Morgunblaðið - 25.01.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR 1978
23
Sigríður Maríusdóttir
Thorstensen - Minning
Fædd 21. júní 1919.
Dáin 16. janúar 1978.
Horfin er úr jarðlífi hér elsku-
leg vinkona mín, Sigríður Maríus-
dóttir Thorstensen. Hún var fædd
i Reykjavík 21. júni 1919, dóttir
þeirra heiðurshjóna Karólínu
Andrésdóttur Danielsen og
Maríusar Ölafssonar skálds og
Tyrrverandi umboðssala hér í
borg. Einnig starfaði hann lengi
hjá gjaldheimtunni i Reykjavik.
Eru þau til Reykjavíkur aðfiutt
Afmælis-
og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast f síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera f sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
Ifnubili.
frá Eyrarbakka. Sigga var næst-
elst sex systkina. Einn bróðir
hennar lézt fyrir fimmtán árum,
Karl Andrés. læknir. Þau sem eft-
ir lifa eru: Sólveig, Ólafur, Guðný
(Stella) og Baldur.
Eg kynntist Siggu þegar við
vorum aðeins 9 og 10 ára gamlar,
hófst þá vinátta með okkur, sem
aldrei hefur borið skugga á. Fjöl-
skyldur okkar bjuggu i sama húsi
i þrettán ár. Heimili hennar var
fyrirmyndarheimili, samhentir
foreldrar ólu börn sin upp í góð-
um siðum i hvivetna. Sigga var
frið stúlka og vel gefin, ég man
t.d. hve háar einkunnir hún fékk,
bæði i barnaskóla og gagnfræða-
skóla. I starfi var hún jafnan vin-
sæl. Hún vann í mörg ár hjá
Sjúkrasamlagi Reykjavikur og
eignaðist þar marga góða kunn-
ingja. Eðliskostir hennar komu
ætið betur í Ijós. Aldrei vissi ég til
að hún hallmælti nokkurri mann-
eskju. Ef á einhvern var hallað.
þá var hún tilbúin að túlka allt á
betri veg. Hún vildi öllum vei, og
aldrei vissi ég til að i henni byggi
angi af því sem nefnist öfund.
Æðrulaus tók hún mótlæti, ef svo
bar undir. Hennar meðfædda
skynsemi sagði henni til um allt
þetta jákvæða i lífinu. Hún giftist
ágætismanni, Ekhardt Thorsten-
sen, og hefur hjónaband þeirra
verið með slíkum ágætum, að vart
verður á betra kosið. Voru þau
mjög samhent alla tíð og gott var
að koma á þeirra hlýlega heimili.
Börn þeirra eru þrjú: Sverrir,
kennari, kvæntur Þóreyju Ketils-
dóttur, Karl loftskeytamaður.
t
Eiginkona min og móðir okkar,
BÁRA ÓLAFSDÓTTIR,
Vesturbergi 8.
andaðist á Lands'pitalanum sunnudaginn 22 janúar
Sigurður Jóhannsson,
Anna Á. Sigurðardóttir,
Ólafur J. Sigurðsson.
t
Bróðir okkar
JÓN G. AÐALBJARNARSON
Urðarstíg 11 A,
Reykjavík,
sem andaðist i Borgarspítalanum mánudaginn 23 janúar verður
jarðsungmn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 27 janúar kl 2 e h
Systkinin.
t
GUNNAR WAAGE,
skipstjóri,
Álftamýri 48,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn 26 janúar kl
1 30
JU JónKr Waage,
Bergljót Haraldsdóttir,
JónWaage, Edda Garðarsdóttir,
Erla Waage, Kristinn A. Gústafsson,
AuðurWaage, Kjartan Lárusson,
BaldurWaage, Drífa Garðarsdóttir,
FreyrWaage, Ásdís Guðjónsdóttir,
og barnabörn
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
VALDÍS EINARSDÓTTIR,
verður jarðsungm frá Fossvogskirkju föstudaginn 2 7 janúar klukkan 3
Hrefna Beckmann,
Einar Beckmann,
Jón Þór Þórhallsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vmarhug við andlát og útför,
HELGE MALLING ANDREASEN,
Sunnuveg 14,
Selfossi
Aðalheiður Andreasen,
Ásta Andreasen, Grétar Arnþórsson,
Guðni Andreasen, Björg Óskarsdóttir,
Anna Hildiþórsdóttir, Sigurjón Sigurðsson,
Fjóla Hildiþórsdóttir, Sigurður Sighvatsson.
og barnabörn.
