Morgunblaðið - 01.02.1978, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978
25
félk í
fréttum
Islenzk
œska
fullaf
athafna-
semi
Norska blaðið Aftenposten
birti nýlega heilsiðugrein á for-
síðu laugardagsblaðs sfns undir
fyrirsögninni: „Islands Ung-
dom bobler af virketrang." í
undirfyrirsögn segir: Vinna og
græða peninga frá því þau
standa ekki út úr hnefa. Grein-
ina og myndir, sem henni
fylgja, unnu tveir af blaða-
mönnum Aftenpostsins, Alf G.
Andersen og Brynjulv Aartum,
sem hér voru á ferð og eyddu
nokkrum dögum í að kynna sér
fslenzka æsku með viðtölum við
unglinga og framkvæmdastjóra
Æskulýðsráðs Reykjavíkur,
Hinrik Bjarnason. Og með því
að fara um og sjá æskufólk í
leik og störfum.
I þessari grein kveður við
nokkuð annan tón en oft hefur
verið þegar norræn blöð skrifa
um íslenzka æsku. í greinarlok
segir m.a.: íslendingar reyna að
halda sinni eigin menningu,
enda er þar viðkvæmt þjóðfé-
lag, þegar um utanaðkomandi
áhrif er að ræða. En íbúunum
er þetta alveg ljóst og eru and-
snúnir allri amerikaniseringu, í
hvaða formi sem er. Áður höfðu
margir áhyggjur af bandarísku
varnarstöðinni í Keflavik.
Mundi íslenzkt þjóðfélag og þá
einkum æskufólkið geta staðið
á móti þrýstingi frá mörg þús-
und Bandaríkjamönnum, sem
þar byggju? Keflavíkurflug-
völlur er minna vandamál en
menn óttuðust. Unga fólkið læt-
ur ekki svo auðveldlega hafa
áhrif á sig. Astandið f dag er
þannig, að varnarliðið er á
margan hátt einangrað. Æsku-
fólkið hefur engan sérstakan
umgang við bandaríska liðið.
Islenzk tunga er heldur ekki
mörkuð af tilvist Bandaríkja-
manna þarna. Svo sem hingað
til er íslenzka svo gott sem
hrein af amerískum orðum:
„Keflavík hefur átt sfn eitur-
lyfjavandamál að striða — en
þau hafa í hverfandi mæli
breiðzt út til annarra hluta Is-
lands. Island er í dag það Vest-
urevrópuriki, sem á við minnst-
an eiturlyfjavanda að strfða.
Yfirvöld eru líka sérlega árvök-
ul og taka þau fáu dæmi, sem
komið hafa upp, mjög alvar-
lega. Svo bjart er ekki ástand-
dið, þegar um áfengi er að
ræða. Áfengi er erfitt vanda-
mál, þó ástandið virðist ekki
hafa versnað mjög á allra síð-
ustu árum.
Islenzk æska er ekki áhuga-
söm um stjórnmál og öfgahópar
eiga í erfiðleikum með að ná
þar fótfestu. Ríkjandi stjórn-
málastefnur í háskólanum eru
yfirgnæfandi nærri miðju. Ut-
jaðrahópar eru til, en þeir eru
svo veikir að þeir geta ekki haft
áhrif á stúdentasamfélagið.
Islenzk æska greinir sig sem-
sagt á margan hátt frá æsku-
fólki f Danmörku, Svíþjóð og
Noregi. Og mestur hluti þess
mismunar er íslendingum í
hag. En snemmborið sjálfstæði
æskunnar hefur ekki bara góð-
ar hliðar. Börn hafa snemma
peninga milli handanna, og
fullorðna fólkið hefur oft
áhyggjur af þvf að æskufólkið
sé ekki nægilega þroskað til að
hafa svo mikið fé til ráðstöfun-
ar. Þetta leiðir til áberandi
áhuga á efnalegum verðmæt-
um. Efnaleg auðæfi hafa mikið
að segja fyrir íslenzka æsku. Og
til að ná slfkum markmiðum
þarf að leggja mikið á sig. Því
efnahagslegt ástand er allt ann-
að en gott með sfhækkandi
verðlagi og upp í 30% verð-
bólgu.
