Morgunblaðið - 01.02.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978
15
VEÐUR
víða um heim
Stig.
Amsterdam 4 skýjað
Aþena 13 bjart
Berlfn 4 skýjað
Brússel 5 bjart
Chicago +10 skýjað
Frankfurt 4 rigning
Genf 4 sólskin
Helsinki +3 bjart
Jöh.borg. 24 sólskin
Kaupm.h. 2 rigning
Lissabon 15 bjart
London 6 skýjað
Los
Angeles 17 skýjað
Madrfd 11 bjart
Málaga 16 skýjað
Miami 17 skýjað
Moskva +4 snjókoma
NewYork+1 skýjað
Palma 12 bjart
Parfs 7 skýjað
Róm 8 bjart
Stokkh. 5 skýjað
Tel Aviv 20 mistur
Tókýó 9 bjart
Vancouver skýjað
Vfn 7 skýjað
Hætta á að
inflúenzan
breiðist út
Róm 30. jan. Reuter.
ITALSKUR sérfræðingur í
læknavísindum sagði í dag, að ef
ekki yrði gripið til neinna aðgerða
myndi rússneska inflúenzan
breiðast mjög hratt út. Hann
sagði að það væri mjög brýnt fyrir
sérfræðinga um allan heim aó
finna bóluefni gegn inflúenzunni.
Inflúenzan hefur nú þegar
breiðzt víða um Iönd. Hún leggst
harðast á börn og unglinga og
aðaleinkenni hennar eru uppköst.
Kosið beint
í Norður-
landaráð?
Kaupmannahöfn, 30. jan.
Reuter.
FLOKKUR danskra vinstri-
sósíalista bar i dag fram þá
tillögu, að teknar væru upp
beinar kosningar til Norður-
landaráðsins. Kemur tillagan i
kjölfar samþykktar danska
þingsins um að mæla með
beinum kosningum til þings
Efnahagsbandalagslandanna.
SYDNEY— Þegar flugvélin, sem hér sést kom inn til lendingar kom i
ljós að nefhjól hennar var bilað. Starfsmenn flugvallarins brugðu þá
skjótt við og snöruðu nefhjólið með reipi sem strengt var á milli
tveggja bifreiða og létu sig litlu máli skipta þó vélin væri á 130
kilómetra hraða.
Þetta gerðist
ÞETTA GERÐIST 31. f uós- Þegar herforingjar gera
JANÚAR.
1972 — Sprengja springur í
brezka sendiráðinu í Dyflinni,
er mikil mótmælaalda gegn
stefnu Breta gengur yfir.
1958 — Stjórnir Egyptalands
og Súdans tilkynna, að löndin
hafi sameinazt í eitt land, Sam-
einaða arabíska lýðveldið.
1946 — Norski jafnaðarmaður-
inn Trygve Lie er kosinn fram-
kvæmdstjóri Sameinuðu þjóð-
anna. Lýst er yfir stofnun lýð-
veldis f Ungverjalandi.
1942 — Brezki herinn f Malasíu
hör(ar til Singapore. Vidkun
Quisling 'verður forsætisráð-
herra Noregs.
1924 -— Bretland viðurkennir
kommúnistastjórn Sovétríkj-
anna.
1922 — Ráðstefna í Washington
samþykkir að takmarka eigi
notkun kafbáta og eiturgass í
hernaði.
1908 — Carlos fyrsti, konungur
Portúgals, og krónprins lands-
ins eru myrtir í Lissabon og
Manuel annar verðurkonungur.
1896 — Krítverjar hefja upp-
reisn gegn Tyrkjum, með
stuðningi Grikkja.
1881 — Fyrstu merki þjóðernis-
hreyfingar í Egyptalandi koma
uppretsn.
1793 — Frakkland lýsir stríði á
hendur Bretlandi og Hollandi.
1733 — Agústus annar konung-
ur Póllands og Saxlands andast.
1727 — Stríð brýzt út á milli
Englands og Spánar, eftir að
þeir siðarnefndu hefja umsátur
um Gibraltar.
1702 — Eugene prins af Savoy
gerir árás á Cremona á ítalíu.
1587 — Elízabet fyrsta, Eng-
landsdrottning, skrifar undir
aftökuskipan þess efnis að
María Skotadrottning skuli tek-
in af lffi.
1 dag eiga afmæli: Sir Edward
Coke, brezkur stjórnmálamað-
ur (1552 — 1634), John Philip
Lemble, enskur leikari (1757
— 1823), Clara Butt, ensk söng-
kona (1873 — 1936), Feador
Chaliapin, rússneskur söngvari
(1873 — 1938), Hugo von
Hofmannsthal, austurrískt
skáld (1884 — 1929) og Vietor
Herbert, bandarískt tónskáld
(1859— 1929).