Minning:
Carl Otto Schiöth
kvæntur Ragnheiði Þorgeirsdótt-
ur og Sigríður, húsmóðir, gift
Helga D. Hjörvar. Barnabörnin
eru orðin átta.
A seinni árum hefur Sigga
starfað hjá dagblaðinu Vísi, en
varð að hætta fyrir fáum mánuð-
um vegna veikinda.
Margs er að minnast á nær
hálfrar aldar samfylgd, ég minn-
ist gömlu daganna. þegar við
saumuðum saman á dúkkurnar
okkar, æfðum leikfimi og dans,
einnig eru ógleymanlegir hjól-
reiðatúrarnir, - skautaferðirnar,
skóladansæfingarnar o.m.fl. Við
söknum hennar i saumaklúbbn-
um, sém við höfum haft frá ferm-
ingaraldri og þökkum henni alla
tryggðina og ánægjustundirnar,
sem við áttum saman. Við biðjum
góðan Guð að varðveita hana og
vonum og trúum því að fundum
okkar beri saman aftur. Ég votta
eftirlifandi eiginmanni, börnum,
barnabörnum, foreldrum og
systkinum mína dýpstu samúð.
Guðrún Ofeigsd. Hjaltested.
Carl Otto Schiöth lézt i Landa-
kotsspitala miðvikudaginn 18.
janúar. Hann fæddist á Eskifirði
9. júní árið 1900. Foreldrar hans
Carl F. Schiöth og Helga kona
hans, sem var dóttir hins þjóð-
kunna Friðbjörns Steinssonar
bóksala á Akureyri, fluttust með
börn sin til Akureyrar árið 1903.
Mér er frú Helga minnisstæð
fyrir það hve stórglæsileg og fög-
ur hún var. Hún hafði lengi verið
heilsutæp og þegar hún lézt, var
Otto aðeins 11 ára.
Hulda. sem liktist móður sinni.
ólst upp hjá Friðjóni Jenssyni
tannlækni.
Faðir þeirra Carl giftist siðar
Jónínu Valdemarsdóttur, hinni
ágætustu myndarkonu, sem dvel-
ur nú á Hrafnistu. 94 ára. Carl
andaðist í júni 1928.
Árið 1929 giftist Otto Svövu
Þórarinsdóttur frá Seyðisfirði.
Karl einkabarn þeirra. fæddist á
Akureyri. Hann starfar nú hjá
Flugleiðum.
Öll þau ár, sem við Otto vorum
samtíða á Akureyri, hélst með
okkur æskuvinátta. sem aldrei
bar skugga á. Otto var svo einstak-
lega sannur maður. Hann hafði til
að bera alla þá beztu eðliskosti,
sem einn mann mega prýða. Hann
var líka svo lánsamur að eignast
frábærlega góða og elskulega
konu, sem var hans ómetanlegi
förunautur gegnum lifið.
Þau hjónin og Karl sonur þeirra
settust að i Reykjavik árið 1953. A
seinni hluta ævinnar var Otto
fulltrúi hjá Eliasi Kristjánssyni
birgðastjóra Landssimans i tæp
25 ár og gegndi því starfi með
þeirri prýði, sem honum var eig-
inlegt.
+
Bróðir minn,
ÞÓRARINN INGVARSSON,
frá ísafirði,
lézt i Landspítalanum, að kvöldi 23 janúar Jarðarförin auglýst síðar
Fyrir hönd okkar. systkinanna og annarra vandamanna,
Inga Ingvarsdóttir
+
Astkær eiginkona min, móðir. tengdamóðir og amma,
ÁSTA JÓNSDÓTTIR,
Leirubakka 4,
andaðist að kvöldi 22. janúar
Jakob Jóhannesson,
Hjördís Jakobsdóttir, Holger Hansen,
Jetta Jakobsdóttir, Elias Árnason,
Lilja Jakobsdóttir, Steinn Ólafsson,
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn. faðir okkar og tengdafaðir,
STEFÁN R PÁLSSON,
frá Kirkjubóli Korpudal,
Gautlandi 21, Reykjavik,
sem lézt 17 þm verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn
27 janúar kl 13 30
Guðrún Össurardóttir,
Skúlina Stefánsdóttir, Svavar Guðjónsson,
Kjartan Stefánsson, Guðrún Jóhannesdóttir,
Höskuldur Stefánsson, Sigurbjörg Björnsdóttir,
Páll Stefánsson, Hallgerður Jónsdóttir.