En það er ekki erfitt að vera
sammála einni af norsku kon-
unum, sem búið hefur á Islandi
í mörg ár, Ellen Sigmond jarð-
fræðingi, sem fyrir löngu er
fallin inn í íslenzkt samfélag.
— Æska Islands er kröftug og
yfirfull athafnasemi. E.t.v. ef-
æskan líka mikilvægustu auð-
æfin á þessum fjárhagslegu
þengingatímum."
Bíllinn sem
hlíðir skipunum
+ 24 ára gamall banda-
rikjamaður hefur fundið
upp leikfangabil, sem
hreyfist ef talað er nálægt
honum. Bob McCaslin en
það heitir maðurinn, er full-
viss um að uppfinning hans
muni valda byltingu á leik
fangamarkaðnum um leið
og hún kemst i umferð.
Billinn tekur á móti hljóð
um i gegnum litinn hljóð-
nema. En það verður senni-
lega einhver bið á þvi að
leikfangið komi á markað-
inn, þvi allir vilja framleiða
gripinn og græða á honum.
Jón Finnsson frá
loðnuveiðum í vetur
— Króntappinn sprunginn
FYRIR helgina varð alvarleg 4, og verður skipt um vél í Sigurði
vélarbilun um borð í loðnuskip-
inu Jóni F’innssyni frá Garði og
við nánari skoðun kom f ljós, að
króntappi vélarinnar var sprung-
inn. Samkvæmt því sem Morgun-
blaðinu var tjáð f gær, er ljóst að
annaðhvort þarf að skipta um vél
í Jóni Finnssyni eða smíða nýjan
króntappa, og verður báturinn
því ekki meir við loðnuveiðar á
þessari vertfð, en Jón Finnsson
hefur alla tíð verið með hæstu
loðnuskipum.
Eins og áður hefur verið sagt
frá, þá kom einnig fram sprunga í
króntappa aðalvélar Sigurðar RE
Portúgalir
vilja saltfisk
I NYUTKOMNU hefti vikuritsins
Newsweek segir í grein um
stjórnmálaástandið í Portúgal að
af viðtölum við fólk megi ráða að
það sé orðið uggangi og þreytt á
þeim efnahagsvanda sem þjóðin
hefur átt við að búa að undan-
förnu og afleiðingum hans. Það
sem námsmenn þar í landi vilji
nú sé að fá að stunda sitt nám í
friði og sjái þann draum sinn ræt-
ast í stjórn Soaresar, en fólkið
bindur miklar vonir við að ríkis-
stjórnin komi efnahag landsins á
réttan kjöl.
Sjómanni
bjargað
— eftir að trilla sökk
TRILLA sökk á Faxaflóa á laugar-
dagskvöld. Einn maður var á og
komst hann i gúmbjörgunarbát og
var honum bjargað um borð í
Litlafell.
Maðurinn var á leið frá Hafnar-
firði til Reykjavikur á 4 tonna
trillu, Svan SH. Virðist sem
skyndilega hafi komið mikill leki
að bátnum og sökk hann, en mað-
urinn komst í björgunarbát sem
fyrr segir. Skaut hann upp neyð-
arblysi, sem sást frá landi og öðr-
um skipum, þar á meðal Litlafelli,
SVFI var tilkynnt um neyðar-
blysið, en þegar björgunarsveit
var að fara af stað, bárust skila-
boð frá Litlafelli um björgun
mannsins.
— Kvikmynda-
hátíðin . . .
Framhald af bls. 12
dór sagt: ..Lilja, sagan um
Nebúkadnesar. er samin
snemma árs 1933. Ég var
nýkominn að utan og var til
húsa á hóteli í Miðbænum um
skeið Þessi saga vaktist upp
hjá mér við stöðugar likhring-
ingar úr Dómkirkjunni ' Dom-
nefndina yfir islensku myndun-
um skipa þeir Wim Wenders,
Thor Vilhjálmsson fyrir Listahá-
tið og Baldur Hrafnkell Jóns-
son kvikmyndatökumaður. af
hálfu Félags kvikmyndagerðar^
manna Einnig er sá möauféiki
fyrrr hendi. að griski^leikstjór-'
inn Voulgaris verjk*með i dóm-
nefndinni.