Hugleiðing dagsins. — „Aður
en við kaupum eitthvað, ættum
Við að spyrja sjálf okkur hvort
við kæmust ekki af án þess.“
John Lubbock, enskur stjörnu-
fræðingur og stærðfræðingur
(1803— 1865).
Lokað var
á Sovétmenn í
Pnomh Penh
Er deilan
fulltrúastríð
stórvelda?
Kínverjar
vilja halda
friðinn
Kambódía hunzaði
blíðu Sovétmanna
Moskva, 31 jan AP.
MARGT virðist nú benda til þess að óðum
dragi að algerum vinslitum Kambódíu og
Sovétmanna, en aðeins á þriðja ár er liðið
síðan Kremlverjar fögnuðu valdatöku komm-
únista í Kambódiu. Landamærastríð
Kambódiumanna og Vietnama hefur að sjálf-
sögðu allmjög hraðað þessari þróun mála. Þó
hefur mátt skilja á sovéskum ráðamönnum
siðan snemma i desember að snurður væru
farnar að hlaupa á þráðinn i samskiptum
þjóðanna. Er ýmsum öðrum ástæðum borið
við en árásum Kambódiumanna við landa
mærin enda þótt Vietnamar séu nu nákomn-
ir bandamenn Sovétmanna.
Skýrt hefur verið frá því að Kambódiumenn
hafi síðan 1975 virt að vettugi boð Sovét-
menna um efnahagsaðstoð og bent þei,m á að
þeir hafi á fyrri timum stutt Kambódiustjórn
Lon Nols, sem var hlynnt Vesturveldunum.
Einnig hafa kommúnistar í Kambódíu neitað
Sovétmönnum um að opna sendiráð í Phnom
Penh og sjálfir kallað sen^imenn sína aftur frá
Moskvu. í Sovétríkjunum héldu menn hins
vegar lengi í vonina um að Kambódiumenn
skiptu um skoðun. Til dæmis um það má nefna
að i októbermánuði siðastliðnum sendu Sovét-
menn hlýlegt heillaóskaskeyti til kambódíska
kommúnistaflokksins, þegar formlega var
gengið frá stofnun hans. Um svipað leyti mátti
lesa grein í sovéska timaritinu ..Nýir timar" þar
sem farið var viðurkenningarorðum um efna-
hgslegan árangur Kambódiumanna.
Þegar stríð Kámbódiu og Vietnam brauzt út
fór hins vegar að kveða við annan tón. Sovézk
blöð og timarit hófu að taka frásagnir upp úr
erlendum tímaritum þar sem grein var frá
árásum Kambódíumanna og þeir sakaðir um að
njóta aðstoðar erkióvina Kremlverja, Kínverja.
Frásagnir þessar hafa siðan færzt i vöxt og
athugasemdir þær, er þeim fylgja, orðið æ
beinskeyttari og hlynntari Víetnömum Sovét-
menn hafa að vísu neitað að fallast á þá
athugasemd Brzezinskis, aðalráðgjafa Carters i
öryggismálum, að deilan væri „fulltrúaviður-
eign" Kínverja og Sovétmanna, en hafa þó
hampað erlendum fréttaskrifum þess efnis að
Kambódiumenn berjist með kínverskum vopn-
um. Telja mörg erlend vitni að átökunum að
Sovétmenn haldi nú mjög fram hlut stjórnar-
leiðtoga í N-Vietnam i SA-Asíu og styðji auk
þess dyggilega við bakið á Vietnömum
hernaðarlega og bandamönnum þeirra í Laos.
Sendimenn erlendra rikja telja sig og hafa tekið
eftir að viðhorf Sovétmenna er mjög samsinna
stefnu Hanoístjórnarinnar varðandi málefni
fimm ríkja SA-Asiu-bandalagsins.
A opinberum vettvangi hafa Kínverjar á hinn
bóginn gætt þess að gera hvorugum aðilanum
hærra undir höfði og að jafnvægi sé i frétta-
skrifum Er það álit margra að Kambódíumenn
eigi sér hauk i horni þar sem Kínverjar eru, en
að hinir síðarnefndu vilji ekki kunngera stuðn-
ing sinn af ótta við að Vietnamar þrýsti sér enn
lengra undir verndarvæng Sovétmanna. Þess
ber þó líka að geta að margir vestrænir frétta-
skýrendur draga i efa að Sovétmenn hafi sent
hernaðarsérfræðinga til Víetnams að undan-
förnu Benda þeir á að Víetnamar tefldu aldrei
fram útlendum sérfræðingum við viglinuna
þótt þeir stæðu andspænis herjum Bandaríkja-
manna og S-Víetnama áður fyrr
Eru Víetnamar og Kambódíumenn ekki
annað og meira en leikbrúður risanna?
48,13,1415,
30,32,40,
85,80, wött
flúrpípun í nnörgunn stœrðum
og itunn.
PHILIPS
heimilistæki sf
Sætún 8 sími 24000