Össur Stefánsson, Ásdis Samúelsdóttir.
+
Þökkum innilega samúð við andlát og jarðarför sonar míns. bróður
okkar og mágs.
SIGURÐAR KOLBEINSSONAR.
Ingileif Gisladóttir,
Viktoria Kolbeinsdóttir, Jóhannes Markússon.
Kolbeinn Ingi Kolbeinsson. Sigrún Pálmadóttir
Skrifstofur vorar
verða lokaðar
frá kl. 14 miðvikudaginn 25. janúar vegna
jarðarfarar.
Búnaðarfélag íslands
Við hjónin sendum frú Svövu
vinkonu okkar, Karli og fjöl-
skyldu, okkar hlýjustu samúðar-
kveðjur.
V'ið vitum að þau hafa misst
mikið og vitum lika að dýrmætar
minningar mega sín mikils og að
látinn lifir.
Blessuð sé minning hans.
Theodór Lilliendahl.
Þegar ég kveð Otto Schiöth
hinstu kveðju. er mér efst i huga
þakklæti fyrir trausta vináttu, er
við hjónin og börn okkar nutum
frá hans hendi. Konan mín naut
fágætrar hlýju og vináttu þeirra
hjóna. hans og systur sinnar
Svövu, meðan hún bjó hjá þeim á
fyrstu búskapar-árum þeirra á
Akureyri. Sömu umönnunar naut
einnig Betzy dóttir okkar er hún
var hjá þeim sumartíma, þegar
hún var barn.
Þau 25 ár. sem Otto vann hjá
birgðavörslu Pósts og sima, höfð-
um við næstum dagleg samskipti.
I starfi var hann hinn trausti og
harðduglegi starfsmaður. sem
aldrei brást með skjót og örugg
vinnuafköst. Stundvisi hans var
óbfigðul. Með honum var gott að
vinna.
Otto var á timabili starfsmaður
Stefáns Th. Jónssohar kaup-
manns á Seyðisfirði. Að skilnaði
lét Stefán fylgjaOtto m.a. eftirtal-
in ummæli — — „Hann er
reglumaður, harðduglegur að
hverju sem hann gengur. kurteis
og prúður i allri umgengni. trúr
og húsbóndahollur. Ég get þvi
gefið honum min beztu meðmæli
til þeirra, sem þurfa á duglegum
og ábyggilegum verzlunarmanni
að halda."
Nú að leiðarlokum held ég að
samferðamenn Ottos geti heils-
hugar tekið undir ofanskráða til-
vitnun.
V'ið hjónin vottuin Svövu ntág-
konu minni. Karli. Unni og börn-
um þeirra hjóna innilegustu sam-
úð.
Blessuð sé minning Ottos
Schiöths.
Elias Kristjánsson.
Að undanförnu höfum við hjá
Pósti og sima orðið að sjá á bak
góðum samstarfsmönnum og vin-
um. Traustum mönnum og vinnu-
sömum, ágætum starfsmönnum
og félögum.
Einn þessara manna er Ottó
Schiöt. Hann hóf störf hjá Pósti
og sima árið 1953 og vann lengst á
skrifstofu birgðastjóra og sá um
birgðabókahaldið ásamt ýnisu
fleiru, þar til hann lét af föstu
starfi vegna aldurs. Eftir það
vann hann hluta úr starfi og skil-
aði sinu dagsverki daginn áður en
hann lézt. öttó var mjög góður
starfsmaður. Hann var vinnusam-
ur, nákvæmur og snyrtilegur í
verkum sinum og óh;ett var að
treysta því að hlutirnir væru rétt-
ir. Enda var hann jafnan béðinn
fyrir þau verk þar sem síst mátti
gera skekkjur og nákvæmni
þurfti að beita. Hann var góður
samstarfsmaður og umburðar-
lyndur og hjálpsamur þeim, sem á
leiðbeiningum þurftu að halda.
Hann var hreinskilinn og heil-
steyptur maður, sem öllum þótti
vænt um og kveður samstarfsfölk-
ið hann með þakkir i huga og
sendir fjölskyldu hans samúðar-
kveðjur.
Páll V. Danielsson