Auk þeitra (H^nda. sem hér
hafa verið taldar, verður einnig
sýnd á hátíðinni myndin Life
line to Cathy, sem er loka-
verkefni Ágústs Guðmunds-
. 'sonar frá National Film-
skólanum i Bretlandi Sam-
kvæmt sérstöku punktakerfi.
sem hátiðin hefur sett upp til
ákvörðunar um hvort mynd sé
islensk eða ekki, telst þessi
mynd ekki gjaldgeng i sam-
keppnina
í allt verða sýndar á hátiðinni
1 9 myndir frá 1 4 þjóðlöndum
Á þessari fyrstu kvikmyndahá-
tið á íslandi hefur verið lagt
kapp á að fá hingað umtalaðar
í vetur. Eru því 2 af bestu loðnu-
skipum íslendinga frá veiðum í
vetur vegna svipaðrar vélarbilun-
ar.
Fangaupp-
reisn í
Saragossa
Saragossa, 30. janúar. Reuter.
TVEIR fangar brunnu inni eftir
að allt fór í bál og brand í fangelsi
i Saragossa í dag. Um 160 fangar
gerðu uppreisn og enda þótt fjöl-
mennt lögreglulið kæmi til liðs
við fangaverði tókst ekki að koma
í veg fyrir að fangarnir næðu
hluta fangelsisins á sitt vald og
kveiktu í.
Að undanförnu hefur
ófremdarástand rikt í spænskum
fangelsum þar sem venjulegir
fangar hafa krafizt náðunar til
jafns við pólitíska fanga, en þetta
er í fyrsta sinn sem átök af þessu
tagi verða mannskæð.
14 látnir
og 30 enn
saknað eft-
ir eldsvoða
Kansas City, 30. jan. Reuter.
FJÓRTAN manns fórust og þrjá-
tíu er enn saknað vegna eldsvoða
sem upp kom f hóteli hér um
helgina. Lögreglan óttast að fleiri
hafi látist en þeir 14 sem þegar er
vitað um. Eldsupptök eru ókunn.
Eldsvoði kom upp í Coates
House hótelinu á laugardaginn,
og misstu yfir hundrað manns þá
heimili sín, en húsið hefur að
mestu verið notað til að hýsa fá-
tæklinga og eldra fólk hin síðari
ár. Tíu lik fundust strax í rústun-
um en fjórir hinna fjórtán létu
lífið er þeir reyndu að bjarga sér
með því að stökkva út úr húsinu.
Lögregla telur að við nánari leit
kunni fleiri lik að koma i ljós i
rústum byggingarinnar sem var
sjö hæða.
og þekktar myndir trá öllum
heimshornum. sem annars
yrðu ekki sýndar hér og með
þvi að fá hingað starfandi kvik-
myndageröarmenn, sem hafa
og eiga eftir að hafa áhrif á
kvikmyndamenningu heims-
ins. er brotið blað i kvikmynda-
sögu islands Jafnframt þessu
verður lagt fram. og jafnyel
samþykkt. frumvarp til lag'a um
kvikmyndasjóð istafids eig
Kvikmyndasafn.sfím á eftir að
hafa ómæld-^áhrif á fslenska
kvikmyrjdagerð - Kvikmynda-
hátiðth er þyi- haldin i sama
anda og Listahátið. þannig að
-' unyTeið og boðið er upp á
f;ölbfeytt val erlendra kvik-
mynda stefnir hátiðin að þvi að
hleypa grósku i innlenda kvik-
myndagerð
Miðaverð á hátiðina er það
sama og á venjulegar sýningar
og vafalitið verður hún fjölsótt
Ætlunin er þá i framtiðinni að
halda slika kvikmyndahtið á
tveggja ára fresti, á sama hátt
og Listahátið Kvikmyndahátið-
in verður opnuð 2 feb kl
15:30 i Háskólabiói og setur
borgarstjórinn, Birgir ísleifur
Gunnarsson. hátiðina bá mun
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra flytja
ræðu Menntamálaráð mun af-
henda kvikmyndastyrk ársins
1978 og að þvi loknu flytur
Wim Wenders ávarp Eftir það
verður sýnd mynd hans.
Amertski vinurinn
SSP