við byggingarframkvæmdir í Breiðholtshverfi; tæknin væri flutt frá Islandi til Nígeríu. Sagði Björn að þeir Scanhouse-menn Framhald á bls. 19. Dalborg seldi 63 tonn af rækju fyrir 30 m. kr. RÆKJUTOGARINN Dalborg frá Dalvfk seldi 63 tonn af rækju og 7 tonn af fiski f Mallaig f Skotlandi f byrjun vikunnar fyrir 30 millj. kr., en alls tðk það Dalborgu um tvo mánuði að fá þennan afla. Jðhann Antonsson fram- kvæmdastjðri Söltunarfélags Dal- vfkur sagði f samtali við Morgun- blaðið í gær, að rækjan sem Dai- borg seldi væri soðin og ðpilluð, Góður mark- aður fyrir mjöl og lýsi LlTIÐ hefur verið selt af mjöli og lýsi að undanförnu, en alls er búið að selja yfir 20 þús. lestir af loðnumjöli fyrirfram af komandi vertíðarfram- leiðslu, og eitthvert magn hef- ur verið selt af lýsi. Morgunblaðið aflaði sér Framhald á bls. 19. U tflutnings ver ðmæti loðnuafurða í sumar og haust 6 milljarðar kr. og væru menn nokkuð ánægðir með verðið, sem fékkst í Skot- landi. Þá sagði Jðhann, að rækja úr Dalborgu hefði Ifkað mjög vel. Þegar Morgunblaðið ræddi við Jóhann sagði hann, að Dalborg hefði orðið fyrir miklum frátöfum við rækjuveiðarnar í haust vegna veðurs og ennfremur hefðu verið gerðar nokkrar breytingar á skip- inu. I upphafi hefði skipið verið að veiðum á Kolbeinseyjarsvæð- inu, en þar hefði ekki verið vært lengi vel vegna sífelldrar ótfðar og þvf hefði mikið verið veitt f kringum Grfmsey, þar sem rækj- an er mun smærri en við Kol- beinsey. Gert er ráð fyrir að Dalborg haldi til rækjuveiða strax eftir áramót. SUMAR- og haustloónuvertíð er nú lokið, en síðustu bátarnir, sem þessar veiðar stunduðu, hættu veiðum í fyrrakvöld. Alls bárust á land í sumar og haust 260 þús. lestir af loðnu og er áætlað út- flutningsverðmæti afurðanna tæpir 6 milljarðar króna. t fyrra nam útflutningsverðmæti loðnu- afurða frá sumar- og haustverífð 2700 m. kr. Milli 30 og 40 skip stunduðu loðnuveiðar í sumar og haust þegar mest var og fékkst svo til allur aflinn undan vestan- verðu Norðurlandi eða á svipuð- um slóðum og í fyrra, en þá öfluð- ust 110 þús. lestir af loðnu, þann- ig að aflinn nú er 150 þúsund lestum meiri. Eins og fyrr segir er talið að útflutningsverðmæti loðnuafurð- anna sé nú tæpir 6 milljarðar kr. Ef gert er ráð fyrir að mjölnýting- in í sumar og haust hafi verið um 15%, þá hafa fengist 39 þús. lestir af loðnumjöli út úr aflanum í sumar og haust, og ef gert er ráð fyrir að lýsisnýtingin hafi verið 13%, hafa fengist um 34. þús. lestir af lýsi úr þessum 26o þús. lesta heildarafla. Morgunblaðinu var tjáð í gær, að hvert tonn af mjöli hefði selzt á um 86 þús. kr. í sumar og er því útflutningsverð- mæti mjölsins 3400 milljónir króna, og lýsistonnið hefur að meðaltali selzt á um 73 þús. krón- ur og er því útflutningsverðmæti lýsis um 2500 millj. kr. Samtals er því útflutningsverðmæti loðnuaf- urða á þessari sumar- og haust- loðnuvertíð um 5800 millj. kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.